Tíminn - 12.12.1961, Side 7
T f MIN N , þriSjudaginn 12. desembcr 1961
Sjómenn fái jafna aöstööu við útvegsmenn
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins var til 2. umr. í neðri deild
í gær. Sjávarútvegsnefnd
hafði klofnað um málið og
skiluðu minnihlutarnir, Gísli
Guðmundsson og Geir Gunn-
arsson sérálitum um málið.
Umræðunni var frestað kl. 4,
en hófst að nýju kl. 9 í gær-
kvöldi.
, ' - . \.
Pétur Sigurðsson mælti fyrir á-
liti meirihluta sjávarútvegsnefnd
ar. Sagði Pétur að meiri'hlutinn
viídi ekki fallast á verulegar breyt
ingar á frumvarpmu, þar sem
málinu væri þar með stefnt í
hættu. Pétur hafði sagt við 1. umr.
málsins, að ha'hn myndi bera fram
breytitigatillögur við frumvarpið,
þar sem kveðið væri á um, að sjó
menn fengju jafna hlutdeild í ráð
inu og útvegsmenn, en Pétur kvað
meirihluta sjávarútvegsnefndar
vera þeirrar skoðunar, að þar sem
hér væri um víðtækt samkomulag
að ræða um skipan neftidarinnar,
þá væri eigi ráðlegt að gera á
henni breytingar. Þó hefði meiri-
hlutinn viljað gera breytingu á
9. gr., sem fjallar um skipan yfir
nefndarinnar, eu meirihlutinn legg
ur til að hún orðist svo:
„Nú næst ekki einróma sam-
komulag í verðlagsráði um verð
í einstökum atriðum eða verð
sjávarafla í heiid fyrir tilskilinn
tíma, og skal þá vísa ágreinings-
atriðunum til sérstakrar yfirnefnd
ar. Skal hún skipuð fimm mönn
, um, tyeimur tilnefnum af fisksölu
aðiium í verðlagsráði, og skal ann
ar tilnefndur úr hópi fulltrúa L.
Í.Ú., og má hann ekki eiga aðild
að fiskkaupum, vera félagsbund-
itin eða hafa hagsmuna að gæta
í samtökum fiskkaupenda þeirra,
sem tilnefna menn í verðlagsráð-
ið, skv. B-lið 1. gr., eft hinn úr
hópi sjómannafulltrúa, tveimur
tilnefndum af fiskkaupendum i
verðlagsráði, og skal a.m.k. annar
lilnefndur af þeim aðila, sem á-
greiningur er við, og einum odda
manni, sem verðlagsráð kemur sér
faman um.
Nú nær verðlagsrpð ekki ein-
rn-a sarpkomulagi um skipun
•'-Mamanns í yfirnefndina innan
° sólarh”'nga, frá því að ákvörð-
ívn var tekin um vísun ágreinings
t?l vfirnefndar. og skal þá odda-
m-'ður tilnefndur af hæstarétti.
Þannig skipuð fellir vfirnefndin
fii!lnaðarúrsk'irð um ágreinings-
rt”iði. og ræður meiri hluti at-
kvæða úrslitum."
C.ísli Guðmundsson mæltt fyrir
álíti 1. minnihluta sjávarútvegs-
nefndar, en hann vill gera meiri
breytingar og víðtækari á frum-
varpnu en meirihlutinn. Nefndar-
álit Gísla Guðmundssonar er svo-
hljóðandi:
Með frv. þessu er yfir lýst af
hálfu núverandi ríkisstjórnar, að
ríkisstjórn og Alþingi verði að
láta ákvörðun verðs og sjávarafla
til sín taka. Hin frjálsa verð-
myndun án opinberra af-
skipta á þessu sviði, sem
gert var ráð fyrir í ,.viðreisnar“-
löggjöfinni, hefur ekki revnzt
framkvæmanleg án tjóns, fyrir
atvinnulíf landsmanna. o-g er það
hí fram komið. sem margir ótt-
uSusf í öndverðu, að svo mundi
fara.
