Tíminn - 06.07.1962, Page 7

Tíminn - 06.07.1962, Page 7
tKHDm Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURiNN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka stræti 7. Símar: 18300—18305. Auglýsingasími- 19523. Af greiðslusimi 12323. — Áskriftargjald kr 55 á mánuði innan lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan EdUa h.f. Alþýðuflokkurínn Alþýðuflokkurinn hefur nú misst völdin í Hafnarfirði eftir 36 ára stjórn þar. Það er eðlileg afleiðing úrslita bæjarstjórnarkosninganna í vor. Alþýðuflokkurinn, sem lengi hafði meirihluta atkvæða í Hafnarfirði, fékk þá ekki nema tæpan þriðjung atkv. í því fólst ákveðinn dóm- ur hafnfirzkra kjósenda þess efnis, að þeir æsktu ekki lengur forustu Alþýðuflokksins. Hvað er það, sem hefur valdið þessu hruni Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði? Alþýðuflokkurinn á vissulega að baki sér merkilega sögu í Hafnarfirði. Hann var framsækinn og róttækur flokkur, sem bar hag alþýðu manna fyrir brjósti, þegar hann tók fyrst völdin í Hafnarfirði. Hann hafði einbeitta og góða forustumenn eins og Kjartan Ólafsson, Björn Jóhannesson og Guðmund Gissurarson. Þessir menn tóku við bænum í rústum og réttu hann við á margan hátt. Stjórn Hafnarfjarðarbæjar var um margt til fyrirmyndar fyrstu áratugina, sem Alþýðuflokkurinn stjórnaði þar. Undir forustu nýrra manna, hætti Alþýðuflokkurinn hins vegar að vera sami flokkurinn og hann var áður. Jón Baldvinsson og Héðinn Valdimarsson hurfu af sjónar- sviðinu, Kjartan Ólafsson dró sig í hlé o. s. frv. Alþýðu- flokkurinn hætti sem landsmálaflokkur að vera umbóta- sinnaður og frjálslyndur og færðist meira og meira í íhalds | ált. Hann hætti að vera flokkur launafólks og tók að leita | sér fylgis meðal afturhaldssamra atvinnurekenda. Mestu | umskiptin 1 þessu urðu þó eftir að Haraldur Guðmunds- 1 son lét af formennsku flokl^sins og Emil Jónsson tók við henni. Um þriggja ára skeið hefur Alþýðuflokkurinn stutt stjórnarstefnu, sem er engu minna óréttlát og afturhalds- söm en sú, sem Jón Baldvinsson og Héðinn Valdimarsson börðust gegn á árunum 1924—27. Uppskeran varð svo í samræmi við þetta í bæjar- stjórnarkosningunum í vor. Alþýðuflokkurinn tapaði næ alls staðar og mest þar, sem hann hafði áður verið sterk astur og vonbrigðin voru því mest, eins og í Hafnarfirði í Keflavík og á Akranesi. Ósigur Alþýðuflokksins í Hafnaríirði stafaði því ekki eingöngu af því, að menn væru óánægðir með bæjar- málastjórn hans, heldur engu síður og öllu heldur vegna fi þess, að þeir voru að fordæma landsmálastefnu hans. | Alþýðublaðið birtir langa grein i gær um valdatap 1 flokksins í Hafnarfirði Það virðist þó enga grein gera 8 sér fyrir því, hvað hefur mest orsakað ósigur hans. For- I ingjar Alþýðuflokksins virðast hvert á móti ákveðnari á f því en nokkru sinni fyrr að fjarlægjast hina upprunalegu | stefnu flokksins og baráttu hans í þágu alþýðustéttanna. | Þeir virðast þvert á móti ætla að gerast trúrri í íhalds- 1 þjónustunni á landsmálasviðinu en nokkru sinni fyrr. Þa'o | er engu líkara en þeir vilji vera til hægri við sjálft íhaldið. I Tvær kröfur Morgunblaðið heimtar 1 gær, að allt verðlagseftirlit sé afnumið. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins heimtaði nýlega í VIsi, að allt kaupgjald yrði ákveðið af dómstólum. Þetta tverint. dregur upp nokkuð rétta mynd af raun- rerulegri stefnu Sjálfstæðisflokksins: DómsfJar skulu ákveða kaup launafólks, en milliliðir skulu ráða álagningu rir.ni sjálfir. Hin æskilega stefna í þessu er vitanlega sú, að frjáls sarokeppni kaupfélaga og kaupmanna á jafnréttisgrund- \-eiii móti verðlagið, en launþegar og atvinnurekendur komi sér saman um kaupgjaldið á grundveUi samstarfs og gajmkvæms skilnings. _ Þekktur hagfræðingur fiytur hér erindi um Efnahagsbandalagið Eins og skýrt var frá í blað inu í gær, hafa nokkrir menn tekið sig saman og boðið hingað norska hagfræðingn- um Ragnar Frisch í því skyni, að hann flytti hér fyrirlestur um Efnahagsbandalag Evrópu, en Frisch hefur haft forustu í Noregi í baráttunni gegn aðild Noregs að EBE. Frisch hefur þegið boð þetta. í gær var birt ávarp þeirra, sem að heimboðinu standa, en hér á eftir fer kynnlng þeirra á Frisch og fyrirlestri hans. Þriðjudaginn 10. júlí mun norski hagfræðingurinn Ragnar Frisch halda fyrirlestur um efna hagsbandalagið í Háskóla ís- lands. Frisch er nú einn frægasti hagfræðingur á Vesturlöndum, bæði austan hafs og vestan og raunar víðar. Hann hefur tekið upp ný vinnubrögð í hagfræði með því að taka æðri stærðfræði í þjónustu hennar. Engu að síður þykir hann sérlega laginn að leggja mál ljóslega fyrir áheyr- endur og er rómaður fyrir kenn- arahæfileika. Frisch er fæddur í Osló árið 1895 og gekk þar í menntaskóla og háskóla. Var orðinn doktor árið 1926 fyrir lögfræðilega rit- gerð, sem hann ritaði á frönsku. Tveimur árum síðar var hann orð inn dósent og árið 1931 varð hann prófessor við Oslóarháskóla og, hefur verið það síðan og stjórnar um leið þjóðhagfræðistofnun Oslóarháskóla. Sem kennari hefur hann mótað nemendur sína mikið og þannig hefur hann haft mikil Ahrif á efnahagsmál Norðmanna síðari árin, bví að nemendur hans eru raargir í áhrifastöðum. í miklu áliti Sem dæmi um álit hans í öðrum löndum má nefna, að sem ungur maður hélt hann fyrirlestra í Yale árið 1930 og í Sorbonne árið 1933. Hann var fyrsti formaður í einni aðalstofnun Sameinuðu þjóðanna, fjárhags- og félagsmálanefndinni. Hann hefur verið ráðunautur ind versku ríki.sstjórnarinnar í efna- hagsmálum og síðar einnig eg- ypzku stjórnarínnar, Frisch e.r félagi og heiðurs- félagi fjölda vísindafélaga. Hann er félagi í Vetenskaps Akademien i Osló frá 1931, í Kgl. humanist- • ske Vetenskapsamfundet í Lundi frá 1941, í Kgl. Svenska Veten- skapsakad, Stokkhólmi 1950, Accademia Vazionde dei Lincce 1952, Acad. and Human Rights 1953, heiðursfélagi í Amer. Econ omic association, korresp. Royal Economic Society, fókk Shump- síer- verðlaun Harvard-háskóla árið 1955, Hon. fellow of the Royal Statistical Society 1956 og heiðursdoktor við Stokkhólmsliá skóla árið 1959. Þetta ætti að segja nokkuð um álit Frisch og menntun. Efni fyrirlestursins rirlesturinn í háskólanum kallar Frisch: Aðild að Efnahags- Liandalaginu er í senn óhyggileg og hættuleg. Hann skiptir erind- inu í átta kafla: 1. Hagnaður og tap í einkarekstri. 2. Mogintap þjóðarbúsins. 3. SL-orðing á félagslegu öryggi. ‘ 11 fvrir lýðræðið. fun menningarverðmæta. Myndin er tekin af Ragnari Frisch prófessor og kono hans hans í fyrra- sumar, þegar ífalskir blaðamenn voru staddir í Osló í tilefni af þvf, aS dr. Frisch voru veitt Feltrinelli-verðlaunin (um U/2 milli. ísl. kr.). 6. Oraunhæf alþjóðahyggja. 7. Forræði Vestur-Þýzkalands. 