Tíminn - 20.02.1962, Blaðsíða 13
95 ára í dag:
Hristrún Finnsdóttir
Tvennt er mér minnisstæðast I
um bemskustöðvar mínar, fagurt'
landslag og gott fólk. — Djúpi-
vogur var raunar lítið þorp, en
þar og í sveitunum í kring mátti
kenna margháttuð áhrif hinna ó-
IMegustu menningarstrauma.
Þar voru menn, er dvalið höfðu
við erlenda háskóla, aðrir, sem'
siglt höfðu um flest heimsins
höf, kaupafólk, er verið hafði í
nánum tengslúm við umheiminn,
listrænt fólk, sem gengið hafði út
og inn í musterum listarinnar suð
ur u-m alla Evrópu, leikunnend-
ur, sem kunnu góð skil á uppeldis
áhrifum leiklistarinnar. — Allir
þessir fjölbreyttu straumar runnu
eaman við bændamenningu sveit-
anna, sem lýsti sér í fási bænda-
fólksins, eðlisgróin kurteisi í um-
gengni, tillitssemi og hjálpsemi.
— Lífið var frjálst og óþvingað',
börn og fullorðnir ræddust við,
unnu saman og skemmtu sér sam
an, og heimilin stóðu opin til allra
góðra kynna. Hin létta, aust-
firzka glaðværð blandaðist alvöru
lífsins í hæfilegum hlutföllum.
Þetta á ekki að verða grein um
Djúpavog, heldur aðeins heilla-
ósk til gamallar konu, sem eitt
sinn var húsmóðir í Sólhól, næsta |
húsl við Hraun, þar sem ég var
upp alinn. Nú er Kristrún orðin
95 ára göanul, og þeir tímar virð-
ast harla fjarri, þegar við Hrauns
bræðurnir gengum út og inn um1
dyr hennar, eins og heimagangar
og áttum börn hennar að leik-
systkinum.
Kristrún var fædd að Tungu í
Fáskrúðsfirði hinn 20. febrúar
1867, en ólst upp í Vík fram að
tvítugsaldri, hjá nánu frændfólki
sínu. En foreldrar Kristrúnar
voru Finnur bóndi Guðmundsson
og Anna Guðmundsdóttir. Krist-
rún fluttist til Djúpavogs og gift-
ist þar Lúðvík heitnum Jónssyni
snikkara, mætum dugnaðarmanni.
Gömu! saga og ný
Það hefur löngum verið talið
einkenni hrörnunar og ellilas-
leika, að' þykja allt hafi verið
gott áður fyrr, en nú sé raunin
önnur og öllu aftur farið. ;,Hin-
ir gömlu og góðu tímar“, er í
mörgum tilfellum eins konar
hreystiorð í úrræðaleysi dvín-
andi krafta og hrumleika.
Þessara einkenna gætir
undra mikið hjá andstæðingum
samvinnufélaganna. Þeim er
gjarnt á að finnast samvinnu-
félögin fyrir eina tíð hafa verið
virðingarverðar stofnanir og
„merkt félagsform". Svo góð
voru þau jafnvel í þá gömlu
daga, að „skattfríðiudi“ S.f.S.
voru sanngjörn á bernskuárum
samvinnustefnunnar“, segja
menn. Nú sé öðruvísi ástatt.
Nú sé S.Í.S. „orðið eitt mesta
aúð'félagið í landinu, og jafn-
framt eitt hið spilltasta". (Hver
skyldu hin „spilltustu“ auðfé-
lög vera?).
