Tíminn - 28.12.1961, Side 5

Tíminn - 28.12.1961, Side 5
Cltgetandl: FRAMSOKNARFlOKKURINN FramJrvæmdasti6ri: Tómas Arnason Rit stjórar Þórarmn Þórarinsson <áb i Andrés Kristjánsson .lón Helgason Fulltrúi rit stjórnar Tómas Karlsson Auglýsmga stjóri Egill Bjarnason - Skrifstotui 1 Edduhúsinu - Símar 18300- 18305 Aug lýslngasimi L9523 Afgreiðslusimi 12323 - Prentsmiðjan Edda ti.t - Askrlftafgjald ki 55 00 á mán mnanlands t lausasölu kr 3.00 eintakið Þrátt fyrir „við- reisnina,, Stjórnarblöðin láta öðru hvoru í ljós undrun yfir því, þegar sagðar eru fréttir frá stöðum úti á landi um mikla atvinnu í sambandi við sjávarafla. Sko, sjáið þið, segja stjórnarblöðin. „Viðreisnin“ hefur alls ekki leitt til at- vinnuleysis. Það er meira en nóg atvinna á Húsavík og Siglufirði. Hrakspárnar um atvinnuleysið hafa ekki rætzt. Það hefur nefnilega gerzt, að atvinna hefur verið næg við sjávarsíðuna að undanförnu. En það er vissulega ekki að þakka „viðreisninni“ og því er von, að stjórnarblöðin séu undrandi. Þetta hefur nefnilega gerzt, þrátt fyrir hana. „Viðreisnin“ hefur með óhagstæðum vöxtum og nýj- um sköttum þrengt mjög aðstöðu útgerðarinnar frá því, sem áður var. En annað hefur komið til, sem hefur vegið þetta upp. Það er árangurinn af útfærslu fiskveiðiland- helginnar 1958, sem bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn þvældust á móti, en gátu þó ekki stöðvað. Afli bátanna hefur stórbatnað af þessum ástæðum. Þess vegna er nú blómlegt við sjávarsíðuna, þrátt fyrir „við- reisnina“. Fleira kemur hér einnig til greina Bætt kjör útvegs-. ins í tíð vinstri stjórnarinnar juku mjög uppbyggingu á sviði sjávarútvegsins. Vegna þess eru nú til betri og meiri tæki til að hagnýta sjávaraflann en áður. Þetta er einnig ástæða þess, að nú er blómlegt á mörgum útgerðarstöð- um, þrátt fyrir „viðreisnina". En jafnvíst er það líka, að hagur útgerðarinnar stæði allur með meiri blóma ef „viðreisnin11 með okurvextina, lélegu lánskjörin og söluskattana hefði aldrei komið til sögu. Það er t. d. ekki lítil fúlga, sem togaraútgerðin hefur þurft að greiða aukalega af þessum ástæðum. Stöðvunin hefði orðið minni, bæði hjá þeim og bátunum, ef þeir hefðu verið lausir við „viðreisnarkjörin“. Þess vegna er ekki neitt furðulegt, þótt stjórnarblöðin séu hálf undrandi yfir því, að „viðreisnin“ skuli ekki valda atvinnuleysi á tímum, þegar aflabrögð eru með allra bezta móti! En máttur uppbyggingarinnar frá tíð fyrri stjórna má sín hér meira en áhrifin frá samdráttarstefnu „viðreisn- arinnar“. Það er ný sönnun þess, að uppbyggingarstefn- una ber að taka upp að nýju, því að til langframa verður ekki búið að arfinum frá fyrri stjórnum. Skipin og tækin þarf að endurnýja og auka og það verður ekki gert, nema horfið verði frá samdráttarstefnunni. Aimarlegur yfirgangur Það er nú upplýst af yfirmönnum varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, að vel megi hafa þar lokað sjónvarp eða þráðbundið sjónvarp. Þráðbundið sjónvarp færist nú íniög í vöxt, m. a. hefur það verið leitt í 500 hús á einum stað í Hollandi. Varnarliðið getur því vel fullnægt þörfum sínum í þess um efnum. án þess að reisa nýja miklu stærri sjónvarps stöð en þar er nú. Það er ekkert nema annarlegur vfir gangur. sem mjög mun spilla sambúð'þess og lands manna. ef það heldur áfram við þá fyrirætiun sína í skjóli ístöðulítillar ríkisstjórnar. Þess ber því fastlega að vænta, að horfið verði frá þvi ráði. FRLENT YFIRLIT Framtiö Sameinuöu þjóöanna Horfur betri vitS lok 16. allsherjarjjingsins en vití upphaf þess SEXTÁNDA' allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lauk meg- instörfum sinum í vikunni, sem leið. Aðeins ein nefnd þingsins kemur saman aftur um miðjan næsta mánuð til þess að ræða um tvö nýlendumál, annað varðandi Angola, en hitt varð- andi Ruanda-Urundi. 