Tíminn - 08.07.1962, Blaðsíða 15
Fáar af frásögnum guðspjall-
anna eru táknrænni og skáld-
legri í öllum sínum einfaldleika
en sagan um það, þegar Krist-
ur kom að luktum dyrum, en
komst þó inn og sagði við vini
sína: „Friður sé með yður“.
Þarna greinum við fyrst af
öllu líkingu eða samstöðu anda
og kraftar Krists og þess mátt-
ar, sem vorblærinn flytur yfir
fjöll og dal. Geislarnir og gol-
an virðast hvarvetna koma að
luktum dyrum.
. En samt ná áhrif þeirra að
sprengja brott slagbranda
frosts og frera, og síðan að
opna eða læðast ósýnileg inn
í innstu kjarna hvers blundandi
frjómagns fræjanna og lauk-
anna, sem leynast í moldinni.
Og innan skamms er hjúpi vetr
Þáttur kirkjunnar
Luktar dyr
arins svipt af, og brumandi lif
gægist hvarvetna fram úr dauð
ans nótt og dimmum gröfum.
Hvert vor sýnir og sannar sig-
urmátt upprisunnar og lífsins.
Við horfum á undrin gjörast
hvarvetna í kringum okkur frá
morgni til kvölds, og hljótum
að segja fagnandi með skáldinu:
„í hverju foldarfræi byggir
andi,
sem fæddur er á ódauðleik-
ans landi“.
En einmitt þannig sprengir
kraftur hins upprisna alla vetr
arfjötra haturs og heimsku af
hverri sál, hverju hjarta, sem
veitir honum viðtöku, og frið-
urinn veitir vöxt og þrótt ofar
öllum orðtáknum mannlegrar
tungu.
En>'%amt eru til þau öfl, sem
nefndust í gamla daga forherð
ing hjartans. Þau verka líkt og
jökullinn, sem er nógu þykkur
til að varpa frá sér öllum
geislum vorsólarinnar og koss-
um golunnar, með ískulda
þröngsýni, tómlæti og sjálf-
byrgingsháttar, haturs eða
sjálfselsku. Og eins og jökull-
inn myndar þeim mun harðara
svell og hjarn til að verjast,
eftir því sem sól dagsins flæð-
ir heitar um skalla hans þann-
ig verða forhert hjörtu þeim
mun hatrammari í skjaldböku-
skel sinni sem Kristsandinn
knýr fastar á dyr þeirra. En
þar eru kjarnorkusprengingar
og herbúnaðarkapphlaup hálf-
trylltra eða albrjálaðra vald-
hafa og höfðingja heimsins
bæði í vestri og austri gott
dæmi nú. Samt vinnur Krists-
andinn vorblær kærleikans og
friðarins á hægt og hægt.
Kannske eru þeir sigrar líkt
og skáldið lýsir:
„Hann stækkar ei, hækkar ei
lengir þó leið,
sem langdegis sólskinið jafnt,
en augnabliksvísirinn ævin
manns stutt
veit ekkert um muninn þann
samt“.
Þetta er hin raunverulega
trúarjátning þeirra, sem trúa
þrátt fyrir allt vígbúnaðarbrjál
æðið á anda upprisunnar, vors
ins og lífsins og sigra þess
anda. Við vitum að jökulmörk-
in færast til ofar og ofar, smátt
og smátt með hverju vori, þótt
heila áratugi þurfi til að greina
þann mun og biðjum:
„Styð þú minn fót, þótt fetin
nái skammt
ég feginn verð, ef áfram miðar
samt“.
Og andi Jesú Krists heldur
áfram að koma gegnum luktar
dyr með vorblæ friðar og gró-
andi lífs til allra, sem taka
honum heilshugar og með fögn
uði eins og lærisveinarnir forð
um. En samt voru þeir í fyrstu
hikandi og hræddir. En síðar
breyttist sá ótti í undrun og
lotningu.
