Alþýðublaðið - 06.04.1940, Blaðsíða 1
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
UTGEFANDI: ALÞYÐUFLOKKÚRINN
XX. ÁRGANG¥R
LAUGARDAG 6. APRÍL 1940.
78. TOLUBLAÐ
Fleiri togarar fráBafnaríirði
fara nú á saltfisksveiöar.
Hvað gera útgerðarfélögin í Reykjavík?
Rflnófftir PétnrssoB
var endnrkosinn fer-
maðnr iðju.
RUNÓLFUH PhTUHSSON
Æ ÐALFUNDUR IÐJU, fé-
lags verksmiðjufólks var
haldinn í gærkveldi í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu.
A fundinum fór fram kosning
á stjórn fyrir félagið. Kosnir
voru:
Runólfur Pétursson, endur-
kosinn formaður með 126 atkv.
Ólafur Einarsson fékk 18 og
Sveinn Sveinsson fékk 4.
Snorri Jónsson varaformað-
ur.
Björn Bjarnason, ritari, (endur-
urkosinn).
Hafliði Bjarnason gjaldkeri
(endurkosinn).
Méðstjórnendur: Jóna Pálma-
dóttir, Steinunn Sigurðardóttir
og Ingibjörg Rist.
Frh. á 2. síðu.
rW' ILLAGA Emils Jóns-
sonar og Finns Jóns-
sonar um saltfisksveiðar tog-
aranna, eða skatt á ísfisks-
sölurnar til styrktar atvinnu-
lausu fólki í landi, ásamt
upsa- og saltfisksveiðum
Bæjarútgerðartogaranna í
Hafnarfirði, hefir nú haft
þau áhrií, að fleiri togarar
fara nú á saltfisksveiðar, en
aðeins frá Hafnarfirði.
Bæjarú tger'ðartogararni r M aí
og Júní eru nú báðir á saltfisks-
veiðum, en áður hafði Júní farið
4 ferðir á upsaveiðar. Óli Garða
er á upsaveiðum, og er það
í’jörða ferð hans.
Nú heiir komizt nokkuð skrið á
það, að aðrir Hafnarfjarðartog-
arar færu á siltfisksveiðar. Júpí-
ter er farinn og Garðar fer á salt-
fisksveiðar, þegar hann kernur.
Engin ákvörðun hefir enn verið
fekin um Haukanes, Sviða, Sur-
prise, Hafstein eða Venus. —
Líklegt. er þó talið, að a. m. k.
’eitlthvað af þessum skipum fari á
saltfisk.
Petta hefir mikla þýðingu fyri.r
atvinnu verkafölks í Hafnarfirði.
En hvað verður gert hér í
Reykjavík? Um það spyrja nú
allir atvinnulausir verkamenn í
Reykjavík.
Alþýðublaðið spurðist fyrir um
þetta í morgun hjá Kveldúlfi, •
Aliiance, Géir Thorsteinsson og
Þórði Ólafssyni.
Öll þessi útgerðarfélög sögðu,
að engin ákvöröun hefði enn ver-
ið tekin um {>aÖ.
Hér er um nrjög þýðingarmikið
mál að ræða furir allan almenn-
ing — og er það von manna, að
togararnir fari sem allra flestir á
saltfisksveiðar, og það .sem fyrst.
Gamanleikiii9
ur á méti yíI
Frásögn lögreglustjóra og leikfélags-
stjórnarinnar hvor upp á möti annarri.
TJ ÓMNEFNDIN varð ekki
sammála um hvort
ætti að leyfa „Stundum og
stundum ekki“ fyrir almenn-
ing. Fjórir nefndarmanna:
Gustav Jónasson, Jónatan
Halivarðsson, Ragnar Bjark-
an og Jón Sigurðsson, vildu
leyfa ieikinn, en Jónas sagði
nei. Hann vildi halda bann-
inu áfram.
En þessir fjörir menn létu
fylgja dómi sínum þannig lag-
aða orðsendingu: „aö enda þótt
þeir teldu leikinn nauðaómerki-
legan og ósamboðinn virðingu
Leikfél. Reykjaví'kur, þá mundu
leikhússgestir vera færir urn að
dæma hann sjálfir, og því væri
ekki ástæða til að banna hann.“
Lögreglustjóri boöaöi í gær á
sinn fund blaðamenn og skýrði
þeirn frá þessari niðurstöðu dóm-
nefndarinniar og að leikurinn yrði
nú leyfður. Þá skýrði lögreglu-
Frh. á 2. síðu.
