Tíminn - 10.11.1961, Side 11

Tíminn - 10.11.1961, Side 11
11 Nýlega voru hér á síðunni myndir og upplýsingar um bfla fyrir verSandi kaupend- ur. Og þar sem bílabraskiS er í fullum gangi á ölium tímum, hefur væntanlega enginn á móti því aS fá nokkrar ráSleggingar í sam- bandi viS sölu bíla. Þær eru ef til vill ekki óbrigSular, en þær geta áreiSanlega komiS aS einhverju gagni. Ef til vill tignarðu bílinn þinn, meðhöndlar hann eins og dýr- mœtan og brothættan postulíns- hlut, smertir hann með sömu ástúð og viðkvæmni eins og þú mundir snerta nýfætt barn, og áhyggjur þínar út af velferð hans eru takmarkalausar. En einhvern daginn verður hann að vfkja fyrir öðrum nýrri og glæsi- legri farkosti. Þú segir skilið við hann, annað hvort með svolitilli . eftirsjá eða þú skerð miskunnar- laust á öll bönd ykkar á milli eins og kaldrifjaður elskhugi svíkur ástmey sána. Og þú skiptir um hlutverk frá því að vera stoltur eigandi til þess að vera sálarlaus seljandi, sem hugsar ekki um annað en að fá eins hátt verð fyrir grip- inn eins og mögulegt er. Sumarið er liðið og ef til vill veltirðu fyrir þér, hvort þú munir fá sanngjarnt verð fyx’ir bílinn þinn núna eða hvort þú ættir ef til vill að draga söluna til vorsins í von um að markað- urinn verði betri þá. Hann kaupir ekki köttinn í sekknum Og þú veltir eflaust fyrir þér mörgu öðru í þessu sambandi. Hversu hátt verð skaltu setja upp? Hvernig áttu að selja bíl- inn, annast söluna milliliðalaust eða fá einhvern til þess fyrir þig? Eru einhverjar lagalegar hindranir á sölunni, sem forðast þarf? Og það, sem ef til vill er mikilvægast, hvað mun væntan- legur kaupandi vilja vita um tæknilega hlið málsins? Það er fleira, sem gera þarf heldur en þvo bílinn hátt og lágt og hressa upp á útlitið, þeg- ar selja á. Skynsamur kaupandi vill vera viss um, að hann kaupi ekki köttinn í sekkmím. Og það er vissara fyrir þig að hafa lögin þín megin, ef einhver vafaatriði eru. Hvenær selja skal Ef við gerum ráð fyrir, að bíllinn hafi verið nýr, þegar þú keyptir hann, verður þú fyrst að ákveða, bversu langur tími má líða áður en þú selur hann. Tæknilegt ástand bílsins kemur þá fyrst til greina. Þessa stund- ina getur allt verið i fullkomnu lagi, en þú verður að gera ráð fyrir, að bráðlega þurfi að skipta um vél eða einhverja hluta. Á þessu stigi málsins er kominn tími til að selja. Því að ef þú þarft að kosta til meiriháttar við- gerðar, munu útgjöldin við það að öllum líkindum verða það Hvernig sel ja skal bíl mikil, að þegar þú svo selur bíl- inn síðar, hefur þú tapað á honum. Nauðsynieg þekking Skynsamlegt getur talizt að skipta um bíl eftir um það bil 35.000 mílna akstur að meðal- tali. En ef þú býrð í borg og ekur honum daglega í mikilli umferð, er líklega skynsamlegra að selja fyrr. Hver sem hefur f hyggju að kaupa bíiinn þinn, væri vís til þess að æskja nákvæmrar skoð- unar á honum af sérfróðum mönnum, áður en þið gerið út um kaupin. Þekking á, hvernig skoðun þeirra fer fram, að hverju þeir helzt leita, gera þig því færan um að undirbúa slíka skoðun og koma öllu í lag fyrir fram. Þú verður að hafa f huga, að því betra sem ásigkomulag bílsins er, því hærra verð getur þú fengið fyrir hann. Og það er ekki einungis, þegar þú ætlar að selja bflmn þinn, sem gott er fyrir þig að hafa góða þekkingu á þessum hlutum, það er einnig nauðsynlegt