Tíminn - 15.12.1961, Side 1

Tíminn - 15.12.1961, Side 1
f borginni Vladimír átti heima ung- ur kaupmaður, ívan Dmitrich Aksion- ov að nafni. Hann átti þar tvær verzl- anir og íbúðarhús. Aksionov var fríður sýnum. Hann hafði ljóst hár liðað, var mjög gaman- samur og hafði ákaflega mikið yndi af að syngja. Þegar hann var ungur, var hann dálítið ölkær, og þá óstýrilát ur, þegar hann hafði fengið sér of mikið neðan í því, en eftir að hann giftist, hætti hann að drekka nema endrum og eins. Eitt sumar, þegar Aksionov var að fara á markaðinn í Nizhny og var að kveðja fjolskyldu sína, sagði konan hans við hann: — Ivan Dmitrich, legðu ekki af stað í dag. Mig dreymdi svo illa til þín. Aksionov hló, og sagði. — Þú ert hrædd um að ég fari á túr, þegar ég fer á markaðinn. Konan hans svaraði: — Eg veit ekk- ert hvað það er, sem ég er hrædd við, allt, sem ég veit, er það. að mig dreymdi ljótan draum. Mig dreymdi, að þú kæmir frá borginni, og þegar þú tókst ofan húfuna, sá ég, að þú varst orðinn grár fyrir hærum. inn gekk til Aksionov og byrjaði að yf- irheyra hann. Hann spurði, hver hann væri og hvaðan hann kæmi. Aksionov svaraði öllum spurningum hans, og sagði: — Viljið þér ekki drekka te með mér? En embættismaðurinn hélt áfram að spyrja hann spjörunum úr, og sagði: — Hvar gistuð þér síðast- liðna nótt? Voruð þér einn, eða voruð þér með kaupmanni, sem þér þekktuð? Sáuð þér kaupmanninn í morgun? Hvers vegna fóruð þér úr gistihúsinu fyrir dögun? Aksionov var undrandi yfir öllum þessum spurningum, en lýsti öllu, sem viö hafði borið, og bætti síðan við: — Hvers vegna spyrjið þér mig svona í þaula, rétt'eins og ég væri þjófur og ræningi? Eg er að ferðast í verzlunar- erindum fyrir sjálfan mig, og það er óþarfi að vera að spyrja mig svona. Þá kallaði embættismaðurinn á her mennina og sagði: — Eg er embættis- maður lögreglunnar i þessu héraði og ég spyr yður vegna þess, að kaupmað- urinn, sem þér voruð með síðastliðið kvöld, hefur fundizt skorinn á háls Við verðum að leita í dóti yðar. Þeir gengu inn í húsið. Hermennirn- SMASAGA EFTIR LEO TOLSTOJ Aksionov hló. — Þetta er hamingju- tákn, sagði hann. — Þú skalt bara ájá hvort ég sel ekki allar vörurnar mínar, og færi þér einhverjar gjafir af mark- aðinum. Svo kvaddi hann fjölskylduna og hélt af stað. Þegar hann hafði farið hálfa leið- ina, hitti hann kaupmann, sem hann þekkti, og tóku þeir sér gistingu á sama veitingahúsinu yfir nóttina. Þeir drukku te saman og gengu síðan til sængur í samliggjandi herbergjum. Það var ekki vani Aksionovs að sofa fram eftir, og hann vildi vera á ferð meðan kalt væri, svo að hann vakti ökumanninn fyrir dögun og sagði hon- um að spenna liestana fyrir. Fór síöan yfir til eiganda gistihússins (hann bjó í litlu húsi baka til), borgaði reikning sinn og hélt áfram ferðinni. Þegar hann hafði farið um það bil tuttugu og fimm mílur, stanzaði hann til þess að gefa hestunum. Aksionov hvíldi sig stundarkorn í húsasundi hjá veitingastaðnum, gekk síðan inn í and dyrið og pantaði te, tók upp gítarinn sinn og byrjaði að spila. Allt í einu .kom vagn akandi með glymjandi bjöllum, og út úr honum steig embættismaður í fylgd með tveimur hermönnum. Embættismaður ir og lögreglumaðurinn leystu utan af farangri