Tíminn - 06.07.1962, Qupperneq 9

Tíminn - 06.07.1962, Qupperneq 9
SEfjS' -iaai Til sæifidar þjóðinni? Það er kunnara en frá þurfi að segja hv'ernig straumur er- lendra ferðamanna til íslands verður nú stöðugt stríðari og breiðari með ári hverju. Það héfur líka verið tilgangur lands manna að svo mætti verða. í meðferð þessara mála gildir lögmálið: Ei'ns og menn sá, þannig munu jseir einnig upp skera. Lengi býr að fyrstu gerð — og hin fyrstu kynni líða mönnum seint úr minni. Það hefur ekki lítið að segja um sæmd þjóðar vorrar hvernig búið er að andlegri og líkam- legri velferð þeirra, sem land vort gista. Þegar ferðamannastraumur er orðinn mikill til einhvers lands, þá breytist blærinn á gestrisn- inni, ef svo mætti að orði kveða. efni og tollir í minninu til kynn ingar tungu vorri og menningu. Hér eru ekki þjónar að verki heldur þjóðin sjálf, upp og ofan er verður samskipa útlending um, sem land vort gista. Hin íslenzka málvöndun er oft og einatt lík kalkaðri gröf. Sá, sem ætlar að hitta siðfágaða sögu- þjóð í þessu landi, þarf lengi að leita. Hann hittir fáa full- trúa hennar á skemmtistöðum vorum. f útvarpinu heyrir hann að vísu ýmislegt betra en þetta, sem nú var nefnt, en ekki fá allir skilið hvers vegna hverri einustu viku þarf að ljúka á innantómu skvaldri, auk þess sem berst flesta daga. Miklu varðar, að hið bezta sé borið á borð, ekki aðeins á disk- um, heldur einnig í orðbragði og viðmóti. Margir sem hingað ‘ Professor Jóhann Hannesson: Það er mikið verk á hverju vori þegar starfsfólkið í Val- höll þarf að taka til meðferðar hið stóra, gamla og kalda hús eftir veturinn og gera það vist- legt fyrir sumarið, Aðstaða hlýt ur að verða erfið til þjónustu á Þingvöllum meðan ckki fæst rafmagn frá Soginu. Á undan- förnum árum hefur það borið við að rafstöðin bilaði á miklum annríkisdögum og þá er mjög erfitt um vik, eins og gefur að skilja. Nú eru Þingvellir meðal hinna fremstu ferðamannastaða á landinu og næsta furðulegt að þar skuli ekki vera rafmagn fyr ir hendi frá Soginu, þar sem þetta vatnsfall rennur úr suður enda vatnsins, en Þingvellir eru við norðurenda þess. Meðan öruggt rafmagn er ekki fyrir hendi, hlýtur þjónusta í stórum stíl jafnan að vera hálfgert taugastríð fyrir veitingamenn og þjóna, sem þar starfa. Það var landinu til sæmdar sem eftir var ársins —og er það ekki fagurt afspurnar um vor- menn íslands. Fróðlegt mun að sjá hvernig skátar fara með Leirurnar, sem upp hafa verið græddar og lagfærðar á síðast liðnum áratug með allmikilli vinnu og nokkrum kostnaði. — Um ungmennafélög ber þó að geta þess að umgengni félaga af Austur- og Norðurlandi bar af, svo ekki varð hjá því komizt að taka eftir því. Samskipti vor við sjálft land ið, gróður þess, dýr og fugla, við náttúruna í heild, þurfa að mótast af samúð og næmri til- finningu með öllu sem lifir og þakklæti til Guðs, sem hefur gefið oss þetta land og leyfir oss enn að halda því. Vér þurf- um að temja oss góða umgengni, ekki til að sýnast. heldur til þessa að greiða þakkarskuld vora við vort eigið feðrafrón. Það er ömurleg landkynning þegar allmargir af landsmönn- í ERLENDIR FERDAME SLENZK LANDKYNNING Upp rísa stofnanir, sem kunna góð skil á öllum þessum málum, eins og t.d. Ferðaskrifstofa Rík isins hér hjá oss. Menn fela stofnunum mál sín og þurfa þá litlar áhyggjur að hafa. Minna og minna verður um persónu- leg kynni við gestina. Lands- menn sjá stúra hópa, sem um landið fara, en vita lítt hvað þeir hugsa og segja sín á milli um það, sem fyrir augu ber. Sérfróðir menn svara spurning- um gestanna. Allt virðist ganga greiðlega. Undantekning frá þeirri reglu að gestir séu af- greiddir svo að segja á færi- bandi, eru hinir sérstöku ís- landsvinir, persónulegir gestir, frændfólk í öðrum löndum og erlendir stéttarbræður, sem heimsækja stéttarbræður sína hér á landi. Að svo miklu leyti sem land- kynningarstarfsemi vor er til sæmdar þjóðinni, er svo annað mál. Allt er auðvitað einfalt meðan gesturinn horfir niður í vínglasið, í