frá byrjun, svo að þú getir alltaf annazt bflinn þinn vel. Helztu atriðin Það, sem þú þarft að vita, og sem væntanlegur kaupandi þinn vill að öllum lfkindum vera viss um, er, hvort vélin sé í lagi, hjólaútbúnaðurinn, stýrið, tank- urinn, gírkassinn, kælikerfið og svo auðvitað yfirbygging bílsins. Þegar gamlir bílar eru skoðaðir, er leitað að hugsanlegu ryði í hurðarfölsum, umhverfis glugga og alls staðar, þar sem vatn get-1 ur komizt að. Einnig er vandlega j leitað að öllu sliti. í gömlum; bilum sem nýjum er rafmagns- kerfið athugað gaumgæfilega. Og eflausí mætti fleira tína til. HvaSa árstiS er bezt? Er betra að selja bílinn sinn á einni árstíð frekar en annarri? Áður fyrr var eftirspurn bíln langmest á vorin og snemma sumars, þegar fjölskyldan fór að hugsa til sumarleyfisins. Nú mun þetta hafa breytzt, og kunnugir telja, að engin árstíð sé betri en önnur til sölu. Enn þá er það þó svo, að bílar falla gjarnan í verði í október, en hækka aftur eftir hver áramót. En það er auðvelt að selja bíl í góðu ási.s komulagi á hvaða tíma árs sem vera skal. Þegar þú hefur ákveðið að selja, verður ' þú að ákveða, hvernig þú vilt selja, hvort þú vilt selja milliliðalaust eða fá einhvern til að annast söluna I fyrir þig. Sennilega er um það J bil helmingur allra bila á mark- aðinum seidur fyrir milligöngu annarra. Og flestilr, sem selja gamla bila, láta skipta á þeim fyrir aðra nýrri. Vissulega er miklu auðveldara að selja bíla fyrir milligöngu j annarra. Með því er miklum á- hyggjum af þér létt, og það er j mjög líklegt, að þú fáir gott; verð fyrir bílinn. En hversu góð-1 ur og snnngjarn sem umboðs- maður þinn er. þá er hann ekki , að þessu í ne;nu góðgerðaskyn5 hann verður að hugsa um hagnað. Sjaldnast hagnaðar von Ef til vill þarf hann að kosta , einhverju til bílsins áður en, hann getur selt hann, og ef til; vill ver'ður hann að draga söluna eitthvað, ef hann á von á því, að verðið geti hækkað. Svo að ■ það er skiljanlegt, að hann bjóði I þér lægsta verð, sem hugsanlegt er. Á hinn bóginn mun hann ekki vilja fæla þig frá sér, svo að verðið mun aldrei verða of lágt. Ef þú aftur á móti ætlar ekki að fá annan bíl hjá honum í skiptum fyrir þann, sem hann selur fyrir þig, mun hann auð- vitað bjóða þér lægra verð fyrir hann heldur en hann getur von- azt til að fá fyrir hann síðar sjálfur. Þegar skiptiverzlun á sér stað, fær hann þegar í stað þann hagnað sem hann getur vænzt af bilnum, sem hann selur þér, en hann getur ekki verið viss um að geta strax selt gamla bílinn þinn, og vitanlega hefur það á- hrif á afstöðu hans til skipt- anna. Bezt að selja sjálfur Flestir, sem kunnugir eru slíkum málum, staðhæfa, að bezta verðið fái menn fyrir bíla sína, ef þeir annast söluna sjálfir, án þess að nokkur milligöngu- maður tini upp sinn hluta hagn- aðarins í leiðinni. Það eina, sem mælir á móti slíkri sölu, er verðið, sem þú verður að greiða fyrir auglýsingar og sá tími og fyrirhöfn, sem þú verður að láta í té. Og vitanlega verðurðu að vita, hvað þú ert að segja, þegar þú ert að lýsa bílnum fyrir væntanlegum kaupanda. Betra of hátt en of lágt Ef þú ert ákveðinn í því að annast söluna sjálfur, hvaða verð áttu þá að setja upp? Tíma þeim, sem þú verð til að kynna þér slík atriði, er alls ekki til einskis varið. Það ætti að vera auðvelt að komast að, hveit er verð bíla af