Tíminn - 06.07.1962, Síða 12

Tíminn - 06.07.1962, Síða 12
 ÍÞRDTTIR_________, RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Á mánudaginn kemur fer fram 32. landsleikur íslend- inga í knatfspyrnu og mætir landsliðið þá Norðmönnum og verður það níundi landsleikur- inn milli þjóðanna. í hinum átta fyrri hafa Norðmenn unn- ið sex sigra, en tvisvar hefur ísland sigrað. Fyrra skiptið var 1954 og hið síðara 1959 og úrslitin urðu 1-0 í báðum leikjunum. Og á mánudaginn má búast við mjög jöfnum leik og vissulega hefur ís- lenzka landsliðið mikla mögu- leika til að hljóta þriðja sigur sinn gegn Norðmönnum. Stjórn Knattspyrnusambands ís- lands boðaði blaðamenn á sinn fund í gær og skýrði þeim frá væntanlegum landsleik — og skip an landsliðanna. Ingvar Pálsson hafði orð fyrir stjórninni. Hann gat þess, að þetta yrði 32. landsleik ur okkar og dómari í leiknum yrði skozkur Mr. Brittle, en línuverðir Hannes Sigurðsson og Einar Hjart arsson. Norska landsliðið kemur hingað á sunnudagskvöld, en fer utan aftur á miðvikudagsmorgun. Það er athyglisvert vijj þessa heimsókn, að norska liðið leikur aðeins landsleikinn, en enga auka leiki, eins og oftast er í slíkum lieimsókuum. Er því aðeins hægt að sjá norska landsliðið í þess- — Tvær breyfingar gerðar á ísl. landsSiðinu frá leikíium við Sjálendinga í fyrrakvöld um eina leik. Vegna þess hve kostnaður er mikill og aðeins einn leikur, hefur verið horfið að því ráci að hækka verg aðgöngu- miða. Stúkumiðar verða á 75 kr., stæði á 45 kr. og bamamiðar á 10 kr. Eftir landsleikinn á mánu dagskvöldið verða Norðmennirn- ir í boði borgarstjórnar Reykja- Víkur, en á þriðjudag býður ríkis- stjórnin þeim í ferðalag. Tvær breytingar Þá var blaðamönnum tilkynnt liðin. Aðeins tvær breytingar eru gerðar á íslenzka liðinu, sem lék gegn, Sjálendingum í fyrrakvöld. Helgi Daníelsson kemur í markið — og Sveinn Jónsson sem vinstri framvörður. Liðið er þannig skip- að: Helgi Daníelsson, Akranesi. — — Þrautreyndur markvörður, sem leikur á mánudaginn sinn 21. landsleik — og hefur aðeins einn leikmaður liðsins leikið fleiri leiki. Helgi er 29 ára gam- all og hefur leikið í meistaraflokki síðan 1950, fyrst með Akranesi, síðan Val frá 1951—1955, en síðan aftur með sínu gamla liði. Árni Njálsson, Val, hægri bak- vörður, og einn bezti varnarleik- maður, sem við höfum átt. Árni er 26 ára og verður þetta 12. lands leikur hans. Árni hefur leikið í meistaraflokki Vals síðan 1953. . • Bjami Felixson, KR, vinstri bak vörður og nýliði í landsliðinu. Er þó öllum knattspymuunnendum kunnur fyrir góða leiki undanfarin ár. Sjá nánar viðtal við Bjama. Garðar Ámason, KR, hægri fram vörður, sem leikið hefur sjö lands leiki. Garðar er 24 ára og einn leiknasti maður liðsins. Hefur leik ið í meistaraflokki KR síðan 1957. Hörður Felixson, KR, sem leik- ur nú í níunda sinn miðvörð í ís- lenzka landsliðinu, en hann hefur einnig leikið í landsliðinu í hand- knattleik. Hörður er 30 ára gam- all og hefur oft átt mjög góða leiki í landsliðinu, enda