Tíminn - 08.03.1962, Blaðsíða 12
Hörður Finnsson kemur í mark tveimur metrum á undan Lundin í 100 m. bringusundi á 1:11,8 min.
— bezta tíma, sem náSst hefur á Norðurlöndum.
Fimmtudagur 8. marz, 1962
56. tbl.
46. árg.
Norskt met og ís-
lenzkt í Höllinni
Þrennt af bezta sundfólki
Norðurlanda keppti í Sund
höllinni ■ Reykjavík í gær-
kvöldi ,en íslenzka sund-
fólkið vann nær algjöran
sigur, og það þurfti norskt
met til að fá sigur í grein.
Christer Bjarne, hinn 22
ára Norðmaður, synti 100
m. flugsund á 1:04.3 mín.,
og bætti hið norska met
sitt í greininni um 2/10.
Guðmundur Gíslason var
2/10. frá meti sínu á vega-
lengdinni.
Afimælismót ÍR í sundi hófst
í gærkvöldi með keppni í 100
m. bringusundi og þar sigraði
Hörður B. Finnsson, ÍR, með
miklum glæsibrag og setti nýtt
íslenzkt met. Tími hans var
1:11,8 min., sem sennilega er
bezti tími, sem náðst hefur á
Norðurlöndum. Eldra íslands-
metið var 1:13,0 mín., og átti
Hörður það. Annar í sundinu
var Svíinn Roland Lundin á
1:13,5 mín., sem er jafnt hans
bezta árangri. Þriðji var Ámi
Kristjánsson, Hafnarfirði á
Hrafnhildur Guðmundsdóttir eftir hlnn glæsilega sigur sinn í 100
m. skriðsundi. Til hægri er Margrét, til vinstri Larsson.
1:15,0, sem einnig er jafnt hans
bezta árangri.
Guðmundur Gíslason hafði
mikla yfirburði í 100 m. skrið-
sundi karla eins og við var
búizt. Hann synti vegalengdina
á 57,8 sek. eða rúmri hálfri
sek. frá íslandsmeti sínu. Ann-
ar varð Christer Bjarne á 58,8
sek. og þriðji Guðmundur Sig-
urðsson frá Keflavík, á 1:03,0
mín. Það var athyglisvert í sam
bandi við unglingasundin í þess
ari grein, að Guðmun,dur Harð
arson, Ægi, synti á 1:02,5 sek.,
sem er hans bezti árangur. —
Davíð Valgarðsson, Keflavík,
varð rétt eftir á 1:03,0 mín.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
ÍR, bætti mjög tíma sinn í 100
m. skriðsundi kvenna, synti á
1:06,2 mín., og var aðeins sek-
úndu frá íslandsmeti Ágústu
Þorsteinsdóttur. Hrafnhildur
sigraði Larssön frá Svíþjóð
með miklum yfirburðum, en
hún varð önnur á 1:09,2 mín.
Þriðja var hin efnilega sund-
kona frá ísafirði, Margrét Ósk-
arsdóttir, á 1:10,6 mín., sem er
bezti árangur hennar í þessu
sundi.
í 50 m. bringusundi jafnaði
Hörður Finnsson íslandsmet
sitt á vegalengdinni, 33,1 sek.,
þrátt fyrir slæman snúning, en
Hörður sýndi með þessu sundi
sínu hvers má búast við af hon-
um. Svíinn Lundin var talsvert
langt á eftir, synti á 33,7 sek.
og Árni Kristjánsson frá Hafn-
arfirði náði sínum bezta tíma
á vegalengdinni, synti á 34,4
sek.
Áður en mótið hófst í gær-
kvöldi kynnti Sigurjón Þórðar-
son, formaður ÍR, hina crlendu
gesti og minntist jafnframt
stofnanda ÍR, A.J. Bertelsson,
sem látinn er fyrir nokkrum
dögum. Var hans minnst á
mjög virðingarverðan hátt.
Afmælissundmót ÍR heldur
áfram í kvöld í Sundhöllinni og
verður þá keppt í mörgum,
mjög skemmtilegum greinum.
Þeir Hörður Finnsson og Sví-
inn Lundin keppa þá aftur í
bringusundi og Guðmundur
Gíslason og Christer Bjarne í
skriðsundi og flugsundi.
CHRISTER BJARNE
nýtt norskt met i 100
flugsundi.
Sigurjón Þórðarson, formaður ÍR, kynnir hina erlendu gesti.
Ljósmyndirnar á síðunni tók Guðjón Einarsson.