r,!*»”mur tími
Frv. var útbýtt á Alþingi föstu
daginn 8. þ.m. Sama dag var það
lekið Ul 1. unir. og afgreitt til 2.
umr. Sjávarútvegsnefnd tók það
Frá umræSum um Verðlagsráð sjávarútvegsins í gær
til meðferðar á fundi s.l. latxgar-
dag 9. þ.m. Meiri hi. nefndarinn
ar ákvað þá að mæla með frv.
með nánar trlteknum breyting-
um ,sem grein var gerð fyrir á
fundinum, en vildi ekki gera á
þvf aðrar breytingar. Undirritað
ur minnihl. taldi hins vegar þörf
á að gera á því mun meiri breyt-
ingar, og þegar ekki var undir það
tekið af meirihl., taldi hann sig
ekki geta staðið að nefndaráliti
merihlutans og gefur nú út sér-
stakt nefndarálit, þar sem hann
gerir grein fyrir afstöðu sinni til
málsins. Athygli skal vakin á því,
að æsklegt hefði verið að geta
haft lengri tíma tii að athuga mál
ið og afla upplýsinga í sambandi
við það. En boðað hefur verið, að
afgreiðslu þess veri hraðað.
Spor í rétta átt
Það skal þegar tekið fram, að
minnihluti telur með sérstöku til-
liti til samkomulags, sem náðst
hefur miUi aðila, rétt að greiða
fyrir því með löggjöf, að verð á
sjávarafla verði ákveðið í tæka
tíð hverju sinni, og því spor í
rétta átt, að frv. þetta skuli vera
komið fram. Þess verður þó að
gæta, að ákvæði löggjafarinnar I
séu við það miðuð, að þau séu
líklega til að bera æskilegan árang
ur.
Sammála um höfuSstefnu
Átta manna stjórnskipuð nefnd
samkv. tilnefningu samtaka þeirra
sam kaupa og selja sjávarafla (4
frá sj'ómönnum og útgerðarmönn-
um og 4 frá fiskkaupendum), hef
ur unnið að undirbúningi frv. Þeir
virðast og hafa verið sammála um
stofnun verðlagsráðs, er skipað
yrði annars vegar fulltrúum fisk-
kaupenda eða vinnslustöðva, en
hins vegar fulltrúum fisksöluað-
ila, þ.e. sjómanna og útgerðar-
manna, og einnig um það, hvaða
félög eða samtök skyldu tilnefna
fulltrúana. Þá voru nefndarmenn
sammála um það, að sú verð-
ákvörðun skyldi gilda, sem sam-
komulag yrði um milli allra þeirra
fulltrúa fiskkaupenda og fisksölu-
aðila, sem aðild ættu að verfflag-
ingu samkv. frv. Einnig að öðru
leyti virðast nefndarmenn hafa
verði 'sammála um ákvæði frv. að
tveimur atriðum undanskildum.
Þessi tvö atriði eru.:
1. Hlutdeild aðila í verðlagsráði
og fjölda fulllrúa í þvi.
2. Skipun og úrskurðarvald yfir
nefndar.
A ffs-einingsatriíiin
Tillaga meirihl. nefndarinnar.
sem tekin er upp L frv. um hlut-
deild aðila - í verðlagsráði og
fjölda fulltrúa, var samþykkt í
nefndinni með 5:3 atkvæðum, en
minnihl. bar þó ekki fram sam-
eiginlega tillöpu Tillaga um sátta
tilraunir í stað vfrnefndar með úr
skurðarvaldi var felld í nefndinni
með 6:1 atkvæði. en einn nefndar
manna sat hjá við atkvæða-
greiðslu.
Breytingatillögur 1. minnihl.
sjávarútvegsnefndar eru að veru-
!“'íu leyti við það miðaðar að taka
tillit til afstöðu minnihl í undir-
búningsnefndinni í þvi skyni að
auka líkuT fyrr allsherjarstuðn-
ingi við löggjöfina í framkvæmd
Hér eru því m.a. gerðar breytinga
tillögur, að nokkru leyti nýjar.
um þau efni. er ekki varð ftillt
samkomulag um í undirbúnings-
nefndinni.
