Tíminn - 04.11.1961, Qupperneq 16
282. blað
Laugardaginn 4. nóvember 1961
Sprengdur
draugur
Eftir margar tilraunlr hefur
Krústjoff loksins á nýafstöSnu
flokksþingi, tekizt að sprengja
hlnn látna fyrirrennara sínn í
atómtætlur. (Bo Bojesen teikn
aðl).
Snjóblásararnir eyðilðgðus!
í brunanum í Meistaravík
Talað vit$ Ástvald Eiríksson ,sem var staddur í
nánd viS (lugvöllinn, þegar geymsluhúsin brunnu
eldinn, en það var þýðingarlaust.
Þetta var timburhús, timburstoðir
og timburklæðning á veggjum, en
bárujárnsþak.
— Hvenær var húsið full-
1 brunnið?
— Það var um fimm-sex leytið,
þrem til fjórum tímum eftir að
eldsins varð vart.
Engu varð bjargað
— Engu bjargað?
— Nei. Þeir hringdu til náma-
þorpsins og báðu um hjálp þaðan.
Bíll með iitla dælu var sendur
niður eftir, en hann gerði ekkert
gagn.
— Þeir hafa náð til vatns?
— Já, þeir hafa borholu þarna.
Varla hægt að starfrækja
flugvöllinn
— Verður hægt að starfrækja
flugvöllinn í vetur?
— Það er vafamál. Nú hafa þeir
I bara ýtur og veghefla. Þessi tæki
1 hlaða snjónum upp með brautun-
í um, svo það er hætt við, að flug-
I völlurinn lokist. Þeir voru með
I tvo snjóblásara, sem fóru í eldin-
ÁSTVALDUR EIRÍKSSON
Aðfaranótt 19. fyrra mán-
aðar kom upp eldur í rafstöðv-
ar- og geymsluhúsi í flughöfn
inni í Meistaravík. Húsin voru
alelda, þegar flugvallarstarfs-
menn urðu brunans varir.
Engu varð bjargað úr eldin-
um. Flugvallarstarfsmenn
fengu ekki við hann ráðið, og
brunnu húsin til kaldra kola
þá nótt.
Ástvaldur Eiríksson, slökkviliðs-
maður á Keflavíkurflugvelli, var
staddur i námaþorpinu skammt
frá Meistaravík, þegar bruninn
varð á flugvellinum. Hann sendi
Tímanum fréttaskeyti um eldsvoð-
ann. Ástvaldur er nú kominn til
Reykjavíkur. Við hittum hann
heima á Lokastíg 25 í gær og
ræddum við hann um þennan at-
burð.
Hindraði brottför
Ástvaldur flaug til Meistara-
vikur 14. október til að sækja flug
vél, sem námafélagið hefur leigt
hjá þýzku fyrirtæki. Vélin er af
Dorniergerö, en námafélagið hafði
tvær slíkar vélar í notkun. Félagið
hafði ábyrgzt flutning vélarinnar
til Reykjavíkur. Ásmundur átti að
leggja af stað við fyrsta tækifæri,
en veðráttan hindraði för hans og
tafðist hann til 1. nóvember.
200 fermetra bygging
— Hvenær urðu þeir varir við
brunann, Ástvaldur?
— Klukkan tvö um nóttina. Þá
voru húsin aletda, verkstæði, bíla-
geymsla og rafstöð. Þetta var ein
stór bygging, nær 200 fermetrar.
— Hvar bjuggu starfsmenn-
irnir?
— Þeir búa í öðru húsi, 15,—20
menn.
— Er vitað um eldsupptök?
— Nei, um það er ekkert vitað.
— Engar getgátur?
— Eg heyrði ekkert slíkt.
Slökkvidælur dugðu ekki
— Hvað aðhöfðust starfsmenn-
irnir?
— Þeir notuðu slökkvidælur á
um, auk þess þrír bílar, tvær dísil
rafstöðvar og verkfæri. Tjónið er
metið hátt á aðra milljón danskra
króna.
— Hvar fá þeir rafmagn nú?
— Þeir hafa lítinn rafal og
knýja hann með volkswagenmótor.
Það er náttúrlega ófullnægjandi.
— Þannig verður þetta í vetur?
— Þarna verður ekkert byggt
fyrr en næsta sumar, þegar skip
komast til Meistaravíkur. Og stór
verkfæii eins og snjóblásara flytja
þeir ekki i flugvélum.
