Alþýðublaðið - 15.05.1940, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 15. MAI 1040,
MIÐVIKUDAGUR
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12. Sími 2234,
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur.
20.00 Fréttir.
20.25 Útvarpssagan: „Ströndin
blá“, eftir Kristmann Guð-
mundsson, XII. (Höfundur-
inn).
20.55 Hljómplötur: Harmoniku-
lög.
21.15 Útvarpskvartettinn: Kvart-
ett, Op. 54, nr. 1, eftir
Haydn.
21.35 Hljómplötur: Sönglög.
21.45 Fréttir.
Dagskrárlok.
Leikfélagið
sýnir skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ annað kvöld kl. 8.
Kirkjuritið,
maí-heftið. er nýkomið út. Efni:
Stórmerki guðs, eftir Hálfdán
Helgason, Páll gamli á Holtastöð-
um, eftir séra Gunnar Árnason,
Niels Dael og Lísulundur, eftir sr.
Sigurjón Guðjónsson, sr. Bjarni
Einarsson, eftir sr. Þórð prófast
Ólafsson, Söngurinn hljómar, eftir
Magnús Hallbjörnsson í Syðri-
Skógum. Séra Jón Finnsson, eftir
dr. Jón Helgason, o. m. fl.
Sjúklingar í Kópavogshæli
hafa ákveðið að reyna að eignast
lítinn opinn seglbát og gangast nú
fyrir samskotum í þessum efnum.
Ætla þeir að láta þessa fjársöfnun
fara fram á morgun og á föstudag,
og virðist sjálfsagt að styrkja þá
og styðja í þessari viðleitni, og ætti
fólk því að taka þeim vel. Bátur-
ínn er ekki svo dýr, að ekki ætti
að takast að safna nógu fé til hans.
Hve smá, sem upphæðin er, sem
fólk kann að láta af hendi rakna,
verður hún til þess að fylla mæl-
inn. Söfnunarlisti liggur frammi
í afgreiðslu Alþýðublaðsins.
Póstferðir 16. maí 1940.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalarness, Reykjaness, Ölfuss-
og Flóapóstar. Laugarvatn. Hafn-
arfjörður. Álftanesspóstur. Akra-
nes. Til Reykjavíkur: Mosfells-
sveitar-, Kjalarness . Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóapóstar. Hafnar-
fjörður. Akranes.
Skemmtifund
heldur K. R. annað kvöld kl;
8 J/2 í Oddfellowhúsinu. Fjölbreytt
skemmtiskrá. Fundurinn er aðeins
fyrir K.R.-inga.
Lögreglunni
hefir tekist að ná þjófunum, sem
brutu rúðuna í Tjarnargötu 5 að-
faranótt annars hvítasunnudags og
•stálu þaðan vindlingapökkum. —
Voru það tveir piltar, annar 18
ára, en hinn 20. Hafa þeir áður
komist í kýnni við lögregluna.
Vorskóli
ísaks Jónssonar hefst á morgun.
Ríkisráðsfundur
var haldinn í gær og voru 25
lög staðfest.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag hjónin frú Ása Ei-
ríksdóttir og Guðni Einarsson
kaupmaður, Öldug. 28.
Kviknar í vélbáti.
Klukkan að ganga átta í gærkv.
kviknaði í vélbátnum „Síldin,“
sem lá við bryggju í Hafnarfirði.
Skemmdist skipið allmikið, áður
en slökkviliðinu tókst að kæfa eld-
inn. Eldurinn kviknaði á þann
hátt, að verið var að logsjóða nó-
lægt olíutank, og kviknaði í olí-
unni. ,
Freistingin
heitir amerísk mynd, sem Gamla
Bíó sýnir núna. Aðalhlutverkin
AIÞÝÐUBIAÐIÐ
leika: Joan Crawford, Margaret
Sullivan, Robert Young og Mel-
vyn Douglas.
Söngfélagið Harpa.
Munið æfingar í kvöld á venju-
legum stað og tíma. Mjög óríðandi
að allir mæti.
Lagarfoss
fór í gærkveldi áleiðis til Ame-
ríku hlaðinn íslenzkum afurðum.
Forðum í Flosaporti.
Þessi vinsæla revya hefir nú
verið sýnd 5 sinnum við fádæma
góðar undirtektir og fleiri orðið
frá að hverfa en að komust. Nú
verður hún sýnd í kvöld klukkan
8 í Iðnó og verða aðgöngumiðar
seldir kl. 4—7 í dag og eftlr kl. 1
á morgun. Verður ekki tekið á
móti fyrirfram pöntunum í síma,
svo allir hafi sama tækifæri til
þess að ná sér í aðgöngumiða.
