Tíminn - 28.03.1962, Blaðsíða 9
UER
T í M I N N, miðvikudagur 28. marz. 1962.
sannfærðist um gæði framleiðslu
þeirra.
Eftir að hafa heimsótt verksmiðj
urnar var ég á námskeiði hjá IH
og fór þar yfir ýmsa liluta belta-
vélanna og enn fremur sótti ég
námskeið um hjóladráttarvélar
þeirra.
Mánudaginn 5. febrúar flugu
héðan 13 menn á vegum Véladeild
ar SÍS til Bretlands, þar sem þeir
sóttu viðgerðarnámskeið hjá Vaux
hall-Bedford og International Har
vester verksmiðjunum auk þess
sem tveir fóru síðan til Opal verk-
smiðjanna í Þýzkalandi.
Menn þessir eru nú allir komnir
heim og áttum við þess kost að
ræða við nokkra þeirra á skrif-
stofu Hjalta Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Véladeildar SÍS.
Tildrög fararinnar.
— Segðu mér, Hjalti. Hver voru
tildrög þessarar farar?
— Tildrögin voru þau að inn-
flutningur Véladeildarinnar hefur
farið ört vaxandi á síðustu árum,
svo að hún er nú einn stærsti inn-
flytjandi bifreiða, ýmiss konar
landbúnaðarvéla og verkfæra svo
og heimilistækja. Við eigum þvi
láni að fagna að hafa á boðstólum
tæki frá ýmsum þekktustu verk-
smiðjum veraldarinnar s.s. General
Motors, Intemational Harvester
og Westinghouse, svo nokkur séu
nefnd. Öll þessi fyrirtæki kapp-
kosta að endurbæta og betrum-
bæta framleiðslu sína og verða
því alla jafna mjög örar breyting-
ar á þeim vélum sem fluttar eru
inn. Veldur þetta oft erfiðleikum
hjá þeim er sjá eiga um þjónustu
og viðhald vélanna nema að þei^r
fái tækifæri til að kynna sér breyt
ingarnar við góð skilyrði.
Ný Bedford-vörubifreið
Á síðasta ári hóf Bíladeildin inn
flutning á nýrri gerð Bedford-vöru
bifreiða sem voru að ýmsu leyti
með nýju sniðí.' Reyndust vinsæld
ir þessa bíls slíkar, að á einu ári
höfum við flutt inn tæplega tvö-.
hundruð bíla og eigum auk þess
fjölmarga í pöntun. Varð nú enn
brýnni sú nauðsyn, að sem bezt
þjónusta væri fyrir hendi og á-
kváðum við því að senda hóp
manna til Bedford. Hópurinn varð
reyndar ekki eins stór og við höfð
um vonað, ýmissa hluta vegna, en
fjórtán mönnum náðum við saman.
Nokkrir þessara manna sjá einn-
ig um viðhald International Harv
ester belta- og hjóladráttarvéla og
heppnaðist okkur að koma þeim á
námskeið hjá þeirri verksmiðju.
Einnig fóru tveir til Opel verk-
smiðjanna í Þýzkalandi til að
kynna sér nýjungar hjá þeim.
Nutum við mikillar og góðrar
fyrirgreiðslu hjá forráðamönnum
allra verksmiðjanna, sem greiddu
götu okkar sem frekast mátti
verða. Gísli Theódórsson, forstöðu-
maður Bifreiðadeildar sá um und-
irbúning ferðarinnar með mér og
var fararstjóri. Auk hans var
Gunnar Gunnarsson, fulltrúi í
Landbúnaðardeild, með í förinni,
en hann hafði dvalið um skeið í
Skotlandi hjá International Harv-
ester umboðsmönnunum þar.
850 bflar á dag
—;Hvað getur þú sagt mér um
Bedford verksmiðjurnar, Gísli,
eins og t. d. um staðsetningu,
stærð og framleiðslu?
— Mestan hluta tímans, eða 2
vikur, dvöldum við í bæjunum Dun
stable og Luton, sem eru 32 mílur
frá London, en þar eru Bedford
verksmiðjurnar staðsettar, fólks-.
bílaverksmiðjan í Luton og vöru-
bifreiðaverksmiðjan í Dunstable.
