Tíminn - 20.02.1962, Page 12
Sveit Í.R,
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Afmælisskíðamót f.S.X. var háð
við skíðaskálann í Hveradölum sl.
sunnudag og var mótið sett af for-
manni S.K.I., Einari Pálssyni.
Mættir voru til leiks um 40 kepp
endur, keppt var í svigi (sex
manna sveitakeppni). Veður var
sæmilegt, snjómugga og logn. Kepp
endur voru frá: Akureyri, ísafirði,
Siglufirði og Reykjavíkurfélögun-
uim Ármanni, KR., Víkingi og ÍR.
Úrslit urðu sem hér segir: Sveit
ÍR vann. Keppendur í sveit ÍR
voru: Guðni Sigfússcm, Haraldur
Pálsson, Þorbergur Eysteinsson,
Jakobína Jakobsdóttir, Rúnar Stein
dórsson og Þórir Lárusson.
Bezta samanlagð'an brautartím-
anna hafði Guðni Sigfússon, ÍR,
81,8 sek. 2. Bjarni Einarsson, Ár-
manni, 82,5 sek. 3. Hilmar Stein-
grímsscon, KR, 83,9 sek. 4. Har-
aldur Pálsson, ÍR, 86,5 sek. 5. Haf-
steinn Sigurðsson, SRÍ, 87,5. 6—7
Bogi Nílsson, KR, 87.8 sek. 6—7
Ásgeir Úlfarsson, KR, 87,7 sek. 8.
Marteinn Guðjónsson, KR, 88,2
Margt var um manninn þar efra
og áberandi hve margir
gamlir skíðamenn voru þar saman
komnir. Eftir keppnina var sam-
eiginleg kaffidrykkja í boð'i Skíða-
ráðs Rvíkur og gestgjafans Öla
B. Ólasonar.
Mótstjóri Stefán Björnsson for-
maður Skíðafélags Reykjavíkur
bauð gesti velkomna. Forseti ÍSÍ
afhenti verðlaun og flutti mjög
skemmtilega hvatningarræðu til
iskíð'amanna; enn fremur flutti
ræðu Herluf Clauseh, stórkaupm.,
sem er einn af forvígismönnum
Skíðafélags Reykjavíkur. Mót þetta
fór hið bezta fram. Var það hið
mesta gleðiefni, að keppendur ut-
an af landi sáu sér fært að mæta
við þetta sérstaka tækifæri.
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ, afhendir Guðna Sigfússyni, ÍR, verSlaun, en hann náði beztum brautartíma. —
(Ljósmynd Bjarnleifur).
Ovænt mótstaða
•inga gegn FH
Mjög mikið var um
íþróttaviðburði um
helgina, bæöi hér
heima og eriendis, en
sökum rúmleysis
veröur mikiö efni að
bíða til morguns. Þá
verður m.a. sagt frá
heimsmeistarakeppni
þeirri í skíðaíþróttum
sem nú fer fram í
Póllandi og Frakk-
landi.
Staðan í
1. deild
Staðan í íslandsmótinu í 1.
deild er þannig eftir leikina á
sunnudagiftn:
F.H. 3 3 0 0 106—60 6
Fram 2 2 0 0 61—40 4
Víkinigur 2 1 0 1 38—36 2
Í.R. 2 10 1 41—64 2
K.R. 3 0 0 3 58—71 0
Valur 2 0 0 2 37—77 0
12
Frábær markvarzla Guðjóns
Ólafssonar og mikil skotharka
Reynis Ólafssonar gerðu það
að verkum, að leikur KR við
íslandsmeistara FH á sunnu-
i dagskvöldið varð mjög
skemmtilegur og jafn fram á
síðustu mínúturnar, en loka-
sprettur íslandsmeistaranna
færði þeim sigur með fimm
marka mun 27—22 í bezta
leik, sem sést hefur milli ís-
lenzkra liða í vetur. Og áhorf-
endur voru sannarlega með á
nótunum. og engu líkara eftir
hrópum þeirra að dæma, að
um hreinan úrslitaleik væri að
ræða.
i Fyrir fram töldu flestir, að KR-
ingar hefðu ekki nokkra mögu-
leika til að standa nokkuð í FH —
eftir fyrri leikjum liðanna í mót-
inu að dæma. En þetta fór á aðra
leið, og það er eins og KR-ingar
eflist, þegar mótstaðan er hvað óá-
renmilegust. En KR-liðið er of ó-
jaínt til þess að geta leikið af sama
krafti allan leikinn, og því fór svo
undir lokin, að FH náði yfirhönd-
inni — en liðið hafð'i þó allan tím-
a«n leikið vel og af sinni alkunnu
getu.