Síðan fortjald musterisins
rifnaði ofan frá og niður úr og
björgin klofnuðu á fyrsta degi
hins sigrandi geislamagns gegn
um sólmyrkvann þann langa-
frjádag, sem Kristur hékk á
krossi sfaum, hefur þessi sigur-
för verið samfelld þrátt fyrir
öll hin grimmilegu hret og næt
urfrost.
Hann opnaði hlið Edens sem
höfðu lokazt með þrumugný í
syndafalli mannsins, svo að
notað sé líkingamál Heilagrar
ritningar. Hann gekk inn um
hlið Heljar og prédikaði fyrir
þeim, sem þar biðu síns dóms,
öndunum í varðhaldinu. Hann
velti steininum frá grafardyr-
unum á páskadagsmorgun og
opnaði innsigli dauðans.
Nú geta engar luktar dyr
staðizt kraft hans, þetta hljóða
magn hins brumandi kærleika
framar. Hversu margar fang-
elsisdyr hefur hann opnað síð-
an sinn fyrsta sigur? Þær eru
ÓteljaÖdÍF'CTHBHWSSSHBBHBæ^ -s
Hve mörg harðlæst hlið hafa
ekki opnazt fyrir krafti hans?
Hlið landa og þjóða allt frá
hallardyrum Nerós í Róm og
Antónía-kastalans í Jerúsalem
til Kína vorra daga með sinn
fræga landamæramúr og hins
myrka meginlands Afríku, sem
er að vakna við þeyinn, sem
þýtur yfir grænkandi lönd
frelsis og framfara, þrátt fyrir
ægilegar hamfarir vorleysing-
anna.
En samt erum við svo mörg,
kannske einmitt vegna allra
hamfaranna í vorleysingum
þjóðanna svo hikandi llkt og
Tómas postuli. En afstaða
hans, sem heimtaði sannanir,
varð til hinnar mestu blessun-
ar. Og andi Krists opnaði að
síðustu harðlæstar hjartans dyr
þessa unga vinar síns. Og hann
varð einmitt fyrsti postuli Ind
lands, þess lands, þar sem nú
ómar rödd Drottins mild og
sættandi: „Friður sé með yð-
ur“.
Þér lönd og þjóðir heims,
hlýðið á þessa hljóðu, máttugu
kveðju Drottins við luktar
dyr.
Árelíus Níelsson.
Flugflotinn
Framhald at 16. síðu.
fengið þijár 80 sæta Cloudmaster-
vélar.
Nú munu 850 manns geta flogið
samtímis í íslenzkum flugum, ef
allar þessar vélar væru í gangi. Hin
ar fimm Cloudmaster-vélar Loft-
leiða hafa samtals sæti fyrir 400
manns og sjö flugvélar Flugfélags
íslands taka alls 332 í sæti. Flug-
félagið hefur að auki tvær 80 sæta
vélar, sem ekki eru taldar með sér.
Fyrir utan þessar stóru farþega-
vélar er til talsvert af litlum leigu-
og einkaflugvélum. Flugskólinn
Þytur mun eiga 11 flugvélar, þar
af fimm Piper Cub kennsluvélar,
en hinar stærri og eru þær notað-
ar til leigu- og kennsluflugs jöfn-
um höndum. Flugfélagið Flugsýn
hefur einnig bæði kennsluvélar og
leiguflugvélar, alls fjórar vélar, og
er hin síðasta stærst.
Nokkrir einstaklingar hafa flug-
vélar til leiguflugs, sjúkraflug-
menniiuir Björn Pálsson, sem hef-
ur tvær vélar, og Tryggvi Helga
son á Akureyri, sem hefur þrjár
vélar, og loks Sveinn Eirkísson og
Erlingur Einarsson og félagar, sem
kalla sig Flugfélag Reykjavíkur.
Það hefur eina níu manna De
Haviland flugvél.
11 flugvélar, helmingur þeirra
bilaður, eru í einkaeign, án þess
að atvinuflug sé stundað á þeim,
og er það minna en hefur verið
oft áður. Rétt eftir seinni heims-
styrjöldina var hægt að fá mikið af
ódýrum smávélum, og þá fengu
margir hér heima sér slíkar. Þær
eru nú yfirleitt gengnar úr sér.
