Tíminn - 10.05.1962, Side 9

Tíminn - 10.05.1962, Side 9
Klemen Kristjánsson, Sámsstöðum: 2. grein ornrækti Rækhm útsæðis Við framleiðslu útsæðis verður að gæta þess að hafa ræktunina vandaða hvað allar framkvæmdir snertir. Betra er að taka kornið með fyrra fallinu á gulþroskan- arstiflÉ'tnu fyrri hluíta september eða fyrr, ef þroskun er náð. Vart þarf ag taka það fram, að við út- sæðisræktun verður fyrsti sáð- tími beztur, vegna þess að þar verður fullnaðarþroskun fyrst, þau ár, sem ekki er hægt að sá nógu snemma í þvalþurran jarð- veg, hefur þá reynzt vel að bleyta kornútsæðið í 3—5 daga við 12— 15 gr. hita og sá því þegar það er við það takmark að ko.ma með rætur (rótin kemur ávallt fyrst svo spíran á eftir). Með þessari aðferð þ. e. að bleyta útsæðið fæst betri árangur af kornrækt- inni miðað við það að sá á sama tíma óbleyttu eða þurru útsæði. Þetta er sjálfsögð ráðstöfun þar sem ekki er hægt að sá fyrr en 12—20 maí. Ef hægt er að sá 20. apríl til 10. maí, verður lítill á- vinningur af því að bleyta útsæð ið undan sáningu. Það korn, sem á að nota til út- sæðis, þarf að vera fuliþroskað fyrstu daga september. Korn sem er mjög síðþroskað grær ávallt verr, en það sem fyrr er þroskað og uppskorið innan 10.—15. sept. Þá er það nýtingin sem á miklu veltur. Með því að uppskera með sjáifbindisláttuvél og þurrka í skrýfum og kornstökkum, fæst oftast góður árangur með þurrk- un. Með þessari aðferð má búast við lífgóðu útsæði og ekki þörf að þurrka kornið meir. en það verð ur þurrt í yfirbreiddum stökkum. Við þreskingu þarf að stilla þann ig slagvindu þreskivélarinnar, að 'hún brjóti ekki eða skaddi á ann an hátt komið. Nauðsynlegt er að flokka kornið eftir þyngd og má gera það sæmilega m_eð sjálf hreinsandi þreskivél. í meðal kornárum er allt að 80% af upp skerunni sem er það jafnkorna að nota má til útsæðis, en í léleg um kornárum 50—70%. 2. fl. kom er einnig nothæft til útsæð- is, því það grær eins vel og fyrsti flokkur, en þar er kornstærðin ójafnari og gefur ekki jafna upp spírun. Ef kornrækt breiðist út um veðursælli sveitir landsins þarf að sjá fyrir því að útsæðis- ræktun komist á, í þeim sveitum, er hafa beztu skilyrði fyrir korn- þroskun. Vafalaust verður hægt að nota hina nýju uppskerutækni við útsæðisframleiðslu, en þá verður að gæta þess, að þurrka ekki komið við of háan hita. Vel getur komið til mála að súgþurrka korn með 30—35 C° heitu lofti og geri ég ráð fyrir að það verði bezta lausnin á því að fá kornið hæfilega þurrt og með óskertu grómagni. Hins vegar er engin fullkomin reynsla með súgþurrk- un á þresktu en röku korni enn þá, en líkur eru fyrir því að þessi aðferð geti gefið góða raun og mun verða skorið úr þessu næsta haust (1962) bæði á Sámsstöðum og Hvolsvöllum. Hins vegar þarf að rannsaka, hvort korn, sem tekið er með skurðþreskivél, verður eins stórt og lífmikið (grær vel) eins og korn, sem er uppskorið og verkað með gamla laginu. Afbrigðavalið fyrir kornræktina er eitt hið vandasamasta mál kornframleið- enda, meðan ekki eru til kynbætt íslenzk afbrigði verður að leita fyrir sér um afbrigði frá nálæg- um löndum. Þetta hefur verið gert í vaxandi mæli og þetta er verk, sem seint eða aldrei tekur enda, meðan