Tíminn - 10.11.1961, Qupperneq 6

Tíminn - 10.11.1961, Qupperneq 6
6 T í MIN W, föstudaginn 10. nóvember 1961. fyrir tveimur árum, og við hefðum varla haft bolmagn til þess að Jceppa við þau stórfyrirtæki, sem ráða markaðnum. Því taldi ræðu- maður oft geta verið vafasamt fyr ir litla þjóð að taka á sínar herðar einar þá miklu áhættu, sem getur fylgt nýjum stóriðnaði. í slíkum tilfellum taldi ræðumaður því æski legra að leita samstarfs við erlent áhættufjármagn, sem hefur sæmi- lega öruggan markað fyrir fram- leiðsluna. í fáum orðum sagt: Vegna þeirr- ar tækniþekkingar, sem okkur skortir, og vegna þeirrar miklu á- hættu, sem getur fylgt eigin upp- byggingu nýrra atvinnuvega, taldi ræðumaður rétt að leita samstarfs við erlent áhættufjármagn. Einnig bætti hann því við, að okkur myndi að öllum líkindum reynast útilokað að fá að láni allt það fjár magn, sem við þörfnumst til þess að tryggja þá uppbyggingu atvinnu vega okkar, sem nauðsynleg verð- ur að teljast, ef þjóðin á að lifa við stöðugt batnandi lífskjör. Ræðumaður benti síðan á ýmsa annmarka við erlent áhættufjár- magn: 1. Það er eðlileg stefna okkar, að náttúruauðæfi landsins séu að- eins nýtt af innlendum aðilum. Hins vegar taldi ræðumaður, að þá yrðu menn að gera það upp við sig, hvort þeir vildu heldur láta vatnið streyma til sjávar um áratoil, fremur en að virkja foss- ana og selja raforkuna erlendum aðilum m?ð töluverðum hagnaði báðuni til handa. Enda gæti komið til greina, að vatnsafl yrði áður en varir ósamkeppnisfært við aðrar orkulindir. 2. Ræðumaður taldi, að stórfyrir tæki myndu eðlilega vilja fremur loka útibúum sínum erlendis, ef samdráttur yrði á sölu, en heima. Benti hann á, að þetta mætti reyna að fyrir'byggja, þegar atvinnuleyfi væri veitt. 3. Ræðumaður viðurkenndi, að tekjur hins erlenda fyrirtækis kæmu þjóðarbúinu ekki að eins miklum notum og tekjur íslenzks fyrirtækis myndu gera. Eðlilegt yrði þó að teljast, að eigandi hins erlenda fjármagns fengi sínar tekj ur. Án þess væri ekki við því að búast, að hann hefði áhuga á að festa fjármagn í landinu. - A3 ofangreindum atriðum athug uðum, komst ræðumaður að þeirri ákveðnu niðurstöðu, að okkur bæri að' leita samstarfs við erlent áhættufjármagn um uppbyggingu okkar atvinnuvega og fá þannig nauðsynlegt fjármagn, reynslu og öryggi til þess að tryggja hér svip aða efnahagsþróun og á sér stað í nágrannalöndunum og þar með þau lífskjör, sem við viljum við una. Hins vegar taldi ræðumaður ekki rétt að leyfa erlendum aðil- um virkjun fallvatna okkar eða fiskveiðar. Erlent fjármagn í Noregi Skömmu eftir síðustu aldamót hófu Norðmenn að veita erlendum fyrirtækjum leyfi til atvinnurekst- urs í landinu og voru slík fyrir- tæki afar áhrifamikil í norsku at- vinnulífi, ekki sízt á árunum 1918 —1938. Eftir síðari heimsstyrjöld- ina höfðu Norðmenn hins vegar eignazt verulegan hluta af hinum erlendu fyrirtækjum, meðal ann- ars ýmsa þýzka eignarhluta, og minnkaði þá hlutur erlendra fyr- irtækja verulega. Norðmenn hafa hins vegar nú síðari árin lagt á það vaxandi kapp, að fá erlend iðnaðarfyrir- tæki til landsins, og má segja, að það sé nú fastur liður í efnahags- stefnu þeirra, en eins og kunnugt er, hefur hinn kunni Norðmaður Tryggve Lee haft það meginverk- efni undanfarin ár, að fá erlend fyrirtæki til landsins. Ræðumað- ur kvaðsí hafa heimsótt skrifstofu Tryggve Lee, þegar hann var i Nor egi nýlega, og aflað sér ýmissa upp lýsmga. Árið 