sömu teg- und og þinn er og haga verðinu eftir því. Maður nokkur, sem hefur margra ára reynslu í að selja bíla, því að hann skiptir um bíl með stuttu millibili, ráðleggur mönnum að vera hvergi hræddir við að auglýsa nokkuð hátt verð á bílum sínum. Hann kveðst hafa komizt að raun um, að reyndir kaupendur eru vantrú- aðir á bíla, sem fást fyrir lágt verð. Ef menn setja upp tiltölu- lega hátt verð fyrir bílinn sinn, eru þeir líklegri til að fá kaup- endur, sem hafa þekkingu til að bera, manna, sem munu hugsa vel um bílinn þinn, þegar þeir hafa eignazt hann. Auðvitað getur verið, að þú þurfir að slá af verðinu í lokin, segir þessi maður, en reynsla hans er, að hann endar ævin- lega með því að fá sanngjarnt verð fyrir bílinn. Engar beinar fullyrðingar Þegar þú auglýsir bílinn, verð- urðu auðvitað að láta kosti hans koma sem skýrast í Ijós, en þú mátt heldur ekki halda fram neinni vitleysu. Þú getur orsakað sjálfum þér hin mestu vandræði með hinum sakleysislegustu at- hugasemdum. Þú segir ef til vill eitthvað, sem eftir þinni beztu samvizku er satt og rétt, og í trausti þess er bíllinn keyptur. Svo vill kannske svo til, að viku seinna kemur eitthvað fram, sem ekki er eins og það á að vera. Ef slíkt kemur fyrir, getur þú auðveldlega flækzt í leiðinda- mál. Það er því vissara fyrir þig að vera ckki ákafur í fullyrðing- um um bílinn þinn, heldur nota sakleysislegar en fullvissandi setningar eins og: — Eg hef aldrei verið í neinum vandræð- um með hann — eða — Hann er betri núna en nokkru sinni áður. Eða með öðfum orðum, láttu frekar álit þitt í'íjós heldur en beinar fullyrðmgar. Hugsaðu vel um bílinn þinn Og nú komum við að því, sem mikilvægast er, tæknilegu ástandi bílsins. Verðið, sem þú færð fyrir bílinn þinn, er I beinu hlutfalli við umönnunina, sem þú hefur látið honum í té, meðan hann var í þinni eign. Ef þú hugsar vel og réttilega um hann, lengir þú líf hans og getur selt hann fyrir sanngjarnt verð, þeg- ar þar að kemur. Hugsaðu vel um að fá hann skoðaðan með reglulegu millibili. Haltu til haga öllum reikningum fyrir meiriháttar viðgerðir og endurnýjanir. Þeir eru fyrsta flokks sönnun fyiir hagsýna kaup endur um að hugsað hefur verið vel um bílinn. Burtséð frá tæknilegri hlið málsins, er einnig mjög mikil- vægt, að útlit bílsins sé í full- komnu lagi. Ef væntanlegur kaup andi lítur inn í bílinn og sér göt á áklæðinu eða annað slíkt, mun hann hugsa sem svo, að þú hafir ekkert hugsað um að fara vel með hann. Ef aftur á móti bíll- inn er hreinn og lítt slitinn hugsar hann sem svo, að vel muni hafa verið séð um bílinn, einnig hvað tæknilega meðferð snertir. Og ljúkum við svo þessu spjalli. »HNWiN>i»innnuniW>iinupiii»wirt>»mnuii>iwiHii>wii>uinimBmBtww>w Dýr varð súást! David fcutch, sem kallaður er lávarðurinn öskrandi, neyddist til að fórna sínum fögru lokk um fyrir ástina. Hann strauk með unnustu sinnj, Carol Paine t i Skotlands fyrir nokkrum mán UGUtn. en nú ætla hjónaefnin að ginga í það heilaga bráðlega, og þá var þr\ að lávarðurinn öskr andi var. að fórna hári sínu sem orðið var tveggja feta sitl Tengdamóður hans tilvonand þessum lubba og neitaði að gefa samþykki sitt til ráðahagsins nema Sutch léti klippa sig. Margt gazt nefnilega síður en svo að leggja menn nú á sig til að öðl- ast hammgjuna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.