Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 13
rWWn,nMWmmnW Það mundi verka nánast móðgandi að tala við sjúkling nú á dögum t.d. ihér á landi eins og Jesús talað’i við unga maninn, sem borinn var til hans lamaður á líkama og sá'l. En sé betur aðgætt, þá munu oftar vera nánari tengsl milli sjúkleifca og syndar, hugar- ástands og líkamlegrar líðan- ar en niargir gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Hugsun og tiifinning verka sterkar á lík- amsfrumur og efnisheildir eu margan grunar, þótt þvi væri nú sleppt, að minnast á það, hve varJhugs'aðar yfirborðs- venjur tízkunnar eyðileggja oft bæði líkama og sál, ef til vill án þess að sjúfclingur geri sér þess nokkra grein sjálfur. Oft er talað um að sjúkling- ur sé niðurbrotinn á taugum „í rusli“ „ein taugahrúga“ eins og nú er farið að orða það. En það þýðir að samvizkubit ásarnt niðurbrotinni lífslöngun, og. æstum tilfinningum hafi náð ölium tökum á vitund og vilja, sfcapgerðin er sundurtætt, lífs- orka og lífsgleð'i iamaðar og persónuieikinn hvorki. sér né veit handa sinna sfcil. Mann- eskjan verður þá líkt og rekald fyrir staurmi og vindum for- iaga og atvika. Lífsfögnuður er horfinn, vonir dauðar, ósk- ir einskisvirði ,aðeins sárs- auki ýmist innibyrgður eða ofsalegur sýnir að enn er þetta lifandi manneskja, sem þráir breytt og bætt ástand. Ailt, sem þarf til breyting- ar og bóta er örugg sjúkdóms- gerining, það er að segja vit- und og vissa sjúklingsins sjálfs um ors'akir ástands síns, sem í mörgum tilfellum mundi hafa verið köll'uð synd í gamla daga, synd gegn Guði hins góða og sanna, synd gegn öðrum en kannske langoftast synd gegn sjálfum sér og sínum æðstu og innstu þráim. Þær fengu aldrei að njóta sín fyrir eftir- sókn - augnab'liksverðmæta, eit- urnautna tízkunnar eða óhollra venja í veizlum og glaumi. En synd er allt, sem snýst gegn hinu góða og fagra, allt, sem sundrar samfélagi og samstarfi manna og þjóða, allt, sem sundrar og fjarlægir vitund mannsins frá Guði sínum, sem nefna mætti uppsprettu lífs og ljóss ,eða lind hiinar almátt- ugu elsku, sem verður að fá að streyma gegnum tilfinninga líf mannshjartans eða persónu- leikans, svo að vellíðan og innri friður geti myndazt þar og eflzt. Það er einmitt þessi innri friður, þessi sæiu.kennd, þessi skyndilega eða hægfara breyt- ing frá myrkri til ij'ósfe frá Syndir fyrirgefnar þjáningu til unaðar, frá sjúk- leika til heilbrigði, frá lömun til kraftar, sem köiluð er fyr- irgefning syndanna t.d. í trúar játningu okkar. Allt í einu eignast manneskjan nýtt lífs- viðhorf, nýjan mátt, nýjar von- ir, finnur sig eins og komna úr andlegri iaug, þar sem hún hefur hreinsazt af sora og óhreinindum. En undanfari þessa unaðs- lega ástands syndafyrirgefn- ingar er alltaf sársaufci í sál- inni, stundum mjög sár, sem kallast iðrun. Hún er blönduð tilfinning sektar og auðmýkt- ar ásamt heitri löngun til að losna úr fjötrum og eignast frelsi og sakleysi langt fjarri þeim myrkraskotum, sem synd eða sjúkleiki hafa byrgt manns sálina í. Stundum getur þessi sárs- auki iðrunar verkað sem al- gjört örvæni og upgjöf smbr. iðrun Júdasar, sem fannst hann ek'ki geta lifað mínút- unni lengur, en stundum er þessi tilfinning örvandi og hvet ur til átaks og baráttu, sem síðar skapar hetjur og dýrl- inga, göfugmenni og píslar- votta t.d. Pétur og Pál postula og Ágústín kirkjuföður eða Franz frá Assisi. Sé litið á fyrirgefning synda sem slíka lausn úr fjötr- um, og jafnframt þann unað, sem af frelsiskenndinni leiðir þá er hún ein ijúfasta og und- ursamlegasta náðargjöf Guðs. En syndavitund nútímakyn- slóðar er annað hvort sljó eða frosin í flestum tilfellum, og skapar yfirleitt fátt annað en þá andlegu timburmenn, sem nú er farið að nefna „móral“!! hugsið ykkur íslenzkuna og hugsunina og stundum er þetta haft í fleirtölu, „móralar"! Þarna þarf