1960 voru erlend fyrirtæki í Noregi talin vera 104 talsins og af þeim eiga erlendir aðilar meiri- hluta hlutafjárins í 82 fyrirtækj- um. Árið 1958, þegar þau fyrir- tæki, sem útlendingar áttu að meiri hluta, voru um 65 talsins, unnu við slík fyrirtæki 14.600 manns og framleiðsluverðmæti þeirra nam um 1.4 milljörðum norskra króna á ári. Þá var í er- lendri eigu nálægt 13% af öllu hlutafé í norskum atvinnufyrirtækj um. Ræðumaður benti á, að áhrif erlendra fyrirtækja í Noregi hefðu verið meiri fyrir stríðið, þegar Þjóðverjar réðu Norsk Hydro og fleiri stórfyrirtækjum. Hins vegar hefur fyrirtækjum í erlendri eigu fjölgað verulega á þeim tveim ár- um, sem Tryggve Lee hefur starf- að. Bætzt hafa í hópinn 20 ný fyr- irtæki og þar af 17, sem eru að meirihluta eign útlendinga. Jafn- framt eykst mjög minnihlutaþátt- taka útlendinga í norskum fyrir- tækjum. Samtals voru á árunum 1958—’61 stofnuð 148 fyrjrtæki með erlendum eignarhlutum. Ræðumaður kvað nú unnið skipu lega að því í Noregi, að kynna er- lendum fyrirtækjum aðstöðu til at- vinnureksturs í landinu. Meðal annars sýndi ræðumaður tvo bækl inga, sem Norðmenn hafa gefið út á ensku í þeim tilgangi. í þeim er að finna ýtarlegar upplýsingar um land og þjóð og aðstöðu til at- vinnureksturs, sem ræðumaður rakti lauslega. Norðmenn hafa ekki upp á sér- staklega ódýrt vinnuafl að bjóða, en hins vegar gott vinnuafl og vinnufrið. Vinnutap vegna verk- falla hefur aðeins numið 0.06% á 9 árum. Norðmenn benda hróðugir á þá staðreynd, að Noregur stend ur meðal fremstu þjóða í tækni, enda hafi fjöldi manna, sem að rannsóknarstörfum starfar, þrefald azt á 10 árum. Lög og reglur, sem í Noregi gilda um erlenda f járfestingu Erlendur' aðili, sem vill stofna hlutafélag í Noregi, verður að full nægja eftirfarandi ákvæðum í lög- um landsins: 1. Hann verður að skrá fyrir- tæki sitt samkvæmt norskum lög- um, stjórn þess verður að vera inn lend og a. m. k. helmingur allra stjómaimeðlima að vera norskir ríkisborgarar og búa í Noregi. Undanþágu má þó veita frá þessu atriði. 2. Bæði norskir og erlendir aðil- ar verða að fá sérleyfi til virkjun- ar vatnsfalla eða beinnar nýtingar annarra náttúruauðæfa. Leyfi til virkjunar eða námuvinnslu er aldrei veitt til lengri tima en 50 —60 ára. Að þeim tima liðnum eignast norska ríkið fyrirtækið. Strangar reglur gilda einnig um þátttöku erlendra aðila í sigling- um, fiskveiðum og nýtingu skóga. Á síðari árum hafa Norðmenn ekki veitt erlendum aðilum leyfi til virkjana. 3. Erlent fyrirtæki verður að fá leyfi til þess að kaupa raforku til iðnaðar. 4. Erlent fyrirtæki verður að fá leyfi til að eiga fasteign í land- inu. Leyfi til að kaupa raforku eða eiga eða leigja fasteign er ekki háð neinum tímatakmörkunum. Að öðru leyti en þvi, sem að ofan er talið, má segja, að sömu reglur gildi um erlendan atvinnu- rekstur og innlendan. Norðmenn veita þeim ekki nein sérréttindi umfram það, sem innlendum aðil- um er gefinn kostur á. Iðnaðar- málaráðuneytið veitir leyfi til at- vinnureksturs. Ræðumaður gat þess, að ákvarð- anir Noregsbanka um yfirfærslu gjaldeyris hefðu reynzt hafa meiri heildaráhrif en nokkuð annað á er- lenda fjárfestingu í Noregi Til dæmis dró, fyrst eftir síðustu heimsstyrjöld, næstum alveg úr erlendri fjárfestingu í Noregi, þeg ar yfirfærslur voru mjög takmark aðar. Nú er frjálst að flytja ágóða og afskriftir af lánum á milli landa og norskum dótturfyrirtækjum leyft