Aksionovs og leituðu í honum. Allt í einu dró embættismaðurinn hníf upp úr poka og hrópaði: — Hver á þennan hníf? Aksionov glápti, þegar hann sá þá draga blóðstorkinn hníf upp úr pok- anum sínum, varð hann óttasleginn. — Hvers vegna er þessi hnífur blóð ugur? Aksionov reyndi að svara, en gat varla komið upp orði, stamaði bara: — Eg — ég veit það ekki — ekki á ég harin. Þá sagði embættismaður lögreglunn ar: — 1 morgun fannst kaupmaðurinn skorinn á háls í rúminu. Þér eruð eini maðurinn, sem hefur getaö gert það. Húsið var lokað að innanverðu, og þar var enginn annar. Hér er þessi blóðstorkni hnífur í fórum yðar, og andlit yðar og framköma kemur upp um yður! Segið mér hvers vegna þér drápuð hann, og hvað miklum pening um þér stáluð! Aksionov sór, að hann hefði ekki gert það, að hann hefði ekki séð kaup manninn, eftir að þeir drukku teið saman, að hann hefði enga peninga nema átta þúsund rúblur. sem hann ætti sjálfur, og að hann ætti ekki hnífinn. En rödd hans var brostin, and litið fölt og hann skalf af ótta eins og hann væri sekur. Embættismaðurinn skipaði her- mönnunum að binda Aksionov og setja hann upp í vagninn. Þegar þeir bundu fætur hans saman og hentu honum inn í vagninn, signdi hann sig og grét. Peningana og vörurnar tóku þeir frá honum, og sendu hann til næstu borg- ar. Þar var hann settur í fangelsi. Það var gerð fyrirspurn í Vladimír, um mannorð hans. Kaupmennirnir og aðr ir íbúar borgarinnar svöruðu því til, að á yngri árum hefði hann drukkið og farið illa með tímann, en hann væri góður maður. Þá kom málshöfð- unin: hann var ákærður fyrir að hafa drepið kaupmann frá Ryakan og rænt af honum tuttugu þúsund rúblum. Konan hans var örvæntandi og vissi ekki, hverju hún ætti að trúa. Börnin hennar voru öL ung, eitt þeirra var á brjósti. Hún fór til borgarinnar, þar sem maður hennar var í fangelsi, og tók öll börnin með sér. í fyrstu var 1 henni ekki leyft að sjá hann, en eftir margítrekaðar bænir fékk hún loks leyfi hjá yfirvöldunum, og það var farið með hana til hans. Þegar hún sá manninn sinn hlekkj- aðan og í fangabúningi, lokaðan inni meðal þjófa og glæpamanna, þá hneig hún niður, og kom ekki til sjálfs síns fyrr en eftir langan tíma. Þegar hún rankaði við, dró hún börnin að sér og settist hjá manni sínum. Hún sagði honum ýmislegt að heiman og spurði, hvað fyrir hann hefði komið. — Hvað getum við gert? — Við verðum að biðja zarinn uiri, að koma í veg fyrir að saklausum manni sé tortímt. Konan hans sagði honum, að hún hefði sent bænarskjal til zarsins, en því hefði ekki verið sinnt. Aksionov svaraði engu, en var hnugg inn á svipinn. Þá sagði konan hans: — Það var ekki út í bláinn að mig dreymri, að hárið á þér væri orðið grátt. Þú manst? Þú hefðir ekki átt að leggja af stað þennan dag. Hún strauk fingr- unum í gegnúm hárið á honum og sagði: — Kæri Vanya, segðu konunni þinni sannleikann. Varst það ekki þú, sem gerðir það? — Svo þú grunar mig líkal sagði Aksionov, fól andlitið í höndum sér og fór að gráta. Nú kom hermaður inn til þess að segja, að konan og börnin yrðu að fara, og Aksionov kvaddi fjöl- skyldu sína í hinzta sinn. t Þegar þau voru farin, rifjaði Aksio- (Framhaid á 15. siðu>

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.