Sjálfsagftar breytingar
Efni þeirra breytinga, sem
minnihl. sjávarútvegsnefndar tel-
ux rétt að gera á frv. er í aðalat-
riðum sem hér segir:
1. Fulltrúum fisksölua'ðila verði
fjölgað um einn, þannig að
Alþýðusamband íslands fái
tvo fulltrúa í stað eins, sem
gcrt er ráð fyrir I frv. Full-
trúar sjómanna verða þá jafn-
margir og fulltrúar útgerðar-
manna, en eru einum færri
samkv. frv.
2. Fulltrúum fiskkaupenda verði
fjölgað um einn, þannig að
félög fiskvinnslustöðva á Norð
ur- og Austurlandi og á Vest-
fjörðum fái einn fulltrúa
hvort, en fulltrúum Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna
jafnframt fækkað um einn.
Minnihl telur eðlilegt og sæki
legt, að hin nýstofnuð'u sam-
tök norðan-, austan- og vest-
anlands fái þá aðstöðu, sem
hér er um að r&ða, til að
koma á framfæri sjónarmið-
um sínum og sérþekkingu.
3. Sett verði ákvæði, sem tryggi
það, að fulltrúar í verðlags-
ráði eigi ekki hagsmuna að
gæta, sem fari í.bága við hags
muni aðila, sem þeir eru full-
trúar fyrir.
4. Stofnun yfirnefndar með odda i
manni tilnefndum af hæsta-
rétti komi ekki til fram-
kvæmda, nema fyrir liggi sam
þykkt meirihl. (5) fulltrúa
fisksöluaðila og meirihl. (5)
fulltrúa fiskkaupenda. Hins
vegar ætti eklsert að vera at-
hugavert við það, að yfirnefnd
með oddamanni tilnefndum
með samkomulagi kveði npp
úrskurð, cins og gert er ráð
fyrir í frv.
5. Verðákvörðun verðlagsráðs
eða yfirnefndar gildi ekki
lengur en fyrir eina vertíð eða
. veiðitímabil í senn.
6. Kostnaður samkv. Iögunum
greiðist úr ríkissjóði, en ekki
úr fiskimálasjóði, eins og gert
er ráð fyrir í frv., enda er sú
stofnun víst síður en svo af-
lögufær, en hefur mikilsverðu
hlutverki að gegna við upp-
byggingu atvinnulífs við sjáv-
arsíðuna víðs vegar um land.
Breytingatillögur Gísla Guðmunds
sonar eru svohljóðandi:
1. Við 1. gr. Greinin orðist svo:
Verðlagsráð sjávarútvegsins hef
ur á hendi aðalframkvæmd laga
þessara. Sjávarútvegsmálaráðherra
skipar í verðlagsráð eftir tilnefn-
ingu eftirtalinna aðila, þannig:
A. Af hálfu fisksöluaðila:
4 fulltrúar tilnefndir af Lands
sambandi ísT. útvegsmanna.
2 fulltrúar tilnefndir af Al-
þýðusambandi íslands.
1 fulltrúi tilnefndur af Sjó-
mannasambandi íslands.
1 fulltrúi tilnefndur af Far-
manna- og fiskimannasam-
bandi íslands
B Af hálfu fiskkaupenda: ’
2 fulltniar tilnefndir af Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna.
2 fulltrúar tilnefndir af Sölu-
sambandi íslenzkra fiskfram
leiðenda.
1 fulltrúi tilnefndur af Samb
ísl. samvinnufélaga
1 fulltrúi tilnefndur af Samlagi
skreiðarframleiðenda.
1 fulltrúi tilnefndur af Félagi
fiskvinnslustöðva á Norður-
og Austurlandi
1 fulltrúi tilnefndur af Félagi
fiskvinnslustöðva á Vestur-
Iandi.
3 fulltrúar tilnefndjr af Félagi
síldarsaltenda á Norður- og
Austurlandi.
1 fulltrúi tilnefndur af stjórn
síidarverksmiðja ríkisins.
1 fulltrúi tilnefndur af samtök
um síldarverksmiðja á Norð
ur- og Austurlandi.