að greiða erlendum móður- fyrirtækjum sínum rannsókna- og stjórnarkostnað, gretða fyrir einka leyfi o. s. frv. Ræðumaður benti á, að þótt er- lendum aðilum væri allfrjálst að stofna atvinnufyrirtæki í Noregi, hefðu Norðmenn töglin og hagld- ar í eigin hendi, því að erlendux að ili verður að sækja um Ieyfi til að eiga eða Ieigja fasteignir eða kaupa raforku á lengri samningi, og ströng ákvæði gilda um hagnýt- ingu náttúruauðæfa. Ræðumaður vakti athygli á því, að erlendur aðili þarf ekki að leita til löggjafaþings Norðmanna um leyfi til atvinnureksturs hverju sinni, heldur er slíkt einfaldlega háð leyfi ráðuneytis, enda taldi hann það undirstöðuatriði, ef sækjast á eftir erlendu fjármagni á annað borð. að lög og reglur séu sem skýrastar og einfaldastar. Hann lagði þá áherzlu á, að lög- gjafarþingið fylgdist vitanlega á- vallt vel með þessum málum og ræddi þau oft. Ræðumaður gat um ýmsar aðrar þjóðir í Evrópu, sem lagt hafa mikið kapp á að fá erlent fjár- magn inn í land sitt, eins og t d. Dani, Hollendinga, Belga og íra. Ræðumaður kvað enga af þessum þjóðum hafa gengið eins langt og íra í því að veita erlendum aðil- um sérréttindi til atvinnureksturs í landinu umfram það, sem inn- lend fyrirtæki fá. Til dæmis væru erlend fyrirtæki skattfrjáls fyrstu 10 árin af þeim tekjum, sem fást af útflutningi, og írar hafa stofn- að fríverzlunarsvæði kringum hinn stóra Shannok-flugvöll, þar sem þeir byggja sjálfir verksmiðjuhús og leigja erlendum aðilum fyrir litið fé, enda hefur þeim orðið mikið ágengt í því að fá erlend fyrirtæki til landsins. Þá gat ræðumaður þess, að á- ætlað væri að bandarískt einka- fjármagn erlendis næmi nú um 30 milljörðum dollara. Hefði það tvö faldazt á undanförr.um 10 árum. Á ætlað væri, að fjármagn þetta mundi aukast um 3.5 milljarða dollara nú í ár. Ræðumaður lagði þó áherzlu á, að ekki væri þetta fjármagn auðfengið, því að eftir því leituðu mörg lönd. Reynsla Norðtnanna af erlendu fjármagni Ræðumaður gat þess, að Tryggve Lee hefði nýlega sagt í ræðu: „Ef það er okkar markmið að fylgja þeim efnahagslega vexti, er á sér stað í stóru iðnaðarlöndun- um, er það að mínu áliti skilyrðis- laus nauðsyn að við gerum okkar ýtrasta til þess að fá erlent fjár- magn og iðnað til Noregs“. Að vísu kvað ræðumaður vera um þetta deilt í Noregi, en stöð- ugt fleiri aðhylltust skoðun Tryggve Lee. Til dæmis hefði norski bankastjórinn Johan Mel- ander sagt i erindi nýlega: „Aug- ljóst er, að án þess erlenda fjár- magns, sem kom inn í landið eftir aidamótin. hefðu atvinnufyrirtæki eins og Norsk Hydro ekki orðið til“. — Og enn fremur hafði hann sagt: „Reynsla manna af erlend- um atvinnurekstri i landinu á seinni áratugum hefur yfirleitt verið góð. Maður getur með sanni sagt, að stefna hinna erlendu fyr- irtækja hafi á engan hátt verið lak ari séð með norskum augum en okkar eigin“ Hver er aðstaða hér fyrir er- lenda fjárfertingu? Ræðumaður taldi nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, hvað við gætum boðið erlendu fjár- magni. Hann benti á, að við höf- um ekki upp á að bjóða sérstak lega ódýrt vinnuafl, eins og t. d. írar og Hollendingar, enda væri almenningur vanur góðum lífsskil- yrðum og það væri okkur keppi- kefli. að þau bötnuðu Við höfum ekki heldur fjármagn eins og Belgar. sem bjóða fyrirtækjunum góð lán, i þeim tiigangi fyrst og fremst að fá inn tæknilega þekk- ingu, og þvi miður höfum við ekki enn þá tryggt hér