Fjarlægðin milli bæjanna er um
5 mílur. Þetta eru ákaflega vina-
legir bæir með samtals um 150
þúsund íbúa. Flestir byggja tilveru
sína á verksmiðjunum, sem hafa
um 30 þúsund manns í vinnu, ef
með er talin General Motors AC-
Delco verksmiðjan, sem einnig er
í Dunstable.
— Hvað framleiða þessar verk-
smiðjur marga bíla á dag?
— Meðalframleiðsla á dag eru
300 Bedford vörubílar og 550
Vauxhall fólksbílar. Nú um þessi
áramót kom út nýr Vauxhall Vict-
or, sem vekur geysihrifningu alls
staðar, þannig a^auka hefur þurft
framleiðsluna. Til gamans get ég
sagt þér frá því, að ég var stadd-
ur á skrifstofu sölustjórans og vor-
um við að fara yfir pantanir okk-
ar. Þá hringdi síminn og reyndist
það vera einn af stærri umboðs-
mönnum Vauxhall. Hann vildi fá
400 Victor afgreidda undir eins.
"Sölustjórinn gat ekki uppfyllt
beiðni hans, en lofaði að láta hann
hafa 100 fljótlega og afganginn í
r.æsta mánuði.
Ársútflutningur yfir 50,000
Bedford
Annars er Bedford verksmiðjan,
sem tekin var í notkun 1957, ein1
fullkomnasta vörubifreiðaverk-
smiðja, sem til er, enda er þar allt
s;álfvirkt, sem við verður komið.
Árið 1961 varð hún fyrsta verk-
smiðjan í Evrópu, sem flutti út yf-
ir 50,000 vörubifreiðar á einu ári.
Sýna útflutningstölur þeirra hvílík
um sívaxandi vinsældum Bedford
á að fagna um allan heim.
Árið 1958 voru fluttir út 18098
Bedfordar, 1959 30713, 1960 44549
og 1961 50642.
Við vorum á námskeiðinu frá
kl. 8,30 á morgnanna tfl kl 5 báð-
ar vikurnar, en einn daginn skoð-
uðum við verkámiðjurnar og
kynntumst framleiðslu og samsetn
ingu bílanna. Hálfan dag vorum
við í AC-Delco verksmiðjunni, sem
framleiðir ýmsa hluti til bíla, svo
sem, hin frægu AC-kerti, þurrku-
,mótora, kveikjur, flautur og margt
fleira. Sérstaklega var fróðlegt og
skemmtilegt að kynnast fram-
leiðslu AC-kertanna en dagsfram-
leiðslan er 50,000 kerti. Þar þótti
okkur merkilegt að sjá að kertin
eru handpökkuð af stúlkum. Sagði
framleiðslustjórinn, að þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir hefði ekki fund-
izt vél, sem væri fljótari en þær
eru flögg allra, sem á námskeiðun
um eru hverju sinni og sagði frú-
in, sem sér um þau, að okkar væri
84. flaggið í safnið sitt.
Þeir fjórir af þátttakendunum,
sem hér eru, Sigmar Eyjólfsson
frá Höfn í Hornafirði, Þormóður
Sigurgeirsson frá Blönduósi, Hall-
dór Eyjólfsson írá Rauðalæk og
Eyjölfur Jónsson úr Reykjavík,
geta sjálfsagt sagt eitthvað meira
skemmtilegt úr ferðinni.
IH beltavélaro
— Þú"váráf ílandbúnaðarvélun-
um, Halldór?
— Já, ég fór til þess að kynna
mér þær. Byrjaði ég á því að heim
sækja verksmiðju IH í Doncaster.
Þar fylgdist ég með framleiðslu á
beltavélum og hjólatraktorum, allt
frá því að teikningar eru gerðar,
þar til vélin fer til kaupandans.
Þessi heimsókn styrkti sérstak-
lega trú mína á framleiðslunni.
Eftirlit er geysimikið og að því
er virðist valinn maður í hverri
stöðu. Öllum verksmiðjumönnum
er borgað tímakaup, — og gefur
fólk sér tíma til þess að vanda
framleiðsluna.
— Framleiða verksmiðjurnar
sjálfar öll stykkin í vélarnar?
