Tíminn - 06.07.1962, Side 13

Tíminn - 06.07.1962, Side 13
 Frú Jónína Andersen meS þrem afkomendum í beinan kvenlegg: Idu Nielsen, Ruth Utke, Tinu uVke. Þorfimsgestur enn Hér er á ferð frá Danmörku frú Jónína Andersen. Hún er bú- sett í Kaupmannahöfn. Var heim för hennar ráðin áður en Þor- finnur Kristjánsson lézt í vdtur. Frú Jónína er fædd að Kjós í Grunnavíkurhreppi í Norð'ur- tsafjarðarsýslu hinn 8. des. 1884, og ber aldurinn með slíkum hætti, að sérstaka athygli vekur. Frúin fór til Tönsberg í Noregi 1908 og dvaldi þar í tvö ár. Hafði í huga að komast til Vesturheims, en húsfreyjurnar, sem hún hafði dvalið hjá, mæltu fremur með Danmörku. Þangað fór hún, og þar hefur hún dvalið síðan. Árið 1920 giftist hún bónda sín- um, Harald Andersen, sem alla tíð hefur starfað við skipasmiða- stöð danska flotans. Þau hjónin eiga tvær dætur, er önnur þeirra gift, og á einnig tvær dætur. Hér í Reykjavík er frúin borin á höndum af frændfólki sínu, en á leiðarenda er hún ekki komin, fyrr en að Hellu á Rangárvöll- um. Þár á hún góða vinkonu, frú Matthildlj'/íóhannesdóttur, sem heiðurinn á og framtakssemina af því, að frúin er hér komin sem enn einn Þorfinnsgesta- En þar eð Þorfinns hefur nú misst við, verður frú Andersen vísast síðasti gesturinn, sem nýt- ur góðs af þessari framtakssemi LandsliðiS Framhald af 12. síðu. landsliði gegn Englendingum í fyrra —- og verður þetta því ann- ar landsleikur hans. Sigurþór Jakobsson, KR, vinstii útherjif og yngsti maður liðsins, aðeins 19 ára. Byrjaði að leika með meistaraflokki KR í vor og hefur frami hans því orðið mikill á stuttum tíma. Nýliði í landslið- inu. Margar stöður í norska lands- liðinu eru skipaðar nýliðum, en nokkrir reyndir rnenn eru innan- um. Liðið er þannig skipað: Sverre Andersen, Viking; Erik Vagen, Frigg; Ragnar Larsen, Sandakcr; Roar Johansen, Fred- rlkstad; Per Martinsen, Stein- kjer; Tryggve Andersen, Brann; Rolf Björn Bakke, Gjövik; Arne Petersen, Fredrikstak; John Krogh, Roscnborg; Olav Nielsen, Viking og Erik Johansen, Gjövik. Þeir Sverre Andersen, Ragnar Larsen (var lengi atvinnumaður á Ítalíu), Roar Johansen, Tryggve Andersen og Arne Petersen hafa leikið hér á landi áður — en hinir koma nú hingað í fyrsta sinn. Þess má geta, að Tryggve Andersen lék einmitt sinn fyrsta landsleik hér á landi 1957. — Varamenn liðanna verða þessir: ísland: Heimir Guð- jónsson, KR; Hreiðar Ársælsson, KR; Ormar Skeggjason, Val; Skúli Ágústsson, Akureyri og Ellert Schram, KR. — Noregur: Svein Weltz, Frigg; Edgar Stakseth, Steinkjer; Olav HSkon, Steinkjer og( Ole Oppedahl, Brann. hans, en hún var sprottin af þakklátssemi Þorfinns og hrifn- ingu, þegar Hið ísl. prentarafélag bauð honum heim á 50 ára af- mæli sínu. Þorfinn mun ekki hafa dreymt um Islandsför, þeg- ar heimboð það barst. En það hafa þá ekki margir þakkað öllu fallegar „fyrir vel- gerðirnar við sig“ en Þorfinnur, þar eð 25 landar, flestir við ald- ur, hafa nú fyrir hans framtaks- semi fetað í sporaslóðina, og séð sitt gamla land. Þessari starfsemi mun þá hér með lokið. Þorfinnur fallinn frá, og vikapiltar hans komnir til ára sinna. En þá á við að þakka þeim, áem hér hafa að stutt með fjár- framlögum, og höfðinglegri gest- risni. Að sjálfsögðu mun hér eftir sem hingað til íyrirfinnast heimþrá landa, sem erlendis dvelja. Hér var henni sinnt með vissum hætti, úr einu horni — okkar gamla sambandslandi. Tíminn