Það hefur verið marghrakið
með rökum, að samvinnusam-
tök eigi nokkuð skylt við „auð-
félög“. Alls staðar í heiminum
hafa samvinnufélögin og sam-
bönd þeirra átt í baráttu við
, hringa“ og „auðfélög" til mik
illa heilla fyrir landsfólkið. —
Óíti andstæðinganna um það
að samvinnufélögin séu í hring
um og „spilling nútímans sé
sérstaklega áleitin við’ þau, er
ástæðulaus. Andstæðingar sam
vinnustefnunnar eru búnir að
gleyma því, að frá fyrstu tíð
hafa kaupfélögin og síðar Sam
bandið, átt í sífelldum deilum
nt af útsvars- og skattálagn-
ingu. Á fyrstu árum ICaupfélags
Þingeyinga urðu forsvarsmenn
þess að standa dag efti'r dag
fyrir rétti, til þess að' verjast
vanglátri og tilhæfulausri skatt
lágningu. Síðan hefur sagan
endurtekið sig, bæði hvað snert
ir kaupfélögin og Sambandið.
Heð samvinnulögunum var þess
um málum komið á fastan
grundvöll, en þó hefur árásum ]
ekki verið lokið.
Sagan um „spillinguna“ er
heldur ekki ný. Þegar allt ann-
að' hefur þrotið, hafa andstæð
ingarnir gripið til slíkra ásak-
ana hvað eftir annað. Nefna
má, að' árið 1921 réðst merkur
athafnamaður og s.íðar þingmað
ur á Sambandið og „spillingu“
þess í opinberum fyrirlestri. í
tilefni þess gaf Landsbanki ís-
lands út opinbert álit á fjár-
hag Sambandsins og fann ekk-
ert athugavert. Árið 1922 var
bæklingi um „spillingu“ Sam-
bands.'ns, eftir merkan kaup-
sýslumann, dreift inn á flest
öll heimili á íslandi. Ummæl-
um hans var síðar hnekkt með
dómi. Þannig mætti margt
fleira telja.
Sannleikurinn er sá, að fyrr
og síðar hafa andstæðingar
Samvinnustefnunnar reynt að
hnekkja kaupfélögunum og
Sambandinu á röngum forsend
um. Það' er gömul saga og einn
ig ný. Þetta hefur ekki tekizt
og mun ekki takast, sem betur
fer fyrir landsfólkið, einnig fyr
ir þá misvitru menn, sem grípa
til óheppilegra ráða, þegar þá
brestur önnur.
Á hinum merka afmælisdegi
Samvinnustefnunnar á fslandi
nú í dag, gleðjast samvinnu-
menn yfir mörgum drengileg-
uin sigrum. Andstæðingar
þeirra munu Iíka í dag slíðra
vopnin og hugsa hlýtt til hreyf
ingarinnar, eins og góðum
drengjum sæmir, þótt mikið
beri á milli í skoðunum og
stefnu. Að minnsta kosti á há-
tíðisdögum eru mennirnir gædd
ir þeim eiginleikum, að geta
virt og metið hvor annan og
hvors annars skoðanir og lífs-
viðhorf, þótt þau seint eða
aldrei verði hin sömu.
PHJ
Mann sinn missti hún árið 1912.
Andaðist hann á skipsfjöl á leið
frá Reykjavík. Reyndi þá mikið
á Kristrúnu, en börn hennar voru
enn í æsku. Fluttist þá til þeirra
Guðmundur Finnsson, bróðir henn
ar, merkilegur og sérkennilegur
maður á marga lund, sem átti
eftir að hafa góð og mikil áhrif
á félags'líf á Djúpavogi.
Kristrún er mér minnisstæð
sem yfirlætislaus kona, vingjarn-
leg og barngóð. Yfir öllu dagfari
hennar var þokki, og minnist ég
þess ekki, að ég sæi hana öðru-
vísi í einn tíma en annan. Reglu-
semi, látleysi og snyrtimennska
einkenndi stjórn hennar á heim-
ili bæði utan og innan húss. Sjálf
var hún afskiptalítil út á við, en
heimilið var oft vettvangur þess
félagsiífs, sem þá þróaðist á Djúpa
vogi. Mér eru í minni skemmti-
leg samkvæmi og gestaboð í Sól-
hóli, þar sem ungir og gamiir
lögðu fram sameiginlegan skerf
við leik, söng og dans( og alvarleg
ar samræður inn á milli. Á heim
iiið komu einnig margir ferða-
menn og gestir.
