Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 9

Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 9
TI M I N N, miðvikudaginn 18. október 1961 9 Við erum ailtaf að reyna að ná tii sjómannanna Jónas GucJmundsson rætíir viíS Pál Ragnars- son, skrifstofustjóra skipaskotJunarinnar Margir telja, að gúmmíbáturinn hafi beðið nokkurn álitshnekki þessa síðustu daga, þar sem skips- brotsmenn af Helga áttu í erfið- leikum með að blása upp björgun- arbátinn, eftir að brotsjór hafði sett skipið á hliðina. Við ræddum við Pál Ragnarsson, skrifstofu- stjóra hjá Skipaskoðun ríkisins, en Páll hefur auk ágætrar mennt- unar langa reynslu í sjómennsku. DAUFAR UNDIRTEKTIR — Það er fyrst til að taka, seg- ir Páll, að við reynum allt, sem í okkar valdi stendur til þess að út- breiða þekkingu á bjargtækjum meðal sjófarenda. Þá ekki sízt á gúmmíflekunum svonefndu. En því miður hafa sjómenn ekki sýnt nægilega mikinn áhuga á þessum málum. Við höfum boðið þeim að heimsækja löggildingarverkstæð- in og kynnast þar bátunum innst sem yzt, en sárafáar skipshafnir hafa notfært sér það. Þó eru til undantekningar. Vestmannaeying- ar hafa til dæmis alltaf sýnt út- breiðslustarfi okkar mikinn áhuga. Líka höfum við reynt að senda menn sérstaklega út um land til þess að sýna aðferðir og meðhöndl un gúmmíbáta. Þessi sýnikennsla hefur lítið verið sótt, segir Páll Þú veizt, að á skipunum sjálfum er h'till tími til að halda æfingar og kynna mönnum bjargtækin. Það er eins og manni finnist, að ekki geti komið neitt fyrir mann sjálfan. KVIKMYNDIR OG SKÓLAR — Við höfum, eins og margir vita, heldur Páll áfr’am, gefið i?t sérstakt spjald, er sýnir nákvæm- lega og á skýran hátt allt, sem máli skiptir við sjósetningu gúmmíbáta. Eg er viss um, að all- ir, sem kynna sér þetta spjald, eiga að geta sett gúmmíbát á sjó, blásið hann upp og komið honum á réttan kjöl. Núna er ráðgert að fá kvikmyndir til sýninga, t. d. í landlegum, sem aukamyndir í kvik myndahúsum, og við höfum meira að segja hugleitt að kenna með- ferð gúmmíbáta í framhaldsskól- um landsins. Til þessa hafa sjó- mannaskólarnir verið þeir einu, sem kennt hefur verið í. VIÐIIALD BÁTANNA — Teiur þú, að til mála geti komið, að ókleift sé að blása bát- ana upp, þegar aðstæður eru erf- iðar? — Þetta hafa sumir orðað, eink um eftir að skipverjar á Helga lentu í miklum erfiðleikum með gúmmibátinn. Annars vil ég ekki ræða það atriði sér'staklega. Þó vil ég geta þess, að báturinn hef- ur verið skoðaður og var í full- komnu lagi. Rætt var við þá, sem af komust, og ekkert kom fram, sem sannar annað. — Eru til bátar, sem blása sig upp sjálfir, ef þeim er varpað í hafið? — Ekki eru þeir meðal þeirra tegunda, sem hingað til lands eru fluttir. Annars eru til þrýstiventl ar, sem losa bátinn frá sökkvandi skipi. Þrýstingurinn á ákveðnu dýpi losar bátinn við skipið og þegar hann flýtur upp, blæs hann sig upp sjálfur. Þetta er ágætur öryggisútbúnaður. Þó held ég, að uppblástui'sútbúnaður sá, sem nú er á bátunum, sé fullnægjandi, éf rétt er að öllu farið. ÞEKKING Á BJARGTÆKJUM SKIPSINS — Við verðum að leggja mikla áherzlu á, að allir skipverjar viti, hvað skipið hefur meðferðis af björgunartækjum. Við þekkjum