2 fulltrúar tilnefndir af Félagi
síldarsaltenda á SV-landi.
2 fulltrúar tilnefndir af verk-
smiðjueigendum á Suðvestur
landi.
Fulltrui fisksöluaðila í verðlags
ráði eða yfirnefnd samkv. þessum
lögum getur Sá ekki orðið, sem
á eða rekur fiskkaupafyrirtæki,
er hluthafi í félagi, sem á eða
rekur slíkt fyrirtæki, eða meðeig-
ancli, ef um sameignarfélag er að
ræða, nema hann eigi bersýnilega
meiri hagsmuna að gæta sem fisk-
seljandi.
Fulltrúi fiskkaupenda í verðlags
ráði eða yfirnefnd, samkv. þess-
um lögum, getur sá ekki orðið,
sem selur sjávarafla eða er þátt-
takandi í fyrirtæki, sem selur sjáv
arafla, sbr. síðustu málsgr., nema
Iiann eigi bersýnilega meiri hags
muna að gæta sem fiskkaupandi.
Fulltrúar í verðlagsráði skulu|
skipaðir til 2 ára í senn. Vara-'
menn skulu tilnefndir á sama hátt
og taka sæti í verðlagsráði í for-
föllum skipaðra fulltrúa. Verðlags
ráð kýs sér formann og ritara til
eins órs í senn, annan úr hópi
fisksöluaðila og hinn úr hópi fisk
kaupenda. Skulu þeir ásamt fram
kvæmdastjóra undirbúa fundi ráðs
ins.
Verðlagsráði er heimilt með sam
þykki ráðherra að ráða sér fram-
kvæmdastjóra og annað starfsfólk
er annist dagleg störf, eftir því
sem þörf krefur.
2. Við 2. gr.
í stað „14“ komi 16.
3. Við.3. gr. Greinin orðist svo:
Þegar ákveða skal verð á fiski,
rækjum, humar og öðrum sjávar-
afla öðrum en síld, skal verðlags-
ráð skipað 8 fulltrúum fisksölu-
aðila skv. 1. gr. og 8 fulltrúum
fiskkaupenda þannig: 2 frá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, 2 frá
Sölusambandi ísl. fiskframleið-
enda, 1 frá Sainbandi ísl. sam-
vinnufélaga, 1 frá Samlagi skreið
arframleiðenda, 1 frá Félagi fisk
vinnslustöðva á orður- og Austur
landi og 1 frá Félagi fiskvinnslu-
stöðva á Vestfjörðum.
4. Við 4. gr. Greinin orðist svo:
Þegar ákveða skal verð á síld,
sem veidd er við Norður- og Aust
urland, skal verðlagsráð skipað
8 fulltrúum fisksöluaðila skv. 1.
gr. og 8 fulltrúum fiskkaúpenda
þannig: 1 frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, 1 frá Sambandi ísl
samvinnufélaga, 1 frá Félagi fisk-
vinnslustöðva á Norður- og Austur
landi, 3 frá Félagi síldarsaltenda
á Norður- og Austurlandi, 1 frá
stjórn síldarverksmiðja ríkisins
og 1 frá samtökum síldarverksm.
á Norður- og Austurlandi.
Þegar ákveða skal verð á síld.
sem veidd er við Suður- og Vestur
land, skal verðlagsráð skipað 8
fulltrúum fisksöluaðila samkv.
1. gr. og 8 fulltrúum fiskkaup-
enda þannig: 2 frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, 1 frá Samb.
ísl. samvinnufélaga, 1 frá Félagi
fis'kvinnslustöðva á Vestfjörðum,
2 frá Félagi síldarsaltenda á Suð
vesturlandi og 2 frá eigendum síld
arverk’smiðja á Suðvesturlandi
Um skiptingu miili svæða skal
ákveða með reglugerð.
5. Við 9. gr. Greinin orðist svo:
Nú næst ekki fc'amkomulag í
verðlagsráði um verð á einstökum
atriðum eða verð sjóvarafla í
'heild fyrir tilskilinn tíma, og skal
þá sl pa fimm manna yfirnefnd
þannig:
1. Tveir tilnefndir af fisksöluað-
ilum í verðlagsráði, annar úr
hópi fuÖtrúa L.Í.Ú., en hinn
úr hópi sjómannafulltrúa.