komyrkjan er við lýði. Til að byrja með verða þessi afbrigði helzt nothæf fyrir korn- framleiðslu hér á landi. Þau, sem ná fyrst þroska: Af byggi: Flojabygg 6 — nokkuð veð urþolið. Dönnesbygg — þolir illa mikil veður. Jötunbygg — þolir illa mikil veður. Afbrigði, sem þroskast síðar: Sigurkorn 6 rd — veðurþolið. — Ta-mperbygg 6 rd. — veðurþolið, Herstabygg 2 raða — veðurþolið. Snemmþroskaðasta byggið hæf- ir vel norðan Jiands, og hefur oft náð þar góðum þroska. En þau eru einnig góð hér á Suðurlandi og Austurlandi, en Dönnes og Jötun þola illa langvarandi veður og því nokkuð ábættusöm í rækt- un. (Síðari flokkurinn, sem era 6—10 dögum seinna með gulþrosk un, eru mjög örugg í ræktun ef ekki koma mikil næturfrost seinni hluta ágúst. Frost, sem koma á blautt korn illa þroskað, geta tek- ið fyrir áframhaldandi mjölsöfn- un í kornið. Aftur þolir korn á grænþroskunarstigi talsvert frost, ef það kemur á þurra kornstöng- 'ina. Frost í logni er skaðvænna fyrir korn en ef því fylgir dálítiLl kaldi. 1—2 stig á celsíus getur skaðað kornrækt eins og það stór- skemmir kartöflugras. í þau 39 ár, sem ég hef fengizt við korn- rækt, er það aðeins haustið 1952, sem korn hefur skemmzt af frosti, enda kom það á blaut stráin. Hafr ar hafa reynzt þolnari gagnvart síðsumarfrosti en byggtegundir, og snemmþroska bygg, eins og Floja og Dönnesbygg hafa aldrei orðið fyrir neinum teljandi áföll- um vegna frosta síðast í ágúst, og kemur hér til, að þessi afbrigði bæði hafa verið svo langt komin með mjölsöfnun, að frostið hefur sakað þau minna en síðþroskaðri afbrigði, sem skemmra voru kom- in á leið tM fullþroskunar. Korai, sem sáfí er snemma vors, hættir síður vig frostskemmdum en síð- sánu og er það skiljanlegt, þegar á það er litið, að mjölsöfnun á því fyrstsáða er komin seinni hluta ágúst en á síðsána korninu, þegar helzt frosta er að vænta á þessum tíma. Hafraafbrigðin hafa áður verið nefnd, og má segja samkvæmt reynslunni hér, að vel megi rækta útsæði af þeim hér á landi, ef vandað er til allra framkvæmda. Mér hefur þó virzt. áð miklu meiri ástæða sé til að fá erlent útsæði af höfrum á 3—4 ára fresti en af 6 raða byggi Sama virðist mér vig ræktun 2 raða byggs, að þörf er á að fá nýtt útsæði erlendis frá, þegar búig er að rækta upp af ísl. útsæði 2—4 ár, og fer þetta mjög eftir því, hvað vel tekst með að framleiða útsæði hér heima og hefur árferði mikil áhrif gagnvart útsæðisgæð- um innlendu framleiðslunnar af höfrum og 2 raða byggi, en 6 raða bygg virðist halda sér vel, sami stofninn í áratugi af útsæði fram- leiddu á íslandi. Átta ára skjólbeiti. Að kornslætti. Orðsending til Morgunblaðsins „Framsóknarflokkurinn er óvijiur Reykjavíkur". Mbl. 8. maí — leiðari blaðsins. Hið stóra blað, Mbl., málgagn ríkisstjórnar íslands og formanns Sjálfstæðisflokksins og borgaristjór ans í Reykjavík, hefur kastað grím- unni. Helgislepja hversdagsleikans er lögð til hliðar. Biákalt ofstæki og fyrirlitning á samborgurum sínum, ef þeir leyfa sér að hafa aðra skoðun, brýzt fram. í aðalleiðara blaðsins í dag sem liefur að fyrírsögn ofangreinda til- vitnun, þykist blaðið gera tilraun til að rökstyðja þessa gáfulegu full yrðingu sína. En ekkert af því er svara vert. Svo