Tíminn - 23.09.1961, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, laugardaginn 23. september 1961,
MINNING:
Jón Konnráðsson
Hinn 7. þesa mánaðar lézt að
heimili sinu, Hátúni 4, Reykjavík,
Jón Konráð'sson smiður og fyrr-
verandi bóndi á Hafnarhólmi í
Strandasýslu.
Jón var fæddur 23. september!
1890 að Kaldrananesi í Stranda-
sýslu og hefði því orðið 71 árs í
dag, ef honum hefði enzt aldur
til. Hann var sonur Konráðs Sig-
urðssonar bónda í Stóru-Ávík, ‘
Hjaltasonar bónda á Hólum, Jóns
sonar bónda á Grænanesi. Móðirj
Jóns var Þorbjörg Jónsdóttir frá
Kaldrananesi, Guðmundssonar
bónda s.st. Jón ólst upp við alla
algenga sveitavinnu eins og hún
gerðist á þeim tíma. Snemma
, hneigðist hugur hans að smíðum!
og lauk hann námi í trésmíði um
fullorðins aldur.
Árið 1916 hóf Jón búskap á(
Hafnarhólmi, og bjó hann þar í.
30 ár eða til ársins 1946, en þá:
fluttist hann til Reykjavíkur og
átti þar heima upp frá því. Jón
bjó góðu og sérlega snyrtilegu
búi á Hafnarhólum, enda hefur
snyrtimennska og hirðusemi,
ásamt góðri reglu flestu fremur
einkennt störf hans. Hann var alla
jafna snemma til starfa, ekki að-
eins að morgni dags, heldur og
einnig og ekki síður í árstíða-
störfum, en slíkt ræður oft all-
miklu um afrakstur og uppskeru
hjá búandi fólki.
Á búskaparárum sínum byggði
Jón öll hús á jörð sinni og rækt-
aði nokkuð. Allt var þetta vandað
og smekklega unnið, enda vann
hann þessar framkvæmdir sjálf-
ur með eigin höndum og aðstoð
barna sinna. Öll var umgengni og
umhirða jafnt úti sem inni til fyr-
irmyndar. Þar var jafnan hver
hlutur á sínum stað og aldrei nein
óhirða á einu né öðru. !
Eftir að Jón flutti til Reykja-
víkur vann hann eingöngu að
smíðum og hafði alla jafna nóg
að starfa. Hvað ráðið hefur mestu
um, að hann breytti um lífsstarf, |
kominn * léttasta skeiði og flutti j
úr byggð í bæ, er mér ekki vel
kunnugt. Eg býst þó við, að þar
hafi ráðið allmiklu /m, að honum
hefur fundizt, að börn sín, a.m.k.
flest, væru hneigðari til annarra
starfa en búskapar. Mörg eru þau
listhneigð og hafa unnið sér rétt-
indi í, ýmsum iðngreinum. Sum
hafa fengizt við myndlist í tóm-
stundum sinum og ekki með síðri
árangri en ýmsir aðrir.
Jón var kvæntur Guðbjörgu
Gestsdóttir frá Hafnarhólmi Krist
jánssonar, Jóhannessonar frá
Kleifum og konu hans Guðrúnar
Árnadóttur, Jónssonar, Hannesson
ar, Lifir hún mann sinn. Þau
hjón eignuðust 12 börn og eru
11 þeirra á lífi. Það er gott lífs-
starf og mikið átak að koma til
góðs þroska og menningar svo
stórum barnahóp. Þetta hefur
þeim hjónum tekizt með prýði,1
þrátt fyrir það að Guðbjörg hafi
verið iíkamlega fötluð frá því
um miðjan aldur.
Guðbjörg hefur verið manni sín
um traustur lífsförunautur. Það
hefur fallið vel á með þeim hjón
um. Þau hafa virt og elskað hvort
annað. Eg vissi, að Jón mat konu
sína mikils og fór mjög að ráðum
hennar. Þetta var áreiðanlega aðj
verðleikum, því að hún er mikil
hæfileika og skapfestukona og hef
ur átt sinn þátt í góðum árangri
af lífsstarfi þeirra og lífsham-
ingju.
Ég votta henni og bömum
þeirra samúð mína og þakka jafn
framt einlæga og hlýja vináttu.
Til þeirra var gott að koma. Þar
fór saman myndarskapur, ein-
lægni og alúð ,og þar var enginn
utangarðsmaður.