— Nei. — Alkunnugt er, að ýms
ar sérhæfar verksmiðjur framleiða
t. d. olíuverk og rafkerfi í allar
gerðir véla og þetta nota framleið-
endur sér.
Hliðstætt dæmi get ég nefnt þér.
Síðastliðin 5 ár hefur IH í Bret-
landi framleitt stóra jarðýtu, sem
kölluð er BTD-20. Framleiðsla á
þessari vél byggist mikig á
reynslu Bandaríkjanna og þykir
afbragðsvél, en til þess að full-
komna tækið hefur International
Harvester samvinnu við Rolls
Royce verksmiðjurnar — og er afl
vélin framleidd hjá þeim. Fór ég
til Rolls Royce verksmiðjanna og
ir útskýrðu hvert stig. Á sama hátt
tókum við. síðan sundur drif, gír-
kassa o. s. frv.
í þeirri byggingu, sem hýsir
skólann, er einnig viðgerðaverk-
stæði verksmiðjanna, þar sem þeir
gera við og viðhalda sínum eigin
bílum og taka einnig inn bíla
starfsmannanna og viðskiptavina
úr nágrenninu. Gaman yar að
skoða verkstæðið og sjá, hvernig
þeir unnu við þessa notuðu bíla. í
hverjum „bás“ er lyfta, sem lyftir
bílunum í þá hæð, sem henta þyk-
ir hverju verki Það þekkist ekki
að skríða undir bílana en viðgerð-
armennirnir flestir í ljósum, hrein
um sloppum.
IH hjóladráttarvélar
— Þú ættir að segja okkur frá
dráttarvélunum, Þormóður.
— Eg sótti þetta námskeið hjá
IH, auk þess sem ég var í Vaux-
hall og Bedford.
(Fran.h a ið siðu
Ted Hotson, kennari, asamt Pétri M. Þorsteinssyni, ÞormóSi Sigurgeirss. Þorláki Sigurjónss og GuSjóní Jónss.
Fullkomin aðstaða
— Þú varst einnig á hjóladrátt-
arvélanámskeiðinu hjá Harvester,
Sigmar, var það ekki?
— Jú, ég var síðustu vikuna af
þremur hjá Harvester en fyrri vik
urnar tvær var ég á Bedfordnám-
skeiðinu. Eg fékk mjög mikið út
úr dvölinni hjá Bedford enda mun
skólinn, sem þeir reka, vera fram-
arlega á sínu sviði.
Kennslan var mjög góð, hver
hlutur margyfirfarinn þar til ör-
uggt var, að allir skildu hlutverk
hans fullkomlega. í samráði við
SÍS var lögð mest áherzla á diesel
vélarnar og hina einstöku hluti
þeirra, svo sem olíuverkin. Því
var þannig til hagað, að hverjir
tveir okkar fengu dieselvél, sem
við rifum algjörlega niður og sett-
um saman aftur, á meðan kennarn
Góður skóli
Það, sem ég gæti sagt þér um
þessar verksmiðjur og framleiðslu
þeirra væri nóg efni í heila bók,
en mig langar til að bæta hér við
að á námskeiðunum hjá Bedford
eru árlega um 1600 manns og
standa þau yfir frá einni viku og
upp í fjögur ár. í forsal skólans
Fremri röð frá vinstrl: Pétur M. Þorsteinsson, Reykjavík; Guðjón Jónsson, Reykjavík; Gisli Theódórsson, far.
arstjórl; Þormóður Sigurgeirsson, Blönduósi; Þorlákur Sigurjónsson, Hvolsvelli, — Miðröð: Grímur Sigurðsson,
Selfossi; Skúli Vigfússon, Keflavík; Eyjólfur Jónsson, Reykjavík; Sigmar Eyjóifsson, Hornafirði; Vilhjálmur
Sveinsson, Hafnarfirði; Jósep Þorsfeinsson, Kópaskeri. — Aftasta röð: Mr. Lyne, skólastjóri ásamt þremur kenn-
urum. — Á myndina vantar Sigurð Sveinsson, ísafirði; Halldór Eyjólfsson, Rauðalæk og Gunnar Gunnarsson,
SÍS, en þeir voru hjá International Harvester. —