Tíminn - 22.06.1962, Page 15
Furðulegt kæruleysi
FramJiald af 12. síðu.
vik, þótt áhorfendur væru ekki
alltof hrifnir og mettaðir af snilli
Tékkanna undanfarna daga. Fram
hafði nokkra yfirburði fyrri hálf-
leikinn og fengu leikmenn liðsins
þá svo góð tækifæri, að Fram hefði
átt að 'hafa tvö mörk yfir í hlé-
inu, en staðan var hins vegar 1—1.
Bergsteinn skoraði úr vítaspyrnu
fyrir Val — en nokkru fyrir hléið
tókst Baldri Scheving að jafna fyr-
ir Fram með nokkuð góðu skoti,
sem Björgvin Hermannsson hafði
enga möguleika á að verja.
í síðari hálfleik snerist leikur-
inn hins vegar við, og nú voru það
Valsmenn, sem sóttu miklu meira
— og kom þar í Ijós betri þjálfun
leikmanna Vals. Ekki voru fleiri
mörk þó skoruð í leiknum og voru
Valsmenn ó’heppnir í nokkrum til-
fellum, m.a. þegar Matthías Hjart-
arson átti fast skot í þverslá Fram
marksins, og síðar, þegar Stein-
grímur Dagbjartsson átti einnig
Víðavangur
Framhald af 2. síðu.
anlegt vald yfir ísflenzku
máli.“ — og mundu áldrei
gera. Einar vissi, ag þrátt fyr-
ir alla undirokun fslendiniga
um margar aldir höfðu þeir
aldrei skrifað undir neinn
samning, sem fól í sér slíkt af-
sal, og hann trúði því ekki, að
svo mund'i nokkru sinni verða.
f>að fór líkia svo, að þjóðin
kolfelldi samningsuppkastið
1908 og neitaði meg öllu slíku
réttindaafsali um ókomn.a
framtíð, sem þar var gert rá®
fyrir . Sá dómur var ský'laus
cig dagur þess dó.ms einn hinn
mesti sjálfstæðisdagur í sögu
ísflenzku þjóSarinnar. En hálfri
öld síffar skeður þaff þrátt fyrir
fullt og óskorað sjálfstæði, að
íslenzk ríkisstjórn gerir samn-
ing við erlenda þjóð og afsalar
henni óafturkallanlega valdi
yfir íslenzku máli. Hvaff mundi
Einar Kvaran segja nú, ef
hiann mætti haida ræffu á borg
arafundi í Reykjavík?
stangarskot. Sem sagt, lánið lékl
við Fram í þessum tilfellum, en
þegar tekið er tillit til þetri leiKs
Framara í fyrri hálfleik, er jafn-
teflið nokkuð sanngjörn úrslit •—
þrátt fyrir hina furðulegu víta-
spyrnu. En það getur hins vegar
ekki talizt góður árangur hjá hð-
unum að skora ekki nema eitt
marác hvort í jafn tækifæraríkum
leik og þessi var — og til þess að
fá þetta eina strik á marktöfluna
þurfti Valur vítaspyrnu.
Dómari í leiknum var Haukur
Óskarsson, Víking, og dæmdi að
venju vel, en svo virðist sem línu-
verðir, þessir þjónar dómarans, séu
að setja sig á háan hest gagnvart
honum, því að annar þeirra línu-
varða, sem auglýstur var, mætti
ekki, og gat ekki leikurinn hafizt
fyrr en tíu mínútum of seint, með
an leitað var að öðrum línuverði.
Útsvörin allt of há
Framhald af 1. síðu.
Þannig er reksturshagnaður árið
1961, talið í milljónum króna:
Rafmagnsveitunnar kir. 16.7,
Hitaveitunnar kr. 13,8, Vatnsveit-
■unnar kr. 2,9, Hafnariinnar kr.
5,5, Strætisvagnanna kr. 1,2. —
Samtals ca. 40,0 millj. króna.
Tekjuafgangur þessara stofn-
ana, að viðbættum tekjuafg. á
rebstrareikn. er þannig samtals
92,4 millj. kr. áriff 1961.
