Tíminn - 25.08.1962, Page 8

Tíminn - 25.08.1962, Page 8
SEX RÍKI í Vestur-Evrópu, Þýzkaland, Frakkland, Ítalía, Holland, Belgía og Luxemburg, hafa gert með sér samning um tollfrjáls viðskipti, óhindraða til- færslu vinnuafls, atvinnurekstrar o. fi innan bandalagsins. Nákvæm ákvæði um þetta er að finna í hinum svonefnda Rómarsamningi. Samkvæmt honum verða öll þau ríki, sem standa utan bandalags- ins að greiða mjög háa tolla af vörum, sem þau kunna að selja til bandalagsríkjanna. í eðli sínu er þetta tollstríð við þá, sem utan við bandalagið standa, eða getur a. m. k. leitt til þess, ef öll ríki veraldarinnar, sem utan Efnahags- bandalagsins standa, svara í sömu mynt. En til að draga úr þessari hættu er, að minnsta kosti öllum ríkjum Vestur-Evrópu gefinn kost- ur á þátttöku, ef þau geta fallizt á Rómarsamninginn, annað hvort að fullu, eða með frávikum, eftir nánari samningum við Efnahags- bandalagsríkin sex. Til skamms tíma hefir mjög lítið verið rætt opinberlega um þátttöku íslands í bandalaginu. Þó hefir oft verið frá því skýrt, að viðskiptamálaráðherra og ráðuneyt isstjóri hafi rætt við yfirstjórn bandalagsins í Briissel og einnig stjórnir flesta, eða allra banda- lagsríkjanna, til að „túlka málstað fslands", eins og það hefir stund- um verið orðað í frásögnum af þessum viðtölum, án þess þó, að nokkur grein hafi verið fyrir því gerð, hvað þessir menn telja að felist í „málstað íslands". Þær litlu opinberu umræður, sem fram fóru um þessar samninga umleitanir, eða viðtöl, voru mjög einhliða og hnigu allar í þá átt, að hvetja Íslendinga til þátttöku, þar sem meira en helmingur af útflutningsvörum landsmanna væru seldar til bandalagsríkjanna sex, en yrðu nú hátollaðar (18% innflutningstollur hefir verið nefndur). Varð ekki annað af um- mælum blaðanna ráðið, en allur innflutningstollurinn klyti að lenda á íslendingum með lægra vöruverði. Um slíkt er vitanlega ómögulegt að fullyrða fyrirfram. Það fer allt eftir þörfum kaup- anda fyrir hinum innfluttu vörum, hvort útflytjandinn í framleiðslu- landinu, eða innflytjandinn í neyzlulandinu, greiði tollinn, eða að tollgreiðslan skiptist á milli þessara aðila að einhverju leyti. Yfir öllu þessu máli, hefir hvílt óskiljanleg leynd til skamms tíma. Hefir leyndin verið afsökuð með því, að hér væri um „við- kvæmt utanríkismál“ að ræða. Nú er erfitt að greina milli þess, hvað kalla má utanríkismál og innanrík- ismál. Reyndar var því einhvem- tíma lýst yfir, að ríkisstjómin mundi bera málið undir Alþ., áð- ur en endanleg ákvörðun yrði tek- in um umsókn um aðild að Efna- hagsbandalaginu. Mikið var. Þessi feimni við að ræða málið hér op- inberlega, var því undarlegri, þar sem bæði á Norðurlöndum og í Stóra-Bretlandi var rætt og deilt urn hugsanlega þátttöku í Efna- hagsbandalaginu fullum fetfim, á Jón Árnason, fyrrverandi bankastjóri: Orðið er frjálst: ÞEGAR ÞAGNARMOR- INN VAR ROFINN löggjafarþingum, opinberum fund- um, og í dagblöðum þessara landa, en íslenzkir stjórnmálamenn virð- ast oft leita sér fyrirmynda að háttalagi sínu hjá nágrannaþjóð- um þessum. Frá því hefir að vísu verið skýrt, að forystumönnum Framsóknarfl. hafi verið skýrt frá gangi málanna jafnóðum. En þeir hafa líka þagað og er. þá sök þeirra engu minni en stjórnar- flokkanna í þessum „Strompleik". — Ég hefi aldrei orðið þess var, að það spilli fyrir árangri í utan- ríkissamningum, að málin væru opinberlega rædd hér heima, áð- ur en gengið hefir verið til samn- inga. Það