Einkaflugið hefu reynzt nokkuð
dýrt hér, erfitt um viðgerðir og
aðstöðu á flugveli, þótt hins vegar
sé hér gullið land fyrir sportflug,
sérkennilegt landslag og um 100
sæmilegir flugvellir.
í sumar mun lítil vél bætast í
flotann. Það er láðs- og lagarvél af
gerðinni Seebee, sem erlendis er
mikiö notus af laxveið'imöimum,.
því hægt er að veiða beint úr flug-
mannssætinu, þegar vélin er lent á
vatninu.
Frá því er flug hófst á landinu
hafa milli 60 og 70 horfið af skrá.
Flestar stærri vélainar hafa veríð
seldar til útlanda, allt til Suður-
Afriku. Nokkrar hafa farizt, en
flestar litlu vélarnar hafa endað
ævi sína með ellidauða.
Flugkeppni
Framhaid al 16. siðu.
in verður aðallega fólgin í ná-
kvæmnisflugi frekar en hraða.
Verða þátttakendur að þreyta
ýmsar þrautir, svo sem mark-
lendingar, en sennilega ekki
neina loftfimleika.
Þetta mun vera i athugun hjá
vélflugunefnd Flugmálafélagsins,
en í henni eru Skafti Þóroddsson,
formaður, Bárður Daníelsson og
Leifur Magnússon. Ef vel tekst
til, verður slík flugkeppni ef til
vill haldin annaðhvert ár.
StarfsstúBknafélagið
SÓKN
heldur fund mánudaginn 9. júlí í Aðalstræti 12.
Fundarefni: Samningarnir.
Áríðandi að félagskonur mæti.
Stjórnin.
vm
Mhúbh
OKTAVIA
Fólksbíll
FELICIA
.O/ Sportbíll
1202
Statíonbíll
1202
Sendibíll
LÆGSTA VERÐ
bí!a f sambærilcgum stærðar- og gæðafiokki
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐID
IAUGAVEGI 176 - SÍMI 5 78 81
VEB Globus-Werk
Deutsche Demokratlsche Republik
Su|
mm
Leípzig
DESOL
hreinsar andrúmsloftiS
Fæst í töflum og smekk-
legum plastbaukum.
UTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja barnaskólahús í Bolung-
arvík. Útboðsgagna má vitaja á skrifstofu oddvita
í Bolungarvík og skrifstofu húsameistara ríkisins
gegn 1000 kr. skiltryggingu.
Húsameistari rikisins.
Liósmóðurstarfið
í Flateyrar- og Mosvallahrepps og Ingjaldssands
umdæmum er laust til umsóknar nú þegar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. júlí n.k.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 5. 5. 1962.
Jóh. Gunnar Ólafsson.
Takið eftir. Takið eftir
Þið fjármálamenn og peningamenn
ílvað er betra i dag, en gulltryggð verðbréf? Talið við
obkur. hvar sem þið búið á landinu. (Algjört einkamál.)
Allar nánari upplýsingar gefur
CJPPLÝSINGA OG VIÐSKIPTASKRIFSTOFAN
Laugaveg 33 B. Rvík. Box 58
Viðtalstími alla virka daga kl. 3—5.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
Guðmundar Jónssonar
á Skliihyl.
Kristjana Jóhannsdóftir og börn.
ÞAKKARÁVÖRP ~
_:_ -..á ....... ■ —\ . -,>yu . . I
Þökkum Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga
ágætt ferðalag á þess vegum dagana 4. og 5.
s.l. Einnig Skúla Guðmundssyni, alþingism:
samfylgdina og Jóni Húnfjörð öruggan aksl
Konur í Ytri-Torfustaðahrep
Miðfirði.
Innilegt þakklæti til allra sem sýndu mér vinsemd
á áttræðisafmælinu með heimsóknum, gjöfum og
skeytum.
Ólafur Sveinsson,
Lambavatni, Rauðasandi.
T f M I N N, sunnudagurinn 8. júlí 1962.
15