verður að leiða i ljós, hvort fyrir hendi verður hugul- semi á þeim bylgjulengdum, sem Þorfinnur bar í brjósti — og þá framtakssemi í senn. Geta má þess, að vikapiltar Þorfinns og hans gesta, hér heima, hafa verið menn, ná- komnir tveim af stjórnmálablöð- um okkar. — Já, þetta hefur tekið langan tíma, því að ég byrjaði að leika með meistaraflokki KR 1956 og lék minn 100. leik með flokknum í fyrsta leiknum í vor gegn Vík- ingi. Og það merkilega er, að fyrsta árið 1956 var ég einmitt valinn í úrvalsliðið. Síðan komu þrjú ár, án stærri leikja, en 1959 var ég valinn í pressulið og hef alltaf leikið með því síðan og nokkrum sinnum f Reykjavíkurúr- vali. Hins vegar hefur ekki geng- ið eins vel með landsliðið — ég hef t.d. aldrei einu sinni verið þar varamaður." — Og hvenniig Ieggst leikurinn í þig? — Ég hef þá trú, að við getum unnið. Þetta er engin óskhyggja, og ég er bjartsýnn á árangur hjá liðinu, þrátt fyrir leikinn í gær- kvöldi', en það er alltaf niður- drepandi að fá mörk á sig eins og við fengum þá. Ég hef oft leikið með flestum leikmönnum liðsins, og þekki þá því úti og inn. Það er mikill kostur. — Ert'U hættur námi í h'áskól- anum? — Já, mér líkar prýðilega við bókarastarfið hér. Ég tók stúdents próf 1955 og innritaðist síðan í norrænu deildina í háskólanum — en síðan 1959 hef ég verið fastur starfsmaður hér. (Þess má geta, að báðir bræður hans, Hörð- ur og Gunnar, eru einnig stúdent- ar). — Þú ert nýkvænt'ur, er það ckki? — Jú, ég kvæntist Álfheiði Gísladóttur 3. júní s.l. — en hún þekkti „hobbý-ið“ vel, svo það hefur engin áhrif haft á æfing- arnar. — Ertu fluttur úr Vesturbæn- um? — Ég á enn lögheimili á Bræðraborgarstígnum, þar sem ég er fæddur og uppalinn, en lög- heimilið verður víst bráðum fyrir austan læk. — Og að lokum Bjarnl, hvernig stendur á viðurnefninu? — „Rauða ljónið“, — ja, þetta festist við mig strax í fjórða flokki — ætli það sé ekki háralit- urinn meðal annars. —lisím. Björgvin Sæmundsson, bæjarstjöri á Akranesi Fyrsti fundur bæjarstjórnar á Akranesi var haldinn í gær- kvöldi. Aldursforseti Þorgeir Jós epsson stýrði kjöri forseta og var Jón Árnason alþingismaður kosinn forseti. Tók hann þá vig stjórn fundarins og las upp alllangan mál efnasamning, sem Sjálfstæðisflokk urinn og Alþýðuflokkurinn höfðu gert með sér um framkvæmd bæj- armála á kjörtímabilinu. Þar á meðal höfðu þeir komið sér saman um að kjósa Björgvin Sæmunds- son bæjarstjóra og var hann kos- inn með 6 atkvæðum, en 3 skiluðu auðu. Framsóknarflokkurinn og Al- þýðubandalagið höfðu með sér kosningabandalag, en í bæjarráð voru kjörnir Daníel Ágústínusson, Fögnuður endar í blóöbaði (Framhald af 3. síðu) Fréttamenn í Rocher Noir segja, að samkomul. milli bráðabirgða- stjórnarinnar og FLN-stjórnarinn- ar fari nú dagbatnandi og sennilegt sé, að FLN-stjórnin muni innan fárra daga fara til Rocher Noir og setja þar upp aðalbækistöðvar sín ar. Skrúöfylking „Rauða l]óniS“ Framhald af 12 síðu. ingarmiklum leikjum og hefur leikið rúmlega 110 leiki meðj meistaraflokki KR. Þar er því! enginn nýliði á ferð, þó að hann verði talinn nýliði á, ménucfaginn. Bjarni Felixson er fæddur 27.; desember 1936 og er því 25 ára j gamall, þegar hann fær sína eld-j skírn í landsliðinu, en oft áður ; hefur hann staðig nærri því.; Bjarni er annar í röðinni af þrem-: ur sonum Felixar Péturssonar,; gjaldkera í Hamri, og konu hans: Ágústu Bjarnadóttur, en þeir: Hörður og Gunnar, bræður hans,.; hafa báðir leikið í landsliðinu, og i Hörður verður við hlið hans á mánudaginn. Það er einsdæmi hér, að þrír bræður hafi leikið í landsliðinu — og ef til vill renn- ur upp sú stund fyrir hinn áhuga- sama föður þeirra, að hann sjái þá alla saman í landsliðinu, ef til vill siðar í sumar, en yngsti son- urinn, Gunnar, hefur ekki verið heill í fæti í vor, en lék hins veg- ar báða landsleikina í fyrrasumar. Við litum inn til Bjarna í gær, þar sem hann sat við skrifborð sitt í Hamri, en hann er þar bók- ari. Eftir ag hafa óskað honum til hamingju með landsliðssætið, skutum við að honum. — JæjaJ loksins kom að því, og Bjarni! svarið: ‘ BJést ekki vi® að verSa valinn Framhald af 12. síðu. — Ja, ég veit það ekki. Ég vona að okkur gangi vel, en ég þekki afar lítið til norsku landsliðsmann anna, enda víst margir nýliðar þar, ekki' satt. Það var svolítið erfitt að leika í tilraunalandsliðinu, þar sem ég lék nú í fyrsta skipti með þeim sem voru í framlínunni — en það eru aðeins byrjunar- örðugleikar, sem ég vona að hverfi á mánudaginn. — Hvað hefurðu verið lengl hér í Gutenberg? — Ég byrjaði að læra fyrir þrem ur árum — en ég er fæddur 16. ágúst 1942 — og á því eitt ár eftir í náminu. Og nú grípur meistari hans fram i, Grímur Engilberts, og segir: — Strákurinn er mjög listræn.n og hann hefur teiknað mikið fyrir mig í Æskuna og fleira. Hann hef ur mikinn hug á auglýsingateikn- un. — Ég veit það nú ekki, sagði Sigurþór þá af sinni hæglátu hlé- drægni, — en ég hef verið þrjú ár í Myndlistarskólanum og hef garrfan að því að teikna. Um fram- tíðina er allt óákveðið. Til viðbótar þessu má geta pess, að Sigurþór er fæddur á Lauga- veginum, sonur hjónanna Jakobs Danielssonar, vélstjóra, og konu hans Þuríðar Jakobsdóttur. Flutt- ist kornungur í Vesturþæinn og gekk því fljótt í KR og hefur halÖ ið tryggg við félagið, þótt hann sé nú aflur fluttur austur íyrir læk. Og nú þegar við óskum hon um til hamingju með landsliðs- sætið erum við vissir um að hann gerir það gott í landsleikn....i á mánudaginn, enda af flestum tal- I Algeirsborg fóru í dag 1000 alsírskir hermenn í fylkingu um göturnar, en í þessum hópi voru þó engir hermenn þeirra deilda, sem komið hafa frá Marokkó og Túnis síðustu daga. Á undan fylk- ingúnni gengu tvö hundruð hvít- klæddar stúlkur, en í broddi skrúð fylkingarinnar voru skrautklædd ar lúðrasveitir. Á eftir óku nokkr- ar bifreiðar og þeim fylgdu hundr uð fótgönguliða. Frá Cairó bárust þær fréttir í dag, að Ben Bella hefði enn átt viðræður við Nasser, forseta, og hefði Bella á þeim fundi undir- strikað andstöðu sína gegn því til- tæki Ben Khedda að víkja lierfor- ingjum æðsta herráðs þjóðfrelsis- hersins frá störfum. Sagði Ben Bclla, að brottvikningin væri lireint lögbrot. Flofinn ausfur Framhald ai 1 síðu. á sjöunda þúsund mál í fyrrinótt. Mestan afla hafði Höfrungur II, 1200 mál. í fyrrinótt og gærmorg- un komu þrír bátar til Eskifjarð- ar meg 3000 mál alls, og nokkrir bátar komu með síld til Vopna- fjarðar. Síldin, sem barst til Norðfjarðar reyndist 16—17% að fitumagni og á Eskifirði reyndist fitumagnið 18%. Veður var gott á miðunum eystra og gert ráð fyrir miklum afla 1 nótt, enda miklar lóðningar. Nokkrir voru byrjaðir að kasta í gærkvöldi. í gærkvöldi var engin söltunar- stöð tilbúin fyrir austan Langa- nes, en fyrstu tvær