Jafnt < hálfleik
Eftir talsvert þóf tókst Erni
I Hallsteinssyni að skora fyrsta
I markið fyrir FH, en Karl jafnaði
strax og Herbert náði forustunni
fyrir KR Ekki líkað'i FH-mönnum
þetta ve4 og þeir skoruðu næstu
þrjú mörk (Birgir, Pétur og Örn).
j KR fékk þá ' vítakast, en Reynir
'skaut á markstöngina, en rétt á!m
I eftir skoraði hann sitt fyrsta mark,
!4—3, en hann átti eftir að koma
[ mikið við sögu í leiknum og varð
! langmarkahæstur í honum.
! Pétur jók töluna í 5—3 fyrir FH
■en Reynir jafnaði og skoraði síð-
ara markið úr víti, 5—5, og 15 mín.
af leik. Kristjáit náði enn forustu
fyrir FH, en Herbert jafnaði. FH
náði nú góðum kafla og skoraði
fjögur mörk gegn einu hjá KR. En
KR-ingar létu það ekki á sig fá, og
þegar rúmar 20 mín, voru af leik
var staðan orðin jöfn, 11—11, og
skoraði Reynir þrjú af þessum
mörkjim KR. Liðin skiptust nú á
að /sícora, en þegar mínúta var í
hálfleikinn komst KR í annað
s'kipti yfir, en það stóð ekki nema
Markhæstir
í 1. deild
Markahæstu leikmennirnir í
meistaraflokki, 1. deild, eru
nú þessir. Þess ber að geta,
að FH og KR hafa lcikið þrjá
leiki, en hin liðin tvo.
Ragnar Jónsson, FH, 33
Birgir Björnsson, FH, 24
Reynir Ólafsson, KR, 23
. Ingólfur Óskarsson, Fram, 22
Iíristján Stefánsson, FH, 18
Guiinl. Hjálmarsson, ÍR.
Karl Jóhannsson. KR,
Pétur Antonsson, FH,
Hennann Samúelsson, ÍR,
Geii Hjartarson, Val,
Örn Hallsteinsson, FH,
Hiimar Ólafsson, Fram.
14
14
14
13
12
12
10
nokkrar sekúndur, því að þá jafn-
aði Ragnar fyrir FH og staðan í
hálfleik var því jöfn 14—14.
Guðjón Ólafsson, markvörður
KR, hlaut mikið Iof áhorfenda fyrir
frábæran lelk í marki, enda bjarg-
aði hann oft snilidarlegta. Iljalti
Einarsson var hins vegar ekki
beint í essinu sínu þennan h'áif-
leik, og hann átti í miklum erfið-
jlcikum með láigskot KR-inga. En
hins vegar tókst Hjalta mjög vel
upp í síðari hálfleiknum, enda var
FH-vörnin þá betur staðsett gegn
iágskotunum, og rar erfitt að koma
þeim í gegn.
Jafnt framan af
Framan af síðari hálfleiknum
var stað'an mjög jöfn. Birgir skor-
aði fyrsta markið fyrlr FPI, en
Heinz og Karl svöruðu fyrir KR,
en það var lika í síðasta skipti í
leiknum, sem KR hafði yfir. FH
skoraði þrjú næstu mörk, 18—16
fyrir FH. Þessi tveggja marka
munur hélzt þar til um miðjan hálf
leikinn, að FH herti enn róðurinn
ag komst fjórum mörkuim yfir
23—19. En Reynir skoraði þá enn
tvö mörk og spenningurinn hélzt
En hann fór aðeins síðar út af um
tíma, enda útkeyrður, og skoraði
FH þá fj'ögur mörk án þess að KR
svaraði og gerði þar með út um
leikinn, 27—21. En síðasta markið
skorað'i Reynir svo, og FH vann því
með fimm marka mun.