8. Hernaðarbandalög ógna heims friðnum. Ályktanir Frischs Prófessorinn kemur sem sagt víða við. Marga mun fýsa að vita, hvað hann á við, þegar hann talar um tap þjóffarinnar. Hann skiptir þeim kafla þannig: a) Hagkerfi bandalagsins. b) Fastari eða lausari tengsl við lönd bandalagsins. c) Auðvelt er að ná stundarhagn- aði með afsali náttúruauð- iinda. d) Tillitslaus gjörnýting >.uð; hringa á hráefnum og orku- lindum fátækra landa. e) Hræðsla smáþjóða við að standa utan bandalagsins muni leiða til ófarnaðar er ástæðulaus. f) Skakkt mat á gildi sérhæfing- ar milli þjóða. •g) Skakkt mat á skilyrðum fyrir atvinnulegum framförum. h) Rómarsamningurinn innifelur sjálfvirka hemlun. i) Nú er stöðnun í efnahagslífi bandalagsríkjanna og afturför að hefjast. j) Aðild smáþjóða að bandalag- inu mun leiða til þess, að þær geta ekki hagnýtt sér þá miklu möguleika, sem skapast við stórfellda aukningu á viðskipt- um og framleiðslu í heimin- um. k) Undanþágur hafa takmarkað gildi. l) Jafnvel samningsumleitan'r um aðild eru smáþjóffum hættulegap. í ávarpi þessara manna, sem birt var í blaðinu í gær, sagði m.a. á þessa leiff: Vór teljum tímabært, að ís- lenzku þjóðinni séu kynntir ókost ir, engu síður en kostir, sem því kunna að vera samfara að gerast aðili að Efnahagsbandalaginu. Þess vegna ákváðum vér að bjóða dr. Frisch að kynna sjónarmið sín einnig hér á landi. Og þar sem oss er kunnugt um að hann nýtur miikls álits á alþjóðavettvangi, lítum vér svo á, að það hljóti að vera íslenzku þjóðinni bæði gagn legt og nauðsynlegt, að kynnast skoðunum hans, hvort sein að lokum verður ákveðið að sækja um aðild að Efnahagsbandalagi Evróþu, eða standa utan þess. Loks viljum vér taka fram, að Norðmenn hafa þegar ákveðið að láta þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram um það, hvort Noregur skuli gerast aðili að Efnahagsbandalag- inu eða ekki. Teljum vér þá rnáls- meðferð einnig eðlilega hér. Þeir, sem standa að heimboðinu Eftirtaldir menn standa að heimboði Fisch: Þorsteinn Sigurðsson (form.), form. Búnaðarfél. íslands; Arnór Sigurjónsson, ritstjóri; Bergur Sigurbjörnsson, viðskiptafræðing ur; Davíð Davíðsson, prófessor; Minningarsjóður Alberts Klahn Fyrir nokkru var stofnaður sjóð ur til minningar um Albert heit- inn Klahn hljómlistarmann. Þeir sem standa að stofnun þessa sjóðs eru aðstandendur Alberts, Lúðra- sveit Hafnarfjarðar, Lúðrasveit Reykjavíkur, Sambaiid Lúðrasveita og Fdlag ísl. hljómlistarmanna. — Albert Klahn vann mjög að fram gangi lúðrasveita hér á landi, en hann stjórnaði Lúðrasveit Reykja- víkur um árabil og síðan Lúðra- sveit Hafnarfjarðar auk þess sem hann raddsetti fyrir fleiri lúðra- sveitir. Hann var og lengi starf- andi hljóðfæraleikari hér á landi, fyrst við veitingahús og síðan í Sin- fóm'uhljómsveitinni. — Hyggjast ofanritaðir aðilar halda nafni hans á lofti með sjóðstofnun þessari. En fyrirhugað er að styrkja íslenzkan blásturihljóöfæraleikara til fram- Guðni Jonsson, professor; Helgij haldsnáms með tekjum úr sjóðnum Guðmundsson, bankastjóri; Jónj0g munu aðilar að sjóðnum gera Arnason, bankastjóri; Kristján ■ þar ag jútandi reglugerð síðar. Thorlacius, forseti BSRB; Sverrir Gíslason form. Stéttarsambands bænda; Árni Böðvarsson, cand. mag.; Björn Th. Björnsson, form. Rithöfundafél. íslands; Finnbogi R. Þorvaldsson, prófessor; Hanni bal Valdimarsson, forseti ASÍ; Haukur Helgason, hagfræðingur; Kristján Friðriksson, forstjóri; Páll Zóphóníasson, íyrrv. búnaðar málastjóri; Þorsteinn Pétursson, fulltrúi." Gerð hafa verið vönduð minn- ingarspjöld til að afla sjóðnum tekna og eru þau til afhendingar hjá Einari Sigurjónssyni rakara, Strandgötu 9, Hafrtarfirði og í Hljóðfæraverzlun Poul Bernburg, Vitastíg 9, Reykjavík og í gulL—.ða verzlun Guðlaugs Magnússoiiar, Lau0dvegi 22a, Reykjavík. Vænta 'óðsstofnendur þess, að vinir Al- rts heit>' og aðrir. setr tónlist unna hafi Minningarsjóð Alberts Klahn í h..0a. ( M i S N, Cöetnd«j(nrins «. tóU 19C2. 7

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.