Alþýðublaðið - 29.03.1940, Side 1
r
ISITSTJÓHf: F, E. YALÐE3VL4RSSON ÚTGWAK»I: ALÞÝÐUFL^EKSJBXNN
XXI. IHGANGUIÍ 1 FÖTSUDAGUR 29. MARZ 1940 72. TÖLUBLAÐ
qg^s^aesMsaw iniiwr wip—w—www———a———b—m——n——
Frá síðasta fundi æðsta herstjórnarráðs Bandamanna: Yzt til vinstri Lord Gort, fremst á
myndinni miðri Sir Edmond Ironside og Gamelin.
England og Frakkland skuld
binda sig til að semja ekki
um Mð uema i sameiningu.
-—■—-4—-——
Hátíðley yfioiýsing eftir taerstjérnar-
ráðsfnnd taandamanna I London í gær.
* Frá íréttariíara Alþýðubíaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
Soner Welles sef-
nr Boosevelt skýrsln
nn Evrópnfðrina.
LONDON í gærkveldi, FÚ.
^jjjUMNER WELLES, einkaer-
**■' indreki Roosevelts forseta.
kom til New York í dag á há-
d'egi úr Evrópuferð sinni. Wel-
les neitaði að gefa blaðamönn-
um nokkrar upplýsingar um
ferðir sínar.
Roosevelt forseti Hefir frestað
ferð sinni til Wara Springs í
Georgia, til þess að geta fengið
skýrslu Welles um viðræður
hans við stjórnmálamenn Ev-
rópu þegar í stað.
Þriðja umræða fjárlaganna
mun fara fram í næstu viku.
TJ'IÐ sameiginlega æðsta herstjórnarráð Breta og
■*• Frakka kom saman á sjötta fund sinn í London fyrri-
partinn í gær og hitust þeir Chamberlain og Reynaud þar
í fyrsta sinn síðan Reynaud myndaði stjórn sína á Frakk-
landi.
Eftir fundinn var það tilkynnt, að hann hefði tek-
ið mjög þýðingarmiklar ákvarðanir um hernað Banda-
manna, og jafnframt var gefin út hátíðleg yfirlýsing
þess efnis, að England og Frakkland hefðu komið sér
saman um það, að hefja engar samkomulagsumleitanir
um vopnahlé eða frið nema í sameiningu, og ganga
ekki inn á neinar sættir fyrr en friður og öryggi væri
tryggt fyrir bæði ríkin, sem og þær þjóðir, sem nú
iifa undir oki Þýzkalands eða er ógnað af því.
Að endingu er það tekið fram, að England og Frakkland séu
ráðin í því að halda samvinnu sinni áfram eftir stríðið á öllum
sviðum til að tryggja öryggi og sjálfstæði Evrópuþjóðanna, efla
viðskipti þeirra og fjárhag og koma á nýrri og betri skipan í al-
þjóðamálum með þeim þjóðum, sem samleið vilji eiga með Eng-
landi og Frakklandi.
Fé hefir fækkað i landinn
vegna mæöiveiki um 48.319
Á árunum 1936-1938 fækkaði þvi um
64054, en 1939 fjölgaði um 15735.
T4MANNI verður ljóst hvílíkt
■*■ afhroð bændastéttin og
landið í heild hafa beðið við
mæðiveikina við að athuga
heildarskýrslur yfir sauðfjár-
tölur vestan Þjórsár og Hér-
aðsvatna 1936, 1937, 1938 og
1939, sem eru nú komnar út.
Árið 1936 voru á þessu svæði
361 433 fjár. 1937 fækkaði því
um 51 355 eða niður í 310 078
og á árinu 1928 fækkaði enn
um 12 699 eða niður í 297 279.
Á árinu 1939 fjölgar fénu aftur
um 15 735 eða upp í 313 114.
Alls hafði því fénu fækkað
frá 1936 til ársloka 1939 um
Frh. á 4. síðu.
Fund æðsta herstjórnarráðsins
sóttu af hálfu Englendinga, auk
Chamberlains forsætisráðherra,
Lord Halifax utanríkismáiaráð-
herra, Winston Churchill flota-
málaráðherra, Sir Oliver Stanley
hermálaráðherra, Sir Kingsley
Wood flugmálaráðherra, Lord
Gort, yfirhershöfðingi Breta i
Frakklandi, Sir Edmond Ironside
herforingi, Sir Dudley. Pond sjó-
liðsforingi og Sir Alexander
Caddoggan aðstoðarmaður í ut-
anríkismálaráðuneytinu.
Af hálfu Frakka sóttu fundinn,
auk Reynaud forsætisráðherra,
Daladier hermálaráðherra, Camp-
inchi flotamálaráðherra, Laurent
Eynac flugmálaráðherra, Gamelin
hinn sameiginlegi yfirhershöfð-
ingi Bandamanma, Darlan sjó-
Frh. á 4. síðu.
Fara til útlanda! atvinnnleit en
sendir iteim á kostnað rikisins.
Mikil brögð að pessu siðan styrjöldin
braust út. Aðvörun félagsmálaráðherra.
SVO ótrúlega hefir viljað til ♦'
að mikið hefir borið á því
Kvðldvaka blaða
manna á morgun
Siöasta kvöldvaka
vetrarins.
TZ V ÖLD V AK A blaðamanna,
■**■ hin síðasta á vetrinum,
verður annað kvöld að Hótel
Borg.
Hefir ekki síður en áður ver-
ið vandað til skemmtiskrárinn-
ar.
