Tíminn - 08.03.1962, Blaðsíða 2
V
VORUGJOLD H4KKA
FRÁ 50 UPP í 800%
Þann 1. janúar sl. tóku gildi
ný ákvæði um gjöld þau af
vörum, sem fara í gegnum
höfnina hér í Reykjavík. Hafa
vörugjöld með þessu hækkað
gífurlega í einstökum liðum,
eða allt að því um 800%, en
minnsta hækkun er fimmtíu
prósent. Þessar hækkanir eru
gerðar á sama tíma og því er
heitið að halda kaupgjaldi og
verðlagi stöðugu.
Hins vegar liggur í augum uppi,
að þessi gífurlega hækkun vöru-
gjalda hefur bein áhrif á verð-
lagið og hækkar framfærslukostn-
aðinn.
Það var hafnarstjórn, sem gerði
tillögu um hækkanir á vörugjöld-
um, með það fyrir augum, að féð,
sem þannig fengist, yrði notað til
hafnargerða.
Þegar það er haft í huga, að
aíkoma almennings er ekki með
miklum blóma um þessar mundir,
vekur það fuiðu, að hleypt skuli
allt að 800% vörugjaldahækkun
inn í verðlagið, eins og þarna hef-
ur verið gert. Hafnarstjórn hefur
sjálfsagt verið mikið í mun að fá
sem mest fé til framkvæmdanna,
cn ákvörðunina um þessa hækkun
tekur samgöngumálaráðherra, sem
er Emil Jónsson, og hefði hann
getað dregið úr þessum hækkun-
um, hefði hann viljað.
Til að fólk geti gert sér nokkra
grein fyrir því, hve hækkanir þess-
ar eru stórfelldar, birtir Tíminn
hér á eftir nokkur almennustu
atriðin.
Gjöld af skipum hafa hækkað
frá 25%—70%, og jafnframt hefur
gjaldaútreikningi verið breytt
þannig, að nú er reiknað út frá
brúttólestatölu, en áður var stuðzt
við nettólestatölu skipa.
Vörugjaldahækkunin á tóbaki
og áfengi memur 566%. Gjald af
járnvörum, svo sem þakplötum,
pípum, keðjum, miðstöðvarofnum
Dagskrá menn-
ingarvikunnar
í sa-mbandi við menningarviku
samtaka hernámsandstæðinga verð
ur kvöldvaka í Listamannaskálan-
um í kvöld, og hefst hún klukkan
9. Þar munu skáld lesa úr verkum
sínum og Kristinn Hallsson syngja
með undirleik Fritz Weisshappel.
Þessir rithöfundar munu lesa úr
verkum sínum: Ásta Sigurðardótt-
ir, Geir Kristjánsson, Baldur Osk
ar’sson, Böðvar Böðvarsson, Hann-
es Sigfússon, Jóhannes úr Kötlum,
Jón Óskar, Jón úr Vör og Þórberg
ur Þórðarson.
Horfur
verkfalli
Á samningafundi sáttasemj-
ara með fulltrúum togarasjó-
manna á mánudagskvöld tók-
ust ekki samningar og ekkert
sérstakt gerðist. Náist ekki
samningur fyrir miðnætti að-
faranótt laugardagsins 10. þ.
m., kemur vinnustöðvun á öll-
um íslenzka togaraflotanum til
framkvæmda, en að þeirri
vinnustöðvun standa 8 sjó-
mannafélög víðs végar að á
landinu.
Þessi félög eru: Sjómannafélag
Reykjavíkur, Sjóm.félag Hafnar-
fjarðar, Verkalýðsfél. Akraness,
Verkalýðsfél. Patreksfjarðar, Sjó-
mannafélag ísafjarðar, Sjómanna-
félag Akureyrar, Verkamannafélag
ið Þróttur, Siglufirði, og Matsveina
félag S.S.I., en í því eru matsvein-
ar á öllum fiskiskipunum. Þessi
átta félög eiga öll samningsrétt um
kaup og kjör sjómanna á togurun-
um og standa að þessari verkfalls-
boðun.
Hærra kaup og fiskverð
Snemma í haust var látin fara
fram atkvæðagreiðsla meðal tog-
arasjómanna um heimild til vinnu
stöðvunar, og hafa þeir því beðið
með trompið á hendinni nokkuð
lengi. Síðan hafa samningaumleyt
anir staðið yfir alltaf annað slagið,
þó að samkomulag hafi ekki náðst
en málið var komið í hendur sátta
semjara þegar fyrir áramót. Aðal-
krafa sjómanna er sú, að skipverj-
um verði greitt fullt verð fyrir fisk
inn, þegar landað er til vinnslu
hér heima eða hið sama og útgerð
armenn fá í sinn hlut. Auk þess
fara sjómenn fram á 12—13%
fastakaupshækkun og fleiri smá-
vægilegar leiðréttingar.