fjarstæðukenndar eru fullyrðingar blaðsins. Og þær eru miklu meira. Þær eru til skammar fyrir íslenzka blaðamennsku. Þær eru til skamm- ar fyrir ríkisstjórn íslands, þær eru til skammar fyrir Sjálfstaöðis- flokkinn, þær eru til skammar fyr- ir borgarstjórann í Reykjavík. Og Reykjavíkurborg er sýnd háðung og skömm með þvílíkum skrifum um íbúa hennar. Menn greinir á um margt, en allir sæmilega greindir menn og menntaðir, vita, að allir vilja höf- 1 uðborg sinni vel, þar sem er heim- ili barna þeirra. Annað stríddi á móti mannlegu eðli. Samt höfum við enn þá menn, sem hrópa í Mbl., líkt og upp úr dauðrá manna gröfum: „Framsókn armenn eru óvinir Reykjavíkur“. En þessir Mbl. höf. eru orðin nátt- tröll á vegi lífsins, sem ekki þola birtu nýs dags, en sem nú blámar fyrir meg aukinni sókn Framsókn armanna, til vaxandi þátttöku í fé- lagslegri og menningarlegri upp- byggingu höfuðborgarinnar. Látum nátttröllin verða að steini eins og ættfeður þeirra fyrr á tímum. B-lista maður. Athugasemd Ut af grein um fjárkláðann, sem birtist í ísafold 7. febr. þ. á., og viðtali við Pál A. Pálsson, yfir- dýralækni, vil ég taka þetta fram: Það var Hallgrímur Þorbergsson fjárræktarmaður, sem innleiddi hér Coopers-baðlyfin. En þar sem hann sá sér ekki fært að verzla með þau sjálfur, benti hann Coop- ers-firmanu á Garðar Gíslason til þess. En hann hafði þá mikla verzl- un við Bretland. Þetta var 1909, eða þremur árum eftir að lauk útrýmingarböðum sem Ole Myckle stad stjórnaði. Hallgrímur ritaði töluvert um þetta mál þá. Sama ár eða 1909, um haustið, hóf ég á ferðum mínum um landið, að inn- leiða hér sundbaðker með sigpalli, eftir skozkri fyrirmynd. Ráðlagði ég bændum að hafa kerin fremst í fjárhúsgarða og nota hann fyrir sigpalli. Gaf ég bændum teikningu af þessum útbúnaði, sem gerður skyldi úr sterkri steinsteypu. Fyrsta sundbaðkerið, með sigpalli, hér í landi, var útbúið vorið 1910 hjá Magnúsi Sigurðssyni, stórbónda á Grund í Eyjafirði, og var ég sjálfur við það verk. Lagði ég mikla vinnu í það að koma þessu á, um land allt. Þessi tvö atriði T í M I N N, fimmtudagnr 10. maf 1962? Coopers-baðlyfin og sundbaðstöðv arnar, urðu ómetanlegur þáttur í útrýmingu fjárkláða og annarra óþrifa á sauðfénu og starf okkar Hallgríms vig þetta var sjálfboða vinna. Eg varð þess var, að bændur böðuðu ekki vegna áhaldaleysis. Útrýmingarböðunin 1902—1906, skildi bændur eftir án böðunar- tækja, sem nothæf voru. Nenni ég ekki að lýsa böðun með þeim tækj- um. Við sauðbindingu fjárins, vinda með höndum baðið úr ull þpss og öðru ómögulegu. En við böðunaraðferð Ole Mycklestad þurfti við böðunina 6—8 menn, en við böðun í sundbaðkeri þarf 2 menn. Björn á Rangá sagði það eitt sinn á búnaðarþingi, að þótt ég hefði ekki geit neitt annað, fyrir sauðfjárræktina, en koma á útbún- aðinum fyrir sundböðun fjárins, þá væri það mikið. Mér finnst rétt, að þessi sann- leikur komi hér í ljós, þegar öðru er haldið fram. Ákvörðun löggjafans um böðun sauðfjár annað hvort ár, er hin mesta fjarstæða. Eg rfyndi, þegar þessi ákvörðun var í uppsiglingu. Framhald á 15. siðu 9 i < 1' H!11;,)J | f i C.Mý.u;, ..«• í ■ '• ! I ( I 1 * ' ’ ' ' ' i ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.