Tíminn - 08.03.1962, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs
ingastjóri: Egill Bjarnason Ritstjórnarskrifstofur í Edduhúsinu;
afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Bankastræti 7
Símar: 18300—18305. Auglýsingasími 19523 Afgreiðslusími
12323 Áskriftargj kr 55 á mán. innanl í lausasölu kr. 3 eint.
— Prentsmiðjan Edda h.f. —
Kjör hjúkninarkvenna
Viðtöl Sigríðar Thorlacius við fjórar sjúkrunarkonur,
sem birtust hér í blaðinu í fyrradag, hafa v'akið mikla og
almenna athygli. Viðtöl þessi leiddu glöggt í ljós, að
hjúkrunarkonur búa við óviðunandi launakjör, enda blas-
ir við sú staðreynd, að fleiri og fieiri þeirra ráðast til
starfa erlendis og fyrirsjáanlegur er hér mikill skortur á
hiúkrunarkonum, ef ekki verður bætt úr hið bráðasta.
Hér þarf áreiðanlega ekki að rekja það. hve mikilvægt
starf hjúkrunarkvenna er og því áríðandi, að þar veljist
fyrst og fremst þær konur til starfa sem vilja gegna því
af áhuga og alúð. Þetta getur þó vitanlega því aðeins orð-
ið. að launakjör og starfskjör hjúkrunarkvenna verði
eftirsóknarverð. Hér þarf ekki aðeins að taka tillit tii
launakjaranna, heldur einnig þess, að margar hjúkrunar-
konur eru giftar og hafa um heimili að sjá. og að búa
þarf þeim, þegar svo stendur á, hentuga aðstöðu.
Hér er vissulega ekki um mál að ræða, sem snertir
hjúkrunarkonurnar fyrst og fremst. Þær munu geta séð
sér farborða, þótt þær neyðist til að taka upp önnur störf.
En þjóðfélagið getur ekki án þeirra verið. Þjóðfélagið
þarf jafnframt að tryggja, að hér veljist hinar hæfustu
konur til starfa. Þess vegna er það mál samfélagsins fyrst
og fremst, að þessi mál verði tekin til gaumgæfilegrar
athugunar og endurbóta.
í viðtölunum við hjúkrunarkonurnar kom það í Ijós
að launakjör hjúkrunarkvenna hefðu verið tiltölulega
mun betri, samanborið við aðra, fyrir nokkrum árum og
áratugum síðan. Þær hafa dregizt aftur úr í samkeppninm
síðustu árin. Þetta gildir vissulega ekki þær einar, heldur
raunar alla þá, sem vinna hjá hinu opinbera. Opinberir
starfsmenn hafa mjög dregizt aftur úr í launakapphlaupi
síðustu ára. Víða blasir þvi við hjá ríki og bæjarfélögum
sú staðreynd, að skortur er að verða á hæfum starfskröft-
um. Þetta blasir ekki sízt við á sviði uppeldismálanna. þar
sem þörfin er þó vaxandi fyrir góða starfskrafta. Það
verður því ekki lengur dregið, að ekki aðeins mál hjúkr
unarkvenna, heldur opinberra starfsmanna almennt verði
tekin til gagngerðra endurbóta og kjör þeirra a. m. k.
færð til samræmis við það, sem aðrir hafa þegar fengið
Fjársöfnunin vegna
sjóslysanna
Miklir mannskaðar hafa orðið hét við land á undan-
förnum vikum. Er þess skemmst að minnast, að vélskipið
Stuðlaberg frá Seyðisfirði fórst með allri áhöfn, ellefu
manns.
Þar var stórt skarð höggvið í sveit íslenzkra sjómanna
og þungur harmur kveðinn að mörgum heimilum í senn.
Önnur áföll og manntjón eru einnig í fersku minni.
Slíkir atburðir minna alþjóð á það, hve sameiginleg
lífsbarátta þjóðarinnar kemur þungt niður á þeim, sem
stöðugt hætta lífi sinu við störf i allra þágu. Þeir eiga
vandamenn skyldulið og ástvini. Þeirra raun er þungbær
þegar hafið heimtar sín gjöld. Vegna sjóslysanna, sem
orðið hafa á tæpum mánuði. hafa 30 börn orðið föður-
laus og mörg heimili misst fyrirvinnu sína.
Þegar slík tíðindi hafa gerzt, hefur þjóðin jafnan sýnl
það, að hana skortir ekki samhug né hjálparvilja.
í trausti þess, að svo muni einnig revnast nú hafa
nokkrir menn með biskup landsins i fararbroddi beitt séi
fyrir fjársöfnun til styrktar bágstöddum skjólstæðingum
þeirra. sem farizt hafa Meðal þeirra aðila sem veita sam
skotum móttöku, eru skrifstofa biskups, sóknarprestar og
dagblöðin.