1 lok þessa allsherjarþings hefur ýmsum orðið tíðrætt um, hvaða ályktanir megi dr'aga af störfum þess um framtíð Sam- einuðu þjóðanna. Niðurstaðan hjá flestum virðist sú, að þótt störf þingsins yrðu ekki mikil, hafi framtíðarhorfumar verið öllu bjartari við lok þingsins en í upphafi þess. FRAMTIÐARHORFURNAR voru vissulega óglæsilegar, þeg- ar þingið hóf störf sin upp úr miðjum september síðastl. Hammarskjöld var fallinn frá og mikil ástæða til að óttast, að ekkert samkomulag næðist um eftirmann hans, vegna til- lagna Rússa um þríeykið svo- nefnda, þ.e. um þrjá frarn- kvæmdastjóra, tilnefnda af ríkjasamsteypum og hefði hver þeirra neitunarvald. Þá virtist flest benda til, að Sameinuðu þjóðirnar væru að bíða ósigur í Kongó fyrir evrópisku auð- hringunum, sem hafa hreiðrað þar um sig. Loks voru svo fjár- mál Sameinuðu þjóðanna kom- in í algert óefni, þar sem all- mörg ríki höfðu eklci greitt tillag sitt til hinna sérstöku áðgerða Sameinuðu þjóðanna, sem hefur verið haldið utan hinna venjulegu fjárlaga, en þar er fyrst og fremst um að ræða hergæzluna á landamær- um ísraels, en m.a. Arabaríkin, kommúnistaríkin og fleiri ríki hafa aldrei greitt nein framlög vegna hennar, og svo aðgerðirn ar í Kongó, en kommúnistarík- in, Frakkland og ýmis ríki önn- ur hafa enn ekki greitt nein framlög vegna þeirra. Ef eng- in breyting verður á þessu, verða skuldir S. Þ. orðnar um 170 millj. dollara á miðju næsta ári. ÞEGAR allsherjarþingið hætti störfum fyrir jólin, hafði náðst lausn á öllum þessum málum, en þó ekki nema til bráðabirgða. Burmamaðurinn U Thant hafði verið ráðinn fiamkvæmdastjóri S. Þ. fyrir þann tíma, sem eftir var af kjörtímabili Hammarsskjölds. Samkomulag þetta náðist vegna þess, að Rússar féllu frá þrí- eykistillögu sinni, en það gerðu þeir ekki sízt vegna þess, hve litlar undirtektir þær fengu. Meðal annars fengu þær sáralítinn eða engan hljóm- grnnn hjá óháðu þjóðúnum svonefndu, en Rússar munu í upphafi hafa treyst hér á fylgi þeirra. Fyrsti árangurinn af kjöri UiThants var sá, að tek- in var upp skelegg sókn aí hálfu S. Þ. gegn klofningstil- raun evrópsku auðhringanna í Kongó og virðast nú góðar horí ur á að sú sókn ætli að bera árangur. Loks voru fjármál S. Þ. leyst þannig, að samþykkl var að gefa út skuldabréf. sam tals að upphæð 200 millj. doll ara og afla S. Þ. fjár á þann hátt. Bandaríkin munu ætla að hjálpa verulega til við sölu beirra Þá var samþykkt að STEVENSON — áhrifamesH maöurinn á 16. allsherjarþingi S. Þ. leita um það álits Alþjóðadóm- stólsins, hvort þátttökuríkin gætu neitað að borga hlutfalls- leg tillög vegna löglegra sam- þykktra séraðgerða, eins og hergæzlunnar á landamærum ísraels og aðgerðanna í Kongó. Allt veldur þetta því, að þessi mál horfðu mun betur í þinglok en í þingbyrjun. 1 engu þeirra er þó um varan- lega lausn að ræða. Með því, sem hefur áunnizt, hafa hins vegar verið skapaðir möguleik- ar til að ná meiri árangri síðar. Á NOKKRUM fleiri sviðum, var einnig um meiri árangur að ræða á þessu þingi en oftast áður. Á undanförnum þingum hefur t.d. ekki náðst neinn árangur um það, hvaða form skyldi haft á viðræðum um af- vopnunarmálin. Nú náðist hins vegar samkomulag um, að skip uð yrði nefnd 18 ríkja til að fjalla um málið og eiga í henni sæti fimm ríki Atlantshafs- bandalagsins, fimm ríki Var- sjárbandalagsins og átta óháð ríki. Þá náðist einnig samkomu- lag um skipun svonefndrar geimnefndar, sem á að vinna að þvi að koma á alþjóðlegu samkomulagi um geimrann- sóknir og geimferðir. Loks náðist einnig samkomulag um skipun sérstakrar