Ármenningar
og aðrir þeir, er óskað hafa að
æfa róður á bátum félagsins, eru
beðnir að koma suður að húsi fé-
lagsins við Nauthólsvík í kvöld kl.
8.Verður þá 1. æfing og sumarstarf
semin hafin með fullum krafti. —
Afaráríðandi að allir mæti þá, sem
hugsað hafa sér að róa í sumar, því
þá verður mönnum skift niður í
liðin. Mætum allir réttstundis.
Innbrot um hvítasunnuna.
Töluvert hefir verið um innbrot
og þjófnaði um hvítasunnuna. Á
hvítasunnunótt var brotist inn í
verzlun á Bergstaðastræti 15. Var
stolið þar 5—6 krónum í sælgæti.
Var farið inn á þann hátt, að brot-
in var rúða í hurð og seilst til
smekkláss. Á mánudagsnótt var
að brjótast á sama hátt inn í tvær
aðrar verzlanir á Bergstaðastræti
54 og Nönnugötu 5. En þar voru
skráarlæsingar fyrir hurðum auk
smekklás. Á mánudagsnótt var
brotin rúða í búðarglugga á Tjarn
argötu 5 og stolið úr glugganum
50—60 vindlingapökkum. Innbrot-
in hafa ekki verið enn upplýst.
loftvarnaæfing-
ar pegar nndir-
báningijr iokii
Lððrua vaatar eai.
OFTVARNANEFNDIN
vinnur sleitulaust að því
að koraa loftvörnum Reykja-
víkur í lag.
Enn vantar nokkra lúðra, því
að lúður sá, sem til er, nægir
alls ekki. Reynt hafði verið að
fá lúður frá Sildarverksmiðj-
unum á Siglufirði, en það mun
ekki vera hægt að fá hann. Nú
er verið að vinna að því að
smíða nokkra lúðra hér í bæn-
um og fá mótora, sem lúðrarnir
eru knúnir með. Er vonast til að
lúðrarnir verði komnir upp
innan fárra daga.
Þá hefir loftvarnanefndin nú
tekið um 60 kjallara, aðallega í
og við miðbæinn, en auk þess
nokkra annars staðar í bænum,
og hafa sjálfboðaliðar unnið að
því undanfarna daga, að ryðja
til í kjöllurunum og búa þá
þannig út, að fólk geti flúið til
þeirra. Þegar öllum undirbún-
ingi er lokið, verða hafðar loft-
varnaæfingar og verður þeim
hagað þannig, að hættumerki
verða gefin, og ber þá öllum að
haga sér eins og um loftárás
væri að ræða. Mun þó tilkynnt
áður en slík æfing fer fram, að
um loftvarnaæfingu sé að ræða.
Ferðafélag íslands
fór á Snæfellsnes um hvíta-
sunnuna. Um 60 þótttakendur voru
í förinni. Var farið með Laxfossi á
laugardag og komið annan hvíta-
sunnudag. Var gengið á Snæfells-
jökul og að Lóndröngum.
Heimssýningin í New York
var opnuð aftur á laugardaginn
og hefir ísland þar sýningarskála
sinn, eins og í fyrra. Sýningu okk-
ar hefir verið breytt allmikið til
bóta og bætt við nýjum munum.
Þá er rekinn veitingaskáli í samb.
við skála okkar og seldir þar ís-
lenzkir réttir. La Guardia hélt
ræðu á laugardaginn, þegar sýning
in var opnuð. Talaði hann m. a.
um stríðið og sagði, að það væri
ekki stríð milli þjóða, heldur milli
réttlætis og ranglætis, trúar og
heiðindóms, lýðræðis og einræðis.
6. sýning
í kvöld kl. 8 í Iðnó.
Aðgöngumi&ar eftir kl. 1. Nokkur
sætí seld leikhúsverði eftir kl. 3.
Bannað fyrir börn.
Sólrík íbúð, 3 herbergja og
eldhús, til leigu, ódýrt. Upplýs-
ingar í síma 5366 frá kl, 6—8
í kvöld.
KRISUVIKURVEGUR
Frh. af 1. ^fóu.
þeir ræða við formenn verkalýðs-
félaganna.
í gær voru skráðir atvinnu-
lausir hér í Reykjavík 517 menn.
Við þennan hóp bætast svo at-
vinnuleysingjarnir i Hafnarfirði.
Það er því bersýnilegt, að þörfin
fyrir hröðum úrbótum er ákaflega
mikil. Þó að nokkrir verkamenn
komist innan skamms í Krísu-
víkurveginn, þá mun það lítið
stoða, miklu stærri atvinnufram-
kvæmdir þarf að ráðast í.