Vafalítið kemur þessi fjársöfn-
un sér í góðar þarfir, því mörg
óleyst verkefni eru í borginni. En
óneitanlega er engin feimni í
skattálagningunni, eða ag setja
verð á þjónustu borgarinnar.
Og sennilega er reynt til hins
ýtrasta á gjaldþol ýmissa borgar-
búa. Benda raunar til þess hinar
stórauknu kröfur bæjargjaldkera
um sölu fasteigna íbúanna á
nauðungaruppboði, til lúkningar
á greiðslu bæjargjalda. En aug-
lýsingar um það hafa birzt svo
hundruðum skiptir í Lögb.bl. s.l.
ár og eni enn að birtast.
Eru þessar kröfur borgarinn-
ar um að selja íbúðirnar ofan af
fólki, ef það ekki borgar útsvör
sín og fasteignagjöld fyrir vissan
tíma, mjög hvimleið innheimtu-
aðferð, og fer enda á stundum út
í broslegar öfgar.
Það sem liggur hér til grund-
vallar, er varla nema tvennt:
1. Skattar og útsvar sé hærra,
en tekjur manna þola;
2. Virðing manna fyrir skatt-
heimtu höfuðborgarinnar sé
mjög takmörkuð.
Er hvorugt gott, og full ástæða
til a?j drepa við fæti og athuga
sinn gang, áffur en lengra er hald
ið á þessari vafasömu braut.
Tízkusýmng baðfata
Framhald af 12. síðu.
400 m fjórsundi einstaklinga.
Þar verður Guðmundur einn þátt
takandi, enda er hann í sér-
flokki hér á landi en er í fremstu
röð Evrópumanna í þessari grein.
100 m skriðsund kvenna. Meðal
keppenda er Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, sem náð hefur frá
bæru afreki á þessari vegalengd.
200 m bringusund karla, þar sem
Norðurlandamethafinn í 100 m.
bringusundi, Hörður B. Finnsson,
er meðal keppenda.
100 m bringusund kvenna, þar
sem Hrafnhildur er einnig meðal
keppenda.
100 m skriðsund karla, þar sem
m. a. Guðm. Gíslason keppir.
Allt eru þetta sundgreinar, sem
sundfólkið tekur þátt í erlendis
ef til kemur.
Þá verður keppt í unglinga
sundum, 50 m skriðsundi drengja.
50 m bringusundi telpna og 50 m
bringusundi. Meðal keppenda eru
Guðm. Þ. Harðarson og Davíð
Valgarðsson, ÍBK.
Rúsínan í pylsuendanum er svo
náttfataboðsund með þátttöku
allra sundfélaganna í Reykjavík
og blöðruboðsund, sem er í því
fólgið að sundmennirnir keppa
en verðav að loknum spretti að
blása upp blöðru unz hún spring-
ur. Sundinu lýkur, er síðasti mað
ur sveitarinnar hefur sprengt
sína blöðru.
Síðast en ekki sízt er tízkusýn
ing. Blómarósir frá Tízkuskólan-
um sýna nýjustu sundfatatízk-
una og sýna Canters-sundboli.
Þeir bolir þykja mjög fallegir,
eins og allir geta raunar séð, sem
koma til sundmótsins á laugar-
dag klukkan 3 og um leið auka
þeir möguleika á þátttöku ísl.
sundfólks í Evrópumótinu
Sundmótið hefst kl. 3 á laugar
daginn. Aðgöngumiðar verða
seldir úr bifreiðum við laugina.
Aðgangur kostar kr. 25 fyrir full-
orðna og kr. 10 fyrir börn.
Er það viSreisn?
Framhald af 9. síðu.
á síðkastið. Einhver mesti at-
hafnamaður, sem ísland hefur
átt á þessari öld, var heiðurs-
maðurinn Thor Jensen. Hann
stofnaði hér togaraútgerð, sem
hann rak af miklum dugnaði,
og síðar hóf hann búskap í
stærsta stíl, sem þá þekktist
hér. Sem unglingur var ég svo
lánsamur að kynnast honum
talsvert, og eitt sinn fór hann
að segja mér, hvernig maður
gæti unnið bezt fyrir sína þjóð.