Yfir 30 togarar geta stöðvazt
A fundinum með sáttasemjara á
mánudagskvöld gerðist ekkert sér
stakt, og hafði ekki verið boðaður
annar fundur, þegar blaðið spurð
ist fyrir um það hjá sáttasemjara
í gær. Hins vegar kvað hann full-
víst, að boðaður yrði fundur áður
en verkfall hefst. Fundurinn á
mánudagskvöldið stóð til kl. 11.30.
Þess má geta í sambandi við samn
ingana, að sami samningur hefur
gilt fyrir togara, hvaðan sem þeir
eru af landinu, og hversu margir
togarar, sem heyra undir hvert
hinna átta sjómannafélaga, eiga
þau aðeins einn fulltrúa í þeirri
samninganefnd, sem nú situr á
rökstólum.
I eigu landsmanna munu nú vera
46 togarar, en 12 eða 13 þeiira
hafa legið óhreyfðir að undan-
förnu. Ef ekki takast samningar á
næstunni, munu yfir þrjátíu togar
ar stöðvast. Það verður þó mis-
jafnlega fljótt, því að þeir, sem
farnir eru á veiðar, þegar verkfall
skellur á, mega ljúka bæði veiði-
ferð og sölutúr. En þeir, sem
verða í höfn um miðnætti- aðfara
nótt laugardags, munu verða kyrr
settir, ef samningar takast ekki
fyrir þann tíma.
og stálvír, hækkar um 300%. Gjald
af bifreiðum, húsgögnum og hljóð-
færum, hækkar heldur meira.
Hækkun á bifreiðavarahlutum
nemur 123%, og í sama flokki er
raflagnaefni, eldhúsáhöld og hjól-
barðar.
Aðrar vörur eru svo ýmist fyrir
ofan eða neðan þetta.
Slegizt á Siglufirði
(Framhald at 1 síðu).
viðtals. Neitaði hflnn því. Fóru
þá mennirnir-þrír niður til hans,
og bæjarfógetinn tilkynnti honum,
að hann yrði að koma í land til
viðtals út af því, sem skeð hafði.
Virtist skipstjóiinn ætla að gegna
því, og fór þá annar lögregluþjónn
inn upp auk bæjarfógetans. Þegar
skipstjórinn var orðinn einn með
lögreglumanninum, gerði hann sig
líklegan til þess að ráðast á hann
og neitaði algerlega að koma með
honum í land. Lögregluþjónninn
hélt ijyí manninum, þar til honum
barst hjálp, og var hann hand-
járnaður og fluttur í land með
valdi. Var farið með hann á lög-
regluvarðstofuna, og hann síðan
settur í fangaklefa.
Nú var klukkan orðin 1 eftir
miðnætti. Tveir af skipsmönnum
tógarans voru fluttir í land, þeir,
sem álitið var að staðið hefðu fyr
ir árásinni á piltana. Þeir voru
úrskurðaðir í gæzluvarðhald og
settir inn.
í gær kl. 14.30 hófust svo réttar-
höld í máli skipstjórans og mann-
anna. Stóðu þau enn yfir um kl.
20 í gærkvöldi. Þá höfðu 5 skips-
menn verið teknir fyrir rétt, og
hafði einn þeirra kannast við að
hafa annaðhvort kastað flösku
eða barið einn íslendinginn með
henni. Ekki hafði skipstjórinn enn
verið kallaður fyrir, en réttarhöld
unum var lialdið áfram í gær-
kvöldi.
PiJturinn, sem játaði að hafa
kastað flöskunni, heitir Geoffeny
Roberts, og er hann aðeins 19 ára
gamall. Skipstjórinn heitir Albert
Triderich Halltrith, og er hann 34
Togarinn er frá Grimsby, eins og
fyrr segir, og er áhöfn hans £0
menn.
Sex hnífstungur
(Framhald af 1. siðu).
hans aðalhljóðfæri. Margir eídri
Reykvikingar og Hafnfirðingar
kannast vel við Júlíus síðan hann
lék á skemmtistöðum í þessum
bæjum. Fyrir nokkrum árum kom
hann í heimsókn til Reykjavíkur
og var þá vel fagnað af hinum
mörgu kunningjum sínum.
Júlíus er tvíkvæntur. Fyrst
kvæntist hann íslenzkri konu, en
þau slitu samvistum. Hann kvænt
ist aftur í Kaupmannahöfn,
danskri konu, sem hann býr nú
mseð. Hann er barnlaus.
KR0LL ER
STÖÐUG
RÁÐGÁTA
Bonn, 7. marz
Þótt fjöldi blaðamanna kepp
ist við að reyna að grafa upp,
hvað liggur raunverulega á
bak við hið harðorða skeyti
Adenauers kanzlara til Krolls
ambassadors í Moskvu, er
hann skipaði honum umsvifa-
laust að koma heim og svara
til saka, hefur ekkert lekið
út um málið frá opinberri
hálfu.
Eins og kunnugt er, var Kroll
ákærður af tveimur blöðum fyrir
að hafa gerzt málsvari mikilla eft
irgjafa Vestur-Þjóðverja við Rússa.