meira að segja dæmi þess, að skip verjar hafi kastað sér til sunds af sökkvandi skipum án þess að hafa hugmynd um, að í kojunni þeirra er geymt lífbelti. Þetta er nú eins- dæmi, sem betur fer. Margir sjó- menn sýna þessum málum áhuga og væri; ósanngjannt að geta þess ekki. Þar heyrir undir, að hafa tækin alltaf vel hirt og í góðu á- \ sigkomulagi. Það hefur borið við, að gúmmíbátar t. d. hafa verið hroðalega skemmdir í meðförum — gagnslausir til bjöi'gunar — þegar þeir komast loksins í við- gerðarverkstæðið til skoðunar. NÝJUNGAR — Er af hálfu íslenzkra stjórn- arvalda fylgzt nægilega með nýj- ungum í björgunarmálum? — Það er nú erfitt fyrir mig að meta það, segir Páll. Það erum við hér fyrst og fremst, sem þau mál heyra undir, og því er ekki hægt að ætlast til, að við förum að tala út um þau efni. Þó vil ég geta þess, að við erum í sambandi við helztu aðila, sem kynna nýj- ungar í björgunarmálum, svo og vita helztu framleiðendur slíkra tækja urr) okkur og senda okkur upplýsingar. En þó er ekki öllu lokið. Við verðum að gera tilraun- ir með allt, sem við teljum, að vænlegt og gagnlegt gæti orðið fyrir ís'lenzkar aðstæður. Þessar tilraunir taka oft langan tíma, en þegar þeim er lokið, mælum við með eða móti einstökum tegund- um og gerðum. SENDISTÖÐVAR — Núna nýlega vorum við til dæmis að gera tilraunir með neyð- arsendistöð fyrir gúmmíbáta. Hún reyndist mjög vel og við heimil- uðum framleiðendum að selja hana til íslenzkra skipa eða sömu gerð af stöðvum. Nú getur svona stöð verið mikið öryggistæki, en þó þurfa ekki öll skip lögum sam- kvæmt að hafa svona stöðvar. Það er því mikið undir eigendum og útgerðarmönnum sjálfum komið, hvort þeir búa s'kip sín slíkum sendistöðvum. Það má geta þess, segir Páll að lokum, að langflest skip hafa aðeins þau bjargtæki, sem krafizt er að lögum, en það er lágmarkið. Útgerðar'menn ættu að kappkosta að auka við öryggis- tækin, þótt þess sé ekki endilega krafizt með lagaboði. jg. aðar sveitalífsins og þess inni- lega sambands við náttúruna og blessaðar skepnurnar, sem sveit- in hefur að bjóða. í borginni verðum við að sætta okkur við — og þykjast góð af, vegna þess að það veitist ekki nema tiltölu- lega fáum, að geta haft ofurlít- inn, grænan, gróinn blett við húsið, í staðinn fyrir hið víð- lenda tún bóndans. Við verðum að láta okkur nægja krana í eld- húsinu í staðinn fyrir bæjarlæk. Hann er að vísu handhægur og þægilegur, en gutlið í honum verður tæplega eins rómantískt og niðurinn í læknum í bæjar- gilinu. Við teljum það happ í borginni, ef þröstur verpir þar í tré eða dúfa undir húsups, en á býli bóndans er æðarvarp og allt morar þar af kríu. Vér höf- um fiskbúð í staðinn fyrir laxá og veiðivötn, skröitandi bíla í staðinn fyrir vakra gæðinga. "Torðabúr heimilisins er ísskáp: ur í eldhúsinu með fáeinum mjólkurflöskum og niðursuðu- dósum og leifum af miðdegis- matnum, sem á að hita upp handa okkur til kvöldsins. Það er nokkuð annað en gömlu, grónu sveitaheimilin með sáum í búri, fullum af súrsuðu slátri. sviðum og lundaböggum, hangin sauðakrof og magála í gömlu eldhúsi og heila sykurkassa og kornmatarsekki í skemmu eða á dyralofti. Hins vegar nýtur borgarbúmn margra þæginda