Tíminn - 08.07.1962, Page 13
sem fjölskyldan öll hefur mætur á
Smásteik
Saxbauti
Gulrætur
Rauðrófur
Lifrarkæfa
Grænar baunir
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDG
Tvö bréf
Framhald af 7. síðu.
gera herréttinum kleift að
dæma þá til langvarandi
fangelsisvistar. Þegar búið er
að taka þá til fanga, eru þeir
dregnir út úr fangelsinu á
nóttunni til þess að yfirheyra
þá og pynda.
HIN NÁKVÆMA lýsing
okkar er einungis ætluð til
þess að sannfæra yður um,
að þess er hin fyllsta þörf að
þér grípið í taumana.
Við höfum allir, sem undir-
ritum þetta bréf, ýmist orðið
fyrir eða verið vottar að ofan-
nefndum pyndingumi Þessar
-Trúlofunarhringar
Fljót afgreiðsla.
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Sími 14007
Sendum gegn póstkröfu.
Istaðreyndir mega ekki liggja
I i láginni. Almenningur á
Spáni verður að fá að vita
um þetta sem allra fyrst.
Okkur er fyllilega ljóst,
hve erfitt það er fyrir yður,
eins og alla íbúa lands okk-
ar, að verða okkur að liði-
En þegar þjóðin berst gegn
stjórn, sem er sek um alla
þessa glæpi, er það skylda
hvers og eins að gera allt
sem mögulegt er og færa hin
ar þyngstu fórnir.
Hvaða stjórnmálaskoðanir
sem við höfum og hvaða trú,
sem við játum, þá höfum við
allir sem Spánverjar fyrst
og fremst áhuga á friðsam-
legri og lýðræðislegri lausn
hins spanska vandamáls og
að koma hinni ægilegu aft-
urgöngu borgarastyrjaldar-
innar aftur undir græna
torfu, því að ný borgara-
styrjöld þýðir nýtt hatur,
nýjan dauða og nýja kvöl,
og kynni að ríða landi okkar
að fullu. Staðreyndir á borð
við þær, sem við hér höf-
um lýst, geta aldrei leitt til
þeirrar lausnar, sem við þrá-
um allir svo ákaft.
VIÐ ERUM sannfærðir
um, að þér munið fylgja
spönskum erfðavenjum í
anda réttlætisins. Við vænt-
um þess, að þér munið fljótt
grípa í taumana og koma
okkur til hjálpar og reyna
þannig að gera endi á öll-
um þessum lögleysum og
glæpum. Þá yrðuð þér virt-
ir og dáðir af þjóð okkar,
sem verður í dag að lifa við
einræði, en getur á morgun,
að sigurlaunum fyrir bar-
áttu sína, horft fram til frels
is og lýðræðis."
(Þýtt úr Aktuelt).
Vilja snúa aftur
Framhald af 9. síðu.
í rauninni eru munaðarvör-
urnar, sem fólkið sér í búðun-
um allt of dýrar fyrir það, með
því kaupi, sem það hefur.
Tristanbúarnir eru fálátir,
þegar þeir eru spurðir um álit
þeirra á Englendingum. „Allir
hafa verið okkur mjög góðir“,
segja þeir. „Það eru allir vin-
gjarnlegir". Sé farið eitthvað
nánar út í að spyrja þá um
skoðanir þeirra á borgarlífinu,
hrista þeir bara höfuðin, yppta
öxlum og brosa, en svara engu.
Er fólkið hafði verið mánaðar-
tíma í Englandi, birti eitt dag-
blaðanna grein, þar sem haft
er eftir einum eyjarskeggjanna,
að það, sem erfiðast væri að
venjast, væri að ganga sam-
hliða fólki á götunni, og eng-
inn segði halló.
Gestir, sem koma í Tristan
Close, finna strax, að þar rík-
ir eins konar millibilsástand.
Garðarnir hafa ekki verið
stungnir upp, enginn hefur
keypt sér hænu eða hund, og
ekkert hefur verið gert til þess
að auka á lífsþægindin. „Það
er ekki þess virði, eða hvað
finnst ykkur“, segir Ned Green,
„við flytjum ef til vill aftur til
Tristan da Cunha einhvern
tíma á næstunni.
Trú þeirra á það, að þeir
eigi einhvern tfma eftir að
hverfa aftur til eyjarinnar set-
’ ur svip sinn á allt líf þeirra.
