Tíminn - 12.07.1962, Síða 14

Tíminn - 12.07.1962, Síða 14
Fyrrí hluti: Undanhald, eftir Arthur Bryant. HeimiUir eru STRIDSDAGBÆKUR AIANBROOKE bandalagsríkin misst lítið meira en 2% þeirra skipa, sem þau höfðu sent til Miðjarðiaxlhafsins og aðeins 70,000 menn, að særð- um meðtöldum. Með enduropnun Miðjarðarhafsins, styttu þau leið- ina frá Bretlandi til Mið-Austur- landa úr 13,000 mílum í 3000 mílur, og styttu þannig siglinga- tíma hverrar skipalestar um fjörutíu og fimm daga. Það var þetta og hinn skyndi- legi ósigur í kafbátahernaðinum, sem vakti ótta Hitlers. Nú, þegar óvinirnir höfðu enduropnað Mið- jaa'ðarhafið, höfðu kafbátarnir beðið örlagaríkan ósigur. í marz höfðu þeir sökkt níutíu og tveim- ur skipum á Atlantshafinu, í maí fjörutíu og einu, en ekki nema sex í júní. Atlantshafið, sem Hitler hafði kallað fremstu varn- arlínu sina í vestri, var ekki leng- ur nein varnarlína. í Eússlandi, þar sem Þjóðverjar höfðu stöðv- að hina miklu vetrargagnárás Rauða hersins, voru þeir nú að undirbúa hina venjulegu sumar- sókn sína. En sá undirbúningur var að öllu leyti minni, en hann hafði verið árið áður og enda þótt þeir teldu sig enn örugga um sig- ur, þá var sjálfstraust þeirra þó langtum minna en það hafði verið fyrir orrustuna um Stalingrad. Það voru ekki aðeins fjarlægð- irnar f Rússlandi og hinn nær ó- þrjótandi vara-liðsforði, sem jók þeim áhyggjur, heldur og líka sú staðreynd að hinar hálf-vélvæddu bændaherdeildir, sem höfðu nærri beðið ósigur árin 1941 og 1942, en sem nú fengu allan sinn út- búnað frá verksmiðjunum i Úral og Síberíu, voru orðinn nýtizku, vélbúinn her, sem gat ekki að- eins varizt öflugum árásum, held- ur gert sjiálfur stór-áhlaup. Og að baki víglínu þeirra voru skæru Jiðsflokkar, sem gerðu árásir á nætumar, sprengdu upp brýr og járnbrautarteina, unnu skemmd- árverk á hvers konar mannvirkj- um og réðust á allar einangraðar varðliðs- og eftirlitsstöðvar. Jafnframt fóru árásirnar á Þýzkaland sífellt vaxandi. í lok maí varð iðnaðarborgin Dortmund fyrir mestu loftárásinni, sem til þessa hafði verið gerð á hana, svo að næstum hundrað þúsund manneskjur urðu heimilislausar. f júní varð meira en helmingur borgarinnar Diisseldorf í Ruhr, brenndur í rústir. Á síðari fjórð- ungi ársins var 35.000 smálestum af sprengjum varpað niður á mestu vopnaframleiðslusvæði Þýzkalands. — „Foringinn“„ skrifaði Göbbels — „er ákaflega óþolinmóður og reiður vegna við- búnaðarskorts þýzka fl ughersins . . . Við verðum að reyna að gera gagnráðstafanir, eins fljótt og mögulegt er, sérstaklega hefndar- árásir . . . í London óttast al- menningur, að Þjóðverjar muni allt í einu hefja leifturstríð í lofti, aftur. Guð gæfi að við hefðum aðstöðu til ag gera það . . . “ En nú, þegar refsingin fyrir allan illverknaðinn nálgaðist, brást þýzka þjóðin með meiri ró og stillingu við ógæfu sinni, en bæði brezka ílugmálaráðuneytið og hennar eigin áróðursforingjar höfðu búizt við. Verksmiðjur, sem nauðsynlegar voru 'til ’vopnafrarn- leiðslu, voru endurreistar i í skyndi, oft neðanjarðár:,>'Hin dí- aukna stríðsframleiðsla Bandarikj anna og hinir glötuðu yfirburðir Þjóðverja, hvað snerti vopn og útbúnað, orsökuðu snögg og öflug viðbrögð hjá Hitler. Mánuði eftir Casablanca-ráðstefnuna, þegar hinar fyrirhuguðu Miðjarðarhafs- aðgerðir bandamanna