Ríkisstjórnin og bæjarstjóm
Reykjavíkur hafa nú til með-
ferðar hitaveitumálið, og athuga
þær alla möguleika fyrir því,
hvo'rt hægt sé að ieysa það mál
á viðunandi hátt. Ákaflega miklir
örðugleikar eru á þessu, en þó
mun ekki hægt að segja, að öll
von sé úti um það, að það megi
takast, þó að líkurnar fyrir því
séu litlar.
i__ i . . ..-...... i......
STJóRN CHURCHILLS
Frh. af 1. síðu.
verður samveldismálaráðherra í
stað Edens, sem var það áður.
Sir John Reith (íhaldsmaður)
verður samgöngumálaráðherra.
Lord Ramsbotham (íhaldsmað-
ur) verður menntamálaráðherra.
Ernest Brown (íhaldsmaður)
Skotlandsráðherra og
Lord Hankey (ihaldsmaður)
ráðherra án stjórnardeildar.
Ctbrelðið Alþýðublaöið!
GAMLA Blð
FreistingiH
Hrífandi og listavel leikin
amerísk kvikmynd. Aðal-
hlutverkin leika 4 fræg-
ir úrvalsleikarar:
Joan Crawford,
Margaret Sullavan,
Robert Young og
Melvyn Douglas.
NVIA BIO
Kentucky
Aðalhlutverk:
Loretta Young og
Richard Greerae
Myndin er tekin í eðlileg-
um litum.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Stnndam og stondnm ebki
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngum. seldir frá kl. 4 til 7 í dag.
Félag ungra jafnaðarmanna.
Aðalfundur
hinn fyrri á þessu ári, verður haldinn í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu í kvöld kl. 8,30.
Fundarefni: Aðalfundarstörf.
Félagar, fjölmennið og mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Fundur
verður haldinn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurbæjar í
Kaupþingssalnum, föstudaginn 17. maí kl. 8V2 e. h.
FUNDAREFNI:
1. Úrslit fulltrúaráðskosningar.
2. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Vorskóli
ísaks Jónssonar
tekur til starfa næstkom-
andi fimmtudag. Vegna
aukins húsnæðis komast
nokkur börn til viðbótar í
skólann. —
Sími: 2552..
HANNES Á HORNINU
Frh. af 2. síðu.
hitt finnst mér blóðugt, ef við
fáum ekki að liggja svolítið á Arn-
arhóli ó góðviðrisdögum í sumar.
Það er svo sem nóg pláss þar enn-
þá og ættu þeir, sem standa í nán-
ustu sambandi við hin nýju yfir-
völd, að athuga þetta. Við verðum
að fá að vera eins miklir hús-
bændur í okkar eigin bæ og mögu-
legt er. Og almenningur finnur til
þessa þó að í smáu sé.
SMÁSTRÁKUR HITTI MIG í
gær í Austurstræti og sagði:
„Heyrðu, manni, hefirðu heyrt það
að Englendingar eru komnir í
frakka?" „Hvað ertu að þvaðra?“
sagði ég. Þá brosti hann og sagði:
„Jú, sérðu, þeim var orðið svo
helv.. . kalt á verðinum.“
Hannes á horninu.
Bústaðaskifti.
Kaupendur Alþýðublaðsins,
sem flytja, geri svo vel og
tilkynni bústaðaskiptin í
simum 4900 og 4906.
Tilkynning. Bíldekk-strigaskór
eru hentugir að sumri til. Fást
hjá Sigurði Eyjólfssyni, Kirkju-
veg 4B, Hafnarfirði.
3. O. ©. T.
ST. FRÓN nr. 227. Fundur ann-
að kvöld kl. 8. Dagskrá: 1.
Upptaka nýrra félaga. 2. Fram-
haldsskýrsla kjörmanna um
skipulagsskrár- og húsma’lið. 3.
Kosning fulltrúa til Umdæmis-
stúku og Stórstúku. 4. Mælt
með umboðsmanni, gæzlu-
mönnum og fræðslustjóra. 5.
Vígsla embættismanna. 6. önn-
ur mál. — Frónsfélagar, fjöl-
mennið og mætið annað bvöld
kl. 8 stundvlslega.
MÍNERVA nr. 172. Fundur í
kvöld. Vígsla embættis-
manna. Kosning fulltrúa á
umdæmisþing, o. fl.
ÆT.
Tennis
Tennisvellirnir eru tilbún-
ir. Þeir, sem hafa pantað
tíma eru vinsamlega beðnir
að sækja skírteini til Svein-
björns Árnasonar hjá Har-
aldi Árnasyni sem fyrst.
NB. Nokkurir tímar frá kl.
9 f. h. til 6 e. h. eru enn
lausir.