hefir þvert á móti greitt fyrir góðum árangri, ef kröfur hafa verið settar fram og rökstuddar, áður en gengið var til samninga. Fjöldi manna hér á landi, sem eitthvað höfðu fylgzt með umræð- um, um þátttöku í Efnahagsbanda laginu, í nágrannalöndunum, voru sáróánægðir yfir þessari leynd. — Þessi óánægja var orsök þess, að nokkrir menn tóku sig saman um að bjóða hingað einum þekktasta hagfræðing Norðurlanda, Dr. Ragn ar Frisch, prófessor við Oslohá- skóla. Þeir sem buðu greiddu kostn aðinn við heimsókn dr. Frisch. En vitað var að hann var andvigur aðild Noregs að Efnahagsbandalag inu, og því talið æskilegt, að heyra rök haris; — ðg ef’til vill k'ómá áf stað opinberum umræðum um mál ið hér á landi. Það, sem jók áhuga manna fyrir nánari kynnum af umræðum um þátttöku í Efnahagsbandalag- inu, voru þær ákvarðanir banda- lagsríkjanna sex, að færa út kví- arnar og láta samvinnu landanna ná til miklu víðtækari pólitískrar samvinnu en aðeins á efnahags- málasviðinu, með það fyrir aug- um, að stofna að lokum til banda- ríkja Evrópu. Eftir að þessi á- kvörðun var tekin, fóru Bretar, eða öllu heldur brezka ríkisstjórn- in fyrir alvöru að hugsa til þátt- töku. Var víða getum að því leitt, að Bretar kærðu sig ekki um að vera útilokaðir frá slíkri pólitískri samvinnu Evrópuríkjanna. — Hug- myndin um bandaríki Evrópu var svo sem ekki ný, því hún hafði birzt í ýmsum myndum mörgum sinnum áður, að því ógleymdu, að ýmsir einræðissinnaðir stjórnend- ur stórvelda Evrópu höfðu reynt að sameina öll Evrópuríki undir eina stjórn, þó slíkar fyrirætlanir mistækjust ætíð. Svo aftur sé vikið að heimsókn dr. Frisch, þá kom það brátt í ljós, að heimboð þetta vakti nokkra athygli, bæði hér og í Nor- egi. Áður en prófessorinn lagði af stað hingað, átti hann viðtal við eitt dagblaðanna í Oslo og kom þar fram, að utanríkisráðherra Norð- manna, Halvard Lange, mundi fara til íslands um sama leyti, og taldi prófessorinn þessa för vera farna til þess að eyða hugsan legum áhrifum af för sinni, en Lange er einn af helztu formæl- endum þess, að Norðmenn gangi í Efnahagsbandalagið. Strax hóf ust umræður í íslenzkum blöðum um málið. Morgunblaðið skýrði frá því að hingað væri von á H. Lange „í einkaerindunT*. Skömmu síðar var frá því skýrt, að ráð- herrann kæmi hingað í opinbera heimsókn í boði íslenzku ríkis- stjórnarinnar. — Ekki var þess þó getið hver „borgaði brúsann“. Er bæði mér og öðrum nokkur forvitni á því, hvað þessi ráðherra hefir til þess unnið að vera hingað boðinn í svona hátíðlega heimsókn, nema ef hann hafi stutt fslendinga í eina alvarlega hagsmunamálinu, sem þeir hafa nýlega sótt á alþjóða vettvangi, landhelgismálinu. Svo kom dr. Ragnar Frisch og hélt sinn fyrirlestur. Háskóli íslands sýndi þann höfðingsskap að lána húsnæði til fyrirlestrar- haldsins. Átti fyrirlesturinn að haldast í fyrstu kennslustofu Há- skólans, en aðsókn var svo mik- il, að kennslustofan rúmaði ekki þá, sem mættu til að hlusta á prófessorinn, svo hátíðasalurinn var opnaður. Sýndu bæði rektor Háskólans og prófessor hagfræði- deildar hinn mesta höfðingsskap og kurteisi í sambandi við þessa heimsókn prófessor Frisch og eiga allir hlutaðeigendur skildar mikl- ar þakkir fyrir þann höfðingsskap. Fyrirlestur dr. Frisch var strax þýddur á íslenzku, og er hann til sölu í bókabúðum, auk þess sem sum af blöðum landsins birtu úr honum útdrátt. Prófessor Frisch fór svo til Akureyrar og Þingeyj- arsýslu og ræddi þessi mál þar við