Tíminn - 23.12.1962, Qupperneq 2

Tíminn - 23.12.1962, Qupperneq 2
Allar tillögur manna í bæia MB-Reykjavík, 21. des. Síðari umræðu um fjárhags áætlun Reykjavíkurborgar lauk ekki fyrr en um klukkan áfta í morgun. Fór svo, að íhaldið samþykkti engar breyt ingartillögur frá Framsóknar- mönnum og snerust ýmsir full trúar gegn tillögum, sem ætla mætti að þeir hefðu viljað styðja. Þeir Einar Ágústsson og Björn Guðmundsson sátu þennan fund borgarstjórnar- innar. Einar Ágústsson ræddi fyrst nokkuð almennt um fjárhags áætlunina. Gat hann þess, hversu mjög hún hefði hækk að undanfarin ár, væru nið- urstöðutölur hennar til dæm is 97 milljónum hærri en nið urstöðutölur borgarreiknings- ins fyrir árið 1961. Óhjákvæmi legt væri að hækka útsvörin, sama væri hvernig reiknað væri; þótt gjaldendum hefði eitthvað fjölgað, væri útilok- að annað en þau hækkuðu við svo gífurlega hækkun á áætluninni. Væri það vissu- lega öfugstreymi miðað við þau loforð, sem gefin hefðu verið á sínum tíma um það, að opinber gjöld myndu lækka. Það væru fleiri gjöld, sem rynnu til borgarinnar frá íbúum hennar en útsvör- in, sagði Einar, og einnig þau hafa stórhækkað undanfai-ið. Nægði þar að minna á hækk unina á hitaveitugjöldunum og strætisvagnafargjöldunum og nú lægju fyrir tillögur um hækkun á gjöldum til raf- magnsveitunnar o. fl. Þannig bæri allt að sama brunni. Ekki væri samt sanngjarnt að kenna núverandi borgar- stjórnarmeirihluta um þetta ailt, þar eð hann dansaði nauðugur viljugur með í þeim dansi, sem aðrir valda- meiri hefðu hrundið af stað, sem sé ríkisstjórnin og alþing ismenn. Síðan vék Einar að breyt- ingartiilögum borgarfulltrúa Framsóknarmanna. Gat hann fyrst þeirra tveggja, sem gerðu ráð fyrir beinni tekju- aukningu, en lagt var til, að framlag Jöfnunarsjóðs væri reiknað 57,1 milljón í stað 55,6 eins og gert er í áætluninni. Einar kvað hafa verið ákveðíð við aðra umræðu fjárlaga á Alþingi aö hækka framlag Jöfnunarsjóðs og myndi vart ofætlað, að sú hækkun, er kæmi í hlut Reykjavíkurborg ar, myndi nema þeirri upp- hæð, sem Framsóknarmenn reiknuðu með. Þá legðu þeir til, að aðstöðugjöld yrðu reikn uð 62,5 milljónir í stað 60 milljóna. Aðstöðug;jöld væru reiknuð af reksturskostnaði og vegna síhækkandi dýrtið- ar væri öruggt, að aðstöðu- gjöld myndu hækka verulega. Einar gat þess, að borgarráð hefði þegar lagt til nokkra hækkun á þessum liðum og styddi það skoðanir Fram- sóknarmanna. Þá vék Einar að breyting- artillögum við gjaldahlið Aætlunarinnar. Framsóknar- menn í borgarstjórn lögðu til að fjárveitingar væru lækk- aðar til manntalsskrifstofu, hagfræðideildar, bifreiða- og skrifstofukostnaðar, vörzlu borgarlandsins, vinnumiðlim- ar o. fl. Þe:r lögðu einnig til, að meðlög með börnum væru reiknuð einni milljón króna lægri en gert er í áætlun, enda hefðu reikningar sýnt, að end urgreiðslur færu fram úr áætlunum. Síðan gerði Einar grein fyr ir nokkrum tillögum um smá- vægilegar hækkanir til ým- issa félaga og mannúðarstofn ana. Þá vék Einar að þeim til- lögum Framsóknarmanna, sem veigamestar væru. Það voru tillögurnar um aukið framlag til nýrra gatna og til útrýmingar herskálahús- næðis, Einar kvað óþarft að rekja það ástand, sem hér rikti í gatnagerðarmálum. Gatnageröin væri langt á eft ir byggingarþróuninni og úr þessu yrði að bæta. Nauðsyn væri á betra skipulagi i þess um málum, en einnig væri aukin fjárveiting nauðsynleg. Einar kvaðst fagna því, að meirihlutinn hefði í þessari áætlun gert ráð fyrir mikilli hækkun fjárframlaga til nýrra gatna, en borgarfulltrú ar Framsóknarflokksins teldu hana ekki næga og því væri þessi breytingartillaga flutt. Einar kvað alla flokka ætið hafa verið sammála um það, að útrýma ætti herskálahús- næð'inu í höfuðborginni. Enn þá væri ástandið samt þann- ig, að i bröggunum hefðu ver ið þann 1. september 167 íbúð ir, ibúar 681 og börn 311. Það hefði komið í ljós, að þær að- ferðir, sem hingað til hefðu verið reyndar til þess að út- rýma bröggunum, dygðu ekki. íbúar bragganna gætu fæstir vegna fátæktar keypt íbúðir, þótt þær byðust á sæmilegum kjörum. Hér væri þvi ekki um annaö að ræða en borgin sjálf byggði íbúðir og leigði þær út gegn sanngjarnri leigu til þessa fólks. Sú tíð væri liðin, að menn þyrðu ekki að taka lán, og nú legðu fulltrúar Framsóknarmanna til, að tekið