Alþýðublaðið - 22.07.1940, Qupperneq 1
'MfMSJ-s/m/
V'tmx/un
ESTLAND'
KO.CKH'ÖLM
gMPBaðBj%|
GOUAND'
&rÆSgM
ImmfifcS
Égpggig
LITHAUEN
* ml'ASi'
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉT¥RSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ARGANGUR
MÁNUDAGUR 22. JÚLl 1940.
166. TÖLUBLAÐ
-----^----
Þau vorn kápð til að biðfast þess!
Eystrasaltslöndin verða nú
innlimuð í Sovét>Rússland.
"O FTIR að Eystrasaltslöndin, Eistland, Lettland og Lit-
hauen, eru nú búin að hafa rússneskt setulið og agenta
rússnesku leynilögreglunnar, G. P. U., innan landamæra
sinna í þrjá ársfjórðunga, er nú svo komið, að þau sjá sér
þann kost vænstan, að biðja þess, að þau verði innlimuð
í Sovét-Rússland!
Yar fullnaðarákvörðun um slíka málaleitun tekin á sam-
eiginlegri ráðstefnu Eystrasaltslandánna þriggja í gær. Frétta-
ritari Reuters í Moskva, sem búinn var að búa menn undir
þennan viðburð fyrir helgina, telur, að ekki muni lengi þurfa
að fara bónarveg að sovétstjórninni í þessu efni.
Forseíl Eistlaids senir af sér
Frá Riga, höfuðborg Lettlands.
Konstantin Pátz, forseti Éist-
íands, sem nú hefir sagt af sér.
— :— —---— í :-----—----<
BfezM líafijáturinií
„Se!mon“ talinn af.
Hann haíði verið storvirkast-
ur; allra brezkra kaíbáía í
striðimi.
ÞAÐ var tillíynnt í Liondon í
gær, að kafbáíurinn „Sal-
mon“ væri ókoininn til bæki-
stöðvar sinnar, og væri hann tal-
inn af.
Þetta er einn þeirra kafbáta
Breta, sem háfa getið sér frægð-
arorð í styrjöldinni.
„Salmon“ sökkti einu sinni
þýzkum kafbát á Norðursjó og
skaut 6 tundurskeytum á þýzka
herskipadeild. Sökk eitt herskip-
ið, og var það, að því er ætlað
er, beitiskipið „Leipzig“.
, Það var kafbáturinn „Salmion“,
sem sá til-ferða hafskipsins „Bre-
men“, er það var á leið frá
Norður-Rússlandi til Þýzkalands,
og hefði hann hæglega getað
sökkt því, en með pví að pað
hefði verið brot á alpjóðareglum
aÖ sökkva skipinu eins og á-
statt var, lét kafbáturinn það fara
óáreitt ferba sinna.
í morgun tilkynnir þýzka fréttastofan, að ríkisforseti Eist-
land, Konstantin Petz, hafi þegar sagt af sér, og forsætisráðherr-
ann tekið við störfum hans í bili. Sendiherra Lettlands í Was-
liington lýsti því yfir í gær, að Lettlendingar hefðu verið kúg-
aðir til þess að fallast á innlimun lands síns í Sovét-Rússland,
og neitaði sendiherrann að afhenda nokkur gögn, sem hann
hefði undir hendi.
ingar“ þó rofnir af Rússiandi
undir ýmsu yfirskini og löndin
fyllt af rússneskum her langt
umfram þáð, sem þau voru kúg-
uð til að leyfa í fyrrahaust.
Síðan var boðað til kosninga
í öllum löndunum og fékk að-
eins að koma þar fram einn listi, ^
sem kommúnistar höfðu mynd-
að rétt eina „fylkinguna“ enn
um, undir vernd Rússa, „alþýðu
fylkinguna“ kölluðu þeir hana,
og við þessum lista urðu menn
að segja já eða nei eins og við
„kosningar11 á Rússlandi og
Þýzkalandi, eða sitja heima með
vissu um það að verða síðan of-
sóttir sem fjandmenn Rúss-
lands. Þessar ,,kosningar“ fóru
eins og við var að búast. Fólk-
ið þorði ekki að segja nei, og
ennþá s'lður þorði það að sitja
heima. „Alþýðúfylking“ kom-
múnista fékk frá 93% og allt
upp í hin frægu 99% allra
greiddra atkvæða!