Börn þeirra Lúðvflcs og Krist-
rúnar, er upp komust, eru Ágúst,
lengst af verzlunarmaður á Djúpa
vogi, kvæntur Stefaníu Gísladótt
ur, og Sigurbjörg, húsfreyja í
Reykjavík. — Bæði eru þau nú
flutt hingað suður, og er Krist-
rún nú til heimilis hjá Ágústi
syni sínum að Tjarnarbraut 10 á
Seltjarnarnesi.
Kristrím er vel ern, þrátt fyrir
sinn háa aldur. Starfskraftar
þ-.nrra að vonum, en þó mun
ekki langt síðan handavinna henn
ar þoldi samanburð við vinnu
þeirra, sem yngri eru að árum.
Eg hið ^Kristrúnu frá Sólhóli
wSáfe iþessa fátæklegu kveðju
mína sem þakkarvott frá dreng,
sem eitt sinn gekk daglega um
dyr hennar, — en ég veit, að ég
tala fyrir munn fjölda gamalla
góðvina, er ég óska henni allra
heilla og guðs blessunar á afmæl
isdegi hennar og þeim árum sem
hún á ólifuð.
Jakob Jónsson.
Kaupfélag þingeyíRga
FramhaW at 8 síðu
atvinnurekstrar, menningarmála og
þjónustu við fólkið.
Fyrsti framkvæmdastjóri Kaup-
félags Þingeyinga var sem kunn-
ugt er Jakob Hálfdanarson. Aðrir
framkvæmdastjórar hafa verið
Sigurður Bjarklind, Karl Krist-
jánsson, Þórhallur Sigtryggsson og
Finnur Kristjánsson sem tók við
félaginu fyrir nokkrum árum.
Síðasti áratugurinn hefur' orðið
mikið framfaratímabil í sögu
Kaupfélags Þingeyinga. Félagið á
nú mikið verzlunar- og skrifstofu-
hús í Húsavik, þar sem helztu sölu-
búðir þess eru. Einnig rekur það
sölubúðir á öðrum stöðum í kaup-
staðnum. Félagið hefur á síðustu
árum tekið upp kjörbúðarvið-
skipti. Vel búið mjólkursamlag
starfar á vegum félagsins og stórt
slátur- og frystihús, er nú farið að
eldast, en nýbygging mun hefjast
á þessu ári. Þá hefur félagið tekið
síaukinn þátt í útgerð og fisk-
vinnslu. t Húsavík hefur félagið
sett á stofn umferðamiðstöð, þar
sem afgreiðsla skipa, flugvéla og
bifreiða fer fram, og er sú starf-
semi til fyrirmyndar.
Loks er þess að geta, að á síð-
asta áratugi hefur félagið reist úti-
bú frammi í sveitum Þingeyjar-
sýslu, og eru slíkar verzlanir hinar
myndarlegustu í Reykjahlíð við
Mývatn og að Brúum við Laxá,
einnig eru vörugeymslur víðar og
vörusala, t. d. að Ófeigsstöðum.
Margvíslega þjónustustarfsemi
aðra rekur félagið og fer sífellt í
vöxt. Félagsmannatala hefur og
BÆNDUR
BÆNDUR
Massey-Ferguson - Kartöfluset jarar
EINFÖLD BYGGING — STERK MOLDVERPI —
GÓÐ AFKÖST
f'4 Jvrr- r-gwawMMmi,
=• ,>v
eru helztu eiginleikar 2-raöa kartöflusetjarans
frá Massey-Ferguson. — Tækið má fá með
kartöflukassa úr málmi, eða án hans til notkun-
ar með trégrind fyrir venjulega útsæðiskassa.