Hann sagði, að þeir, sem hefðu
peningavöldin í landinu, ættu
að leggja fram fé til að útvega
okkur hinum verk til að vinna,
landi okkar og þjóð til hags-
muna. En svo ættum við, bæði
ungir og gamlir, að gera okkar
bezta til að reynast nýtir pegn-
ar * þjóðfélaginu. Hvað mundi
nú þessi ágætismaður segja, ef
hann mætti mæla og sæi togar-
ana bundna í höfn mánuð eftir
mánuð í stað þess að færa þjóð-
inni lifsbjörg?
— Á þessu síðasta ári l.efur
verið taprekstur á togurunum,
og stafar það vitanlega fyrst og
fremst af aflaleysi. En við sjó-
menn teljum, að ríkisstjórninni
sé skylt að styrkja togaraútgerð
ina, eftir því sem þörf gferist.
Með nýju landhelgislögunum
voru togararnir sviptir beztu
veiðisvæðunum, og þar af leið-
andi hefur aflinn verið miklu
rýrari að undanförnu. Sjálfir á
lít ég, að ríkisstjórninni öeri
að hjálpa okkur nú, vegna þess
að sjómenn hafa í bráð og lengd
gert sitt bezta fyrir land og
þjóð.
— í því sambandi langar rmg
til að hreyfa því máli, hvað rík
isstjórnin ætlar lengi að liða
Einari, sem kallaður er hinn
ríki, flokksbróður þeirra sjálf-
stæðismanna, að hafa togarann
Sigurð, sem keyptur er fyrir fé
úr ríkissjóði Islands, bundbju
við bryggju. Við sjómenn mynd
um þakka fyrir að fá frekar ao
sigla á þessu mikla og góða
skipi heldur en að berjast í
vondu veðri úti á sjó á gömlum
skipum.
— Að endingu vil ég segja
það, að þá flokka, sem standa
fyrir því að gera ekkert að mál-
um til úrlausnar, tel ég kok-
hrausta, ef þeir vonast eftir at-
kvæðum sjómanna í næstu kosn
ingum. — k.
Prestastefnu lýkur
Framhald af 16. síðu.
Prestastefnunnar flutti dr. Þórir
Kr. Þórðarson útvarpserindi í gær-
kvöldi um Iona-hreyfinguna í Skot-
landi. í dag verður umræðum hald
ið áfram, m.a. verður sérstakur
prófastafundur. Kl. 6 verður Presta
stefnunni slitið, en í kvöld sitja
prestar boð biskups.
Aðalfundur Prestafélags íslands
var haldinn á Þingvöllum í fyrra-
dag, en aðalfundarefnið var ýmis
kjaramál og undirbúningur vænt-
anlegra kjarasamninga. — Kaup-
mannahafnaribiskup var gestur
fundarins og flutti þar kveðju. Sr.
Jónas Gíslason í Vík flutti erindi
um þjóðfélagslegar athuganir á
starfsskipan kirkjunnar fyrr og nú.
----Um kvöldið þáðu fulltrúarnir
boð Presta- og prestkvennafélags-
ins. Aðalræðumaður kvöldsjns var
sr. Einar Guðnason, en frú Álfheið-
ur Guðmundsdóttir söng einsöng
við undirleik dr. Róberts A. Ottós-
sonar. Heiðursgestir voru heiðurs-
félagarnir Ásmundur Guðmunds-
son og Bjarni Jónsson.
Verksmiðjuskip
Framhald af 16. síðu.
smiðja, sem á að afkasta 40.000
pundum af frosnum fiskflökum i
á sólarhring, og sömuleiðis fiski-
mjölsverksmiðja í sambandi við
hana, sem byggja skal á næstunni
í Godthaab. Að baki þessarar
framkvæmdar standa um 50 einka
fyrirtæki dönsk og færeysk, sem
með þessu hafa rofið hina dönsku
einokun ríkisins, sem þarna hef-
ur verið. Danska konungsverzlun-
in hefur staðið fyrir framkvæmd-
unum, en ætlunin er að reka
fyrirtækig fyrir einkafé.