FliÁ VETmN®! SAMESNUÐU ÞJÖPANNA:
Ísiísn á Su5ur heimskautinu eykst
en þó minnkar sjálft ísasvæðið
AlþjoSasáifmálinii um suðurskautssvæðiö — Sérfræimgar spá engi-
spreitufaraldri í sumar — Þjóðvegur um þvera Asíu — Nsff um efna-
hagsleg og félagsleg áhrif afvopnunar.
Frá upplýsingaskrifstofu
S.Þ. í Kaupmannahöfn.
Yfir 90 hundraðshlutar
þeirra svæSa heimsins, sem
alltaf eru ísi þakin, eru við
suðurheimskautið, seqir í
grein i síðasta hefti
„UNESCO Courier", sem er
mánaðarrit Menninqar- og
vísindastofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Það er forseti
deildarinnar, er hefur á
hendi rannsóknir við suður-
skautið Georges Leclavere.
sem skrifar umrædda grein,
Segir hann. að ísinn við suð-
urskautið virðist vera i stöð-
ugum vexti, og kom það
fram í sambsndi við rann-
sóknir alþióðleqa jarðeðlis-
fræðiársins Þrá»t fyrir betta
er sjálft íssvæðið að skreppa
ssman,
í greinni er m.a. að finna eftir
taldar upplýsingar:
Iísasvæðið við suðurpólinn er
1295 milljónir hektara að flatar-
máli og því að svipaðri stærð og
Evrópa og Bandaríkin. t.ekin sem
heild.
Loftslagíð við suðurpólinn er
kaldara en á nokkrum öðrurr
stað á hnettinum. Mesti kuldi —
88.3 gráður undir frostmarki á
Celsíus, — mældist á visindastöð
Sovétríkjanna. Vostok, sem ligg-
ur kringum 1280 kílómetra frá
ströndinni og 4000 metra yfir
sjávarmál.
Af kolalögum á svæðinu má
sjá, að loftslagið við suðurpólinn
hefur verið hlýtt og rakt á fyrri
skeiðum jai'ðsögunnar.
Hin raunverulegu auðæfi við
suðurheimskautið eru fólgin í
hinum lifandi auðlindum hafsins
umhverfis það. Það er engan veg
inn fjarstæð' tilgáta, að þetta
geysimikla jurtahvítumagn muni
einhvern tíma í náinni framtíð
gegna mikiivæ.gu hlutverki, þeg-
ar leysa skal matvælavandamál
iarðarinnar v
Konur hafa einnig farið til
suðurpólssvæðanna og nokkrar
þeirra hafa haft þar vetursetu
Búast má við sívaxandi hópi
kvenna þangað suður eftir. ann-
aðhvort í fylgd með eiginmönn-
um sínum eða til að starfa þar
að rannsóknum
Eldsvoðar á afskekktum stöðv
um eru ef til vill stærstu hætt
urnar, sem steðja að vísindamönn
unum við suðurpólinn. Eldsvoð
ar koma að jafnaði upp, þegar
kaldast er í veðri eða hvassast
Alþ.ióðasáttmálinn um suður
pólssvæðið. sem nú hefur verið
undirritaður af 12 ríkjum (Arg
entínu, Ástralíu. Bandar.. Bretl.,
Belgíu, Chile, Frakklandi, Jap-
an, Noregi, Nýja Sjálandi. Sov-
étríkjunum og Suður-Afríku),
hefur m. a. að markmiði að koma
í veg fyrir pólitísk afskipti af
rannsóknunum þar syðra f sátt-
málanum er vísindarannsóknun-
um tryggt 30 ára frelsi. Ríkin.
ssm hafa undirritað sá.ttmálann,
skuldbinda sig til að nýta svæðið,
sem takmarkast af 60. breiddar-
gráðu. í friðsamlegum til.sangi
Þau heita að framkvæma þar
ekki tilraunir með kjarnavopn
og nota það ekki fyrir geisla-
virk úrgangsefni, og þau lofa að
skiptast á upplýsingum um rann
sóknaráætlanir sínar og niður
stöður þeirra
faraldrl«Indiandi ®g
f maí eða júní í ár má gera
ráð fyrir stórkostlegum engi-
sprettufaraldri í Indlandi og Pak
istan, og er hér um eyðimerkur-
engisprettur að ræða. Þessi spá-
dómur kom fram á fundi Mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar S
Þ. í Rómaborg, þegar ráðgjafa
nefndin um eftirlit með eyði
merkur-engisprettum hélt tíundu
ráðstefnu sína. Nefndin, sem er
skipuð fulltrúum 10 ríkja. fékk
vitneskju urn, að viðkoma engi-
sprettanna yrði óvenju mikil á
Árabíu-skaga og nærliggjandi
svæðum, og að í ár mundu engi
sprettuhóparnir hafa tilhneig
ingu til að halda í átt til Ind
iands og Pakistans, sem urðu fyr
ir miklum búsifjum af völdum
þeirra í fyrra Hins vegar hefði
Norður- og Vestur-Afríka sloppið
tiltölulega vel i fyrra, og svo
mundi sennilega einnig fara í ár.
