Tíminn - 18.08.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.08.1962, Blaðsíða 1
MEÐ BÓLUSÓTT NTB-LUNDÚNUM, 17. ágúst. — Frá þvf var skýrt í dag, aS þriggja ára gamall Indverskur dreng- ur, sem kom tll Bretlands I byrjun mánaðarins, gangi með bólusótt og hefur hann nú verlð eln- angraður á sjúkrahús! I Lundúnum. — Móðir litla drengsins kom með honum til Bretlands og hefur hún einnig verið sett í sóttkví. Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandlátra folaSa- iesenda um allt land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 187 tbl. — Laugardagur 18. ágúst 1962 — 46. árg. FAGUR SJÚRÆN- INGI! Á MYNDINNI sézt vélstjórinn á danska „ræningjasklpinu" Mer- cur, sem haldið hefur uppi út- varpssendingum í óleyfi danskra yfirvalda. Vélamaðurinn er með logsuðuhjálminn fyrlr andlitlnu tll að dyljast, en eftir að dönsk yfirvöld bönnuðu starfseml Rad- io Mercur fyrir þrem vikum, fluttu „sjóræningjarnir" sig yf- ir i Öresund og héldu þar starf- semi sinni áfram, grímuklæddir og vopnaðir, Má segja, að þá fyrst hafl verið hægt að tala um reglulega sjóræningja. Samkvæmt tilskipun, sem gef- in var út fyrir þrem vikum, var öllum dönskum þegnum bönnuð samskipti eða aðstoð við Mercur- menn, að viðlagðrl refsingu, All- ar vistir hafa skipverjar þvi orð- ið að fá frá Þýzkalandl. En nú vlrðast dagar Radio Mercur vera taldir, því að aðfara nótt fimmtudags létu danskir lög reglumenn tll skarar skriða gegn ; „sjóræningjunum". Sigldu þeir á varðbátum að „sjó ræningjaskipinu", afvopnuðu sktpverja og handtóku þá. Enn hefur ekkert verlð látið uppi um það, hverrar þjóðar „sjóræningjarnir" eru né hverjlr staðið hafl á bak við starfseml útvarpsstöðvarinnar. Getum er að því leitt, að þýzkt auglýsingafirma hafl rek- ið útvarpsstöðina, sem, eins og kunnugt er, útvarpaði léttri tón- Framhald á 15 síðu I gapastokknum 14 tíma daglega NTB-Vientiane, 17. ágúst. Fimm Bandaríkjamenn og einn Filipseyingur voru í dag afhentir bandarískum yfirvöldum í Vientiane, en menn þessir hafa verið fang ar Pathet-Lao-manna í Laos í 15—20 mánuði. Þeir voru allir í góðu skapi, er þeir losnuðu úr prísundinni, en mjög horaðir og fölir. Þrír Bandaríkjamannanna sögðu við blaðamenn í Vienti- ane í dag, að þeir félagarnir hefðu orðið fyrir ómannúðlegri meðferð í fangeisum Pathet- Lao-manna, t. d. hefðu þeir oft ! verið settir í gapastokka og ! stundum látnir vera i þeim i fjórtán tíma á degi hverjum. | Ljósmyndari bandariska út- | varps- og sjónvarpsstöðvarinnar NBC, Grant Wofkill, sagði að hann og félagar hans tveir hefðu ekki fengið annað að Framhald á 15 siðu SKOTNIRÁ MURNUM NTB-BERLÍN, 17. ágúst. AUSTUR-þýzkir lögreglu- menn skutu í dag á tvo sam- landa sína, sem gerðu tilraun til flótta vestur yfir borgar- mörkin, með því að klífa upp á múrinn. Annar flóttamannanna féll fyrir byssukúlum lögreglu- mannanna, en hinn datt hel- særður ofan af. múrnum og kom til jarðar austan megin. Hinn særði lá við múrinn í nokkrar mínútur, að sögn vest- ur-þýzkra varða, en síðan kom sjúkrabfll og flutti hann brott. Telja varðmennlrnir vestan megin við múrinn, að þá hafi flóttamaðurinn verið látinn. Strax og kunnugt var um at- burðinn, komu vestur-þýzkar sjúkrabifreiðar á vettvang. Sett ir voru upp brunastigar, ef tak ast mætti að ná hinum særða yfir múrinn. En sjúkrabflarnir komu of seint, maðurinn var horfinn. í Austur-Berlín var í dag gerð útför Rudi Arnstadts, höf- uðsmanns, sem féll í átökum, sem urðu milli austur-þýzkra varða og vestur-þýzkra þann 13. ágúst. Athöfninni var útvarpað í gegnum hátalara, sem komið var fyrir víðs vegar um í borg- inni. í dag barst stjórninni í Bonn harðorð mótmælaorðsending frá austur-þýzku stjórninni vegna þessa atbui'ðar, sem austur-þýzk yfirvöld segja Vest ur-Þjóðverja bera alla ábyrgð á. MA EYDA FÓSTRINU Sænsk yfirvöld ákváöu í dag að veita bandarísku kon- unni Sherri Finkbine leyfi til að láta eyða fóstri sínu í Sví- þjóð, en frú Finkbine fór fram á slíka læknisaðgerð, vegna þess, að hún óttaðist, að svéfn- lyfið Thalidomide, sem hún tók inn í byrjun meðgöngu- tímans, kunni að valda van- skapnaði á barni því, sem h.ún nú gengur með. NTB — Stokkhólmi, 17. ágúst. Frú Finkbine hafði farið fram á það við bandarísk yfirvöld, að þau gæfu leyfi til þess að fóstri henn- ar yrði eytt, 'eftir að upp komst um hinar skaðlegu verkanir svefn- lyfsins Thalidomide. Eins og kunn ugt er var beiðni hennar hafnað í heimalgndi hennar og lagði þá frú- in land undir fót ásamt eiginmanni sínum, staðráðin i að koma fyrirætl un sinni í framkvæmd, og varö Svíþjóð fyrir valinu. Aðgerðin í næstu viku Frú Finkbine er nú komin á fjórða mánuð meðgöngutímans og er talið sennilegt, að fóstureyðing- in verði framkvæmd í byrjun næstu viku á Karolinska sjúkrahús inu í Stokkhólmi. í umsókn sinni til sænskra yfirvalda um leyfi til þess að láta framkvæma aðgerðina sagði Finkbine m.a., að andlegu heilbrigði hennar væri stefnt í voða, ef hún yrði ekki losuð við hinar miklu áhyggjur og ótta, sem hún nú æli'með sér, vegna fregn- anna um hinar skaðlegu verkanir svefnlyfsins á fóstur. Að vísu væri Framhald á 15 síðu SHERRl EINKBINE i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.