Affils.
Allt blýfast
f gærkvöldi hófst fundur útvegs
manna og sjómanna f sldveiffideil-
unni kl. 9 og stóff enn á miðnætti.
Þá hafði ekkert gerzt nýtt í málinu
frá síðasta fundi og engra tíffinda
að vænta. Ekkert hafði gengiff sam-
an, en ekki var vitaff, hve fundur-
inn stæffi lengi.
Engar viSræSur
Á fundi borgarstjórnar í gær
lagði Kristján Benediktsson þá fyr
irspum fyrir borgarstjóra, hvort
nokkrar viðræður hefðu verið við
Starfsmannafélag Reykjavíkur und
anfarið um launamál. Svaraði borg
arstjóri því til, að engar viðræð-
u<r hefðu farið fram, en þær
mundu fara fram.
Kristján sagði, er hann bar fyrir
spurn sína fram, að undanfarið
hefðu allmargar stéttir náð kjara-
bótum, og benti á, að lægstu
launfalokkar opinberra starfs-
manna væru svipaðir og verka-
mannalaun.
Hjásetukosning
Framhald ai 1 síðu
sjá, að samkomulag hefur orðið
í bæjarstjórninni um að sitja hjáj
á víxl.
í fundarlok var samþykkt —|
með 7 atkvæðum en tveir sátu
hjá — að auglýsa starf bæjarstjóra
laust til umsóknar og ennfremur
að fela Gunnþóri Björnssyni störf
bæjarstjóra til 31. júlí n.k.
Kínverjar í árásarhug?
Framhald af 3. síðu.
í skeyti til bandarískra blaða, aff
Pekingstjórnin hafi nú um 35000
hermenu undir vopnum á ^ sn-
ströndinni og milli 250 og 300 flug
vélar. Vildi talsmaðurinn halda því
fram, að fréttirnax um li '. iflutning
væru mjög orðum auknar.
Formælandi Breta sagði í dag, að
hann tryði því ekki að óreyndu
að Kínverjar áformuðu innrás á
eyjarnar.
FriSarsamningur við 0AS
Framhald af 3. síðu.
kæmi til mála aff sakai-uppgjafar-
ákvæðiff í Algeirsborgarsamningun
um næði til OAS-manna, sem sekir
hefffu gerzt um glæpaverk í Frakk
landi, enda þótt slík afbrot síæffu
í sambandi við Alsírdeiluna.
Allt var með kyrrum kjörum í
Alsír í dag og hafa nú flestir menn
horfið til vinnu sinnar á nýjan leik.
Flóttamannastraumurinn til
Frakklands heldur áfram og nú
hafa alls 136 þúsund manns flúið
Alsír.
FLN-stjórnin tilkynnti í dag, aff
serkneskir flóttamenn í Túnis,
myndu hverfa til Alsír í lok þcssar
ar viku.
Vildu ekki fjölga
Framhald af 1 síðu
flokkurinn var stærsti andstöðu-
flokkurinn í bæjarstjórn, voru
endurskoðendur tveir, og venja,
að annar þeirra væri frá Alþýðu-
flokknum. Er Sósíalistaflokkurinn
varð stærri flokkur í bæjarstjórn
en Alþýðuflokkurinn, var siðvenj-
unni haldið við og endurskoðend-
um fjölgað í þrjá, svo að komm-
únistar hefðu aðstöðu til þess að
endurskoða reikninga bæjarins. í
Nú, þegar Framsóknarflokkur- j
inn á fleiri fulltrúa í borgarstjórn,
heldur en Alþýðuflokkurinm, er
sanngjarnt að hann fái einnig að-
stöðu til’ endurskoðunar borgar-
reikninganna, þannig að allir fjór- (
ir flokkar borgarstjórnar eigi full-
trúa í endurskoðuninni.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
tók til máls og taldi það ekki vera,
sögulega hefð, að endurskoðandi
væri frá hverjum flokki í borgar-
stjórn. Hann sagði, að Sjálfstæð-
isflokkurinn héfði aldrei viljað
beita meirihlutavaldi sínu til þess
að hindra andstöðuflokkana í að
hljóta sæti í endurskoðun. Taldi
hann nóg að einn fulltrúi væri
þar frá andstöðuflokkunum í heild.