væri 15 milljóna króna lán til þessara hluta. Móti þeirri upphæð myndi svo koma framlag Húsbygg- ingarsjóðs ríkisins. Síðan minntist Einar á nokkur atriði fjárhagsáætlun arinnar, sem hann væri óánægður með, en myndi ekki flytja breytingartillögur við. Þá vék hann að áætlunartil- lögunum, sem frá var greint í blaðinu í dag og rökstuddi þær. Björn Guðmundsson kvart- aði yfír því, hversu erfitt væri að ná í háttsetta borg- arstarfsmenn á skrifstofum þeirra. Hann kvaðst undanfar ið hafa gert ítrekaðar tilraun ir til þess að ná í ýmsa þeirra til þess að fá hjá þeim upp- lýsingar, en árangurslaust. Björn ræddi síöan uip tillög- ur Framsóknarmanna. Hann kvað það hafa komið fram, að í dag væri búið í meira en ið. Þá rökstuddi Björn enn borgarlæknis væru heilsuspill andi, Þessar upplýsingar væri ekki hægt aö vefengja, en þær væru mjög alvarlegs eðl- is. Sýndu þær, að ekki væri hægt aö komast hjá því að gera stórfellt átak til útrým- ingar þessu húsnæði. Fram- sóknarmenn legðu til, að byrj að yrði á bröggunum. Það væri ekki hættulegt lengur að taka lán. Nú þætti það bein- línis fínt að taka lán. Bret- ar hefðu keppzt um að lána okkur; það hefði ekki tekið nema 60 sekúndur að sögn, að fá hjá þeim 240 milljóna króna lán, Sagt væri, að þetta hefði gengið svona vel, vegna þess hve vel landinu væri stjórnað. En einhvers staðar hefði hann lesið það ekki fyrir mjög löngu, að Reykjavík væri jafnvel enn betur stjórnað en ríkinu. Sjálfstæðismenn ættu þvi Flugeldar ekki að þurfa að vera hrædd ir við að 'taka þetta lán. Björn gat þess, að Fram- sóknarmenn hefðu lagt til að nýr liður væri tekinn upp í fjárhagsáætlunina. Það væri hálfrar milljónar króna fjár- veiting til þess að berjast gegn áfengisbölmu. Hann kvað undanfarið hafa verið veitt fé til að lækna áfengis- sjúklinga og byggja stein- steypta klefa, til þess að geyma í ölóða menn, en það væri undarleg öfugþróun, að litlu fé væri varið til þess að koma í veg fyrir áfengisböl- ið. Þá rökstuddi Björn enn- fremur tillögu um hækkun til kirkj ubyggingaf s j óðs. Eins og fyrr segir stóðu um ræður fram á morgun At- kvæðagreiðsla hófst ekki fyrr en um sex-leytið í morgun og tók hún rúma tvo tíma. íhaldið felldi allar tillögur Framsóknarmanna. Má til dæmis geta þess, að Auður Auðuns taldi óþarfa að hækka framlag t;l mæðrastyrksnefnd ar. Rökstuddi hún afstöðu sína með því, að nefndin hefði ekki sótt um hækkuni Á það var hins vegar bent, aö framlagið hefði verið óbreytt í fjögúr ár, þrátt fyrir ört vax andi dýrtið, Auður sat hjá! Ekki treystust ^ þau Gróa Pétursdóttir og Úlfar templ- ari Þórðarson til þess að greiða atkvæði gegn tillögu um fjárveitingu gegn áfengis bölinu, heldur sátu þau hj&. Það munu þau hafa taliH óhætt, því að íhaldið hafði samt nægilegt atkvæðamagn til þess að fella hana. Auður greiddi atkvæði gegn þeirri tillögu. Þórir guðfræðiprófessor Þórðarson greiddi hins vegar atkvæði gegn því að hækka framlag til kirkjubygginga- sjóðs! íhaldið sameinaðist um það að fella lántökuna til útrým ingar bröggunum. Mun þó væntanlega ekki vanta yfir- lýsingar um næstu borgar- stjórnarkosningar úr þeim herbúðum um að nauðsynlegt sé að útrýma þeim, og vænt- anlega verða snotrar bifreið- ar sendar til að smala íbúum þaðan á kjörstað. Ekki vildi íhaldið heldur hækka fram- lög t:l nýrra gatna. Er því út- lit fyrir að enn um sinn geti erlendar bifreiðaverksmiðjur sent bíla sína á götur höfuð- borgarinnar til þess að reyna hvernig þeir reynast á vond- um vegum! FkgeWar - FlugeWar í ár höfum við fjölbreyttara úrval af TIVOLI Skrautfiugeldum og Skipaflugeldum en undanfarin ár ÁSAMT: Marglit blys (12 teg.) — Sólir '2 tegundir.) Glorai 51ita blys — Bengal blys (3 teg.) — St.iörnuregn — Stiörnuljós o. fl. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytt- asta úrval af skrautflugeldum og skipaflugeldum í öll- um stærðum og nú eins og í fyrra eru til sölu hinir raunverulegu TIVOLI flugeldar. Við munum ieigja hólka meg þessum flugeldum Tilvaiið tækifæri fyrir félags-, fjölskyldu- og vinahópa að halda sameiginiega flugelda- sýningu á gamlárskvöld — Gerið innkaup meðan úrvalið er mest — FLUGELDASALAN VESTURRÖST Gsrðastræti 2 — Sími 16770 FLUGELDASALAN RAFT ÆKJ AVERZLUNIN Tryggvagötu 2 — Sími 18279 2

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.