Tíminn - 05.12.1962, Síða 5

Tíminn - 05.12.1962, Síða 5
IÞROTTIR RITSTJORI HALLUR SIMONARSON — Fram jafnaði á síSustu sekúndum leiksins. — IR og Valur gerðu einnig jafntefli, Víkingur vann KR Allt getur skeð í handknatt- leik — eins og öðru, það sann- aðist vissulega í leik Fram og Þróttar í fyrrakvöld, sem lauk óvænt með jafntefli 13—13. Nýliðarnir í 1. deild höfðu í fullu tré við íslandsmeistara Fram og sýndu mjög góðan leik. Þróttur hélt forustunni mestallan tímann og það var ekki fyrr en átta mínútur voru til leiksloka að Frömurum tóksí að komast yfir, í fyrsta sinn í leiknum. — Flestir reiknuðu þá með, að sigurinn væri örugglega þeirra megin, þar sem tvö mörk skildu á milli 12—10. — En Þróttarar voru engan veginn búnir að segja sitt síðasta orð. Þeir jöfnuðu bilið — og komust einu marki yfir. Þá var aðeins hálf mínúta eftir og útlitið hálf ískyggilegt fyrir ís- landsmeistarana, sem höfðu leikið irámunalega illa allan leikinn. Á síðustu sekúndunum tryggði Fram sér jafntefli — og var ekki laust við, að þar hafi smá heppni ráðið. Eftir gangi leiksins voru úrslit nokkuð sanngjörn — en þó sýndu Þróttarar mun jákvæðari leik. Þeir tóku forustuna í byrjun og voru íljótir að finna hinar stóru gluf- ur á vörn Fram. Ekki var mark- varzla Fram í sem beztu lagi og mörg ódýr mörk voru skorug fyr- ir einstakt kæruleysi sumra Ieik- mannanna. Liðin skiptust á að skora og i hálfleik var staðan jöfn 6—6. Þróttur komst yfir strax í seinnj hálfleiknum, er Axel Axelsson skoraði úr víti. Ingólfur Óskars- son jafnað'i fyrir Fram, en Hannes Haraldsson svaraði fyrir Þrótt með fallegu marki. Enn jafnar Ingólf- ur fyrir fram og litlu síðar bætir Agúst Þór marki vig — staðan var 9—8 fyrir Fram og það var í fyrsta sinn í leiknum sem Fram komst ' Hilmar Ólafsson skorar fyrir Fram, yfjr. Þrótti tókst að jafna, en Hilm ar Ólafsson, sem var bezti maður Fram í leiknum, nær forustunni aftur fyrir Fram. Aftur jafna Þrótt arar, en nú tóku Framarar góð'an sprett og skora tvö mörk í röð — Karl Benediktsson og Tómas Tóm- ssson. Með tvö mörk yfir hefði jafnsterkt lið og Fram átt ag vera öru'ggt meg sigur, en kæruleysi varð liðinu nær að falli og næstu þrjú mörkin skorar Þróttur. Axel skorar 11—12 í gegnum opna vörn Fram og jafnar svo úr víti, sem réttilega var dæmt á Fram. Helgi Árnason skoraði þrettánda mark Þróttar og þá var hálf mínúta eft- ir. Ingólfur Óskarsson jafnaði fyr- ir Fram, með þrumuskoti, þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eft- ir og var það sannarlega gert á síð- ustu stundu. Hvað kom svo til, að þessir að- ilar gerðu jafntefli — íslandsmeist ararnir og nýliðarnir í 1. deild? Svarið er ósköp einfalt. Fram lék írámunalega illa, en Þróttur átti sinn langbezta leik tií þessa. Það er að vísu nokkur afsökun fyrir Fram, að Guðjón Jónsson gat ekki leikið með' liðinu vegna meiðsla — en samt sem áður á fjarvera eins manns ekkj ag geta haft jafn mikil áhrif og raun bar vitni. Bezti mað i;r Fram í leiknum var Hilmar Ól- afsson, en Ingólfur Óskarsson átti aídrei þessu vant mjög lélegan leik. Framarar verða að laga vörn ina hjá sér og bæta línuspilið — cg meðal annarra orða, á Fram kannskj betri línuspilara fyrir ut- an liðið? Þróttai'liðið hefur bætt sig mikið upp á síðkastig undir góð'ri leið- sögn þjálfarans Eggerts Jóhann- essonar úr Viking. Góðan leik sýndu Axel, Haukur