Tíminn - 06.07.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.07.1962, Blaðsíða 2
fyrsta leikkonan sem hann hefur verið bendlaður við, þótt þetta mál hafi farið hæst En hann er ekki ge,’ður eins og Liz, að láta algerlega st.iórnast af tilfinning- unum, heldur hefur alitaf tekizt að halda sór hæfilega svölum í þeim málum. Hins vegar hefur hann látið svo ummælt við blaða menn, að það sé mikill kostur við kvikmyndun ástarsena, ef eitthvað er á milli elskhuganna í myndinni í veruleikanum líka. verð a8 vera ástfanqin" Liz hefur hins vegar fylilega gefið í skyn, að hún ætlast til þess að Burton skil.ii við konu sína og kvænist henni. og hing- að til hefur hún getað vafið öll- um karfmönnum um fingur sér að vild, enda oft verið talin feg- ursta kona í heimi. Vel getur svo farið enn, að allar yfirlýsing- ar Burtons um þetta, reynist markleysa, nú þegar þau Liz og Eddie hafa ákveðið að skilja. Tíminn einn mun fær um að s'kera úr því. Þó er spá flestra, Elizabeth Taylor og Eddie Fischer hafa nú formlega ákveðið að skilja, Tilkynning in um þetta er stuttorð og gagnorð: Elizabeth og Eddie Fischer hafa komið sér sam- an um að slíta samvistum. Skilnaðarréttarhöldin munu hefjast innan skamms." íslenzk kornrækt ÍSlemlingar flytja nú inn fóðurvörur fyrir 70 milljónir króna á ári. Þessar fóðurvör- ur fá undanþágur frá tolli, sem nemur 25 milljómum króna og eru ni'Surgreiddar ag auki ,sem svarar 9—10 milljónum króna. Reynslan hefur nú sannað ótvírætt, að hægt er að rækta hér á landi korn, sem að mestu getur komi'ð í stað hins in.nflutta fóðurkorns. Á síð- asta 'ári nam kornframleiðs'Ian hcr á liandi urn 685 tuunum, þar af um 200 tunnur á 30 bæjum á Austurlandi. Verð- mætj þessarar kornframleiðslu nam 2.4 mil'ljónum króna, en framleiðendur hefðu hins veg- ar átt að fá um 50% meira verg fyrir liana ef innlenda kornið hefði notið hliðstæðra uppbótia Oig ívilnana og erlendu fóðurvörurnar. Tillögur Framsóknar- manna Á undanförnum þingum hafa Framsóknarmenn barizt fyrir framgangi oig stuðn'ingi i-íkisvaldsins við íslenzka korn- rækt. M.a. hafa þeir flutt til- lögur um aðstöðujöfnun inn- lendrar kornframleiðslu við innflutning korns frá útlönd- um. Á sfðasta þingi fluttu þeir svohljóðiandi þingsá'Iyktunar- tillögu, sem ekki fékkst af- greidd: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að grei'ða verðbæt- ur á korn, sem ræktag er hér á landi, til jafns við niður- grei'ðslu á innfluttu korni. Nú eru þetta engin tíðindi. Síð- ustu mánuðina hefur allt þótt benda til að svona myndi fara. Eddie er fjórði maður leikkon- unnar, og sá þriðji sem hún skil- ur við, en Mike Todd, sem var þriðji í röðinni, fórst í flugslysi, eins og öllum er kunnugt. Fregn ir höfðu borizt um það um nokk- urt skeið, að hjónaband Eddies og hennar væri farið að standa völtum fæti, Eddie þættist farinn að færast nokkuð í skuggann. Söngferill hans var nefnilega farinn að blikna, og hann orðinn þekktari sem maður konu sinn- ar en stjarna af sjálfs dáð'um. En allur orðrómur í þessa átt, var þó jafnharðan kveðinn niður, þar til að þeir atburðir gerðust í vet- ur, sem settu allt úr skorðum. Allar Íeiðir liggja til Rómar og það er til Rómar sem fyrst verð- ur að snúa sér, þegar talað er um skilnað Liz og Eddies. Eins og öllum mun kunnugt, var þar tekin stórmyndin Kleopatra í vetur og vor og fór Liz Taylor með aðalhlutverkið í myndinni. í upphafi myndatökunnar bar fátt til tíðinda. En svo rann upp sunnudagurinn 18. febrúar 1962. Var það matareitrun? Hvað gerðist þann dag er ekki með öllu Ijóst enn. Nema það er öruggt, að leikkonan var færð á sjúkrahús þann dag alvarlega sjúk. Orðrómur komst samstundis á kreik, að hún hefði gert tilraun til að svipta sig lífi, en aðrir báru á móti því, og hvíslingamar og kjaftasögurnar flugu um gjörv- alla Rómaborg og út um allan heim. Opinberlega hafði hún feng ið matareitrun, og líklegast er það hið rétta. A.m.k. var það skoðun vikublaðsins Time, en það skýrði frá málinu með þessum orðum: „Elizabeth Taylor opnaði dós með skemmdum baunum, snæddi baunirnar og var flutt í ofboði á sjúkrahús með skyndi- lega matareitrun". Það vakti undir