urðu aug- ljósar, fól hann þrjátiu og sex ára gömlum verkfræðing, Albert Speer ag nafni, stjórn allrar stríðsframleiðslu Speer, sem var frábær skipulagningamaður, var falið það hlutverk að sigrast á erfiðleikunum, með því ag marg- falda vopnaframleiðslu Þýzka- lands, byggja nýjan kafbátaflota af nýrri og fullkomnari gerð en áður hafði þekkzt og meg fram- leiðslu leynilegra og öflugra flug- vopna. Með þessu og auknum vörnum gegn árásum yfir sundið, taldi Hitler sig geta hrakið inn- rásarher bandamanna í sjóinn, jafnskjótt og hann stigi á land, og sigrag hann svo gersamlega, að ekki yrði framar um neina innrásarhættu að ræða. Sumarið og haustið 1943 varð því stórkostleg aukning á vopna- framleiðslu Þjóðverja. Þrátt fyrir síauknar loftárásir á Ruhr og Rínarlöndin, þá óx framleiðslan á loftvarnabj/sum og fallbyssum á árinu úr 12,000 í 27,000; á skrið- drekum og sjálfknúnum byssum úr 6,000 í 12,000; og á flugvélum úr 13,000 í 22,000. Sérstök hætta stafaði bandamönnum af smíði risastórra kafbáta, sem gátu farið með miklum hraða neðansjávar og gert árásir á skipalestir, án þess að flugvélar gætu orðið þeirra varir. Þann 8. júlí, eftir að hafa ráðfært sig við Dönitz aðmír- ál, fyrirskipaði Hitler að smíði þessara nýju kafbáta skyldi sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru. Tveimur dögum síðar gaf der Fúhrer Speer enn mikilvægari fyrirskipun. Að loknum árangurs- ríkum tilraunum í Póllandi með ■langdrægar, sjálfstýrðar, ‘ þrýsti- loftsknúnar eldflaugar, voru gefn 104 ar fyrirskipanir um tafarlausa fjöldaframleiðslu þeirra, í þeim tilgangi ag skjóta þeim á London og hafnarborgir Suður-Englands. Þann 10. júní, þegar Hitler hafði heimsótt hina leynilegu eld- flaugna-rannsóknastöð i Teene- múnde, tilkynnti hann hershöfð- ingjum sínum, að þeir þyrftu ein- ungis að bíða til jóla eftir því að brezka höfuðborgin yrði jöfnuð við jörðu. Orðrómur um þetta hafði borizt til London um vorið, og brezkar njósnaflugvélar höfðu komið með Ijósmyndir frá Teene- múnde, af stórum, dularfullum vindillöguðum hlutum. Herforingjaráðið hafði fyrst hugleitt málið í apríl, og eftir til- mælum þess hafði verið skipuð nefnd undir formennsku Duncan Sandys, tengdasonar forsætisráð- herrans, til þess ag rannsaka mál- ið nánar. „Eftir miðdegisverð“, skrifaði Brooke í dagbók sina þann 29. júí — „sat ég fund með forsætisráðherranum, ásamt þeim Eden, Lyttelton, Morrison, Cripps, Sandys, Crow (eldflaugna-sérfræð ing), Lindemann prófessor o.fl. Við komum saman til ag ræða um hin nýju eldflaugna-vopn, sem talið er að Þjóðverjar séu nú að framleiða og sem Sandys hefur verið að rannsaka. Komumst að þeirri ályktun, að mikil hætta væri yfirvofandi, og að við yrðum að gera loftárásir á tilraunastöð- ina í Teenemúnde ,eins fljótt og því yrði við komið ..." Þannig var það ætlun Hitlers í byrjun ársins 1944, að gera hvíldarlausar árásir á London með þúsundum af fljúgandi sprengjujm eg eldflaugun*, ger- eyða flutningaskipum, sem fluttu amerískan liðsauka til Evrópu með hinum nýju kafbátum, og hrekja hina vestrænu innrásarað- ila f sjóinn. En þrátt fyrir þá á- kvörðun, ag fyrst skyldi ráðizt á Þýzkaland, þá voru nú þrettán amerískar herdeildir á Kyrrahaf- inu á móti tlu í Bretlandj og á l ■nm 94 vatt hann sér upp á hestastein þar á hlaðinu og ávarpaði