Tíminn - 24.06.1962, Page 1
I
Munið að tiikynna
vanskil á blaðinu
í síma 12323
fyrir kl. 6.
Afgreiðsla, auglýs-
ingar og gjaidkeri
Tímans er í
Bankastræti 7 '
141. tbl. — Sunnudagur 24. |úní 1962 — 46. árg.
Þessi mynd var tekin við Háskólabíóið fyrrl laugardag og er a3
mörgu leyti táknræn fyrir börnin og miðdegissýningar kvikmynda-
húsanna á laugardögum og sunnudögum. Börnln koma til húsanna
meS erlend myndablöð', sem þau hafa velt fyrir sér og skoSað, og
verzla þar með þau. Venjulega er þetta aðeins skiftiverzlun, en
stundum eru pii'tarnir svo fjáðir að eiga einhverja vasapeninga og
þá er hendinni ekki slegið á móti reiði/fé. Þessi verzlun blómgast
einnig mjög í sambandi við bílasýningar, sem mjög hafa tíðkast að
undanförnu. Þá flýta börnin sér á staðinn, þegar opnað er, reyna
að komast yfir eins mikið af pésum og myndum og þau geta, og
verzla svo með fenginn sín á milli. Oft er þetta miklu meiri
skemmtun fyrir börnin en kvikmynd sú, sem kann að vera sýnd,
eða það sem fram fer í sambandi við bílasýninguna, en sumir
óftast, að þessi blöð kunnl að vera hættulegir smitberar. En
börnin hafa gaman af þessu. (Ljósmynd: TÍMINN, GE)
JON SIGURÐSSON UM SÍLDVEIÐIDEILUNA: v -
SÁTTAFUNDIR
EKKI FLEIRI!
Eg tel vandséð, að kallað
verði meira á sáttefundi að
Það ber svo mikið á
milli", sagði Jón Sigurðsson,
formaður Sjómannafélagsins,
þegar blaðið vakti hann í gær
með símhringingu og spurðist
fyrir um síldardeiluna.
Sáttafundur hafði verið um nótt
ina fram til klukkan að ganga
sex, en samkomulag hafði þá ekki
náðst um tvö atriði deilunnar,
hlutaskiptin og matsveinahlutinn-
og hefur enginn nýr fundur ver-
ið ’boðaður.
Útvegsmenn sögðu eins og
kunnugt er, upp saonningum á
þeim forsendum, ag sanngjamt
sé, að bátarnir fái sjálfir stærri
hlut en áður, vegna hinna nýju,
dýru og fullkomnu tækja, sem
þeir hafa aflað sér og stórauka
aflamöguleika þeirra. Telja þeir,
að núverandi hlutaskipti séu mið-
uð við fyrri tíð, er engar kraft-
blakkir, sjálfvirk síldarleitartæki
né rándýrar nótir voru í bátun-
um.
Sjómannafélögin gera hins veg
ar þær kröfur, að hlutaskiptin
haldist óbreytt, og telja, að þótt
hin nýju tæki séu dýr, þá geti
þau sjálf borið uppi kostnaðinn,
vegna hinna stórauknu afla-
bragða, sem fylgja í kjölfar
þeirra. Sjómannafélögin jmunu
einnig hafa gert kröfur um ýmsar
lagfæringar á samningunum, svo
sem hækkaðar tryggingar og 1%
í sjúkrasjóð sinn.
VIDA ERU SAURGERL-
AR í NEYZLUVATNINU
Komið hefur í Ijós að gerla-
rannsóknir á ferskvatni um
land allt, að ástandið er yfir-
leitt ekki gott, og vatnið er
oft mengað saurgerlum. Mjög
oft er frágangur á vatnsbólum
ekki til fyrirmyndar. Vonir
standa þó til, að þetta standi
til bóta, því nú er unnt að
Ráöherrarnir
deila um
inBHmHBnBBB
bæjarstjóra
SJA LEIÐARA
fá klórtæki, sem kosta aðeins
30—90 þúsund, sett upp við
vatnsból.
Meðferðin á vatiubólum er oft
mjög gáleysisleg eins og t. d. í
einu kauptúni, þar sem vatnsbólið
er lækur. Hann fraus einu sinni,
og þá var gripið til þess ráðs að
flytja nokkrar olíutunnur í hann
og kveikja í þeim. Afleiðingin var
að sjálfsögðu sú, að þorpsbúar
fengu til að byrja með olíu úr
krönunum.