úða fossins eða upp á jökultindinn. En þegar liann fer að hlusta, spyrja og hugsa, þá vandast málið. „Off má á máli masms- éns marka, hver helzi hann er“ ísland er fagurt land og ást- kæra, ylhýra málið er indæl tunga. En það fe roft heldur lítið fyrir málvöndun í land- kynningu vorri. Menn halda að íslenzkan sé öðrum óskiljanleg, en hún er það ekki lengur. Um landið ferðast nú ungir mennta menn, sem vita allgóð skil á móðurmáli voru. Aðrir koma hingað og læra ýmislegt furðu fljótt. Það er fróðlegt að at- huga hvaða orð erlendir menn læra fyrst á leiðinni hingað eða þegar þeir hafa verið hér nokkra daga. Þannig lærði ein stúlka þessa setningu fyrst af öllu: „Helvítis bauna-kerling“. Mjög algengt er að menn læri fyrst eitt eða fleiri af þessum orðum: „Skál, bless, haltu kjafti, andskotinn". Þetta er tilvalið koma, h__. meiri menningar- áhuga en vér ætlum. Sumir myndu taka litlar ljóðrænar perlur — bæði á frummáli og í þýðingum — fram yfir glans- myndir af jöklum og fossum, að þeim ólöstuðum. — Auk þess þurfa leiðsögumenn og aðrir aó vanda mál annarra þjóða, helzt miklu betur en nú tíðkast. Þegar veðrið bregzt og fegurð fjallanna er hulin í þoku og rign ingu, þá reynir em meir en ellj á hina andlegu landkynningu. að leiða í ljós hina ósýnilegu fe.gurð, sem hér er að finna, þrátt fyrir allt. Dauðir leiSarendar og dauðir staðir Þegar erlendur ferðamaður fer til Þingvalla og lítur á vega kortið, þá gerir hann ekki ráð fyrir að hitta þar fyrir dauðan leiðarenda. Hafi honum ekki verið annað sagt, þá gerir hann ráð fyrir að einhver ferðaþjón- usta sé til í suðurátt frá Þing- völlum. Ég hef hitt marga, sem í því efni urðu fyrir vonbrigð- um og fengu ekki skilið það ráðstöfunarleysi, sem ríkt hefur í þessu máli. Að ýmsu leyti var líkt á kom- ið um leiðina frá Laugarvatni til Þingvalla. En þetta átti eink um við um þá, sem tekið höfðu með sér bíla sína frá öðrum löndum og óku hér um á eigin spýtur. „We had to find it out the hard way“, sögðu nokkrir enskir ferðamenn, sem ég átti tal við. Hér eru það kortin, sem seld eru ferðamönnum, er blekkingunni valda (Hér frá er kort Ferðafélagsins undanskilið, en það sýnir nú hið rétta ástand þessarar leiðar). Ferðamenn, sem fara á- vegum F.R. verða auðvitað ekki fyrir þessum óþægindum þegar um hring- ferðir er að ræða. Með „dauðum stöðum" frá sjónarmiði ferðamanna á ég við staði, sem starfræktir eru stutt an tíma á ári hverju, en eru svo lokaðir nokkurn hluta þess tíma, sem ferðamenn treysta á þá. Hér ætti að vera skylda að afhenda upplýsingar meg far- seðlunum, þegar vitað er að ferðamenn geta hvorki keypt sér vott né þurrt á sumum fræg um ferðamannastöðum, sem búið er að auglýsa. Eftir að flug samgörigur hafa batnað og til landsins hafa komið menn, sem hafa aðeins einn dag til ráðstöf unar, þá hefur t.d. eftirfarandi gerzt oftar en einu sinni: Menn fara til Þingvalla fyrri hluta dags og koma þaðan aftur mátu lega snemma til að komast að Gullfossi með bíl úr Reykjavík, en fá engan tíma til að matast hér í bænum og koma að lok- uðum veitingastöðum bæði á Þingvöllum og við Gullfoss. Vel má vera að landið komi þeim vel fyrir sjónir, en það á hins vegar ekki við um þjóðina, sem þannig skipar málum, án þess að láta menn vita um þetta fyrir fram. Þótt ekki sé um fræga menn ag ræða, þá þarf að gera meiri greinarmun á landkynn- ingu og fjárflutningum. Veigamiklar stéttir Auk leiðsögumannanna koma ýmsar aðrar stéttir við sögu, þegar um landkynningu er að ræða. Mikilvægir eru hór bíl- stjórar, veitingamenn, þjónar, matreiðslumenn og lögreglu- menn. Ekki geta allir þessir að ilar gefið sig að ráði að þeim gestum, sem koma en þeir verða oft að svara spurningum gest- anna.Málakunnátta er þeim þess vegna nauðsynleg. Nokkuð má bæta hér úr með litlum kverum, rir hafa ag geyma spurningar og svör um ýmis efni, bæði á fs- lenzku og framandi tungum. Það virðist vera í tízku að vanþakka þjónum hér á landi. En mér hafa reynzt íslenzkir þjónar og veitingamenn góðir viðskiptis, að sumu leyti betri en erlendis. Ég man ekki eitir ruddalegum viðbrögðum hjá neinum íslenzkum veitingaþjóni hvorki konu né karli .