Tíminn - 25.07.1962, Qupperneq 16
Miðvikudagur 25. júlí 1962
167. tbl. 46. árg.
Vegastríði
Húsavíkur
er nú iokið
í fyrradag lauk vinnustöðv-
un við vegalagninguna í Aðal-
dalshrauni. Hófu 5 bílar frá
Húsavík malarflufning í veg-
inn, en enginn bíll úr Suður-
Þingeyjarsýslu ufan Húsavík-
ur tók þátt í vinnunni.
Dcilan hófst, þegar yegamála-
stjórnin réði þrjá bílstjóra með
vörubíla frá Húsavík til malar-
flutninga, en að'eins einn úr sveit-!
inni utan Húsavíkur. Vörubílstjóra-
félag Suður-Þingeyjarsýslu utan
Húsavíkur telur hins vegar, að það
eigi að hafa einkarétt á allri vinnu
í sveitinni.
Á fimmtudaginn stöðvuðu síðan
5 bílar úr sveitinni vinnu við mal-
arnámuná utan í Laxamýrarleiti,
og sama sagan endurtók sig á föstu
daginn. í gær komu 5 bílar frá
Húsavík að námunni, og gátu þeir
óáreittir hafið vinnu við að flytja
möl í veginn, en sveitarbílarnir
tóku ekki þátt í vinnunni.
Vegamálastjórnin bar á föstu-
daginn fram kæru við sýslumann-
inn í Suður-Þingeyjarsýslu, þar eð
hún taldi sig hafa rétt til að ráða
hvern þann bíl í sýslunni til vegar
gerðarinnar. Að sögn formanns
Vörubilstjórafélags Suður-Þingeyj-
arsýslu hefur stjóin félagsins ekki
leitað eftir lögfræðilegri aðstoð,
eins og sagt var, að það’ hefði gert
Útsvör á
Akureyri
Niðurjöfnun útsvara er nú lok-
ið á Akureyri. Jafnað var niður
að þessu sinni 24,925 milljón
krónum á 2798 gjaldendur. Til
samanburðar var jafnag niður í
fyrry 24.591.300 krónum á 2760
gjaldendur.
Gjaldendurnir skiptust í ár
niður í 2714 einstaklinga og 84
félög. Hæstu útsvör greiddu Slipp
stöðin 282.500 krónur, KEA 202,-
Framhald a 15 siðu
NÝJA OG
GAMLA
BLÚNDU-
BRÚIN
Vinnan við Blöndubrúna nýju
var komin þetta langt í fyrra-
dag er blaðamenn Tímans flugu
yfir hana. Hún er alveg við
hliðina á gömlu Blöndubrúnni,
sem er elzta stórbrú landsins,
sem enn er í notkun. Gamla
Blöndubrúin hefur þjónað hlut
verki sínu lengi eða í 65 ár, og
hefur lengst af verið eina brú
in á Blöndu. Hún var reist 1897
af þáverandi landsverkfræð-
ingi, Sigurði Thoroddsen, en
var smíðuð í Noregi. Hún Var
mjó járngrindabitabrú, 37
metra löng og 3,6 metrar að
innanmáli, og ein af tæplega
20 brúm þeirrar gerðar. Sum-
ar þessara járngrindabitabrúa
þjóna enn, svo sem brýrnar á
Norðurá í Borgarfirði, Laxá í
Dölum og Jökulsá á Sólheima-
sandi.
Nýja brúin verður meira en
helmingi breiðari en hin
gamla, 7 metra breið akbraut
og tvær metra breiðar gang-
stéttir. Eins og sjá má á mynd
inni verður aðeins helmingur
hennar reistur í sumar, en sá
hluti verður opnaður fýrir um-
ferð í október. í haust verður
síðan gamla þrúin rifin, og
fer járnið’ úr henni í brota-
járn, enda er það orðið of gam
alt til þess að nýta það í nýjar
brýr. Næsta sumar verður svo
seinni helmingur brúarinnar
reistur á sama stag og gamla
brúin er núna.