Hann átti að vera fylgjandi viður-
kenningu Oder-Neisse línunnar, að
skilnaði Vestur-Bei'línar og Vestur-
Þýzkalands. viðurkenningu á
stjórn Austur-Þýzkalands og loks,
að Vestur-Þýzkaland lánaði Sovét-
ríkjunum yfir 100 milljarða ísl.
króna.
Kroll er nú kominn til Bonn og
hefur setið á löngum fundum með
Schröder utanríkisráðherra. Ekk-
ert er vitað um, hvað hefur farið
á milli þeirra, en Kroll hefur ver
ið harðlega bannað að opna munn
inn opinberlega.
Keflavík — Suður*
nesjamenn.
Spiluð verður Frnmsóknarvist
í Ungmennaíélagshúsinu annað
kvöld kl. 9 s.d.
Húsið verður opnað kl. 8.30. —
Góð verðlaun. — Ókeypis að-
gangur.
F.U.F. Keflavík.
Koparsaltið kc^ii
Hin dómkvadda nefnd, sem
Kol og salt fékk sér til aðstoð-
ar í saltmálinu, var að kanna
saltbirgðir í Keflavík og senni
lega víðar á Suðurnesjum í
gær. 24 aðilar víðs vegar á
Suðurnesjum fengu eitthvað
af salti, sem skipað var upp í
Keflavík um miðjan febrúar,
og tóku strax að nota það.
Gula er nú komin fram i salt-
fiski allvíða þar syðra.
13. og 14. febrúar losaði danska
leiguskipið Axel Sif 910 tonn af
salti, sem Kol og salt flutti inn, í
Keflavík. Margir aðilar af Suður-
nesjum tóku salt strax og sumir
við skipshlið. Var saltið flutt til
Grindavíkur, Sandgerðis, Garðs,
Njarðvíkur og inn á Vatnsleysu-
iströnd, auk þess sem það var not-
jað í Keflavík.
jGulan kom fyrst fram í
jGrindavík
Þeir, sem keyptu þetta salt, áttu
mismiklar birgðir fyrir, og settu
þeir nýja saltið saman við fyrning
arnar, sem til voru í saltskemm-
unum. Saltið var stiax farið að
nota við fisksöltun, og bar ekki á
neinu óeðlilegu fyrst í stað. En
brátt kom í Ijós, -að mikil gula var
komin í nýsaltaðan fisk hjá tveim
ur söltunarstöðvum í Grindavík,
Arnarvík og Gjögri. Þess sama
varð vart í allríkum mæli í Kefla-
vík, einkum hjá þremur aðilum.
Þegar farið var að athuga málið
hjá Kol og salt og fyrirtækið hafði
gert sínar ráðstafanir, kom í ljós,
að skipið hafði flutt kopar rétt áð-
ur en það tók saltfarminn, eins og
skýrt var frá hér í blaðinu í gær.
Mun það ekki hafa verið nógu vel
hreinsað eftir þann túr, einkum
lestarbotninn, en það var botnsalt
ið, sem Grindvíkingar fengu.
Stórfjón
Nú er unnið að því' að kanna
saltið og hversu víðtækar afleiðing
ar þessi skemmd hefur haft, og
var dómkvödd nefnd að rannsaka
málið í Keflavík í gær, en í henni
er m. a. Geir Arnesen, efnaverk-
fræðingur. Útgerðarmenn munu
hafa falið L.Í.Ú. að annast málið
að einhverju leyti fyrir sig. Ekki
er þó að búast við því, að öll kurl
verði komin til grafar fyrr en eftir
hálfan mánuð til mánuð að því
er kunnugir telja. Ekki verður
neins staðar saltað með salti, sem
koparsalt hefur lent saman við, og
hafa verið gerðar ráðstafanir til
þess að fleygjr öllu því salti, sem
ekki er örugglega hreint. I gær
var Laxá að losa nýtt salt í Kefla-
vík, en samtímis var verið að aka
ónýtu salti þar í sjóinn, en hætt
er við, að fleygja verði um 2000
tonnum af salti, sem geymt er í
Reykjavík. Ekki er heldur enn
hægt að fullyrða neitt um það, hve
mikið af fiski hefur skemmzt, en
tjónið er tilfinnanlegt, því að fisk
urinn sem saltaður var með þessu
salti, var stór úrvalslínufiskur, sá
bezti saltfiskui, sem íslendingar
geta framleitt. Hann verður þó
sennilega ekki gerónýtur, því að
með því að þvo hann vandlega og
salta hann aftur með nýju salti og
herða hann síðan mikið og þurrka
ætti að vera hægt að selja hann
til Brazilíu eða Kúbu sem fjórða
flokks fisk
En í 1. flokk kemst hann aldrei og
verðmunur 1. og 4. flokks er
geysimikill.
2
T f M I N N , finimtudaginn 8. inarz 1962