Fyrir fiskvinnsluhúsin
Það, var fersfiskeftirlitið og fisk
matsráð, sem stóðu að þessum
^erlarannsóknum. Þær voru aðeins
gerðar fyrir fiskvinnslustöðvarnar,
en þar sem þær nota víða sama
vatnið og íbúar kaupstaðanna og
kauptúnanna nota til drykkjar,
hafa þær allmiklu almennara gildi.
Heilbrigðiseftirlitið á þó engan
þátt í þessum vatnsrannsóknum.
Það eru gerlafræðingarnir dr. Sig
urður Pétursson og Guðlaugur
lfannesson, sem hafa annazt þær,
og ,er þeim nú að mestu lokið.
Það eru vissir staðir, þar sem
vatnið er sérstaklega slæmt, eink
um þar sem verður að notast við
ofanjarðarvatn í stað brunna. —
Ofanjarðarvatnið á venjulega nokk
uð langa leið að baki ofanjarðar,
áður en það kemur niður á jafn-
sléttu, og er á þeirri leið meðal
annars hætta á, að það mengist
hinum svonefndu saurgerlum, ssm
Framhald á 15. síðu
Fara meö
síldina
í fréttaskeyti frá NTB í Berg-
en segir að rannsóknarskipið
Draug hafi sent fiskimálastjórn-
inni svohljóðandi skeyti í gær
kl. 14,26: Góð veiði síðasta dæg-
ur, aflinn allt að 4000 hektólitrar
á svæðinu norður af Melrakka-
sléttu. Gott veður á miðunum. —
Fimm flutningaskip á leið með
síld til verksmiðjanna í Noregi
og margir bátar á heimlelð með
elgin afla.
Vélbáturinn Reynir frá Vest-
mannaeyjum fékk 800 tunnur af
síld á fimmtudaginn, *dns \ og
skýrt var frá í blaðinu í gæi.
Báturinn fór út klukkan 4 á
föstudaginn og kom aftur Inu
klukkan 2 i gær með 900 tunn-
ur. Sfldin er mjög falleg, en hef
ur öll farið í bræðslu.
Ægir lá inni á Siglufirði í gær.
1000 LÍK í EINNIGRÖF
NTB-Algeirsborg, 23. júní —
Blaðafulltrúi bráðabirgða-
stjórnarinriar í Rocher Noir
sagði fréttamönnum frá því í
gærkvöldi, að fjórar fjölda-]
grafir h«;ðu fundizt í nánd
við Contsantina í Austur-Alsír.
í einni gröfinni voru meira en
1000 lík. I
Allt var með kyrrum kjörum í
Algeirsborg í dag og hafa engin
hryðjuverk verið framin þar síð-
an vopnahléssamningurinn var
gerður síðast liðinn laugardag.
Hins vegar sprungu plastsprengj-i
ur víða í borgunum Oran og
Bone, en ekki er ’vitað um tjón
af þeirra völdum.
í P:. —■> gera menn heldur
lítig úr yfirlýsingu Salan, fyrr-
verandi OAS-leiðtoga, um að hann
styðji fullkomlega samning þann,
sem Serkir og OAS gerðu með sér
í Algeirsborg á dögunum, en yfir-
lýsing Salan kom fram í bréfi,
sem hann sendi frönskum dag
blöðum úr klefa sínum í Fresnes
fangelsinu. Segja mehn, ag yfir-
lýsing þessi hafi komið allt of
seint til þess að geta haft nokkra
þýðingu.
Alltöðru máli gegni um bréf
það, sem Edmond Jouhaud, hers-
höfðingi og fyrrverandi samstarfs
maður Salans í OAS, sendi þann
5 júní úr dauðaklefa sínum.
Jouhaud hafi látið birta bréf
sitt, þegar ógnaröldin var hvað
mest í Alsíij og hafi bréfið vafa
laust átt sinn þátt í að draga
heldur úr hryðjuverkum OAS-sam
takanna p þeim tíma. Þá hafi Sal
an hins vegar . þagað eins og
steinn, enda þótt Jouhaud skír
skotaði til hans í bréfi sínu, sem
fyrrverandi æðsta manns innan
OAS og bæði hann að gefa skipun
til sinna manna um ag hryðjuverk
um yrði hætt.