nýlendu- málanefndar, sem á að kynna sér ástand allra þeirra ný- lendna, sem enn eru eftir, og skila um það áliti til næsta allsherjarþings. Allt er þetta nokkur ávinn- ingur frá því, sem- áður var, þegar algert ósamkomulag ríkti um meðferð þessara mála. Það hefur hins végar oft orð- ið reynslan, að ekki hefur orðið mikill árangur af skipan nefnd- ar. Stundum hafa nefndir líka orðið upphaf annars meira. Þegar á þetta allt er litið, verður því ekki neitað, að meiri árangur hefur náðst á þessu þingi. S. Þ. en næstu þing um á undan. Það hafa verið stigin fleiri spor. þótt smá séu. til samkomulags en áður. Sum- part má þakka þetta því, a? Rússar voru á síðari hluta bingsins heldur þjálli en oft áður. Fyrst og fremst mun þó mega þakka þetta mikilli elju og eindregnum samningsvilja hins nýja aðalfylltrúa Banda- ríkjanna hjá S. Þ Adlai Stev enson hefur lagt meiri alúð í að þoka málum áleiðis í sam- komulagsátt en Lodge gerði. Hann hefur einnig mun betri samvinnu við hinar óháðu þjóðir, eins og sést í Kongómál- inu. Óhætt er því að þakka hon um meira en nokkrum manni öðrum, að 16. þing Sameinuðu þjóðanna endaði betur en það byrjaði. ÞESS sáust mörg merki á 16. allsherjarþinginu, að hlutur Asíu- og Afríkuríkjanna fer nú mjög vaxandi í samtökum S. Þ., enda fjölgar þeim þar óðum. Á 16. allsherjarþinginu bættust við þrjú Afríkuríki og eitt Asíuríki. Þetta hefur vitanlega orðið til að auka enn áhrif þeirra. Af þessum fjóru nýju líkjum, fylla þrjú flokk óháðu þjóðanna, en eitt tilheyrir kommúnistablökkinni. Flest teljast Afríku- og Asíu- ríkin til óháðra eða hlutlausra ríkja, þótt afstaða þeirra sé harla mismunandi. Hin svo- kölluðu óháðu ríki telja nú orð- ið meira en helming þátttöku- ríkja S. Þ. Afstaða þeirra set- ur orðið vaxandi svip á störf S. Þ., en þó kom þetta hvergi eins vel í ljós og í sambandi við umræðurnar um bann við til- raunum með kjarnorkuvopn. Fyrir atbeina þeirra var sam- þykkt tillaga um að skora á öll ríki að hætta tafarlaust öllum tilraunum með kjarnorku- sprengingar, þótt bæði Banda- ríkin og Sovétríkin beittu sér gegn henni. Rétt er að geta þess, að fjögur ríki Atlantshafs bandalagsins fylgdu hér óháðu ríkjunum að málum, eða Nor- egur, Danmörk, Kanada og fs- land. EN ÞÓTT hlutur óháðu þjóð- anna fari mjög vaxandi í störf- um S. Þ., eru það þó stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, sem ráða munu mestu um það í náinni framtíð, hver framtíð S. Þ. verður. Það sást vel á alls- herjarþinginu nú, og það mun haldast a.m.k. næstu árin. S. Þ. geta ekki tekið sér fyrir hend- ur neitt meiri háttar verkefni, nema þessi ríki séu sammála. Því veldur meðal annars ákvæð ið um neitunarvaldið. Hætt er við, að mörg mál eigi eftir að stranda á þvi, eins og hingað til. En þrátt fyrir það. geta S. Þ. haft miklu hlutverki að gegna í fyrsta lagi eru þær vettvangur, þar sem fulltrúar þessara stórvelda geta rætt saman og þar sem fulltrúar annarra þjóða hafa aðstöðu til milligöngu og geta látið í Ijós vanþóknun eða samúð og þann- ig haft bein og óbein áhrif á framvinduna. Þótt það væri ekki nema vegna þess eins, hafa S. Þ. miklu hlutverki að gegna. Þær geta þannig haft mikil áhrif á það að bæta sam- búð þjóðanna Það getur hins vegar átt langt í land að þær verði éins áhrifamiklar og öfl- ugar og eindregnustu fylgis- menn þeirra dreymir um, en fyrir þeirri þróun verður ekki flýtt með því að ætla þeim meira verkefm en kringum- stæðurnar leyfa á hverjum tíma. Þess vegna mun enn um hríð þurfa að hafa við hlið þeirra önnur samtök, er um sinn gegna því hlutverki, er S. Þ. geta enn þá eekki valdið Þ.Þ. TÍMINN, fimmtudaginn 28. desember 1961. 5

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.