og Helgi, en auk þess varði Guðmundur Gústafs con í markinu mjög vel. Dómari í leiknum var Valgeir Ársælsson og dæmdi heldur illa, einkum er það leiðinlegur ávanj hjá dómara að hiaupa mörgum sinnum í leik til hornadómara til að leita álits á leikbrotum. Víkingur — KR 19—15 Auk leiks Fram og Þróttar fóru einnig fram tveir aðrir leikir í ineistarafl., milli Víkings og KR og Vals og ÍR. Leikur Víkings og Björn Kristjánsson, Víking, er hér alveg frír á linunni og skorar fyrir félag sitt. KR var frekar þófkenndur og illa leikinn. Víkingur hafði yfirleitt undirtökin í leiknum en yfirburð- irnir voru helduF litlir. f hálfleik hafði Víkingúr yfir 9—6. Víking- ur jók forskotið í seinni hálfleikn- um og komst í 13—8. KR minnkaði þetta bil í 12—13 — það var eink- um Karl Jóhannsson sem sá fyrir því, en hann var langbezti maður á vellinum. Víkingar léku ágætlega síðasta kaflann og lokatölur urðu 19—15 þeim í vil. Víkingsliðið lék illa í þessum leik og virðist einhver deyfð vera yfir því. Beztur var Jóhann Gísla- son, er skoraðj átta mörk. Margt gott býr í nýliðanum Þórarni Ól- ofssyni, sem sýndi ágætan leik. KR lifir erfiða tíma um þessar mundir og er lið þeirra mjög sund- urlaust. Einn maður sker sig úr liðinu, Karl Jóhannsson sem er óvenju fjölhæfur leikmaður — það leika t.d. fá r eftir honum að skora mark frá miðju eins og han gerði í leiknum. Dómari var Magnús Pétursson og hefur dæmt betur. ÍR — Valur 16—16 Leikurinn var allan tímann jafn og spennandi. Valur náð'i góðu 'forskoti í byrjun og komst í 6—2. Þetta bil tókst ÍR að jafna en Val- ur hafð yfir í hálfleik 8—7. ÍR- ingar fengu tækifæri til að jafna á fyrstu mínútum síðarj hálfleiks úr víti, en Gunlaugur Hjálmarsson skaut í stöng. Valsmenn héldu for- ustunni, en aldrei skildi meir á m lli, en eitt til tvö mörk. ÍR-ing- ar sóttu sig undir lokin og leikn- um lauk með jafntefli 16—16. Þetta var bezti leikur Vals í mót- inu og er áberandi. hvað liðið hef- ur lagazt með tilkomu yngr mann ?nna. Sigurður Dagsson var beztur, ágætan leik sýndj einnig Bergur Guðnason, þó verður hann að gæta hófs á skotum á markið, en hann skaut mjög ótímabært á síðustu mínútunum. Möik Vals í leiknum skoruðu Sigurður Dagsson 6, Berg steinn Magnsson 3, Örn Ingólfsson 3, Bergur Guðnason 2 og Stefán og Kristmann eitt hvor. f ÍR-liðinu bar mest á þeim bræðrum Gunnlaugi og Gylfa, einn ig var Hermann góður. Eins og vant er, vva vörnin slæm og er það aðalgallinn á liðinu. Framh. á 13 síðu TVÍSÝNN LEIKUR eftir THERESA CHARLES Hið fyrsta sinn, sem Patrick læknir faðmaði Inez að sér, hvíslaði hann nafn annarrai konu í eyra hennar. Og síðar, þegar þau dönsuðu saman á skautnm, hafði hann einnig kallað hana Evelyn. Á sjúkrahúsinu, þar sem Patrick var virtur og dáðúr skurðlæknir, heyrði Inez hvíslag nafnið Evelyn í sambandi við hann. — En hver var þessi dular- fulla Evelyn? Þetfa er ástarsaga, sem ekki á sinn líka, — heillandi fögur og æsispennandi. ÞAÐ VORAR AÐ FURULUNDS eftir Margit Söderholm Hrífandi fögur herragarðssaga, skrifuð í sama stíl og hinar geysivinsælu Heiiubæjar- sögur höfundarins. Lesandinn bveri'ur frá erilsamr; og háværri nútíð aftur tiJ heillandi tíma þar sem friður, ást og hamingja fylla allt líf söguhetjanna. SKUGGSJÁ. 5 # J M S i ft riMINN, miðvikudagur 5. desember 1962. 5

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.