Tíminn - 25.07.1962, Qupperneq 6

Tíminn - 25.07.1962, Qupperneq 6
Biskup með blaðamenn í boði sínu að Skálhoiti. Skóli skal rísa í Skálholti Nú hafa Gascoignes verksmiðjurnar endurbætt og fullkomnað sogskiptana á mjaltavélunum. Sam- kvæmt nýlokinni prófun á vélunum hjá verkfæra- nefnd ríkisins, Hvanneyri, er þessi nýi sogskiptir 18% hraðvirkari en eldri gerðir og hreytur hafa minnkað mikið. Nú má einmg fá með vélunum nýja gerð af spenahylkjum og spenagúmmíum, sem eru aðeins þrengri og styttri en sú gerð, sem fylgt hefir vélunum undanfarið. Við eigum Gascoignes mjaltavélarnar oft fyrir- liggjandi eða útvegum þær með stuttum fyrirvara. Þær má fá annaðhvort með raímagns- eða benzín- mótorum. Fullkominn leiðarvísir á íslenzku fylg- ir hverri vél. Varahlutir alltaf fyrirliggjandi. Gascoignes mjaltavélarnar eru notaðar á hundruð um íslenzkra sveitaheimila og 20 ára reynsla hér- lendis sannar gæðin. ^^ARNI GE6TSSON Vatnsstíg 3 — Sími 17930 tf ~ sagði biskup, er þjóðkirkjan bauð blaðamönnum til Skálhoftsstaðar Til þessa mannfundar kjöri biskupinn, herra Sigurbjöm Ein- arsson, Þorláksmessu á sumar, sem nú bar upp á föátudag 20. júlí. Auk blaðamanna voru þarna einnig ráðuneytisstjóri kirkjumála ráðuneytisins Baldur Mölier, og Steindór Gunnlaugsson, fy'rrv. stjórnarráðsfulltrúi, en hann sat Skálholtsstað, þegar hann komst að nýju í þjóðareigu. Veðrig skartaðj sínu fegursta, enda þetta bjartast yfir Skálholts- stað um langa tíð, en staðurinn nú að rísa til hlutfalls fornrar frægðar og nýrra dáða í íslenzku þjóðlífi. Skálholtskirkja er að rísa að nýju, og verður tvímælalaust veg- legasta guðshús á fslandi. Stend- ur nú fokheld og fagnar gestum sínum með fögrum klukknahljóm, en klukknahljómurinn og hinar fögru og frumlegu helgimyndir, sem skreyta sérhvern glugga þessa mikla musteris, setja þegar tignar- og helgiblæ á staðinn. Hlýjar það þá enn um hjartaræt- ur að hinar glæsilegu umgetnu helgimyndir eru verk íslenzkrar listakonu, Gerðar Helgadóttur. Þegar kirkjuklukkumar hljóðn- uðu var gengið \ kirkju, en bisk- upinn Sigurbjörn Einarsson í kór dyr og bauð gesti velkomna og þakkaði þeim þegin boð. Minntist biskup fornrar helgi dagsins, stiklaði á stóru um sögu staðarins, minntist þeirra feðga Gissurar hvíta og ísleifs, en Giss- ur sonur hans lagði land til Skál- holtskirkju. Einnig' Þorláks helga og Brynjólfs Sveinssonar, sem báð ir hefðu verig bænarinnar menn. Lýsti sígan að nokkru skipulagi hinnar fornu dómkjrkju, gat um hvar í hinum fornu dómkirkjum Maríustúkan var, en hún var helg ur bænarstaður biskupa til forna. Hér hefðu prédikað Jón Vídalín og Hallgrímur Pétursson. Hér værj eins og horfzt í augu við liðnar kynslóðir þessa lands. Staður aldrei gleymzt, en af- ræktur! En nú er hér að rísa kirkja, veglegust á landinu! Vanti aðeins milljón króna til þess að kirkjan sé vígslufær! En komnar væru 3V2 milljón í bygginguna. Þetta væri ekki há fjárhæð, þegar litið væri á skyldurnar vig staðinn! f bændabýli staðarins með hús- um og ræktun væru komnar rúm- ar 10 milljónir. Síðan vék biskup að hinu, hvað við tæki eftir kirkjuvígslu. Þetta ætti ekki að verða minnisvarðinn einn. Það vekti ekki fyrir. Hitt vilji allrar þjóðarinnar, að hér verði lífrænt verkefni af hendi leyst, er sæmi þessum stað. Uppástungur eru margar — og eins og kenni óþolinmæði, hvað eigi að gera við Skálholt — og er þetta ekki óeðlilegt, mæltj biskup. Nú á þessari stundu, er íslenzka þjóðkirkjan áhugasöm og einhuga um, að hér rísi kirkjuleg mennta- stofnun, eins ko.nar lýðháskóli! Kirkjunnar menn og skólamenn telja þjóðina vanta slíka stofnun Það er lýðháskólafólkið danska, sem alltaf hefur stutt okkar máls- stað i frelsisbaráttu okkar, og þá ejnnig hvað handritamálið. ahrærir. Og hver er ekki þjóðhollustan og manndómurinn fyrir eigin þjóð, þegar svona er að staðið gagnvart nágrannanum, mælti biskup með nokkrum þunga f rómi? Þetta — þessi hugmynd, er að verða að veruleika! Hún á miklu fylgi að fagna á Norðurlöndum. Enda yrði hún samnorræn stofn un, menningarleg og kirkjúleg, og mundu fleiri en ísland til hennar kosta, mælti biskup. Síðan gat biskup um gjafir, sem iSkálholtskirkju þeirri, er nú værj að rísa, hefðu borizt frá frændþjóðunum, sem vissulega- eru hinar veglegustu. , Loks lýsti biskup þeirri skoðun sinni, að vígslubiskup ætti að sitja í Skálholti. Eftir að hafa notið góðgerða í boði biskups svipuðust menn um á staðnum, j einhverri hinni feg- urstu hásumarbirtu. sem yfir landi okkar skín. Þá slóst sá, er þetta ritar, í fylgd með fólki, sem lagði f jarð- göng þau hin fornu, sem lágu milli skóla og kirkju, en þau eru nú rýmri fyrir það, að fjarlægðar! hafa verið j gólfi þeirra tvennar: hellulagnir ofan af hinum upp-! runalegu eiztu hellum, sem í göng j in voru lögð Loks va -afnazt saman á hlaði.: en þar er afgirtur reitur grasi: g'óinn en tnnan girðingarjnnar; er hvnn fornfrægi „Staupásteinn“. j Og svona er sannleikurinn og sagan einatt svifasein, að sá, sem þessar línur ritar, var nú í fyrsta sinn fræddur um þennan sögu-j fræga stein — og varð af fagn-| aðarfundur! | Sigurbjörn biskup úti fyrir Skálholtskirkju. 3 T f M I N N’, ikudasurin? 25 júJ’ 1962.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.