stöðvarnar, báðar á Norðfirði, verða tilbúnar í kvöld. — Norsk síldveiðiskip fengu allt að 2 þúsund hektólítra- köst út af Glettinganesi í fyrri- nótt. Funílsir bæjapstfópnar Frarnhald af 16. síðu í viðkomandi kaupstöð'um og hvatti Kristján til þess að bæjarútgerðir væru sér í samtökum. Þá fylgdi Kristján úr hlaði tillögu, er hann flutti ásamt Birni Guðmundssyni um að borgarstjórn fæli borgar- stjóra að bcita öllum hugsanlegum ráðum til að leysa togaradeiluna og taka upp við'ræður við ríkisstjórn- ina um ráðstafanir til að tryggja rekstursgrundvöll togaraútgerðar- innar. inn efnilegasti leikmaður, sem hér hefur komið fram frá því Þórólf- ur byrjaði með meistaraflokki KR fyrir fimm árum. Hálfdán Sveinsson og Jón Árnason. í allar 5 og tveggja manna nefnd ir réði hlutkesti, og fengu Fram sókn og Alþýðubandalag 12 sæti af 19. Ag lokinni dagskrá kvaddi Daníel Ágústínusson sér hljóðs og óskaði eftir að flytja mál, en hinn nýkjörni forseti Jón Árnason lýsti þá yfir, að slíkt yrði ekki leyft og sleit fundi án þess að bera það undir bæjarstjórn. Þar sem það hefur verig venja áður, að verða við slíkum óskum, þótti þetta hið mesta gerræði og vakti undrun þeirra mörgu, sem fundinn sóttu, ekki hvað sízt með tilliti til þess, að bæjarstjórnar- fundur hefur ekki verið haldinn á Akranesi í nær því tvo mánuði. GB Klemmdist Það slys varð í vöruskemmu Jökla við Kleppsveg laust fyrir kl. 8 í gærkvöldi, að 16 ára gamall piltur, Hélgi Þorvaldsson, Ásgarði 107, klemmdist milli dyrastafs og palls vörubifreiðar, sem var bakk- að inn í skemmuna. Helgi var fluttur á læknavarðstofuna og strax þaðan á Landsspítalann, en hann var handleggsbrotinn, meidd ur á fæti og víðar. Nýr sendiherra Noregs í ágiist í gær birti NTB-fréttastofan eft- irfarandi tilkynningu: Sendiherra Noregs á íslandi, Bjarne Vilhelm Börde hefur fengið lausn frá emb- ætti samkvæmt eigin ósk frá 1. ágúst að telja. Við starfi hans mun taka Johan Zeiner, og var hann skipaður í það embætti á fundi ríkisráðsins í gær. GulSfoss laskast Þegar ms. Gullfoss var að leggj- ast að hafnarbakkanum í Kaup- mannahöfn í gærmorgun, vildi það óhapp til ag fkipið lét ekki fylli- lega að stjórn, er það átti að taka aftur á bak, og rakst stefnið á hafn arbakkann. Við ireksturinn mynd- aðisi 4 feta löng dæld, sem gekk 3 fet inn í stefnjð nokkuð fyrir of- an s’ólínu. Engin meiðsli urðu á mönnum við pennan árekstur og mun viðgerð ’ara fram í Kaiip mannahöfn, ár, þess að skipið þurfi að' fara í skipakví, og tefst Gullfoss því ekkert af þess-um sök- um, en mun halda áætlun sír.a í sumarferðunum óhindrað. (Fréttatilkynning frá Eimskipa- félagi f ’ands, 5. 7. '62!. Doktor Framhald af 16. síðu. sjá íslcnzkan vísindamann á þessum stað. Hann lét einn ig í Ijós, að hann væVi mjög hrifinn af íslenzkri vísinda- mcnnsku og náttúruvísinda- mennsku. Hann hefði sjálfur haft tækifæri til þess að taka þátt í rannsóknum á fs- Iandi. Nielsen prófessor hrósaði ritgerð doktorsefnisins, sem hann kallaði mjög fróðlega og vandaða. Niðurstöður hennar hefðu gífurlegt gildi, og myndu auka þekkingu mánna á þessu cfni að 'narki. Doktorsvörnin stóð yfir i þrjá tíma. Hcnni lauk með því, að Unnsteinn Stefánsson flutti þakkarorð, og síðan var hann útnefndur með heiðri doktor við Hafnarhá- skóla. — Aðils. T f M I N N, föstudagurinn 6. jnlí 1962. 13

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.