mann- fjöldann. Hann hóf mál sitt á því að kynna sig og sagði, að erindi sitt þangað væri að flytja lík föð- ur síns heim í æskubyggð hans, svo að hann fengi rúm við hlið konu skmar í kirkjugarðinum heima. Hann hefði beðið sig þess við síðustu samfundi. Kvaðst hann vonast til þess, að fólk hér skildi þetta. Hann bað fólk virða á betri veg þau óþægindi, sem hér yrðu nú við komu sína. Hann hefði ekki vitað fyrr en um sein- an lát föður síns og því væri hann hér nú. Að endingu fór hann nokkrum hógværum orðum um dvöl föður síns hér seinustu árin, sagðist þakka hverjum þeim, er _á einhvern hátt hefðu stuðlað hér að vellíðan hans. Hann sagði, að það hefði glatt sig mikið að heyra orð prestsins um ástvinaskjólið, sem öldungurinn hefði fundið hér. Og væri skylt að lofa það og þakka í senn. Andrés, mágur Björns, gekk nú fram og tók til máls. Honum var mikið niðri fyrir og var hávær úr hófi. Hann kvað mág sinn koma of seint. Aldrei hefði tengdafaðir sinn minnzt á það við þau hjónin, að hann æskti þess að hvíla við hlið konu sinnar, að sér látnum, og sig grunaði, að hann hefði átt þær minningar í æskubyggð sinni, að hann fýsti ekki, að fólkið þar fylgdi sér til grafar. Hér væri allt •undirbúið. Gröfin tekin og lík- menn ráðnir. Hann kvaðst ekki átta sig á Birni. Hann kæmi hér fram sem líkræningi. Átakalaust yrði honum ekki sleppt héðan. Hann gæti haft óhæfuverk í frammi heima hjá sér, en hér lið- ist slíkt ekki. Meðan Andrés var að tala, var riðið i hlaðið. Voru það þrír menn, stigu þeir af baki og gengu til Björns. Var þar Tumi kominn, nú fulltíða maður, fallegur og þrekmenhi, með honum var bróð- ir hans og annar ungur maður. Allir voru menn þessir hinir vörpulegustu. Presti þótti nú óvænkast. Bjóst ef til vill meiri liðsauka; enda sá hann að margir skimuðu fram á veginn. Bað hann nú mág- ana ag ganga með sér í bæinn og athuga málið án alls ofstopa. Ann að hæfði ekki slíkri stund sem þessari. Mágarnir gengust inn á það. En áður en Björn gekk á ráðstefn- una, átti hann hljóðskraf við Tuma, sem mun hafa verig það að biðja hann að hafa allt tilbúið, er hann kæmi af mótinu inni. Margt fólk fylgdi presti í bæ- inn. Var hafnað í stofunni. Prest- ur vék fyrst að Birni og reyndi með hógværum orðum að leiða honum fyrir sjónir, að hann biði við það álitshnekki, að koma í ókunnugt hérað og hafa frekju í frammi á helgri alvörustundu. Eg skal vera yður jnnanhandar um það, að þér fáið leyfi til þess að taka upp lik móður yðar og flytja það til greftrunar hjá eig- inmanninum. Það væri mannlegt átak. En þetta, sem þér ætlig hér að framkvæma, gengur of langt. Systur yðar þótti sérstaklega vænt um föður sinn og þráir, að hann hvíli hér. Það veit ég. Ef yður er það hjartans mál, að for- eldrar yðar hvíli báðir í sömu gröf, þá gerið þetta. Þér hafið séð af föður yðar, ellimóðum, ] flytja í fjarlægð. Eg veit, að þér í hafði sterkari taugar en systir [ yðar. Látið þann karlmannlega 1 styrk stjórna gerðum yðar hér. I Þá vaxið þér í eigin augum og 1 annarra. | Björn sat hljóður um stund. Hann hugleiddi málið. En þá tók Andrés til máls. Og enn lét hann geðofsann og stór- yrðin vaða uppi. Hann taldi, að Björn hefði komið illa fra-m við föður sinn. Flæmt hann úr heima- byggð sinni á gamals aldri og ó- efað féflett hann um leið. Nú ætlaði hann að