Lið FH sýndi oft í þessum leik
ágætan handknattleik, einkum þó í
síðari hálfleikmum, og var Birgir
þeirra bezti maður. en Einar og
Kristján áttu einnig ágætan leik,
og Örn er stöðugt vaxandi leík-
maður Hins vegar átti Ragnar
ekki eins góðan leik og áður í mót-
inu, en alltaf er hann þó hættu
legur.
(Framh a 15 síðu
JafntefH h|á St. Mirren
St. Mirren gerði jafntefli í
bikarkeppninni á Iaugardag-
inn, eitt eitt, gcgn Raith Rov-
ers, sem skoraði eftir tvær
mínútur, en Fernie jafnaði
fyrir St. Mirrcn stuttu síðar.
Brown, markvörður, meiddist
í leiknum og var út af í 20
mínútur. Clunie fór þá í mark.
Þórólfi er mjög hælt í skozk-
um blöffum fyrir leik sinn,
þótt hann skoraði ekki. Liðin
leika aftur í dag á heimavelli
St. Mirren. Nánar síðar.
Rússi heimsmeistari
Heimsmeistarakeppninni í
skautahlaupum lauk í Moskvu
á sunnudag með sigri Kosich-
kins, Sovétríkjunum. Annar
varð heimsmeistarinn frá í
fyrra, van der Grift, Hollandi.
Þriðji Ivar Niisson, Svíþjóð,
og í fjórða sæti Boris Stenin,
Sovétríkjunum. í fimmta og
sjötta sæti voru tveir Kín-
verjar.
Svíar standa sig
Sigurvegari í 500 m. hlaup-
inu varð Grishjin, Sovét, á 41.7
sek, en hann hefur verið
nær ósigrandi í þessari grein
síðustu 10 árin. Annar varð
Stenin á 42.1 sek. og Grift
þrigiji á 42.7 sek. Knud Jo-
hannesen, Noregi, gekk illa í
þessu hlaupi, varð aðeins 27.
á 45.2 sek. og möguleikar hans
til sigurs voru þar með úti. í
5000 m. hlaupinu á iaugardag
kom Ivar Nilsson mjög á
óvart og sigraði á 8:03.2 mín.
Kosichkin hljóp á 8:04.9 mín.
í 10000 urðu úrslit enn óvænt-
ari. Ungur óþekktur Svíi,
Johnny Nilsson, sigraði með
yfirburðum. Annar varð landi
hans Ivar Nilsson og þriðji,
nýi heimsmeistarinn. Nánar
verður sagt frá keppninni á
morgun.
Japani fyrstur í stökki
í stökkkeppninni í norrænni
tvíkeppní í heimsmeistara-
keppninni í Zakopane í Pól-
landi, sigraði Eto frá Japan,
óvænt, hlaut 245.2 stig. Annar
varð Arne Larsen, Noregi,
með 242 stig. Þriðji Kosjin,
Sovét, með 240.5 stig. Fjórði
Dietl, Austúr-Þýzkalandi, með
238.3 stig og fimmti Kastinver,
Austurríki með 230 stig. Arne
Larsen er talinn mjög sigur-
stranglegur í kcppninni, þar
sem hann er mun betri göngu-
maður en Japaninn og Rúss-
inn. Ólympíumeistaranum, Ge-
orge Thoma frá Vestur-Þýzka-
landi, misheppnaðist í stökk-
kcppninni, og kemur varla til
greina sem sigurvegari. í 5
km. skíðagöngu kvenna urðu
þrjár rússneskar stúlkur
fremstar.
Bozon sigraði í svigi
í lieimsmeistarakeppninni í
Camonix í Frakklandi, urðu
tveir Frakkar beztir í svig-
keppninni. — Sigurvegari
varð Charles Bozon á 141.6
sek. Annar Gay Perillat á 143.0
sek. Þriðji Nenning, Austur-
ríki, á 144.2 sek. og fjórði Karl
Schranz, Austurríki, á 144,2
sek. Bezti Norðurlandabúi var
Ftiininn Manninen í 10. sæti.
Nánar verður sagt frá keppn-
inni á morgiin, svo og keppn-
inni í Zakopane.
TIMINN. briðjudaginn 20. febrúar 1962