Tíminn - 16.12.1961, Side 7

Tíminn - 16.12.1961, Side 7
) T í M IN N , laugardagimn 16. desember 1961 FramsóknarflokkurinÐ mótfaliinn því, að ríkisstjórnin geti að viW gefið i út bráðabirgðalög í miðju þinghaldi Eysteinn Jónsson (ormaður {tingflokks Framsóknar- (lokksins lýsir yfír andstöðu flokksins við að þingi verði frestað (ram í íebrúar Á aukafundi í sameinuðu þingi var tekinn fyrir til umræðu með aíbrigðum þingsályktunartillaga frá ríkisstjórniíini um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 23. gr. stjórnarskrár- innar. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að veita sam- þykki sitt til þess, að fundum þingsins verði frestað frá 19 des- ember eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 1. febrúar 1962.“ Fjármálarh. Gimnar Thoroddsen mælti fyrir tillög- unni og sagði, að í stjómarskránni væri heimild for seta til að fresta þingi um tvær vikur án þess að leita þurfi sam- þykkis þingsins. Ríkisstjórnin teldi hins vegar henta að fresta þinginu lengur að þessu sinni eða allt fram til byrj unar febrúarmánaðar, þótt ríkis- stjórnin gæti kvatt þingið saman fyrr ef henni þurfa þætti. Þess vegna væri þessi þingsályktunar-. tillaga fram komip. Ráðherrann sagðp að 3. umr. um fjárlögin myndi geta fram farið á mánudag og því myndi unnt að öllum lík- indum að fresta þinginu 19. des., en síðar ef henta þætti. aunakjör ómarafulttrú í neðri deild urðu í gær nokkr ar umræður við 2. umr. um frv. ríkisstjórnarinnar um dómsmála- störf, lögreglustjóm, gjaldheimtu o. fl. í Reykjavík. Allsherjarnefnd hafði klofnað um málið og skilaði minnihlutinn, Gunnar Jóhanns- son, séráliti og flutti breytingar- tillögu við frumvarpið. Umræður snerust um launamál opinberra starfsmanna og þó einkum dómara og dómarafulltrúa og voru allir ræðumenn sammála um, að laun þeirra væru óviðunandi orðin og þyrftu endurbóta og endurskoðun ar við. Hins vegar greindi þing- deildarmenn á um það, hvort rétt væri að gera tillögur til breytinga á þessu frv. og töldu ýmsir æski- legra að þær breytingar kæmu fram við frv. um meðferð einka j mála í héraði, sem fyrir þinginu lægi og svo í launalögum um op- inbera starfsmenn. Þes-sir þing- menn tóku þátt í umræðutmm: Einar Ingimundarson, Gunnar Jó- hannsson, Jóhann Hafstein, Jón Skaftason, Björn Fr Björnsson og Einar Olgeirsson. — Frumvarpið var tekið til 3. umr. með afbrigð um og afgreitt sem lög frá Al- þingi. Eysteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs og mælti á þessa leið: Framsóknar- flokkurinn er mótfallinn þált. um frestun funda Alþingis allt til 1. febrúar, ef ríkis- stjórninni sýnist svo. Bátaútvegurinn Vegna bátaútvegsins þarf að breyta bráðabingðalögum ríkis- stjórnarinnar frá í sumar um á- lögur á útveginn eins og ríkis- stjórnin hefur nú sjálf viður- kennt og heitið. Lausaskuldir bænda Lausaskuldamál landbúnaðar- ins eru í sjálfheldu og aðkallandi að breyta bráðabirgðalögunum frá í sumar sem skjótast og Iög- festa nýja skipan, en það mál hefur vcrið látið bíða í neðri deild vikum saman. Togararnir og landhelgin í Þá eru nrálefni togaranna þannig vaxin, að brýna nauðsyn ber til að Alþingi sé með í ráð-; um, hvað gert verður í þeim og þá ekki sízt bar sem til atliug-, unar er samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, hvort auka skuli rétt til togveiða í land- helginni. Af þessum og fleiri ástæðum ! telur Framsóknarflokkurinn, að veita beri einungis stutt jólaleyfi og taka til aftur sem skjótast upp úr áramótum. ^áífobirgíaWahralI Flokkurinn er því eins og nú er ástatt mótfallinn því að gefa rík- isstjórninni heimild til að hafa langt þinghlé — og opna um leið möguleika fyrir ríkisstjómina með þessari þingsályktunartillögu til þess að gefa út bráðabirgðalög að vild sinni inni í miðju þitighald- inu í stað þess að Alþingi haldi áfram störfum með stuttu jólahléi. Fjárlögin í gær var samþykkt einróma á aukafundi í sameinuðu þingi þingsályktunartillaga frá forsætis ráðherra, að framvegis skyldu full trúar í Norðurlandaráð kosnir í sameinuðu þingi, en áður hafa þeir verið kjörnir í deildum, 2 