Þeir halda fast við þessa von
sína, enda þótt yfirvöldin telji
litlar líkur til þess, að úr því
geti orðið. Þeir vita, að haldi
þeir fast saman og tali allir
sem einn maður máli sínu til
stuðnings eru meiri líkur fyrir
því, að þeir fái að fara aftur
til eyjarinnar. Enginn þeirra
segist ætla að verða eftir í
Englandi, ef tækifæri gefst til
þess að snúa heim.
„Það er ágætt að vera hér“,
segja börnin, en þau eru fljót
að bæta við: „Það er samt
betra á Tristan". Wheeler land
stjóri heldur því fram, að
margir hinna yngri myndu
kjósa að verða kyrrir, ef til
þess kæmi, að þeir fengju
tækifæri til þess að fara aftur
til eyjarinnar, en þeir vilji
bara ekki viðurkenna það núna.
Af sömu ástæðum hefur full-
orðna fólkið ekki haft mikið
saman við fólkið í nágrenninu
að sælda. „Við höldum saman,
ég held það sé bezt þannig",
sagði ein konan. Þó hafa nú
tveir ungir menn keypt sér
mótorhjól.
Dveljist eyjarskeggjamir
lengi í Englandi, er óhjákvæmi
legt annað en böndin, sem
tengja þá saman, taki að losna.
Þegar er farið að bera á
óánægjuröddum vegna þess, að
sumir mannanna fá nær því
hemingi hærra kaup en aðrir,
og er það nokkuð, sem þeir eiga
erfitt með að skilja. Á eyjunni
höfðu allir sömu tækifæri, og
hamingjan var ekki hliðhollari
einum fremur en öðrum. Á
hinn bóginn er það svo í Eng-
landi, að þeir sparsömu, iðnu
og þeir, sem hafa sérstaka hæfi
leika ná lengra en hinir, og
kemur þetta síðan fram á lífs-
kjörum mannanna. Þetta hefur
ekki gerzt enn þá, en að því
mun koma.
Hinn 4. apríl komu menn úr
Konunglega vísindafélaginu aft
ur frá Tristan da Cunha og
sögðu þær fréttir, að farið
væri að draga úr eldgosinu og
öllum skepnunum liði vel.
Þetta var einmitt fréttin, sem
Tristan da Cunha-búarnir höfðu
beðið eftir. Margir mánuðir
munu enn líða, þar til úr því
verður skorið, hvort öruggt sé
að flytja til Tristan, en nú hef-
ur þetta landflótta fólk fengið
vonarneista, sem verður þess
valdandi, að það mun eiga erfið
ara með að setjast að í Eng-
landi en nokkru sinni fyrr.
1.200,00 kr. afsláttur
SVEFNSÓFAR
Nýir á aðeins kr. 2.500,00.
Létt glæsilegt form. 1. fl.
svanipur. Öll tízkuáklæðin.
Sendum gegn póstkröfu.
Svefnsófaverkstæðið
Grettisgötu 69. Simi 20676.
Handhægar athuganir
’Framhald af 8. síðu.
Þessar veltuathuganir eru miðaðar við, að skipið taki „eðlilegar
veltur", svo sem eins og lognöldu, en ekki þegar það liggur með óeðli-
legt vindfang á sér eða verður fyrir sjóhnút. Verður að taka nokkrar
athuganir til að finna eðlilega veltutímann.
Þessi regla, sem hér hefur verið birt er víða notuð til að gera skyndi-
athuganir á ástandi skipa. Að kunna þessa reglu og nota hana getur
veitt mikla hjálp, en ef allt á að vera tryggt eins vel og hægt er, þá
verður að kenna skipagerð og þá útreikninga í fiskimannadeildum
stýrimannaskólans, en til þess þarf að auka fjárveitingu til skólans
og breyta reglugeið um námsefni, það sem kennt er til hinna einstöku
prófa.
Jónas Guðmundsson.
N]óti3 leyfisins og fakiS
nföursuðuvörur meó í feróalagið
Kindakjöt
Kindakæfa
Kjötbúðingur
Bæjarapylsur
Kjötsoð
Svið
Aliar venjulegar stærðír
Fást í öllum betri
matar- og kjötverzlunum
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
T I M I N N, sunnudagurinn 8. júlí 1962.
13
*"i n ? r.; i i m " i i i r , i j