Jón var lengst af hraustur og
sístarfandi, en á s.l. vetri veikt-
ist hann og lá all-lengi. Hann
komst þó á fætur og var hress, þó
ag ekki gæti hann unnið. Jafnan
var hann glaður og reifur, við-
mótið hlýtt og einlægt. Hann var
andlega heill og hraustur sem
miðaldra maður og bar óvenju
lítil merki líkamlegrar hrörnun-
ar eftir aldri. Flestum kom því á
óvart hið skyndilega fráfall hans.
En huggun og harmabót er að
eiga minningu um góðan eigin-
mann og föðúr, góðan vin og fé-
laga. Öll lærum við nokkuð hvert
af öðru á lífsleiðjnni. Hugstæðust
verður mér ætíð yfirlætislaus
prúðmennska «Jóns í framkomu og
dagfari. Vertu sæll, frændi. Bless
ug sé minning þín.
J.S.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í þeim iðngreinum sem löggiltar eru,
fara fram í október/nóvember 1951.
Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að senda for-
manni viðkomandi prófnefndar umsóknir um próf-
töku emenda sinna, fyrir 5. október n.k.
Umsóknum skulú fylgja venjuleg gögn og próf-
gjald.
Skrifstofa iðnfræðsluráðs veitir upplýsingar um
formenn prófnefnda.
Reykjavík, 21. september 1961.
Iðnfræðsluráð.
Ær til sölu
Til sölu eru nú þegar ær á
góðum aldri ásamt heyi.
Nánari upplýsingar gefur
Stefán Guðnason frá Karls-
skála og kaupfélagsstjórinn
á Eskifirði.
Verkfærakassar
Ódýrir — Hentugir.
Póstsendum.
= HÉÐINN =
Vélaverzlun
Seljavegi 2, simi 2 42 60
Til sölu
4 herb. íbúð í Laugarness-
hverfi. Félagsmenn sem
vilja nota forkaupsrétt að
íbúðinni snúi sér til skrif-
stofunnar Hafnarstræti 8
fyrir 28. sept.
B.S.S.R.
sími 23873.
.•V* X_- V
ixat>v tiL'ó «*
Höfum BÍsiov trV «v'.i
ensk
fataefni
fyrirliggjandi. — Verð hag-
stætt.
Það bezta er alltaf ódýrast.
H. ANDERSEN & SON
Aðalstræti 16.
—■V.--V.* V.. vv. v. V.V.V*V*V*V*V
VARMA
Allt á sama stað
BIFREIÐALYFTUR
STUÐARALYFTUR
Sendum gegn kröfu.
Egill Vilhjálmsson h.f.
Laugaveg 118, sími 2-22-40.
►.V.V»V»V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V*V.V.V.V*V»V*V*V«V«V»V
Gjaldkerastörf
Óskum eftir að ráða stúlku vana gjaldkerastörfum
eða hliðstæðum störfum til starfa í skrifstofu aðal-
gjaldkera félagsins.
Skriflegar umsóknir, er greini aldur, menntun og
fyrri störf, skulu sendar til féiagsins merktar gjald-
kerastörf eigi síðar en 28. þ. m.
Nr. 24/1961.
TILKYNNING
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á steinolíu og gildir verðið hvar sem er á
landinu:
Selt í tunnum, pr. líter............. Kr. 2.33
Mælt á smáílát, pr. líter............ — 2.80
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 22. sept. 1961.
Verðlagssfjórinn.
PLAST
Þ. Þorgrimsson & Co.
Borgartúni 7. sími 22235.
Önnumst viðgerðir
og sprautun á reiðhjólum,
hjálparmótorhjólum, barna-
vögnum o fl.
Uppgerð reiðhjól og barna-
vagnar til sölu.
Reiðhjólaverksfæðið
Leiknir
Meigerði 29, Sogamýri.
Sími 35512.
Jörðin SAURHÓLL
í Saurbæjarhreppi, Dalasýslu, er laus til ábúðar frá
næstu fardögum. Hús á jörðinni eru öll nýbyggð.
Nánari upplýsingar gefa: Eigandi jarðarinnar, Ell-
ert Halldórsson, Saurhóli og Baldur Guðmundsson,
Drápuhlíð 30, Reykjavík, sími 23176.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilega, þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á
einn og annan hátt í tilefni af sjötugsafmæli mínu
þ. 18. þ. m.
Friðgerður Marteinsdóttir,
Fossi, Barðaströnd.
Maðurinn minn og faðir okkar
Guðjón Kr. Ólafsson,
Ölvaldsstöðum,
lézt að heimili sínu 19. þ.m.
Margrét Ágústsdóttir og börn.