2. Tveir tilnefndir af fiskkaupend-
um í verðlagsráði og a.m.k. ann
ar þeirra af þeim aðila, sem
ágreiningur er við.
3. Oddamaður, sem verðlagsráð
kemur sér saman um.
Nú næst ekki samkomulag í
verðlagisa'áði um oddamann,- og
skal þá að fengnu samþykki meiri
hluta fulltrúa fisksöluaðila og
meiri hluta fulltrúa fiskkaupenda
oddamaður tilnefndur af hæsta-
rétti.
Ef yfirnefnd verður fullskipuð,
félíir hún fulliiaðarúrskurð um
ágreiningsatriði, og ræður einfald
ur meirihluti atkvæða úrslitum.
6. Við 10. gr. Upphaf greinarinn-
ar orðist svo:
Ákvarðanir verðlagsráðs eða
yfirnefndar eru bindandi sem
lágmarksverð, þó ekki lengur en
eina vertíð eða veiðitímabil, og
má o.s.frv.
7. Við 11. gr. Fyrir „fiskimála-
sjóði“ komi: ríkissjóði.
Geir Guanarsson mælti fyrir á-
liti 2. minnihluta. Sagði hann, að
hlutur sjómanna væri mjög fyrir
borð borinn í þessu frumvarpi,
enda hefðu viðbrögð þingmamia
sýnt þar gerla, er þetta frum-
varp var lagt fram og tekið til
1. umr. Þá lýsti einn þingþiaður
úr stjórnarliðinu því yfir, Pétur
Sigurðsson, að hann myndi ekki
sætta sig við svo skarðan hlut
sjómönnum til handa í skipan
verðlagsráðsins, en því miður virð
ist hafa verið kippt í spottana
á æðri stöðum og m.a. þessi þing
maður gugnað — og ríkisstjómin
virðist þannig hafa tekizt að brjóta
niður alla viðleitni til sanngirni
í stjórnarliðinu. Geir gerði grein
fyrir breytingatillögum þeim, er
hann flytur við frumvarpið, en
þær eru sniðnar eftir tillögum
minnihlutans í undirbúningsnefnd
inni, Tryggva Helgasyni, fulltrúa
A.S.Í.
Lúðvík Jósepsson sagði, að breyt
ingatillögur meirihluta sjávarút-
vegsnefndar væru mjög veigalitl-
ar, en þó væri í þeim reynt að
gæta þess að þeir, sem skipaðir
eru í yfirnefndina hafi ekki and-
stæðra hagsmuna að gæta, en þeir
c-ru fulltrúar fyrir. En hví er þetta
ákvæði ekki látið einnig taka til
skipunar sjálfs verðlagsráðsins i
tillögum meirihlutans? Finnur
hann ekkert athugavert við það, að
fulltrúar LÍÚ í verðlagsráðinu
sjálfu geti verið fiskkaupendur? —
Sagði Lúðvík, að svo virtist sem
verðlagsráðið ætti ekki að vera
annað en lammi utan um yfir-
nefndina, sem skipuð yrði 5 íhönn-
um, sem réðu ákvörðun fiskverðs
ins. Svo væri þó frá skipun yfir-
nefndarinnar gengið, að sá mögu-
leiki er fyrir hendi, að yfirgnæf
andi meirihluti sjómanna eigi eng-
an fulltnia í yfirnefndinni. þar
sem undir hælinn er lagt. að ASÍ.
sem fer með umboð aljs þorra sió-
manna eigi fulltrúa í nefndinni.
því að Sjómannasamband íslands.
sem fer með umboð aðeins fárra
sjómannafélaga á Suðve^turlandi
eða Farmanna- og fiskimannasam
band íslands. sem er félag vfir
manna, geta eins hlotið fulltrúann
í yfirnefndinni og siómenn á Vest
fjörðum. Norðurlariii Ausn'-
landi og i Vestmannaeyjum verða
þá algerlega afskiptir.