efnahags- legt öryggi og vinnufrið eins og Norðmenn hafa gert. Hins vegar höfum við ódýrari raforku en þekkist í öðrum lönd- um Evrópu, nema e. t. v. í Noregi. Norðmenn bjóða nú erlendum fyrirtækjum raforku á 12—13 ísl. aura kwst. og á 10 ára samningi. Ræðumaður taldi, að hér á landi ætti að vera unnt að selja rafork- una fyrir 10 aura kwst. og á miklu lengri samningi. Kvað hann slíkt vera aðlaðandi fyrir ýmis hin stóru raforkuiðnaðarfyrirtæki, eins og t. d. alúmíníum-iðnað, og nefndi í því sambandi, að honum hefði verið tjáð í Noregi, að fá stórfyrirtæki hefðu sýnt meiri á- huga fyrir iðnrekstri þar í landi en einmitt alúmíníum-fyrirtæki. Hins vegar hefðu Norðmenn nú sjálfir komið á fót miklum alúmín- íumiðnaði og aflað sér reynslu á því sviði og væru heldur tregir til þess að veita erlendum alúmín- íumfyrirtækjum leyfi til atvinnu- reksturs í stórum stíl, þó að reynd ar væru þegar í landinu 5 erlend alúmíníumfyrirtæki. Ræðumaður benti einnig á hverahitann, sem að öllum líkind- um mætti nýta til þess að byggja upp ýmsan efnaiðnað, og hann benti á þá staðreynd, að við höf- um einhver auðugustu fiskimið í heimi, og þó að ég álíti í flestum tilfellum ekki nauðsynlegt, sagði ræðumaður, eða æskilegt að beina erlendu áhættufjármagni inn á þau svið, sem við ráðum sjálfir við, bæði tæknilega og markaðs- lega, er það staðreynd, að okkur hefur ekki tekizt að fullnýta svo okkar sjávarafurðir sem skyldi. Á vissum sviðum fiskiðnaðar gæti e. t. v. verið gott að leita sam- starfs við aðila, sem hafa full- komna þekkingu og e. t. v. ein- hverjar aðrar aðferðir en við eig- um að venjast. Loks benti ræðumaður á, að við höfum mjög gott vinnuafl, eins og t. d. rekstur Áburðarverksmiðj- unnar og Sementsverksmiðjunnar sannar. Ræðumaður lagði áherzlu á, að ekki væri nauðsynlega um að ræða stórfyrirtæki eins og aluminium framleiðslu, þegar rætt væri um erlenda fjárfestingu. Til dæmis gat hann þess, að stór minkaframleið- andi í Evrópu hefði lýst áhuga sín- um fyrir hugsanlegu samstarfi við innlenda aðila um minkaeldi hér á landi, ef slíkt skyldi leyft að nýju, enda væru aðstæður til minkaeldis mjög góðar hériendis. Að þessum aðstæðum athuguð- um kvaðst ræðumaður vera sann- færður um það, að fá mætti erlent áhættufjármagn til landsins til hagsbóta fyrir okkur fslendinga, ef okkur tekst að skapa hér efna- hagslegan grundvöll, sem er frjó- samur fyrir vöxt og viðgang at- vinnurekstrar almennt. Reglur um erlenda fjárfestingu liér á landi Ræðumaður lagði áherzlu á nauðsyn þess að athuga reynslu annarTa þjóða af erlendu áhættu- fjármagni og lög og reglur, sem þar gilda, og laga að innlendum staðháttum. Hann kvaðst þó í fljótu bragði álíta, að eftirfarandi höfuðsjónarmið ættu að gilda: 1. Að stofnun erlendra fyrir- tækja í landinu eigi að vera sem frjálsust, en áherzla lögð á, að við höfum tögl og hagldir í okkar eig- in hendi með því að krefja slíka aðila um leyfi til þess að kaupa fasteignir, raforku og e. t. v. fleira, sem nauðsynlegt er flestum at- vinnurekstri. 2. Að kappkosta að beina hinu erlenda fjármagni ínn á svið, þar sem okkur skortir tækni og mark- aðsöryggi, inn á nýjar atvinnu- greinar. sem mundu auka fjöl- breytni i þjóðarbúskapnum, og fiárhagsöryggi. 3. Að lögð sé áherzla á, að inn- lendir aðilar séu þátttakendur í hinurn erlenda atvinnurekstri eins og fjármagn okkar frekast leyfir, og lögð sé áherzla á að eigriast smám saman fyrirtækin. Til dæm- is mætti setja ákvæði um kaup á hlutafé að vissum árafjölda liðn- um. 4. Að Alþingi samþykki ákveðn- ar reglur um erlend atvinnuleyfi, en feli framkvæmd þeirra ríkis- valdinu. 