í efri deild og 3 í neðri. Verðfagsráðið • efri rle»M í efri deild voru tvö mál á dag- skrá í gær: Kosning gæzlustjóra söfnunarsjóðs íslands og frum- varpið um Verðlagsráð sjávarút- vegsins til 1 umr Gæzlustjóri var kjörinn Garðar Jónsson, verkstj. — aðeins einn listi kom fram. Emil Jónsson sjávarútvm.ráðh. mælti fyrir frumvarpinu um Verð lagsráð sjávarútvegsins og var bví að ræðu hans lokinni vísað ti.l 2. umræðu og sjávarútvegsnefndar. Skúli Guðmundsson benti á, að enn væri ekki bú ið að útbýta með al þingmanna fjárlagafrv. eftir þær breytingar, sem gerðar voru á því við 2. umr. Fjárm.ráðh. hefði sagt, að 3. umr. um fjárlögin myndi fara fram á mánudaginn. Sagði Skúli að ófært væri, að hafa umræðuna án þess, að þing- mönnum gæfist tóm til að athuga frumvarpið eins og það lægi fyrir nú, því að ókleift væri fyrir þá, að flytja við það breytingatillög- ur án þess að hafa það í höndum. Yrði því í síðasta lagi að útbýta frumvarpinu í dag laugardag, ef hafa ætti umræðuna á mánudag Gunnar Thoroddsen sagði, að reynt yrði að prenta frumavrpið eins fljótt og auðið yrði og vonir stæðu til að því yrði útbýtt í dag, laugardag. ef það reyndist ekki unnt, yrði að fresta umræðunni þar til á þriðjudag. Dagskrá alþingis DAGSKRÁ sameinaðs alþingis iaugardaginn 16 des. 1961. kl. 2 síðdegis: Kosning framkvæmdastjóra Söfn- unarsjóðs íslands til 6 ára, frá 1. jan. 1962 til 31. des. 1947. DAGSKRÁ efri deildar alþingis laugardaginn 16. des. 1961, kl. 1,30 miðdegis: 1. Lántaka hjá Alþjóðabankanum, frv. — Ein umr. [Ef leyft verð- ur]. 2. Verðiagsráð sjávarútvegsins, frv. —2. umr. ]Ef leyft verðurt Jólasöngvar í Neskirkju Næstkomandi sunnudag, 17. des. verður efnt til jólasöngva i Nes- kirkju kl. 2 e. h. Barnakór undir stjórn Erlu Stefánsdóttur, söngkennara, mun syngja nokkur jólalög. Þá mun kirkjukórinn leiða almennan safn aðarsöng og verða þeir iólasálmar sem sungnir verða sérprentaðir fyrir alla kirkjugesti. Auk þessa verða lesnar ritningargreinar um jólaboðskdpinn. Bræðrafélag Nessóknar gengst fyrir þessum jólasöngvum, og gerði þafi einnig á s.l ári Þá voru þeir svo vel sóttir, að margir urðu frá að hverfa. AUGLY um umferð í Reykjavík Samkvæmt 65. gr. umferðarlaga hefur verið ákveð- ið að setja eftirfarandi takmarkanir á umferð hér í bænum á tímabilinu 15.—24. desember 1961. 1. Einstefnuakstur: í Pósthússtræti milli Austurstrætis og Kirkju- ,strætis til suðurs. 2. Bifreiðastöður bannaðar á eftirtöldum götum: Á Týsgötu austan megin götunnar. í Naustun- um vestan megin götunnar milli Vesturgötu og Geirsgötu. Á Ægisgötu austan megin götunnar milli Vest- urgötu og Bárugötu. <* 3. Akreinaakstur verður tekinn upp á kafla á Laugavegi austan Klapparstígs. Enn fremur neðar á Laugavegi i Bankastræti og Austur- stræti, þegar sérstök þörf þykir vegna mikillar umferðar. Áthygli skal vakin á því, að bifreiðastöður verða bannaðar, þar sem ekið verður á tveimur akreinum. 4. Umferð vörubifreiða, sem eru yfir ein smálest að burðarmagni og fólksbifreiða 10 farþega og þar yfir, annarra en strætisvagna, er bönnuð á eftirtöldum götum: Laugavegi frá Höfðatúni i vestur, Bankastræti, Austurstræti, Aðalstræti og Skólavörðustíg fyrir neðan Týsgötu. Enn fremur er ökukennsla bönnuð á sömu götum. Bannið gildir frá 15.—24. desember kl. 13—18 alla daga nema laugardaginn 16. desember til kl. 22. 23. desember til kl. 24. Þeim tilmælum er beint til ökumanna að forð- ast óþarfa akstur um framangreindar götur, enda má búast við. að umferð verði beint af þeim eftir því sem þurfa þvkir. 5. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafnarstræti 16 desember kl. 20 —22 og 23. desember kl. 20—24. Þeim tilmælum er beint til forráðamanna verzlana, að þeir hlutist til um að vöruafgreiðsla í verzlanir og geymslur við Laugaveg, Bankastræti. Skóla- vörðustíg, Austurstræti og Aðalstræti og aðrar miklar umferðargötur, fari fram fvrir hádegi eða eftir lokunartíma á áðurgreindu tímabili frá 15.— 24. desember n.k. Lögreglustiórinn í Revkjavík 14. desember 1961. Sigurjón Sigurðsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.