umfram þá. sem í sveitinni búa Þéttbýlið hefur sína kosti og þá marga Og yfirleitt hefur fólksstraumu.r- inn hnigið frá sveitunum til bæj anna. Og það er sjálfsagt nokk uð til i því, sem Reykvíkingar segja, að menn flykkist þangað hvaðanæva. ng veffna bess. að þar sé bezt að lifa og skemmti- legast að vera. Hitt sýnist ýms- um hæpnari fuliyrðing, að þetta sé einvörðungu því að þakka, að höfuðborginni sé svo frdmúr- skarandi vel stjórnáð. Þar kynni að geta komið fleira til. En hvað. sem því líður. Sá, sem á annað borð hefur valið sér það hlut- skipti að búa í borg, hvort sem hún nú heitir Reykjavik eða eitt hvað annað, hann á að unna sinni borg, hann á að haga lífi sínu í samræmi við kröfur henn ar og þarfir, hann á að leggja fram sinn skerf. til þess að kost ir borgarlífsins og þéttbýlisins fái eflzt og notið sín sem bezt. en leitast við að draga úr þeim misfellum og ómenningu, sem borgarlífinú. því miður, oft viil verða samfara. Hann á að keppa að því, að verða borgarbúi og borgarþegn í beztu merkingu þeirra orða. Á sama hátt þarf einnig sveitafólkið að vera sveitafólk og trútt því b'ezta í sveitamenn- inguunni, þrátt fyrir breytta tíma. Það á að láta grön sía hinn görótta drykk borgarmenn ingarinnar og fara sér hægt að apa eftir siðu og háttu borgar- búanna. eins og væru þetta ein- hverjar æðri verur Bæð'i er. að ekki flýtur alltént rjóminn ofan af borgannenningunni upp um sveitirnar á samkomustaðina þar né heldur á ailt það við í sveit inni. sem í borginni getur talizt gott og gilt Eg get ekki að því gert. að mér finnst. að vifi séum að flytja of mikið af borgarmenningunni upp í sveitirnar, og það serr verst er, að við séum engan veg inn nógu vönd að, eða nógu hvgg in i því að velja þar aðeins þa? hezta np hað. snm eðlilesa getur samræmzt og sameinazt okkar ágætu sveitamenningu, sem þar hefur þróazt og þar er enn, ef eftir er leitað og að er hlúð. VisstOega geta og þurfa þeir, sem í sveitunum-búa, sitt af hverju að læra af borgarbúun- um. Sveitirnar eiga að sjálfsögðu að keppa að því, að öðlast þau þægindi og hjálpartæki, sem þar eru á boðstólum og orðin eru þar almenningseign, ag svo miklu leyti sem þetta á við í dreifbýlinu. Eg nefni þar raf- magn, vatnsleiðslur, síma og út- varp, bætt húsakynni o. s. frv. En — þarf endilega að byggja sveitabæ alveg eins og hús í kaupstað? Og þarf sveitaheim- ili endilega að vera hrein eftir- öpun af heimili í stórborg? Nei, við eigum að stefna ag því að finna þann byggingarstíl í sveit- unum, sem sameinar það hent- uga og einfalda því, sem bezt fer í íslenzku sveitalandslagi, en ekki að apa um of kaupstaða húsin. Og við þyrftum að geta fundig þjóðlegt og hentugt snið á húsgögnin sjálf, traust og ein- falt í stað alls þessa dóts, sem þykir fínt í borginni. en hæfir engan veginn þörfum sveitaheim ilanna, né heldur er í samræmi við sérkennilega fegurð umhverf isins. Eg er meira að segja svo íhalds samur. eða réttara sagt vandlát ur vegna sveitanna, að ég hef heldur ímugust á þessum sárfínu og fokdýru félagsheimilum og danshúsum, sem nú eru óðum ag rísa í sveitum landsins og þegar eru orðinn sá baggi á sveitun 'im. að ekki'er unnt að reka þau nema með þvi að stuðla ag því beint