5. Að erlendum aðilum séu ekki veitt sérréttindi fram yfir innlend- an atvinnurekstur. 6. Að erlendum aðilum séu ekki veitt leyfi til fiskveiða eða til virkj unar fallvatna okkar eða jarðhit- ans. Nauðsynlegt er að auka alnrennan skilning á erlendri fjárfestingu Ræðuma'öur lagði áherzlu á. að almenningur þyrfti að kynna sér málið af skynsemi, því að nauð- synlegt væri að leggja áherzlu á vinsamlegt samstarf, er erlendur atvinnurekstur yrði leyfður í land- inu og varast bæri tortryggni og öf und vegna arðs hins erlenda aðila. Hann lagði áherzlu á, að íslend- ingar væru menntuð þjóð, sem ættu að geta staðið jafnfætis hverjum sem er við samningaborð- ið og samið um hagnað okkur til handa, ekki síður en þeir, sem við semjum við. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu, að skynsamlegri athugun lokinni, sagði ræðumaður, að við getum á þennan hátt betur tryggt efnahagslegan vöxt í land- inu og góð lífsskilyrði, eigum við ekki að hika við að leita samstarfs við erlent áhættufjármagn um upp- byggingu okkar atvinnuvega. Við íslendingar megum aldrei missa eigin stjórn á uppbyggingu atvinnuvega okkar og efnahags- legri þróun landsins. Að lokum lagði ræðumaður á- herzlu á, að við yrðum að tileinka okkur hina hraðvaxandi tækniþró- un, sem á sér stað í heiminum í dag, og er ein meginundirstaða bættra lífsskilyrða. Hann taldi, að við yrðum að margfalda það fjár- magn, sem við legðum til tækni, rannsókna og vísinda; að við yrð- um að tryggja okkur fjölda tækni- menntaðra manna, sem gœtu fylgzt með tækniþróun erlendis og lagað að innlendum staðháttum og til- einkað sér þá þekkingu, sem kann að fást með erlendu áhættufjár- magni. Þvi miður kvað hann okkur vera ábótavant á þessu sviði í dag, og nefndi sem dæmi, að erlendur sérfræðingur í sjálfvirkni, sem heimsótt hefði yfir 20 verksmiðjur hér á landi, hefði varla getað orða bundizt yfir þeim alvarlega skorti á tæknimenntuðum mönnum, sem hann taldi sig sjá í íslenzkum at- vinnuvegum. Þessi maður hafði komizt að þeirri niðurstöðu, að alvarlegasta vandamál islenzkra atvinnugrein i dag væri skortur á tæknimenntuðum mönnum, bæði verkfræðingum og þá sérstaklega tæknifræðingum, og taldi hann að við gætum ekki orðið samkeppnis- færir á erlendum mörkuðum, nema úr þessu væri sem fyrst bætt. Við íslendingar megum ekki missa sjónar af þessu, sagði ræðu- maður að lokum. Við megum ekki ætla, að erlent áhættufjármagn sé lausn allra okkar vandamála. Það á aðeins að vera liður í efnahags- ráðstöfunum sjálfstæðrar þjóðar. Því verðum við að efla tækni okk- ar og vísindi, þannig að við getum tileinkað okkur aðflutta reynslu og smám saman sjálfir tekið við þeim atvinnugreinum, sem þannig eru upp byggðar. Aðeins þá kemur er- lent áhættufjármagn að fullum og tilætluðum notum. Við megum aldrei gefast upp á því að vera sjálfstæð þjóð —0— Annar trummælandi var Alfreð Gislason, læknir, og mælti hann eindregið gegn erlendri fjárfest- ingu í landinu. f þvi sambandi benti hann m. a. á reynslu Kúbu, Kínverja, Suður-Ameríku og Afr- íku af erlendu fjármagni. Að loknum framsöguerindum urðu frjálsar umræður. Þá tóku til máls Kristján Friðriksson, Pét- ur Renediktsson og Gísli Guðna- son. (Framh á 13. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.