Tíminn - 24.06.1962, Síða 3
STJÚRNARSKIPTI
LAOSI GÆR
NTB-Vientiane, 23. júni
Boun Oum, fráfarandi for-
sætisréðherra í Laos, lagði í
dag fram lausnarbeiðni fyrir
ríkisstjórn sína hjá Savang
Vatthana, konungi. Þar með
er ekki lengur nein hindrun í
vegi fyrir valdatöku hinnar
nýju samsteypustjórnar og erj
búizt við, að konungur gefi í
dag út tilkynningu um skip-
un hennar, en forsætisráð-
herra verður, svo sem kunn-
ugt er, Souvanna Phouma.
Souphansouvong, foringi Pathet-
Lao manna kom í dag með flugvél
til Vientiane til þess að vera við'-
staddur innsetningarathöfnina,
sem fer fram með miklum hátíð-
leika.
Við komuna var Souphannou-
vong spurður að þvl, hvort hann'
væri fyllilega ánægður með orða-
lag konungstilskipunarinnar, sem
skipun nýju stjórnarinnar byggist
á Prinsinn yppti aðeins öxlum og
sagðist ekki geta neitt sagt um
það nú enn þá. Strax og Souph-
annouvong hafð'i náð tali af hin-
Gerlar í vatninu
Framhald af bls. 1.
lifa í mistli og endaþarmi manna
og dýra.
Kröfurnar, sem ferskfiskeftirlit-
ið gerir til fiskvinnslustöðvanna,
eru, að vatnið sé ejíki verra en
krafizt er um neyzluvatn. Það má
ekki vera mengað saurgerlum
nema að mjög litlu marki.
Markmiðið í þessum málum, hlýt
ur að áliti ferskfisljeftirlitsins að
vera að koma upp klórtækjum. —
Þau eru tiltölulega ódýr, og munu
sennilega ekki kosta nema um það
bil 30—00 þúsund eftir stærð kaup
túnsins. í klórtækjunum er ýmist
notað klórgas eða klórduft, en
hvort tveggja gefur sama árangur;
vatnið gerilsneyðist alveg. Þegar
hafa verið sett upp klórtæki í ís-
birninum í Reykjavík, Norður-
tanga á ísafirði og í Sjóveitu Vest-
mannaeyja. Á mörgum öðrum stöð
um hafa verið gerðar áætlanir um
klórhreinsun.
KlórhreinSun í bátum
Mönnum hefur lengi súrnað I
augum yfir því, a|S bátar skuli
vera skolaðir úr sjó, og þá venju-
lega í höfn, þar sem sjórinn er
vægast sagt óhreính. Nú hefur klór
tæki veiið sett í einn Reykjavíkur
bát, Ásgeir. Það kostaði aðeins 12
þúsund og hefur reynzt prýðilega.
Það gerilsneyðir algerlega sjóinn,
sem notaður er við hreinsunina.
Nú mun vera unnt að fá enn ódýr-
ari tæki, en það sem Ásgejr er
með og telur ferskfiskeftirlitið
sjálfsagt, að slíkt tæki sé um borð
í hverjum báti, enda er sá kostnað
ur lítill miðað við annan kostn-
að, sem bátarnir verða að leggja í.
um prinsunum tveim, Souvanna
Phouma og Boun um, gengu þeir
á fund Vatthan konungs og ræddu
við hann stundarkorn um vænt-
anlega stjórnarmyndun.
Shodr®
Ósýnilegt kerfi
Margir undrast, að akrein-
ar og gangbrautir hafa ekki
verið merktar á göturnar í
Reykjavík þótt komið sé fram
undir Jónsmessu, enda veldur
þetta markleysi stöðugt vand-
ræðum: Vanir bæjarbúar fara
eftir akreinum, sem hvergi
sjást, en utanbæjarmönnum,
útlendingum og öðrum óvön-
um gengur ilia að átta sig á
þessu ósýnilega kerfi. Afleið-
ingin er sú, að bílar rekast á.
Blaðið talaði í fyrrad. við Sverri
Guðmundsson hjá umferðardeild
götulögreglunnar, en deildin hefur
aðstoðað bæjarvinnumenn við
merkingar á vorin. Sverrir sagði,
að margir spyrðu að þessu, en því
hefur verið borið við, að lofthit-
inn væri ekki nógur til að merkja.
Þá mun hafa staðið á málningu,
sem á að tolla betur á götunum,
en sú sem verið hefur notuð til
merkinga, en hugmyndin er að
reyna fleiri en eina tegund. Und-
anfarna daga hefur verið starfað
að malbikun og unnið til miðnætt-
is. Sagði Sverrir, að bæjarvinnu-
menn hefðu unnið kappsamlega að
malbikuninni.