taka lík gamla mannsins og hola því niður í graf- reit þeirrar byggðar, sem hafði elt hann með rógburði og last- mælum allt hans líf. Fyrst gamli maðurinn hefði flúið til þeirra hjóna, þrotinn kröftum, þá lang- aði þau til þess að búa honum legurúm í kyrrsælum reit, þar þar sem enginn gengi um, er ætti í minni sínu ósannar og ómildar frásagnir um hig sárþreytta gam-j almenni, sem loks hefði fengið hvild og ró. Er Andrés lauk máli sípu, svip-j aðist, hann um. Og svijrur hans bar það með sér, að hann taldi sig hafa vaxið við þennan málflutning. En á Björn og jafn- vel prestinn lika, verkaði það þveröfugt við það, sem til var ætlazt. Björn hóf mál sitt á því að svara prestinum: — Það er eng- um vandkvæðum bundið, góði prestur, að breyta um grafreit, meðan lík stendur uppi. Hitt þekki ég ekki, að lík séu tekin úr •gröf sinni, eftir að hafa hlotið helga vígslu hins þrautvigða kennimanns. Ég sé ekki, ag sú leið 'Sé fær. Lík, sem búið er að liggja nokkur ár í gröf sinni, er ekki færðafært á móts við ný- dáinn mann. Þessi leiðindi héri .BJARNI ÚR FIRÐh ^ H r m [É h yuciu Ivamn inn ni stafa af því einu, að mágur minn lét það undir höfug leggjast að tilkynna okkur systkinunum um lát föður míns í tæka tíð. Víst lifði faðir minn eftirminnilega ævi og leysti af hendi þrekvirki, sem útheimti hugdirfg og karl- mennsku. Þag er úr hörðustu átt, er Andrés blæs því út, ag ég hafi féflett föður minn. Hitt væri sönnu nær, að Andrés hefði efna- lega hafizt í raðir betri bænda fyrir innlegg föður míns. Vonandi gloprast það ekki allt úr höndum hans, sem til hans rann frá Teigi. Góða fólk. Hvernig er hægt að heimfæra það sem glæp, að gam- all maður sé á líkbörum fluttur í sama grafreitinn og ástkær eig- inkona hans, að lík beggja fái að hvíla hlið við hlið í sömu mold? Eg tek á mig allan kostnað við þann líkflut'ning. Eg trúi því ekki, að nokkur ykkar vilji fara svo! heim frá þessari jarðarför, að þið hafið það á samvizkunni, að þið hafið stuðlað að því með valdbeit- ingu, að slíkur flutningur sé hundraður. Og hindraður verður líkflutningurinn ekki, aðeins taf- inn, engum til sóma. — Hér þýðir ekkert málþóf, mælti Andrés. — Þag er bezt, að Björn fái að sýna, hvað hann get- ur. Það verða þá fleiri hér en ég, sem kynnast þeirri þver- móðsku og stífgirni, sem er svo rík í ætt hans. — Þessu lumarðu á, mágur sæll, sagði Björn. _ Þér finnst þá þessi heimankveðja við hæfi. Hún er óefað spegilmynd þess atlætis, sem tengdasonurinn miðl- aði gamalmenni, er taldi hér út síðustu stundir jarðlífsins. Eg tek ekkj þessa mannlýsingu til mín. Það er fyrst nú, sem við mágar reynum meg okkur. Og ég full- yrði, að systir mín, húsfreyjan hérna, á hana ekki. Það gjóstaði um föður minn, lengst af ævinn- ar, en drenglyndur var hann. Kjarkmenni hið mesta og hjarta- hlýr. Og hvað sem þú segir, mág- ur minn, skal síðasta bón hans rætast. Eg skal sjá um það. Hér greip prestur fram i sam- r&ðurnar: — Illu heilli er ekki útlit fyrir að ykkur, nánustu vandamönnum öldungsins góða, takist að sættast á þessari kveðju- menn. Við skulum öll, sem hér erum stödd, sameinast í hljóðri stund. Þráttið ekki lengur, góðu bæn til Guðs. Hann einn getur miðlað málum. Lýst upp hugskot 14 T f M I N N, fimmtudagurinn 12. .hilí 1962

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.