eins athygli, að Eddie kom ekki að sjúkrabeði konu sinnar fyrr en daginn eftir. Hann var í Lissabon, þegar slysið kom fyrir, og flaug til Rómar fljótlega eftir að honum bárust tíðindin. En auðvitað var fjar- vera hans talin bera vott um, að farið væri að kólna milli þeirra hjónanna. Enda var þá kominn á dagskrá enskur leikari, mót- leikari Liz í Kleopötru, Richard Burton að nafni. „Helvítis kjaftæði" Fljótlega eftir að Liz var kom- in af sjúkrahúsinu, var gefin út yfirlýsing í nafni Burtons. Þar segir: „Síðustu vikurnar hefur verið í gangi orðrómur um Eliza- beth og mig. Þessar fullyrðing- ar hafa verið mjög aflagaðar, og vissar kringumstæður hafa gert sennilega hluti, sem eru lagðir Elizabeth til lasts . . . Eg hef þekkt Elizabeth í 12 ár. Við höf- um verið vinir síðan hún var barn, og ég mundi aldrei gera neitt það, sem orðið gæti henni til hnekkis í einkalífi sínu eða at- vinnu.“ — Helvítis kjaftæði, sagði Burton, þegar hann las þessa yfirlýsingu. — Þetta hef ég aldrei íátið gefa út. Og hann rak úr þjónustu sinní blaðafulltrúann, sem hafði komið yfirlýsingunni á framfæri. Má daSra við Krústjoff! En orðrómurinn magnaðist, að eitthvað væri á milli þeirra Burtons og Liz. Þó voru sumir sem sögðu, að Burton væri ekk- ert nema yfirskin til að dylja það, sem raunverulega væri á seyði, samband hennar og leik- stjóra myndarinnar, Joe Manke- wics. En hann bar þá sögu harð- lega til baka. „Liz getur mín vegna daðrað við hvern sem er, Krústjoff eða Mao í Kína, ef hún vill, bara ef ég fæ að vera í friði við að ljúka myndinni. Richard Burton Hver er hann þá, þessi Richard Burton? Hann er 37 ára gamall og hefur verið kvæntur í 13 ár. Hann neitar með öllu að hann hyggi á skilnað til að geta kvænzt Liz Taylor. Enda er hún ekki sem gerzt vita um einkalif kvik- myndaleikara og ástarævintýri þeirra, sú, að Burton muni ekki skilja við konu sina af þessum sökum. Hvað þá tekur við hjá Liz er auðvitað ógerlegt að segja fyrir. En eflaust nær hún sér í einhvern nýjan mann og verður áfram uppáhaldsefni alls blaða- kosts veraldar. Sjálf hefur hún einhvern tíma sagt: — Eg verð að vera ástfangin. Eg lifi ekki nema ég sé ástfangin. íslenzk kornrækt heft af ríkisvaldinu f greinargerð, sem þessari tillögu fylgdi, sögðu flutnings- menn: „Eins og málum er nú hátt- að um vehðlag á koravöru, verður ekki séð, að veruleg aukning get'i orðí'ð í þessari búgrein, þótt vaxtarmöguleik- ar henniar að öðru leyti væru hinir beztu. fs'Ienzka kornið verður án allra verðbóta að keppa við korn, sem flutt er inn frá útlöndum, en innflutta kornið fær sérstakar niðUr- greiðslur úr ríkissjóði. Þær greiðslur nerna 18,61% af fob- verði vörunnar. Erlent kom er því selt hér sem þessu nemur undir eðlilegu verði þess, en innlend kornframlciðsla hefur ekki við neina sambæri'lega stoð að styðjiast og á því í vök að verjast í samkeppninni við hið erlenda og niðurigreidda korn. Verndartollur á út- lenda vöru Meðan nið’urgreiðsLa er að- eins látin ná til innflutta korns ins, verkar hún eins oig vemd- artollur á útlendu vöruna gegn h'inni innlendu. i Þag er augljóst miál, að f alla staði er óeðlilegt, að þann- ig sé að farið til að þröngva kosti íslenzkrar búgreinar, sem allir eru sammála um, að æski- legt væri, að ætti fyrir sér að vaxa og eflast. Eðl'ileigt hefði verið, að' rík- isstjórnin hefði bætt úr þessu misræmi með því að ákveða sömu verðbótagreiðslu á hið íslenzka korn og nemur niður- greiðslunum á aðflutta koraið. En þetta hefur ekki verið gert, og því er hér Iagt til, að AI- þingi fcli ríkisstjórninni að Framhald á. 15. síSu. ■■BHBHHBnnBESRBnWSS Lii Taylor ásamt eiginmönnum sínum fjórum. — Efst til vinstri sést hún ásamt Nicky Hilton, sem hún giftist 18 ára gömul. ÞaS hjónaband entist rúmlega hálft ár, eSa 205 daga nánara tiltekiS. — Á næstu mynd sést hún ásamt brezka leikaranum Michael Wiiding, sem var annar eigin- - maSur hennar. — í neSri röSinni koma svo myndir af henni og Mike Todd, í sem fórst í flugslysi fyrir nokkrum árum, og Eddie Fischer, sem hún er l| nú aS skilja viS. iL 2 T í M I N N, föstudagurinn 6. júli 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.