traustur, hugs andi leikmaður. Sveinn Jónsson, KR, leikur nú vinstri framvörð eftir tveggja ára fjarveru úr liðinu. Þetta verður, áttundi landsleikur Sveins, en hann lék fyrst 1958 — þá einnig sem framvörður, en hefur einnig oft leikið sem innherji. Sveinn hefur- átt prýðis Ieiki í sumar, en hann hefur leikið í meistaraflokki KR síðan 1956. Verður 25 ára í haust. Steingrímur Bjömsson. Akrurn eyri, leikur nú í fyrsta skipti sem hægri útherji í landsliðinu. Hefur áður leikið þrjá landsleiki sem vinstri útherji. Er miðherji í Akur eyrarliðinu, 22 ára. Ríkharður Jónsson, Akranesi, hægri innherji og fyrirliði liðsins. Hefur leikið 25 landsleiki — einn íslendinga, — og leikur með aftur eftir tveggja ára fjarveru sökum meiðsla. Ríkharður er aldursforseti liðsins, fæddur 12. nóvember 1929. Lék fyrst í landsliði gegn Norð- mönnum 1947, en var varamaður í fyrsta landsleik okkar 1946, þá aðeins 16 ára. Þórólfur Beck, St. Mirren, leik- ur miðherja landsliðsins í 10. sinn. Eini atvinnumaður okkar i knatt- spyrnu og hefur getið sér gott orð fyrir mikla leikni. Fæddur 21. janúar 1940 og lék í landsliði 1958., Kári Árnason, Akureyri, vinstri: innherji, sem lék í fyrsta sikpti íj Framhald á 13. síðu. i Bjarni Felixson við skrifborð sitt í Hamri. „Rauða ljonið" i landsliðinu — Bjarni Felixson, KR, leikur sínn fyrsta lands- leik á mánudag, en er þó þraufreyndur leik- maður Nýliðar í landsliði þurfa ekki allfaf að vera reynslulitl- ir, ungir piltar, sem þekkja lítið til þeirrar taugaspennu, sem hver landsleikur krefst, og gott dæmi þess er Bjarni Felixson „rauða Ijónið" í KR, sem leikur sinn fyrsta lands- leik gegn Norðmönnum á mánudagskvöldið, en er þó þrautreyndur leikmaður í þýð- Frgmhald á 13. síðu. Sigurþór Jakobsson við setjarakassann í Gutenberg (Ljósmyndir: TÍMINN, RE). „Ég bjóst ekki við því, að verða valinn í landsliðið gegn Norðmönnum á mánudaginn, eftir frammistöðuna í gær- kveldi", sagði Sigurþór Jak- obsson, KR, þegar TÍ.MINN brá sér til hans á vinnustað í gær, en Sigurþór er að læra prentiðn í Gutenberg — og er bví sjöundi prentarinn. sem leikur í íslenzka landsliðinu í ! knattspyrnu. segir Sigurþór Jakobsson, KR, sem leikur sinn fyrsta landsleik gegn Norðmönnum Sigurþór var að handsetja, þeg- ar við komum í prensmiðjuna, grannur, rólyndur 19 ára piltur, og ekki beint líkur þeim harðskeytta útherja, sem hann getur verið á knattspyrnuvellinum, og leynir bví greinilega á sér. — Hefurðu verið Iengi í knatt- spyrnunni, Sigurþór? — Ég hef leikið með KR síðan í fjórða flokki, en fyrst í vor komst ég í meistaraflokk, enda érjfitt að komast í flokkinn áður, þar sem félagið hefur átt svo marga góða leikmenn. Ég byrjaði sem bakvör?i ur í 4. flokki, en breytti fljótt urr stöðu og varð útherji, enda fellui það betur við líkamsbyggingu mína, ef hægt er að tala um það í sambandi við knattspyrnu. — Og hvernig leggst landsleik- urinn í þig? (Framhald á 13. jíðu) 12 T f M I N N, föstudagurinn 6. júlí 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.