Nefndin samþykkti að koma
upp til reynslu sjálfstæðri flug-.
sveit, sem hin nýstofnaða rann-
sóknarsveit á svæðinu hafi til
umráða. Flugsveitin á að tryggja
rannsóknarsveitinni aukið at-
hafnafrelsi og meiri árangur í
viðureigninni við hinn forna vá-
gest. Þetta er einn liður f miklu
verkefni, sem Sérsjóður S. þ.
styður með 3.75 millj. dollara
framlagi. Það eru 23 ríki, sem
starfa saman að þessu verkefni.
sem er í þvi fólgið að hafa hem,
il á eyðimerkur-engisprettunum.
Yfirumsjónarmaður þessa verk
efnis, M. J Bredo, skýrði frá því.
að þrjár flugvélar yrðu til taks.
og mun hver þeirra geta flutt
þrjú tonn af matvælum. og ým-
iss konar útbúnaði. Það á að
vera hægt að sends þessar flug
véiar á loft með mjög stuttum
fyrirvara. þannig að þær geti
flogið með skordýraeitur þegar
í st'að til beirra svæða, sem en,gi
spretturnar ráðast á. Flugsveit-
irnar munu hafa náið samstarí
við þá hópa. sem vinna á jörðu
niðri. Bredo skýrði enn fremur
frá því, að rúmlega 300 milljón-
ir manna, eða áttundi hluti mann
kynsins. yrðu stöðugt fyrir barð-
inu á eyðileggingu af völdum
engi sprettu-f aral dra.
ÞiéðveGruB* um Asíu verSi
fulSgsrfur
Efnahagsnefnd Asíu (ECAFE)
hélt fund á aðalstöðvum sínum í
Bangkok nýlega og samþykkti þá
nokkrar ályktanir þess efnis, að
hraðað verði sem mest að ljúka
við að leggja þjöðveg um Asíu
þvera — frá Teheran í vestri til
Singapore og Saigon í austri.
Þrír hópar sérfræðinga héldu
fundi samtímis, og hafði hver
hópur til umræðu afmarkað
svæði hins víðáttumikla land-
flæmis, sem vegurinn á að liggja
um. Áætlunin, sem er samin af
ECSFE í nóvember 1958, stefn-
ir að því að koma upp alþjóðlegu
vegakerfi í Asíu. sem stuðli að
efnahagsþróuninni og örvi við-
skipti og ferðalög.
Á fundinum kom fram, að enn
vantar 500 kílómetra í aðalveg-
inn. Ein tillagan, sem samþykkt
var. fól í sér þá hugmynd, að
tengja veginn þjóðveginum í
rndónesíu, sem liggur þvert yfir
Java frá Djakarta til austurodda
eyjarinnar, og að koma vegakerf
inu á Bali einnig í samband við
hinn mikla þjóðveg.
-fcýrsla iiiri Éirff afvspn-
wsiar efeiréma samþykki
Nefnd tíu sérfræðinga frá jafn
mörgum ríkjum hefur nýlokið
ráðstefnu. sem haldin var fyrir
luktum dyrum í New York og
hófst 23. janúar. Lauk henni með
þvi, að nefndin samþykkti ein-
róma að samþykkja skýrslu til
U Thants framkvæmdastjóra um
efnahagslegan og félagslegan ár-
angur afvopnunar. Búizt er við
að skýrslan verði birt í náinni
framtíð.
Á síðasta fundi nefndarinnar
lagði formaðurinn, Jacob Mosak,
áherzlu á. að á þeim fjórum vik-
um, sem nefndin sat á rökstólum,
hefði ævinlega ríkt andi ein-
drægni og samvinnu. Mosak er
forstjóri einnar deildar í efna-
hags- og félagsmáladeild Samein-
uðu þjóðanna
Að endingu sagði hann í ræðu
sinni. að það hlyti að vera öllum
viðstöddum sérstakt gleðiefni, að
sérfræðingum frá ólíkum löndum
með sundurleit efnahagskerfi og
á ólíku þróunarstigi, hefði tek-
izt að komast að algeru samkomu
lagi í niðurstöðum sínum um
jafn viðkvæmt efni og hér hefði
verið til umræðu.
Sérfræðingarnir komu sarnan
samkvæmt ályktun Allsherjar-
þingsins frá 15. desember 1960.
f ályktuninni var framkvæmda-
stjórn S.Þ. falið að framkvæma
rannsókn á efnahagsle.gum og fé-
lagslegum áhrifum afvopnunar
og útnefna hóp sérfræðinga, sem
væri honum til hjálpar við rann-
sóknina
Sérfræðingarnir tíu voru frá
eftirtöldum löndum: Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Frakklandi, Ind
landi, Pakistan, Póllandi, Sovét-
ríkjunum, Súdan, Tékkóslðvakíu
og Venezuela.
T í MIN N, fimmtudaginn 8. marz 1962
7