Haraldur Sveinbjörnsson, full-
trúi Alþýðubandalagsins, bar fram
tillögu um, að endurskoðendur,
yrðu fjórir, einn frá hverjum
flokki. Sú tillaga var felld meg 9
atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, en
Óskar Hallgrímsson, fulltrúi Al-
þýðuflokksins, sat hjá.
Samið
í fyrrakvöld samdi Verkakvenna
félag Keflavíkur og Njarðvíkur við
vinnuveitendur um taxta fyrir ungl
ingsstúlkur og er liann allmiklu
hærri en hinn eldri taxti atvinnu-
rekenda.
14 ára stúlkur fá nú 17.01 krónur
á tímann í dagvinnu, en fengu áður
14 krónur. 15 ára stúlkur fá 18.24
krónur, en fengu samkvæmt taxta
atvinnurekenda 15 krónur. 15 ára
stúlkur, sem unnið hafa mánuð
á sama stað fá 21.40 krónur á tím
ann eða fullt kvenmannskaup. —
Samningur þessi gildir frá 1. júní.
Allsherjartalning
Næstkomandi sunnudag 24. júní
fer, á vegum Hagstofunnar, fram
talning á unglingum við sveita-
störf um allt land. Er stofnað til
hennar vegna óska Stéttarsam-
bands bænda, sem telur mikilvægt
að aflað sé skýrslna um unglinga,
sem aðstoða vig heyskap og önnur
sveitastörf yfir sumarið. Talning-
in á að leiða í ljós tölu unglinga
við þessi störf, aldursskiptingu
þeirra, hvaðan þeir eru og hvem-
ig þeir skiptast á héruð. — Taln-
ingin tekur bæði til aðkominna
unglinga og til heimaunglinga.
Oddvitar sjá um talninguna hver
í sínu umdæmi, og fer hún fram
sama dag og kosnar verða sveit-
arstjórnir í sveitahreppum. Til
þess að létta talninguna eru bænd
ur og aðrir húsráðendur í sveit-
um beðnir að hafa með sér á blaði
það, sem upplýsa þarf, þá er þeir
koma á kjörstag til að kjósa. Ekki
er spurt um annað en fæðingardag
og ár og lögheimili unglinga, sem
fæddir eru á árunum 1946—1950.
Rita oddvitar upplýsingar á sér-
stakt eyðublað til þessara nota.
ÞAKKARÁVÖRP
Sveitungum mínum og öðrum vinum og vanda-
mönnum þakka ég innilega mikla rausn og góð-
vild mér sýnda á afmæli mínu 18. iúní s.l.
Magnús Böðvarsson, Laugarvatni.
Innilegustu þakkir flyt ég ykkur öllum, sem
minntust mín á 70 ára afmæli mínu.
Kristín Gunnlaugsdóttir
Karfavogi 56.
Tvær spólur
Framhald af 16. síðu.
tveggja spóla og eru sennilega báð
ar ónýtar. Snólurnar hafa ekki ver
ið teki. upp. Rofinn í áburðar-
vericsmiðjunni ló út, þegar skamm
hlaupið varð. Um leið sló út í Ell
iðaárstöðinni. Var þá slegið inn aft
ur. e’’ kom fvrir ekki. Útslátturinn
er eðlileg afleiðing skammhlaups
ins, en við það hækkar spennan.
Verksmiðjustjórinn sagði, að
skammhlaupið væri óeðlileg bilun.
Spennirinn hefur verið notaður frá
því að verksmiðjan tók til starfa og
aldrei bilað fyrr en nú, enda ekki
reiknað með, að slíkt kæmi fyrir,
þar sem verksmiðjan starfar með
jöfnu álagi. _ ,,,
T f M I N N, föstudagurinn 22. júní 1962.
líi