almenning. Skal ekki nánar rætt um efni fyrirlestrar hans hér, en þeir s'nérust vitanlega fyrst og fremst um viðhorf Norðmanna til þátttöku í Efnahagsbandalaginu. Eins og áður er sagt hafði þátttaka í Efnahagsbandalaginu verið rædd opinberlega á Norður- löndum, í Stóra-Bretlandi, í Banda ríkjunum og víðar, en hér á landi var farið með þetta sem hið mesta feimnismál. En nú skipti um. Dag blöð landsins, sem höfðu þagað um þetta mál tóku nú að ræða það, að vísu enn nokkuð einhliða, en þó þakkarvert, að þegja ekki lengur yfir því, sem hér væri að gerast. í þessum umræðum kom ýmislegt nýtt í ljós, sem áður var myrkrum hulið, t. d„ að ríkisstjórn in hefði látið forystumenn Fram- sóknar fylgjast með viðtölum full- trúa ríkisstjórnarinnar um hugs- anlega þátttöku íslands í bandalag inu Þá kom það í ljós, að félags- stofnun, sem nefndi sig „Frjáls menning" (Undarlegt nafn), hafði haldið lokaðan fund 27. janúar í Athugasemd ritstj. ÞAR SEM greinarhöfundur ræS- ir um samábyrg'ð forystumanna Framsóknarflokksins með stjórn arflokkunum vegna þess, að stjómin hafi ský'rt þeiin frá gangi mála varðandi Efnahags- bandalag Evrópu jafnóðum, eins og segir í greininni, gætir mis- skilnings. Hér er hvorki um sam'ábyrgð né sömu „sök“ að ræða. — Framsóknarflokkurinn hefur ekki haft nein afskipti af gerðum stjórnarinnar í málinu og hvergi nærri þeim komið. Hins vegar hefur stjórnin fall- izt á a'ð Iáta fulltrúum flokks- ins í té nokkrar upplýsingar um gang málsins. vetur til að ræða um þátttöku ís- lands í Efnahagsbandalaginu. Nú (á meðan dr. Frisch var hér), gaf félagið út bækling með umræðum um málið. Annar framsögumaður „menningarinnar“, og sá, sem virt ist helzti málsvari ríkistsjórnarinn ar þakkar Frjálsri menningu „fyr- ir að rjúfa þann ramgera þagn- armúr, sem mál þessi hefur um- kringt undanfarið“. Og þetta er ekki það eina, sem gerzt hefir eftir að dr. Frisch skýrði frá viðhorfi sínu og annarra Norðmanna, sem líta sömu augum á málið og hann. Blöðin hér á landi hafa rætt mál- ið í stuttum greinum því nær dag- lega, og skýrt frá því helzta sem er að gerast í málinu erlendis. Auk þess hafa tveir þekktir hagfræðing ar landsins skrifað langar grein- ar (um 16 dálka alls) í Mbl. Þá hefir viðskiptamálaráðherra skýrt í alllöngu máli (Mbl. 21/7-’62) frá viðræðum, sem hann hafi átti við ríkisstjórnir sexveldanna og yfir- stjórn Efnahagsbandalagsins í Briissel. Þeir, sem stóðu að hingað- komu og fyrirlestrahaldi dr. R. Frisch mega því vel una árangrin- um. Engar líkur eru til að jafnvíð tækar umræður hefðu orðið hér um Efnahagsbandalagið, og hugs- anlega þátttöku íslands í því, ef dr. Frisch hefði ekki komið hreyf- ingu á málið, þó óbeint væri. Ekki dreg ég í efa, að þeir menn, sem af hálfu íslenzku ríkis- stjórnarinnar hafa rætt þetta mál við stjórnir sexveldanna, hafi gert það í góðum tilgangi og vilji leysa málið á þann há.tt, sem þeir telja íslenzku þjóðinni fyrir beztu. En þar með er ekki sagt, að þeir ein- ir sjái og skilji hvað bezt hentar íslendingur, Þess vegna má óhætt fullyrða, að opinberar umræður um hugsanlega þátttöku íslands i Efnahagsbandalaginu, séu ekki einasta gagnlegar, heldur einnig bráðnauðsynlegar ekki sízt, þegar á það er litið, að hér eru í upp- siglingu víðtæk stjórnmálasamtök, sem leiða það af sér, að þáttöku- ríkin verða að afsala sér yfirstjórn fjölmargra mála, sem hingað til hefir verið talið nauðsynlegt að rík in réðu sjálf, án íhlutunar ann- arra, ef þau ættu að halda