Fyrsta atriði hennar er þátt-
ur úr gamanleiknum „Stundum
og stundum ekki“, eftir Arnold
og Bach, sem Emil Thoroddsen
hefir þýtt og staðfært. Leikend-
ur verða Alfred Andrésson og
Jón Aðils. Gamanvísur syngja
þeir Lárus Ingólfsson. Brynj-
ólfur Jóhannesson og Alfred
Andrésson. Eru það allt nýjar
gamanvísur og vísur Alfreds
eru úr nýjum gleðileik, sem
síðar verður sýndur hér í vetur.
Þá les Kristmann Guðmunds-
son upp smásögu, en Sigfús
Halldórsson og Bára Sigurjóns-
dóttir syngja og dansa. Loks
skemmtir danshljómsveit Jack
Quinets með ýmsum hætti.
Dansað verður fram eftir nóttu.
Aðgöngumiðasalan er byrjuð
og er ráðlegast fyrir fólk að
tryggja sér aðgöngumiða í tíma.
Brotlst ídb í mat
vælaoevmslur.
nP ÖLUVERT hefir borið á
■*■ því undanfarið, að brotizt
væri inn í matvælageymslur og
stolið þaðan matvælum.
Einkum hefir þetta átt sér
stað á Víðimel, og er brotizt
inn í útigeymslur. Var brotizt
þar inn í fyrrinótt í læsta
geymslu og stolið 70—80 króna
virði af matvælum.
Skákpingíslands
Fjórða umferð tefld á
mlðvlkudag.
FJÓRÐA UMFERÐ var
í'efld á miðvikudag og
fóru leikar sem hér segir:
Meistaraflokkur:
Ásmundur Ásgeirsson vann Jó-
hann Snorrason. Einar Þorvalds-
son vann Sturla Pétursson. Egg-
ert Gilfer og Sæmundur Ólafsson
gerðu biðskák. Áki Pétursson og
Árni Snœvarr biðskák.
Fyrsti fiokkur:
Ragnar vann Aðalstein, Jón
vann Ingimund, Pétur og Helgi
gerðu biðskák. Víglundur og Óli
biðskák.
Annar flokkur:
Óskar 1, Lárus 0, Ólafur 1,
JHaraldur 0, Sigurður 1, Leo 0,
Steinpór 1, Sveinn 0. Haukur og
Kaj gerðu biðskák.
Fimmta umferð:
Fimmta umferð var tefld í gær
kveldi.
Meistamflokkur:
Frh. á 4. síðu.
síðan ófriðurinn skall á, að
menn færu til útlanda í at-
vinnuleit.
Munu menn, sem hér hafa
gengið atvinnulausir, hafa tal-
ið líklegt að ófriðarástandið
myndi rýmka til á atvinnusvið-
inu og þeir myndu því geta
fengið atvinnu.
En það er langt frá því að
þessum mönnum hafi orðið að
vonura sínum og margir þeirra
hafa lent í þeim vandræðum að
standa uppi allslausir erlendis.
Menn þessir hafa því leitað til
sendiherra landsins að fá far-
areyri aftur heim. Hefir ríkið
orðið fyrir þó nokkrum fjárút-
látum af þessum ástæðum upp
á síðkastið.
Nú hefir félagsmálaráðuneyt-
ið gefið út aðvörun vegna þessa.
Brýnir það fyrir mönnum, að
engin von sé til þess að menn
geti fengið atvinnu erlendis og
að það sé hin mesta fásinna að
fara utan nema eiga örugga at-
vinnu vissa, áður en lagt er af
stað.
Þess er að vænta, að menn
fari eftir þessu og taki sér ekki
far til útlanda í atvinnuleit
mega að eiga eitthvað alveg
víst.
Störum jarðeignom
shipt upp á Fínnlandi
IflrlýslDg Tanners.
KHÖFN í moigun. FÚ.
ANNER, félagsmálaráðherra
í hinní nýju Finnlandsstjóm,
hefir lýst yfir því, að ákveðnar
hafi verið miklar jarðnæðisendur-
'bætur í Finnlandi á þann hátt, að
stórjarðeignum verður skipt upp.
Þá verður tekin upp ströng
matvæla- og nauðsynjaskömmtim
og mjög ströng skattalöggjöf
ýerðuír leidd í gildi.
Mamerheim kveðnr
sænskn »g norskn sjálf-
Maliðana.
KHÖFN í morgun. FÚ.
Mannerheim hershöfðingi, —
hefir nú kvatt hina norsku og
sænsku sjálfboðaliða á Finn-
landi og eru þeir nú lagðir af
stað heimleiðis. í kveðjuræðu
sinni mælti hann hlýlegum
þakkarorðum til þeirra sjálfra
og landa þeirra.
Þýzkur kafbátur strandar
09 er kyrsettur í Noregi.
------» ,
ÞJóðverJar heimta hann látinn
lausan en norska stjórnin neitar
, —»—...
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
TVTORSKA stjórnin hefir kyrrsett þýzka kafbátinn „U 21“
“*■ *■ -— sem strandaði við Mandal í Noregi fyrir þremur
dögum síðan. Fundu norsk eftirlitsskip hann í gær og fluttu
hann með sér til Kristianssand.
Skipverjar á kafbátnum voru 28 að tölu og hafa þeir einnig
verið kyrrsettir í Noregi meðan á stríðinu stendur.
Þýzki sendiherrann í Oslo
hefir farið fram á það, að kaf-
báturinn verði látinn laus og
Frh. á 4. Síðu.
Þýzkur kafbátur, dulmálaður til þess að hann sjáist síður.