Gömul borgarhlið í Tallin, höfuðborg Eistlands.
Eystrasaltslöndin.
Eins og öllum er í fersku
minni, voru Eystrasaltsríkin
þrjú kúguð til þess af Rússlandi
eftir skiptingu Póllands í fyrra
haust, að gera svokallað „varn-
arbandalag“ við Rússland, taka
við rúsnesku setuliði inn í lönd
sín og leyfa rússneska Eystra-
saltsflotanum og rússneska loft-
flotanum að taka sér bækistöðv-
ar víðs vegar við strendur
þeirra.
Nýlega voru þessir „sarnn-
Bretar
4 millfónir
að kveðja
undir vopn!
"H/f ENN af árganginum
•*• 1907 voru kvaddir til
vopna á Bretlandi á laugar-
daginn, en árgangurinn 1906
verður kvaddur til vopna
næstkomandi laugardag.
Verður þá samtals búið að
skrásetja til herþjónustu á
Bretlandi 4 milljónir manna.
í tilefni af breytingum þeim,
sem gerðar hafa verið á her-
stjórn Breta, er það tekið fram,.
að nauðsynlegt hafi verið að
Frh. á 2. »ðu.
látiar
heimta iinlimanina.
Síðustu dagana hefir ekki
gengið á öðru í höfuðborgum
Eystrasaltslandanna, Tallin,
Riga og Kaunas, en kröfugöng-
um, sem kommúnistar hafa
skipulagt til þess að krefjast
innlimunar í Sovét-Rússland.
Af ótta við Rússa hefir fólk ekki
þorað annað en að vera með í
þeim.
Þannig tóku 200 þúsund
manns þátt í einni slíkri kröfu-
’ Hrh. á 4. síðu.
SfMaraflinn er nð Mnn
npp i 590 pðsond hektolftra
Á sama tima í fyrra 646 þús. hektolítrar
-------«.-------
HEILDARSÍLDARAFLINN var á laugardagskvöld kominn
upp í 590 þúsund hektólítra. Er það dálítið minna en í
fyrra, en þá var hann 646 þúsund á sama tíma. Á sama tíma í
hiíteðfyrra var hann 201 þús. hektólítrar.
Fyrir helgina kom geysimikið * ~ '
af síld til ríkisverksmiðjanna. Á
einum sólarhring komu t. d. 40
skip ti! ríkisverksmiðjanna með
fullfermi.
Veður var þó ekki hagstætt, en
síldin var alls staðar sem kastað
var. Mestur var aflinn á Gríms-
eyjarsundi.
Áta er mikil, að mestu rauðáta,
en síldin er heldur smærri en
venjulega. Átumagn hefir aldrei
verið hærríl en í ár.
Sjávarhiti er tveim gráðum
lægri nú en á sama tíma í fyrra.
Leikreglur Í.S.Í.
4
fyrir frjálsar íþróttir, 3. útgáfa,
eru nýkomnar út. Verða þær seld-
ar á íþróttavellinum í kvöld á með
an allsherjarmótið fer fram.
Allsherjarmétfð faeíst
í dag með keppai
í sex greinnm.
"O YRSTI dagur allsherjarmóts-
A- ins er í dag. Verðoir keppt i
þessum greinum: 100 m hlaupi
(úrslit; undanrásir em kl. 6),
stangarstökki, langstökki, 800 m
hlaiupi, kringlukasti og 1000 m
boðhlaupi.
i 100 m hlaupinu mætast 17
góðiv •'preithlauparar, par á með-
a! S'.o.nn Iagvarsson og Baldur
Möller, sern ekki hafa keppt fyrr
í ár og lifa pví enn á fornri
Frh. á 4. síðu.