Þótt ég sé stundu^n einn 1 hópi, sem neytir áfengis, hafa þjónar ævin lega brugðizt kurteislega við, þegar ég hef beðið um óáfeng- an drykk. hve vel hinir íslenzku lögreglu menn stóðu í stöðu sinni á Þing völlum, miðað við aðstæður allar. En aðstæður hafa allt til þessa verið erfiðar. Þegar lög- reglumenn þurftu að fjarlægja óróaseggi, sem spilltu nætur- friði manna, þá voru venjulega aðeins tveir kostir fyrir hendi: Annar sá, að flytja þá inn á mela fyrir véstan Þjóðgarðinn. líkt o-g menn flytja frá sér roll- ur, sem sækja í tú'nið. Hinn kost urinn var sá að fara með þá til Reykjavíkur og var sá ekki góður, nema nóg lögreglulið væri fyrir hendi, eins og verið hefur á hinum síðari árum yfir sumarið um helgar. En allt til þessa hefur skort „letigarð" í Þjóðgarði fslendinga og hefur þó ekki veitt af. Mikilvægir sfaSir og goðir gestir Hér hefur þegar verið nokk- uð verig rætt um einn mikil- vægasta stað ættjarðar vorrar í landkynningunni. Þangað kom jafnan mikið af góðum gestum, innlendum og útlendum. Mikill meiri hluti fslendinga sýndu staðnum þann sóma, sem rétt er og skylt, gekk þar prúðmann lega og hreinlega um. Þannig komu oft foreldrar með börn sín, kennarar með nemendur sína, veiðimenn með stengur og tjöld — og var framkoma flestra landi og þjóð til sæmd- ar. Yfirleitt virtist sú regla gilda að þeir, sem komu með eitthvað ákveðið í huga, komu vel fram — nema þeir sem komu til þess að drekka sig fulla, og fylla aðra. Það er ráð mitt til þeirra, sem unna Þingvöllum og öðrum sögufrægum stöðum, sem miklu máli skipta, að þeir fari ekki fram á að halda þar opinberar skemmtanir og stefni þar ekki saman miklum múg. Sú var reynslan á Þingvöllum, t.d. þeg ar afmælismót Ungmennafél- anna var þar haldið, að staður- inn var lengi ljótur á eftir og það kostaði mikið fé að hreinsa hann sómasamlega. Grasrótin var troðin og illa útlítandi það um missa stjórn á sér og koma fram sem drafandi og hrínandi skríll, káfandi á náunganum eða liggjandi eins og dauð torfa undir annarra sparki, og svo fer víða þar sem menn gefa sig áfenginu á vald. Vér getum ekki bætt úr því tjóni né þvegið af oss smán siðleysisins með því að senda eina og eina fegurðar drottningu til Langasands eða Hollywood — jafnvel ekki þótt hún sé tilbúin undir „tréverk og málningu". Slík landkynning er ekki tekin alvarlegra með öðrum þjóðum, enda í meira lagi hégómleg — og af þúsund- um ferðamanna, sem ég hef átt tal við, hefur hana ekki borið á góma. Aðrir mikilvægir staðir til landkynningar en hinir sögu- frægu, eru auðvitað hótelin, þar sem gestirnir búa, skipin og flugvélarnar, sem þeir feróast með. Það kann að virðast fúrðu legt og næsta ótrúlegt að er- H lendir ferðamenn kvarta yfir ^ því að hóiel á íslandi séu of heit og að dúnsængurnar séu svo he::ar, að þeir geti ekki sofið undir þeim. Þetta \ sam róma álit fjögurra erlendra ferðamanna, sem ég átti tal við nýlega og voru fra tveim .á- grannaþjóðum, sem búa við hlýrra loftslag en vér. Æskilegt væri að veitingamenn — for- stjórar gistihúsanna reyndu að bæta hér um og athuga þessa hlið málsins. Því það hefur vissulega allmikið að segja að gestir geti sofið sæmilega. Og hvag ^útvarpið snertir, þá er skynsamlegt að sýna þeim nokkra nærgætni. Þeir leg.gja ekki leið sína til íslands til þess að hlusta á skvaldur, sem þeir eru fyrix löngu orðnir leiðir á í sínum eigin löndum. Meðal þeirra gesta, sem til íslands koma, eru einnig blaða menn, útvarps- og sjónvarps- menn, skólamenn, er sjá um skólaútvarp, rithöfundar og listamenn í ýmsum greinum. Ég varð t.d. að tala fyrir norskt og þýzkt skólaútvarp og " -ir BBC í Englandi, þótt ég ætti heima á Þingvöllum. Eftirspurn (Framhald á 15 síðu) 1 í M I N N, föstudagurinn 8. júlí 1962. 9 i ) l i I : t 1 í i i i J ! i i 1 í i I" ij. tli.li ií',/./ 1 i 1 'i U 1 V.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.