Nýja Blöndubrúin með tvö
faldri akbraut verður mikil
samgöngubót á þjóðleiðinni
norður og austur á land. Gamla
brúin var orðin allt of mjó
fyrir hina breiðu bíla nútím
ans. Einnig er að nýju brúnni
mikig öryggi fyrir íbúa Blöndu
óss, en bærinn er báðum meg
in árinnar, og brúin notuð mik
ið af gangandi fólki, og koma
gangstéttirnar þá í góðar þarf
M ir.
Hermann Jónasson
Laugardaginn 28. júlí n.k. kl.
9 s.d. halda Framsóknarmenn hér-
aðsmót á Hólmavík.
Ræður flytja Hermann Jónasson
fyriv. forsætisráðherra og Sigur-
vin Einarsson alþm.
Veiðihorfur góðar bæði
fyrir norðan og austan
Sigurvln Einarsson
Skemmtiatriði: Einsöngur Erl-
ingur Vigfússon, undirleik annast
Ragnar Björnsson. Karl Guðmunds
son gamanleikari skemmtir. A eft-
ir verður dansað.
í gær virtist síldveiðin afturj
vera að aukast fyrir Austur-j
landi, nokkur síldveiði var þá.
á Vestursvæðinu. Jakob
Jakobsson um borð í Ægi kvað
veiðihorfur yfirleitt vera góð-
ar á báðum svæðunum og!
hefðu þeir lóðað á ágætar
síldartorfur út af Héraðsflóa.
Vestan kaldi var fyrir norðan
í gær, og voru því mörg skip
á leiðinni austur, en þar var
norðaustan hægur andvari og
; ágætis veiðiveður.
i í gærmorgun var vitað um 82
skip, sem fengið höfðu 60.100 mál
I og tunnur, þá voru aðalveiðisvæð
in út af Siglufirði, Rifsbanka og
á austursvæðinu út af Dalatanga
og Bjarnarey.
Leitarskipið Ægir var á leið
austur fyrir land, en Fanney, sem
hefur verið fyrir austan að undan
förnu, var farin norður. Ægir
fann í gær ágætar síldartorfur út
af Héraðsflóa og voru mörg skip
á leið þangað að norðan. Síldin
óð nokkuð grunnt, og voru sums
staðar aðeins um 10 fet niður á
hana. Er það óvenjulegt því að
venjulega kemur hún aðeins upp
að nóttu til. Síldin var hins vegar
nokkuð djúpt úti, og því erfitt
að eiga við hana. Hún var mjög
feit, t.d. var síldin, sem veiddist
út af Bjarnarey frá 20 upp í
24,5% feit. Var hér um ágætis
söltunarsíld að ræða, en þar eð
langt var í land vildi síldin merj-
ast, og fó.r því ekki eins mikið
af henni í söltun og annars hefði
verið.
Nokkrir bátar komust í stórar
smásíldartorfur út af Austfjörð-
um í gær. Síldin var bæði lítil
og horuð og allt niður í kræðu.
Miklum erfiðleikum er bundið að
ná þessari síld inn, og rífur hún
oft net.
Jakob Jakobsson kvað síldina
hafa komið á Austfjarðamiðin 10
dögum fvrr í ár heldur en í fyrra
sumar. Hann taldi þetta þó ekki
þurfa að þýða, að hún væri nú
á förum. Taldi\ hann horfur á
áframhaldandi síldveiðum bæði
fyrir austan og norðan mjög góð-
ar, en betra væri, ef síldin veidd-
ist nær landi, sérstaWelga svo ekki
þyrfti að flytja hana eins langt
og verig hefur.
Á Siglufirði var saltað á flest-
um söltunarstöðvum í gær. Þang
að barst síldin mestmegnis af
Sporðagrunni. Síldin var mjög
feit, 23—25%. Hún var þó nokkuð
misjöfn, og sums staðar varð að
kasta allt að helmingi hennar.
Svíar hafa stöðugt 3 til 4 menn
á Siglufirði, sem ganga á milli
söltunarstöðvanna og velja þá
síld, sem þeir vilja kaupa. Ejnnig
sjá Svíar stöðvunum bæði fyrir
tunnum, salti og kryddi, þannig
að síldin er meðhöndluð á þann
hátt sem þeir helzt vilja. Er að
þessu mikið öryggi fyrir saltend-
ur, því að ekki þarf að hræðast,
að Svíarnir né aðrar þjóðir. sem
Framhald á 15 síðu.