Tíminn - 06.07.1962, Síða 6
•%
Tröllafoss vlð Vestmannaeyjar.
Eiraskipafélagið
Nú í seinni tíð er eigi óalgengt
að lesa í blöðum fremur óvinsam-
leg tilskrif um „Óskabarn þjóðar-
innar“, eins og Eimskip hefur oft
verið nefnt. Þessi óvinsamlegu
skrif eru oft í sambandi við ýmis
smærri sjónarmið, reksturslegs
eðlis, í starfsemi félagsins.
Hinu virðist kynslóðin, sem nú
er að vaxa upp og 'taka við af
þeirri, er stóð að byggingu Eim-
skips á sínum tíma, vera búin að
gleyma: Hversu merkur þátt-
ur í sjálfstæðisbaráttu þjóð-
arinnar stofnun Eimskipafélags
íslands h.f. var. Hversu merkur
þáttur rekstur Eimskips hefur
verið í allri uppbyggingu þjóðlífs
ins frá stofnun þess til dagsins í
dag. Þessa skulum við ávallt vera
minnug, án tillits til þess, þótt
félagið stígi eitt og eitt víxlspor
framkvæmdalegs eðlis í starfsemi
sinni.
Við, sem úti á landsbyggðinni
búum verðum t.d. í vaxandi mæli
varir við það að vörur, er Eim-
skip flytur fyrir oss með skipum
sínum til Reykjavíkur, liggja þar
stundum 1—2 mánuði áður en Eim-
skip hefur farkost til að senda
þessar vörur frá sér á áfangástað.
Verða menn ýmist að flytja þess-
ar vörur með bifreiðum eða jafn-
vel flugvélum og baka sér mikinn
aukakostnað þess vegna.
Fljótt á litið mundu þeir, sem
aðeins vilja skrifa í óvildartón um
Eimskip, slá því föstu, að þetta
stafi fyrst og fremst af óvild ráða-
manna félagsins til landsbyggðar-
innar. Hins vegar mun mega full-
yrða, að hér er engu slíku til að
dreifa. Margþættir erfiðleikar við
afgreiðslu skipa félagsins í Reykja-
vikurhöfn, skortur á vinnuafli við
höfnina, takmarkaður húsakostur
til geymslu innfluttra vara í
Reykjavík, og síðast en ekki sízt
mun skipakostur félagsins nú of
lítill til að mæta þeirri vaxandi
flutningaþörf, er félagið þarf að
annast.
Nú nýlega hefur tekið við stjórn
félagsins ungur maður, Óttar
Möller, sem lengi hefur starfað í
þjónustu þess og er að sjálfsögðu
manna færastur um að gera sér
í .grein fyrir erfiðleikum félagsins
; og vinna að lausn þeirra.
Einn þáttur í þessum erfiðleik-
um er að sjálfsögðu sá, að greiða
úr þeirri flækju, sem sending vara;
til landsbyggðarinnar veldur, eftir
; að vörur hafa hafnað í Reykjavík.
í því sambandi þarf að sjálfsögðu
eigi að geta þess að öll slík töf
veldur bæði iðnaði og verzlun mikl-
um og tilfinnanlegum óþægindum
o-g aukakostnaði.
Það hefur verið minnzt á það í
blaðagrein hér nýlega, hvort eigi
gæti komið til mála að gera Akur-
eyri að umskipunarhöfn fyrir
Norðurland. Væri óskandi að hinn
ungi framkvæmdastjóri Eimskips
vildi veita því máli nánari athugun.
Að sjálfsögðu er léttara að slá
slíkri hugmynd fram en fram-
kvæma hana í einstökum atriðum.
En orðin eru til allra hluta fyrst
og ef hugmyndin er góð, þá ber
vissulega að athuga hana.
Sá er þetta ritar telur lausn
vandamála yfirleitt betur levsast
á þann hátt, að rætt sé um vanda-
málin af raunsæi og skilningi frem-
ur en með einhliða hnútukasti og
óvildarhug.
Við, sem landsbyggðina byggjum,
trúum því og vonum, að fram-
kvæmdastjóri og stjórn Eimskipa-
félags íslands h.f. hafi fullan hug
á að rétta hlut landsbyggðarinnar
í því máli, er hér hefur verið bent
á, og að öll starfsemi félagsins
verði ávallt rekin þann veg að
þjóðin öll geti með stolti nefnt
Eimskipafélag íslands h.f. „Óska-
barn þjóðarinnar". A.Þ.
Firestone hjólbarðar
heimsþekkt gæðavara
900 X 20 — 12 Nylon. Kr. 6.637.00
825 x 20 — 12 Nylon. Kr. 5.701.00
750 X 17 — 8 Rayon Kr. 3.208.00
700 X 17 — 8 Rayon Kr. 2.664.00
550 X 17 — 6 Rayon Kr. 1.263.00
500 X 17 — 4 Rayon Kr. 972.00
450 X 17 — 4 Rayon Kr. 800.00
600 X 16 — Rayon Kr. 1.265.00
550 X 16 — 6 Rayon Kr. 1.217.00
500 X 16 — 4 Nylon Kr. 1.115.00
500 X 16 — 4 Rayon Kr. 899.00
760 X 15 — 4 Nylon Kr. 1.640.00
640 X 15 1- 4 Nylon Kr. 1.302.00
590 X 15 — 4 Nylon Kr. 1.219.00
560 X 15 — 4 Nylon Kr. 1.143.00
725 X 13 — 4 Nylon Kr. 1.216.00
640 X 13 — 4 Nylon Kr. 1.138.00
590 X 13 — 4 Nylon Kr. 1.097.00
520 X 13 — 4 Nylon Kr. 940.00
750 X 14 — 4 Nylon Kr. 1.223.00
700 X 14 — 4 Nylon Kr. 1.076.00
Tilboð um
meðgjöf
Bændafólk. Vegna. forfalla ósk-
ast dvalarstaður í sveit handa
8 ára dreng í 2 til 6 vikur. —
Tilboð meikt: meðgjöf, sendist
Tímanum fyrir miðvikudags-
kvöld.
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum um allt land.
HALUJÓR
Skólavörðustíg 2.
SHODR®
OKTAVIA Fólksbíll
FELICIA Sportbíll
1202 Stationbíll
1202 Ser-iibíll
LÆGSTA ViliÐ
bílq f sambœrilegum stærðar-og gæðaflokki
TÉKKNESKA BIFREIDAUMEOOID
LAUCAVEGI 174 . SÍMI Í 7881
AFFELGUNARVEL fyrir vöruhjólbarða. Sú eina
sinnar tegundar hérlendis fyrir affelgun á erfið-
um hjólbörðum.
Forðizt skemmdir á hjólbörftum,
Verzlid við þá, sem beztu tækin hafa.
Sendum um allt land.
Önnumst allar hjólbarðaviðgerðir með fullkomn-
um tækjum.
CÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35. Sími 18955, Reykjavík'.
6
í
I
T f M I N N, föstudagurinn 6- júlí 1962