Tíminn - 18.10.1961, Page 8

Tíminn - 18.10.1961, Page 8
i. Á neðri myndinni sjást flekabúarnir mæna kaffihungruðum augum til lands, en á efri myndinni eru bryggjusmiðirnir önnum kafnir við að smíða 'undirstöðu fyrir hamarinn. :;.i ' : :: T1M 1 NIV, miðvikudaginn 18. október 1961 Ástalífið úr sögunni Nú er grandiyn, sem tengir Ör- firisey við meginlandið orðinn þýðingarmeiri, og alls staðar á honum eru menn athafnanna að ver'ki. Þegar blaðamaðurinn rólar eftir grandanum, heyrir hann öskur mikil og óp skammt frá landi. Honum dettur auðvitað strax í hug, að einhver hafi dottið í sjó- inn og sé að drukkna, tekur und- ir sig stökk, hleypur^fremst fram Athafnalífið tekur við Einu sinni fó^u menn með elskurnar sínar út í Örfirisey, meðan sólin málaði sjóinn rauðan, og gláptu í augun á þeim og héldu í hendurnar á þeim og létu ástföngnum hjörtum sínum blæða út í grasbældum lautum, sem geymdu andvörp, stunur og tár, þeirra mörgu, sem höfðu gengið rakleitt frá þessu ást- arinnar glápi í hjónarúmið og aldrei komið í Örfirisev síðan. — Eftir að aldamótarómantík- in var búin að dansa af sér skóna út í Örfirisey og var horfin þaðan fyrir fullt og allt, minntust hennar með því að halda þar apasýningu öll- um Revkjavíkurbörnum til mikillar gleði. En aparnir voru svo frekir til ásta hver í ann- ars garð. að siðprúðar konur máttu ekki friði halda, og hurfu þeir til heimky.nn^ sinna, aftur, og þar meðiiltí®tiástaMf eyjarinnar undir lok og at- hafnalíf kom í staðinn. á bryggjuna og þrífur — ekki björgunarhringinn — myndavél- ina og reynir að koma auga á þann drukknandi. Hrópin verða marg- radda með gelti og híi á milli, og það er auðheyrt, að það er enginn að drukkna. — Úti á höfninni ligg ur prammi með húsi og járntrjónu sem maður stendur upp i og galar og baðar út höndum. Á flekanum fyrir neðan trjónuna eru nokkrir menn, sem líka eru galandi. Tveir menn standa á bryggjunni og hringa saman slepjulegan kað- al. Þeir gjóta augunum til pramm- ans og það tístir í þeim hláturinn. — Pantið þið dráttarbátinn, æpa þeir á prammanum, og ann- ar maðurinn á bryggjunni hættir að hringa kaðalinn og hrópar: — Við erum búnir að panta hann! — Pantið þið bátinn! öskra flekabúar. Mennirnir á bryggjunni hrissta hausinn glottandi. — Þeir heyra ekki neitt, og þeir halda áfram að hringa kaðalinn óg glotta. - — Af hverju eru þeir að kalla? sþyr blaðamaðurinn. — Þeir vilja víst komast í kaffi. Það er búið að panta bátinn. Hann hlýtur að koma strax. Annars held ég, að væsi ekki um þá þarna úti. Það er ketill inni í kofanum, svo að það er hlýtt hjá þeim. Mennirnir á prammanum halda áfram að kalla, og nú eru þeir farnir að steyta hnefana — senni- lega bölva líka. — Hvað eru þeir að álpast þarna á prammanum? — Við notum prammann við að ramma skúffurnar. við bryggjuna, sem verið er að gera hérna. Við erum búnir að ramma öðrum meg- in og fyrir endann á henni, og nú er verið að byggja undir teinana, sem hamarinn rennur eftir hinum megin. Hann slær skúffurnar nið- ur. Það er ógurlegt verk að byggja undir hann, — þetta er svoddan gríðarbákn. Það tekur ekki lang- an tíma að reka skúffurnar niður. — Hvenær var byrjað á bryggj- unni? — Það var byrjað á henni í vor. Dráttarbáturinn kemur með lít- ið fiskisjcip við hlið sér og ýtir því upp að bryggjunni, og mennirnir á prammanum æpa til hans hver í kapp við annan og benda honum að koma. v — Þeir eru orðnir langeygðir eftir kaffinu, greyin. — 0, það væsir ekki um þá þarna úti. Þeir hafa bara gott af því að bíða svolítið. Það eykur lystina. Prammabúarnir létta ankerum, og dráttarbáturinn brunar að þeim, festir taug í þá og dregur þá að landi. Þeir eru óblíðir á svipinn, þegar þeir ganga í land. — Voruð þið orðnir svangir, spyr