því sannariega andi'ega leiðs'ögn, ef ekki presta því nú hlusta fáir á það, sem þeir hafa að flytja, þá sálfræðinga, þeir eru í tízku. Það þarf að vekja vit- und fólfcsins fyrir hættum og vandræðum og sýna því sjálft sig í skuggsjá vcruleikans, vekja því iöngun tii að losna.og við- bjóð á því umhverfi, sem er að eyðileggja það, frelsi þess og lífshamingju. Og bezta leiðin tU þess er enn sem fyrr að beina þesum þjáðu og lífsleiðu sálum braut til þess anda ,kraftar og fyrir gefningar, sem birtist í Kristi Jesú sé hann og kenning hans rétt skilin. Þangað þarf marg- ur lama maðurinn að koma og finna fri.ð, finna sjálfan sig aftur, finna nýja og örugga leið til iífshamingjunnar, finna fyrirgefningu syndanna, sem mun gefa nýja krafta og heilsu bæði líkama og sáiar. Þaðan hljóma hin undarlegu orð, móðgandi og læknandi í senn og verða fegursti hljóm- ur lífsins inn í örvæni og ör- vinglun: „Syndir þínar eru fyrirgefn- ar. Statt upp og gakk á bjarta braut, því búin er nú gjörvöli þraut.“ Árelíus Níelsson. ■ Xív^aS/ Ihuð LOgtOK Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavík f. h. borgarsjóðs og að undangengnum úrskurði, verða lögtök látin fara fram fyrir ógoldnum útsvörum til borgarsjóðs fyrir árið 1961, er lögð voru á við aukaniðurjöfnun skv. 25. gr. útsvarslaganna og fallin eru í eindaga, svo og fyrir dráttarvöxtum og kostnaði, að átta dögum liðnum frá birtingu þess- arar auglýsingar, verði gjöld þessi eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetinn í Reykjavik, 19. janúar 1962. Kr. Kristjánsson. osKast Reglusöm miðaldra hjón, óska að taka á leigu íbúð, eða hús, í Reykjavík eða ná- grenni. Mætti vera allt að 50—60 km. frá Reykjavík. Tilboð sendist blaðinu fyrir fimmtudagskvöld, merkt íbúð. i ÞAKKARÁVÖRP Raflagnaefm Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu mér vin- áttu og tryggð á 70 ára afmælinu með kveðjum og gjöfum og heimsóknum. Vinátta ykkar verður mér ógleymanleg á óförnum ævibrautum. Helgi Erlendsson, Hlíðarenda. RÖR — ROFAR VÍR — TENGLAR KAPLAR — VARHÚS Sendum gegn póstkröfu. 1 : + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Björns Björnssonar, Ásvallagötu 39. Börn og tengdabörn. Klapparstíg 27. Sími 22580. IVIeðan eldarnir brenna (Orrustan um Rússland 1941) Stórkostleg striðskvikmynd eftir sögu Alexander Dovjenko. Fyrsta kvikmyndin, sem Rússar taka á 70 mm filmu með 6-földum stereó- hljóm. Myndin er gullverðlaunamynd frá Cannes. Sýnd klukkan 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. — Pantaðir aögöngumiðar verða geymdir þar til sýning hefst. BARNASÝNING kl. 3. Aðgangur bannaður Sprenghlægileg og spennandi gamanmynd með Miekey Roney og Bob Hope. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík, óskar að ráða konu til húsvörzlu í Félagsheimilinu Tjarnargötu 26. Æskilegt er að viðkomandi geti tekið að sér ræstingu og haft með höndum lítils háttar greiðasölu. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu fulltrúa- ráðsins í Tjarnargötu 26, sími 15564. Auglýsing Jörðin Neðri-Harrastaðir í Skagahreppi í Austur- Húnavatnssýslu er til sölu nú þegar, og laus til ábúðar í næstu fardögum 1962. Steinsteypt íbúðar- hús nýbyggt er á jörðinni, túnið er 10 ha. að stærð og allt véltækt. Útræktarmöguleikar miklir, vega- samband er ágætt. Kauptilboð sendist til undirritaðs eiganda fyrir 1. apríl n.k. sem einnig gefur allar nánari upplýs- ingar. Réttur er áskilinn til að taka hvaða kaup- tilboði sem er, eða hafna öllum. Davíð Sigtryggsson. Nauðungaruppboð það, sem auglýst var í 106., 107., 108. og 109. tbl. Lögbirtingablaðsins 1961 á Hrauntungu 7 (Lindarvegi 7) eign Jóhanns Sigurðar Gunnsteins- sonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22. janúar 1962 kl. 14. Bæjarfógetinn í Kópavogi. T í MIN N , sunnudaginn 21. janúar 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.