Einnig má fá rtyeð honum áburðardreifiútbúnað til
notkunar um leið og sett er, — og er þá afstaða
(dýpt og hliðarafstaða) áburðardreifarinnar stillan-
leg með tilliti til legu útsæðisins.
Verð (án kassa): Um kr. 10.000.00.
Með kassa: Um kr. 10.900.00.
NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ KAUPFÉLÖGUN-
UM.
DRATTARVELAR H.F.
Sambandshúsinu, Reykjavík
Sími 1 70 80.
farið sívaxandi í samræmi við
fólksfjölgun á félagssvæðinu, en
það er frá Ljósavatnsskarði að
vestan til Kelduhverfis að austan,
og eru þau mörk þó hvergi nærri
glögg. Segja má, að allir íbúar hér-
aðsins hafi einhver skipti við
kaupfélagið, meira eða minni, en
langflestir hafa þar öll helztu við-
skipti sín og njóta margvíslegrar
þjónustu þess. Mjög lítil önnur
verzlun er í héraðinu, enda er
Þingeyjarsýsla og hefur verið
meðal fremstu samvinnuhéraða
landsins.
Núverandi stjórn Kaupfélags,
Þingeyinga skipa: Karl Kristjáns-
son, alþingismaður, formaður,
Úlfur Indnðason, bóndi Héðins-1
höfða, Baldur Baldvinsson, bóndi,
Ófeigsstöðum, Teitur Björnsson,
bóndi Brún, Þráinn Maríusson út-
gerðarmaður Húsavík, Skafti Bene-
diktsson ráðunautur Garði og 111-
ugi Jónsson, bóndi Bjargi.
2. síðan
(Framhald af 2. síðu).
mér varð að lokum ljóst, að það
var það eina, sem átti við mig.
— Þegar ég giftist Tommy
Sands, hætti ég að vinna og ætl-
aði eingöngu að helga mig heim-
ilinu, en mér leiddist svo, að ég
fór að vinna aftur.
Nancy er orðin tuttugu ára, og
hún segist vera tekin að venjast
því, þegar fólk reynir að hafa
gott af henni vegna nafnsins. Að-
ur en hún giftist varð hún oft
fyrir því, að ungir söngvarar og
leikarar hringdu til hennar og
báðu hana að koma á stefnumót
við sig, aðeins til að fá nöfn sín
í blöðin.
— Pabbi gaf mér aldrei nein
ráð viðvíkjandi því. Hann treysti
dómgreind minni fullkomlega, og
vissi, að ég mundi alltaf segja
nei-takk. Við mamma töluðum
meira saman um vandamál eins
og þetta. Við vildum ekki ergja
pabba með neinu' slíku, nema
það væri eitthvað mikilvægt.
Frank Sinatra er frægur fyrir
skap sitt og einstakt örlæti og
veglyndi, þegar hann vill það við
hafa. En er nú Nancy lík honum,
hvað það snertir? Hún svarar
því sjálf:
— Ég er 'ekki eigingjörn, en
við eigum engin ósköp í banka,
og getum því ekki eytt peningum.
á sama hátt og pabbi. Við getum
ekki gefið öllum peninga, sem
þörf hafa fyrir þá. En við erum
alls ekki nízk. Nýlega var einn
vinur okkar í mikilli fjárþröng,
og við lánuðum honum eins mik-
ið og við mögulega gátum komizt
af með.
Pabbi er glaðlyndur náungi, og
hann hefur þá skoðun, að maður
eigi að njóta lífsins, hvað sem
það kostar. Og hann á víst nóga
peninga til þess að lifa sam-
kvæmt þeirrí skoðun sinni.
Nancy er vissulega ekki eins
rík og hinn frægi faðir hennar,
en hún er áreiðanlega eins ham-
ingjusöm.
VARMA
PLAST
EINANGRUN.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7. Sími 22235
TIMIN N, þriðjudaginn 20. febrúar 1962
13