blaðamaðurinn vingjamlega. — Já, segja þeir og bruna fram hjá að kaffiskúrnum. Bryggjan er í fæðingu. Hún er á að gizka fimmtíu metra löng og tólf metra breið trébryggja, sem verður girt járnskúffum allt í kring. Hún stendur á traustum og digrum staurum, sem hafa verið kafreknir í sjávarbotninn, en á (Framh. á 13. síðu.) Sveinn Víkingur: Sveit og borg Þeir voru að hringja til min frá Tímanum og biðja mig að skrifa greih í blaðið. — Þeir sögðust ætla að borga fyrir það. — Eitthvað svolítið, bættu þeir við, líklega til þess, að gréinin yrði ekki allt of löng. Svona er nútímamenningin og framfarirn- ar. Það er borgað fyrir allt. Það gerir enginn — og vOl enginn gera neitt nema fyrir borgun Aftur á móti kvað hitt vera orð ið sjaldgæft fyrirbæri í þessu þjóðfélagi, að nokkur hlutur borgi sig. Það kvað vera tap á öllu og eiga að vera það. Hér á öllum að borga fyrir allt, en ekk ert að borga sig í raun og veru Og nú fór ég að velta fyrir mér, hvort það borgaði sig, jafn vel fyrir borgun, að setjast nið- ur og skrifa grein, og um hvað hún ætti þá helzt að fjalla. Og þá kom fram í hugann allt í einu þessi merkilegu líkingatengsl. sem sálfræðingarnir stundum eru að tala og skrifa um Eitt orð minnir á annað svipað, og þannig spinnst hugsanalopinn ósjálfrátt Orðið borgun minnir mig á orðið borg, en það orð kallar aftur á móti fram, vegna andstæðutengsla, sem sálfræðin iíka kannast við, orðið sveit. Og áður en ég veit af, er komin fvr irsögn á þessa væntanlegu grein Sveit og borg. Er það ekki bara sæmilegt, ef framhaldið gæti orðið eftir því? Eg er svo lánsamur, að þekkja bæði borg og, sveit af eigin reynd. í sveitinni er ég fæddur og uppalinn. En frá fermingar- aldri má segja, að ég hafi dval- izt jafnlengi í kaupstöðum og í sveitum. Ætti ég því ag þekkja bæði borgarlífið og sveitalífið sæmilega og þær stórfelldu breytingar, sem átt hafa sér stað á báðum þessum sviðum síðustu áratugina og raunar það, sem af er öldinni. Hér eru engin tök á því að lýsa þeim breytingum, sem orðið hafa í sveitum lands- ins frá því ég var drengur og ólst þar upp né heldur til þess að gera samanburð á Reykjavík skólaára minna fyrir meira en fjörutíu og fimm árum og höf- uðstaðnum eins og hann er í dag. Hitt vildí ég aftur á móti benda á, að sveit og borg er og hefur alltaf verið sitt hvað og hvort öðru ólíkt. Sveitalif og borgarlíf þarf að vísu ekki að vera neinar andstæður, en þau hljóta eigi að siður að verða hvort með' sinum blæ og eiga að vera það Hvort fyrir sig hef ur sína kosti og líka sína sér stöku galla Og þessir kostir os þessir galiar geta verið svo ó líkir, að við liggi fullkominni andstæðu Ti) dæmis að taka hefur einangrunin og fásinnið löngu.m verið talið ti) verstu ókósta sveitalífsins. Hins vegar er það einn mesti galli höfuð staðavlífsins. að þar er bókstaf lega enginn friður fyrir fólki erli og umferð. Þar er það bein- Séra SVEiNN VÍKINGUR línis næðið og einveran, sem mann ,skortir allra tilfinnanleg- ast. Nú er það engan veginn ætl- unin að fara hér í samanburð eða meting á milli sveitar og borgar. Það er engum til ávinn íngs eða góðs að metast á um það, hvort betra sé í sveitum eða borgum eða ala á úlfúð og tor tryggni þar á milli Hitt mun okk ur betur endast til 'hamingju. hvort sem við eigum heima i borg eða sveit* að reyna að sjá kostina. reyna að njóta þess bezta, sem hvort um sig hefur að bjóða okkur og efla það eftir i getu En hins verðum við iafn- framt að vera mmnug, að borsin er eitt og sveitin annað, og læra að haga lífinu í samræmi við þá staðrevnd Sá, sem á annað borð hefur valið að búa í borg, hann verð ur að gera sér ljóst, að þar getur hann ekki notið kyrrðar og un-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.