eða óbeint. að þangað sæk> í stórhópum fóik úr kaupstöð um ne siávarborpum. sem revnsl- an hefur allt of oft sýnt og er stöðugt að sýna, að ekki flytja þangað með sér allt of mikinn menningarbrag eða framkomu til fyrirmyndar öðrum. Mér er sagt — ég vildi að það væri lygi — að í þessum félagsheimiilum sóu samkomurnar oftast nær lé- leg eftiröpun lélegri dansskemmt ana í lélegri samkomuhúsum kaupstaðanna. Fokdýr hljóm- , sveit á palli, hélzt keypt langt að, ræðumaður, sem engin.n vill hlusta á, vangadans í salnum, vasapelar í laumi fyrst, en síð- an þriggja pela svartidauði haf- inn hátt á loft, áflog og stymp- ingar í forstofum, væl og öskur utanhúss, en gubb á klósettum. Eg bendi á þetta — segi frá því, sem mér hefur verið sagt af öðrum — ekki af neinum naglaskap eða af prestlegri vand lætingu. En mér finnst, að sam- koma í sveit ei.gi að vera sveita skemmtun, en ekki kaupstaðar- skrall. Mér finnst, að þar eigi hin eðlilega, einfalda, heilbrigða lífsgleði ag ráða ríkjum og setja svipmót sitt á skemmtunina. Þannig var það í sveitunum í gamla daga. Húsakynnin voru að vfsu oft lítil og of þröng, og harmonikkan lélegri en æskilegt var En menn skemmtu sér allt af konunglega. Men-n gáfu stúlk tinum hýrt auga þá ekki síður en nú, og bæði fengu hjartslátt Og fyrir kom, að koss var gef- inn og þeginn í laumi, þar gátu iafnvel gerzt svo stórir hlutir, sem trúlofun. En þær voru öðru vísi þá, og betri oftast nær, en bó einkum varanlegri. Vagga tslenzkrar menningar hefur staðið í sveitum landsins frá öndverðu. Og sveitirnar hafa mótað þá menningu um aldir. alið hana upp og sett á hana svip og sérkenni. Þær hafa varð- veitt hana og um leig tunguna og söguna. Þar hefur hún dafn að sem lifandi meiður og skotið nýjum greinum, borið nýtt barr og blöð. Borgarmenning okkar er hins vegar ung og aðflutt að verulegu leyti. Hún er enn þá lítt mótug og á gelgjuskeiði. Enn er eftir að sníða af henni marga sprota, sem vaxið hafa til ó- þurftar og hreinsa af henni ým- islegt glingur sem hengt hefur verið á greinar-nar, oft í gróða- skyni og stundarhags eða metn- aðar, en hvorki á þar heima né getur gróig við stofninn á eðli- legan og lífrænan hátt. Eg held, að það geti ekki leikið á tveim tungum, að enda þótt margt það glæsilegasta á ytra borðinu á okkar borgarmenningu sé inn- flutt — og sumt ágætt í sjálfu sér, — þá sé þó hinn trausti, lif andi kjarni hennar og stofn hinn forni þjóðlegi arfur úr sveitun- um. Og vegna þess er það, að sveitirna-r þurfa, ef vel á að fara, að beita allri gát og gleypa «kki í hugsunarleysi við öllu því, sem til þeirra berst frá borgunum. þótt glæsilegt kunni að sýnast á yfirborðinu. Stofn íslenzkrar þjóðmenning- ar er í sveitum landsins og hefur staðið þar frá öndverðu. Sveit- unum ber að vernda þann stofn og hlúa að greinum hans. Annað er óheilbrigt og ekki sæmandi. — Já. beinlínis hættulegt. Sveita fólkið þarf ekki og á ekki að hafa neina minnimáttarkennd gagnvart kaupstaðarbúanum né apa eftir siðum hans og háttum dómgreindarlítið eða dómgreind arlaust, heldur skyldi það minn- ugt hins forna málsháttar, að ekki er allt gull, serrn glóir. (Framh. á 13. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.