Skurðgröfur handa her Bandamanna. Þeir hafa pantað mikið af skurðgröfum í Bandaríkj-
unum, og eru þær ætlaðar til að grafa skotgrafir. A myndinni
Lryggju í höfninni í New York.
sjást nokkrar þeirra á
Dagsbrði skorar á aiji
að befjast handa um
—---♦—---—
• gera|ðfliigar ráðstafaiilr gegn aukinnl dýrtið.
rTl RÚNAÐARRÁÐ Dags-
brúnar hélt fund í
fyrrakvöld og var hann fjöl-
sóttur. Aðalumræðuefnið var
dýrtíðin og atvinnuástandið
í bænurn.
Hófust umræður með því,
að formaður skýrði frá við-
ræðum, sem félagsstjórn
hafði átt við ríkisstjórn, og
lagði hann síðan fram fyrir
hönd stjórnarinnar áskoranir
á alþingi í þessum málum.
Umræður voru fjörugar. Tóku
margir til máls og voru allir á
einu máli um tillöguna, sem að
ioknum umræðum voru sam-
þykktár einróma, enda eru þær
allar varðandi brýnustu hags-
munamál verkamanna, kröfur
um aukna atvinnu og öflugar
ráðstafanir gegn dýrtíðinni.
Áskorun félagsins á alþingi
er svohljóðandi:
VMF. Dagsbrún skorar á al-
þingi:
1) Að samþykkja þingsálykt-
unartillögu þá, er fyrir liggur
um saltfiskveiðar togara, og að
gera aðrar þær ráðstafanir til
ajukningar atvinnu liér í bæ,
sem bætt geti að fullu þann at-
vinnumissir, sem skapast hefir
við það, að saltfiskvertíð togar-
anna hefir enn engin orðið.
Vill félagið í þessu sam-
bandi benda á það, sem t'ekju-
leiðir til aukningar verklegum
framkvæmdum, að skattlagður
verði sá atvinnurekstur, sem
stríðsgróði hefir á orðið.
2) Að samþykkja gjaldeyris-
og innflutningsleyfi fyrir minst
tíu vélbátusn til útgerðar hér í
Reykjavílt.
.Tafnframt væntir félagið
þess, að bæjarstjórn Reykjavík-
ur fylgi máli þessu fast eftir,
og geri nauðsynlegar ráðstafan-
ir til að hægt verði að hrinda
því í ffamkvæmd hið allra
bráðasta,
3) Að samþykkja þingsálykt-
unartillögu þingmanna R'eykja-
víkur um innflutning á bygg-
ingarefni.
Telur félagið að með sam-
þykbt þeirrar þingsályktunar-
tillögu sé afstýrt stórkostlegum
vandræðum, sem bíður fjölda
verkamanna og iðnaðarmanna
hér í bæ, ef byggingarvinna
verður að stöðvast vegna skorts
á byggingarefni.
4) Að öflugar ráðstafanir
verði gerðar til þess að halda
niðri verðlagi á erlendum og
innlendum vörum og til þ'ess
að húsaleiga fari ekki hækk-
andi, þannig, að dýrtíðinni verði
haldið niðri eins og framast er
unt.“
Auk þess var samþykkt ein-
róma áskorun á bæjarstjórn:
„V.M.F. Dagsbrún skorar á
bæjarstjórn Reykjavíkur og
ríkistjórn að fækka ekki í at-
vinnubótavinnunni frá því, sfern
nú er, fyrr en fjölgað verður að
verulegu leyti í hitaveitunni.
Jafnframt skorar félagið á
bæjarstjórn Reykjavíkur að
gera allar þær ráðstafanir, sem
hún íelur sér fært til atvinnu-
aukningar í bænum.
Vill félagið í þessu sambandi
benda á hvort ekki muni nú
þegar hægt að hefja vinnu við
væntanlegan íþrótta- og flug-
Frh. á 2. síðu.
.. 1
Bæjarráð ræðlr
kröfnr Dagsbrúnar
A FUNDI bæjarráðs í
gærkveldi lágu fyrir
þær áskoranir Dagsbrúnar
til bæjarstjórnar, sem
fylgja hér með. Urðu
nokkrar umræður um á-
skoranirnar og var sam-
þykkt að fela borgarstjóra
að hefja nvi þegar viðræð-
ur við stjórn Dagsbrúnar
á grundvelli áskorananna.
að lögbjóða
dýrííðarnppbóíálann
skrifstofi- og verzl-
nnarfólks!
Frnmvarp um pað (ram
komlð á alpingi.
'T' HOR THORS flytur á al-
þingi frumvarp um
greiðslu verðlagsuppbóta á laun-
um í verzlunum og skrifstofum.
Leggur hann til að vferzlunar-
fólk fái sömu launauppbætur og
verkamenn, þó ekki á hærri
laun en 650 kr. á mánuði. Sé
verzlunarfólk — 300 kr. eða
minna á rnánuði, í 1. flokki, með
300—400 kr. í 2. flokki og með
meira en 400 kr. í 3. fl.
Frumvarpið er flutt vegna til-
Frh. af 4. síðu.