Lögreglan ber enga ábyrgð á
töfum þessara verka, en aðstoðar
vinnuflokkanna með stöðvun um-
ferðar. Loks í gær munu merking-
arnar hafa verið að einhverju leiti
hafnar, og er það ekki að vonum
fyrr.
osiö á Búnaðarþing
JÓN GÍSLASON
HJALTIGESTSSON
í dag fer fram kosning fimm fulltrúa á búnaðarþing á fé-
lagssvæði Búnaðarsambands Suðurlands. Meðfylgjandi
myndir eru af efstu mönnum á lista framsóknarmanna í
sambandinu, B-listanum:
HEIMTAÐI PENINGA,
ROTAÐI MEÐ FLÖSKU
Tilboð óskast
Byggingafélag verkamanna, Kópavogi, óskar eftir
tilboðum í eftirtalin verk:
Smíði á handriði úr járni á svalir og meðfram stiga
í byggingu félagsins við Ásbraut.
Ennfremur í smíði á útihurðum og gangahurðum i
sömu byggingu.
Teikningar og nánari upplýsingar fást hjá for-
manni fékgains, Ólafi Jónssyni, ■ Hlíðarvegi 19,
sími 10479.
Bindindis- og umferðarsýningin
í GÓÐTEMPLARAHÚSINU x
Komið og sjáið nýjustu gerðir bifreiða
í dag, milli 3,15 og 4,15 leikur hljómsveit Svavars Gests
fyrir utan GT-húsið.
Bindindisfélag ökumanna íslenzkir ungtemplarar
Klukkan 22,45 í fyrrakvöld
var lögreglan kvödd að Njáls-
götu 49, en þar í kjallaraher-
bergi lá maður skorinn á höfði
og blóðidrifinn.
Hann heitir Viggó Bjerg og hef-
ur kjallaraherbergig til umráða.
Viggó var fluttur á Læknavarð-
stofuna og síðan á Landakotsspít-
alann og liggur þar nú. Viggó hef-
ur skýrt lögreglunni svo frá, að
þá um kvöldið hafi komið til hans
maður sem hann þekkti ekki og
heimtað peninga. Viggó sagðist
ekki hafa það, sem um var beðið,
og hafi komumaður þá dregið upp
hníf og hótað ag taka Viggó af
lífi. Viggó segist þá hafa sagt, að
peningarnir væru í miðskúffu í
skrifborði, sem hann benti á. Hafi
komumaður farið í skúffuna og
tekið þar 400—UOO krónur, sem
hann fann.
Komumaður lét sér þetta ekki
nægja og heimtaði meiri peninga,
en Viggó sagðist ekki eiga meir.
Þeir lentu þá í stympingum, sem
lauk svo, að komumaður molaði
flösku á höfði Viggós og fór. -
Málig er í rannsókn.
Nefbrotinn
Klukkan rúmlega tvö á föstudags
nóttina var lögreglan kvödd um
borð í Dronning Alexandrine í
Reykjavíkurhöfn, en á þilfari
skipsins lá ósjálfbjarga maður
blóði sínu. Maðurinn var fluttur
á læknavarðstofuna, en hann
hafffi veriff nefbrotinn í slagsmál-
um. Skipverji á Drottningunni
mun hafa orðið valdur að nefbrot
inu.
Tannlæknir barinn
Blaðið hefur fregnað, að Friðrik
Dungal, tannlæknir, Útsölum á
Seltjarnarnesi, hafi orðið fyrir
heiftarlegri líkamsárás á heimili
sínu að kvöldi 17. júní.
Blaðiff talaði við Sakadómara-
embættið og fékk staðfest, að kæra
hefði borizt um þetta, en meiffsli
tannlæknisins munu ekki eins al-
varleg og í fyrstu var ætlað. Var
óttast, að hann væri kjálkabrot-
inn, en sakadómaraembættinu var
ekki fullkunnugt um læknisúr-
skurðinn I gær. Tveir menn venzl
aðir Haraldi eru sakaðir um árás
ina í kæru.
kOSIÐ Í DAG
I dag fara fram hreppsnefndar-
kosningar í dreifbýlum sveitarfé-
lögum, en eins og kunnugt er,
fóru kosningar f hinum þéttbýlli
fram fyrir itm mánuði. Blað-
ið mun flytja nánari fréttir af
kosningunum þegar þær hafa far-
íið fram.
T f M I N N, sunnudagurinn 24. júni 1962.
3