(Framhald á 15 slðu >
U Thant var útnefndur
framkvæmdastjóri í gær
Velur sjálfur aðstoðarmenn
NTB—New York 3. nóv. —
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna útnefndi U Thant frá
Burma bráðabirgðafram-
Lentu á tindi Mont Blanc
Þrír menn stukku nýlega úr fallhlíf fyrir ofan tindinn á Mont
Blanc, hæsta fjalli í Evrópu. Einn þeirra sést hér á leiðinni niður.
Hann lentl á blátoppinum.
kvæmdastjóra samtakanna í
dag. Skal hann gegna stöðunni
þar til í apríl 1963.
Ákvörðun öryggisráðsins um út-
nefningu Thant verður nú vísað
til allsherjarþingsins til formlegr-
ar viðurkenningar. Ákvörðunin var
tekin á 40 mínútna löngum, lok-
uðum fundi í öryggisráðinu í dag.
Tillagan uin að útnefna hann kom
frá þrem ríkjum, Ceylon, Líberíu
og Sameinaða arabiska lýðveldinu.
Útnefnir aðstoðarmennina
sjálfur
Forseti öryggisráðsins fyrir nóv-
embermánuð, Valerian Zorin, að-
2 sprungu
í fyrradag
NTB—Washington 2. nóv.
Bandaríska kjarnorkunefndin
tilkynnti í dag, að Rússar
hefðu sprengt samtals 30
sprengjur síðan 1. sept. s. I.,
er þeir hófu tilraunir að nýju,
þar af hefðu þeir sprengt tvær ,
í morgun.
Þær voru sprengdar í grennd j
við Novaja Semlja og voru báðar
af millistærð, þ. e. ekki meira en ]
500.000 lestir af TNT-sprengiefni. i
Krústjoff sagði nýlega í ræðu, að
tilraununum lylci með 50 mega-;
tonna sprengjunni fyrir október-
lok, en síðan 30. okt. hafa þeir
sprengt 4 sprengjur. — Sendiherra
Sovétríkjanna í Tyrklandi, sem
kom í kvöld til Istanbul frá
Moskvu, sagði, að sprengjan 30.
okt. s. 1. hefði verið 57 megatonn
að styrkleika.
alfulltrúi Sovétríkjanna hjá S.Þ.,
stjórnaði umræðufundinum í dag.
Hann hafði einnig mikilvægu
hlutverki að gegna í þeim undir-
búningsviðræðum, sem fram fóoi,*
áður en ráðið kom saman. Eins
og fyrr segir er U Thant ætlað að
gegna aðalframkvæmdastjórastarf-
inu fram í apríl 1963, en þá lýkur
kjörtímabiii Dags Hammarskjölds.
Búizt er við því, að eftir að alls
herjarþingið liefur veitt honum
viðurkenningu sína muni hann
birta opinbera yfirlýsingu, þar
sem hann skuldbindi sig til að
vinna í anda hins gagnkvæma^
skilnings. Það varð að lokum úr,
að hann á sjálfur að útnefna og
velja sér ráðgjafa eða aðstoðar-
framkvæmdastjóra, sem hafa eiga
nána samvinnu við hann.
Sem framkvæmdastjóri S.Þ.
mun U Thant fá 68.000 dollara árs
laun, en auk þess íbúð efst í bygg-
ingu S.Þ., íbúð við Park Avenue
og sinn eigin lífvörð.
Vetraráætlun
Loftleiða
Sumaráætlun Loftleiða, sem
hófst 1. apríl s. 1., er nú að verða
lokið og hófst vetraráætlunin
1961/62 s. 1. miðvikudag, 1. nóv.
en ferðum verður haldið uppi
samkvæmt henni þangað til 31.
marz 1962.
Með nýju vetraráælluninni fækk
ar ferðunum úr 8 vikulegum niður
í 7, fram og aftur milli Ameríku
og Evrópu.
Flognar verða fjórar ferðir i
viku milli íslands og Noregs, þrjár
til og frá Danmörku, tvær til og
frá Stóra-Bretlandi, Svíþjóð, Þýzka
landi og Lúxemborg, vikulegar
ferðir til og frá Hollandi og Finn-
landi, en viðkomustaðir verða hin-
ir sömu og fyrr, Glasgow, Osló,
Gautaborg, Kaupmannahöfn, Amst
Framhald a 15 síðu.