áfram að teljast sjálfstæð ríki. Einkutn á þetta við um smáríkin, ef til v'li að undanskilinni Belgíu, en Belgir gera sér sennilega vonir um að Briissel verði höfuðborg hinnar væntanlegu ríkjasamsteypu. Höfuðstöðvar Efnahagsbandalags- ins eru nú í Briissel með um 2000 manna starfsliði. Ætti því að vera nægjanlegt fyrir fslendinga að hafa eitthvert samband við þessa stofnun, en spara sér viðræður við hvert einstakt þátttökuríki Efnahagsbandalagsins, að minnsta kosti meðan allt er í óvissu um þátttöku Breta. En talið er víst, að ef Bretar ná ekki samningum, þá muni Norðurlöndin ekki sækja um aðild. Á meðan þettá er f ó- vissu, mun hagfeldast fyrir íslend inga að láta sér hægt og btoa á- tekta. En sjálfsagt er að halda á- fram umræðum um málaði hér heima, og kynna þjóðinni hvað er að gerast annars staðar; og gleyma þá ekki hvað um málið er skrifað i Bandaríkjunum og öðrum þeim löndum, sem ekki er talið að geti orðið beinir aðilar að Efnahags- bandalaginu. Aðrar þjóðir líta svo á, að þátt taka í Efnahagsbandalaginu, sé svo alverlegt mál, að ekki sé hægt að afgreiða það með einföldu sam þykki á löggjafarþingum, án sér- staks undirbúnings. Norðmenn hafa þegar ákveðið að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Noregs, og frá Bretlandi ber- ast þær fregnir að efnt verði til nýrra þingkosninga, áður en end- anleg ákvörðun verður tekin. Frá því er skýrt að Kampmann, for- sætisráðherra Dana, hafi lýst því yfir, að annað hvort skuli fram fara þjóðaratkvæðagreiðsla, eða nýjar þingkosningar áður en endan leg ákvörðun verður tekin um að- ild Dana að Efnahagsbandalaginu. Þar sem þátttaka íslands í Efnahagsbandalaginu, er vafalaust mikilvægasta mál, sem íslending- ar hafa þurft að taka afstöðu til í margar aldir, þá er þess að vænta, að stjórnmálaleiðtogar þjóðarinn- ar í ríkisstjórn og á Alþingi, iáti fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, áður en það verður til lykta leitt. — Ef til vill mætti við það una að Alþingi verði leyst upp, þegar að úrslitum dregur, og efnt til nýrra kosninga um þetta mál eitt, og afgreiddi Alþingi mál- ið, enda hefði það ekki önnur mál til meðferðar, og færu svo fram almennar þingkosningar, þegar lokið væri afgreiðslu um aðiid ís- lands að Efnahagsbandalaginu. 8. ágúst 1962. Jón Árnason. Vegagerð á Norðurlandi Það, sem unnið er að vegagerð í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum er einkum þetta: Múlavegurinn er orðinn akfær öllum bifreiðum út að Sauðá frá Dalvík. Erfiðasti kafli leiðarinnar, Ófærugjá, Flagið og fleiri torsóttir staðir norðan í Múlanum, og eftír er að leggja veg yfir, er 4—5 km. að lengd. En allur Múlavegurinn, frá Dal- vík til Ólafsfjarðar, er 18 km. — Þá er í sumar unnið að endur- bótum á Eyjafjarðarbraut og síðar í sumar verður Laugalandsvegur lagfærður. Á þessum vegum er um smákafla að ræða, einnig í Hörg- árdal. , í Suður-Þingeyjarsýslu er unn- ið í Fnjóskadalsveri hjá Veislu- seli og nálægt Hólmavaði og Tjörn í Aðaldal. Þá er unnið í Tjömes vegi austan við Máná, fullgerður nýr vegarspotti á Mývatnsöræfum og nýbyggður kafli á Mývatns- heiði og ætlunin er að vinna að vegalagningu í Bárðardal austan Fljóts og vestan. Þá eru bættír vegir á Hólafjalli, Flateyjardal og Dettifossleið að vestan. En vega- bætur fjallveganna eru þó aðeins miðaðar við að jeppar eða fjalla bílar komist þar leiðar sinnar. (Dagur). TÍMINN, Iaugardaginn 25. ágúst 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.