Tíminn - 11.05.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.05.1963, Blaðsíða 3
KRAFIZT DAUÐADOMS YFIR PENKOVSKI OG TÍU ÁRA FANGELSIS FYRIR WYNNE NTB- Moskva, 10. maf. SAKSÓKNARINN í málinu gegn sovézka víslndamannimim, Oleg Penkovskí, og breika kaup sýslumanninum Grevllle Wynne, krafSist þess í dag, afl Penkovskí yrðl dæmdur tll dauð'a, en Wynne í tíu ára fang elsl. Stjórnarblaðið Izvestía birti úrdrátt úr ræðu saksóknara í dag áður en hann hafði loklð máli sínn í réttarsalnum í ræðu sinni sagði hann m. a. að Pen- kovskí hefði hafið njósnastarf- semi sína árið 1960, og alltaf verið siðspilltur streber og æv- intýramaður. Það hefði verið greinilegt að Penkovski og hús bændum hans, brezku og banda risku leyniþjónustunni, hefði komið vel saman. Hann kvað svikara og njósnara, sem hefði selt föðurland sitt, ekki eiga skilið að lifa, og því bæri hann fram kröfu um dauðadóm yfir Penkovskí. Hann kvað Wynne einnig hafa framið alvarlegt af- brot gegn Sovétríkjunum, en hins vegar teldi hann glæp hans ekki svo alvarlegan, að rétt væri að beita þyngztu hegningu laganna. Verjandi Penkovskis bað skjólstæðing sínum griða. Hann taldi fyrri verk Penkovskís sýna GREVILLE WYNNE (tll vlnstri) og verjandi Hans. að réttlætanlegt væri að náða hann og hann hefði við rann- sókn málsins veitt aðstoð við að koma upp um njósnastarf- semi sendiráða Vesturveldanna i Moskvu. Verjandinn kvað líf og störf Penkovskis sýna, að hann sé maður, sem lent hafi é villigötum, en ekki fjandmaður þjóðfélagsins. Verjandi Wynn- es hélt langa tölu fyrir réttin- um, og sagði m. a. að Wynne sjái mjög eftir þvf, sem hann hfði gert. Hann kvað Wynne ekki vera atvinnunjósnara, ekki hafa hlotið neina skólun í njósn um og engin laun hafa fengið fyrir njósnir sínar. Hann væri ópólitískur kaupsýslumaður, sem hefði látið nota sig til glæpastarfsemi, en myndi aldr- ei gera slíkt aftur. Saksóknari fór að lokum fram á, að vitnisburðir ákærða yrðu gefnir fyrir luktum dyrum í fyrarmálið, þar eð þá myndi eflaust'verða nefnd atriði, sem komu fram i gær, en þá fóru réttarhöldin fram fyrir lukturn dyrum. Penkovskí og báðir verj endurnir fóllust samstundis á þetta, og Wynne kvað sig ekk- ert hafa á móti því, eftir að hann hafði ráðfært sig við verj anda sinn. Brezki konsúllinn, Kenneth Kirby, sagði hins veg- ar eftir rcttarhöldin, að honum hefði komið krafa saksóknara mjög á óvart. Hundurínn kom upp um njósnir NTB-Washington, 10. maí. eiga i strangri baráttu við ein- BANDARÍSKA utanríkisráðu hvern ósýnilegan óvin í einu neytið skýrð'i frá því, að ýlfr- horni herbergisins. Sérfræðing andi hundur hefð'i komið upp urinn sá þá, að átt hafði verið um rafmagnshlerunartæki við gólfið í herbergishorninu í íbúð bandarísks sendiráðs- og braut það upp. Undir fann manns erlendis. hann falinn hljóðnema og sendi Á heimili hernaðarfulltrúa — sem gat náð öllum samtöl- bandarísks sendiráðs í landi, um, sem fram fóru í herberg- sem ekki er nafngreint, var inu. Kveikt var og slökkt á staddur bandarískur öryggissér hljóðnemanum með hljóðbylgj- fræðingur til að rannsaka íbúð um, sem voru af háar til að ina. Hann veitti þá athygli mannseyrað gæti greint þær, hundi hernaðarfulltrúans, sem en þær höfðu valdið hundin- ýlfraði sárt. Honum leið um óþægindum, ef ekki sárs- bersýnilega mjög illa og virtist auka. Svíar samþykkja nú hægri handar akstur NTB-Stokkhólmi 10. maí I var þó búizt við, að atkvæða- Heitar umræður fóru fram í | greiðsla myndi þar faira fram fyrr sænska þinginu í dag um, hvort! en um miðnætti, því að margir taka skuli upp hægri handar akst-! þurftu ag tala um málið. ur, og vai-g fljótlega greinilegt, að mikill meiri hluti var fyrir því, að taka hann upp á vori eða snemma sumars árið 1967. í efri deiidinni greiddu 119 at- kvæði með breytingunni, en 16 á móti, og í neðri deildinni var greinilegt, að fylgismenn breyt- íngarinnar myndu vinna mikinn _ | sigur, þótt andstaðan væri hai'ð- 9 1 ari þar en í hinni deildinni. Ekki SOVÉZK KVIKMYNDA VSKA f REYKJAVfK GBReykjrvík, 10. maí Næstkomandi mánudag hefst sovézk kvikmyndavika í Reykja- vík, og verða þá sýndar tólf kvik- myndir frá Sovétríkjunum í öllum bíóum Reykjavikur. Á mánudag koma nokkrir rússneskir kvik- myndaleikarar til að vera viðstadd ir fyrstu sýningar vikunnar, og verður þai að'alstjarnan kvik- myndaleiknonan Larissa Golúbk- ma, sem leikur aðalhlutverkið í „Húsarasögunni“, sem sýnd verð- ur í Háskóiabíóinu þann dag. Auk hennar koma Eldar Rjaza- nov, leikst’óri sömu myndar, og kvikmyndar. sem sýnd verður á vikunni. Kvikmyndirnar, sem sýndar >’erða, eru þessar: Húsarasagan í Háskólabíói 13. maí kl. 9 og í Bæj- arbiói 14. maí á sama tima. Það er gamanmynd með tónlist. Þá ei mynd, sem nefnist Villihundur inn Dingó og hefur hlotið' heiðurs- veiðlaun á 14. ‘alþjóðlegu barna- Kvikmyndasýningunni í Feneyjum hún verður sýnd í Gamla Bíói ]£. maí kl. 8 Þá er listdanskvik- rnyndin Svanavatnið, með tónlist eftir Tsjæko”ski, og hlaut hún 1. verðlaun á alþjóðamóti í Karachi Júlí Karasik, leikstjóri annarrar í Pakistan 1959. Hún verður sýnd í Stjörnubíói 16. maí kl. 7 og 9. Síðan cr myndin Friður fæddum, bún hlaut gullverðlaun á 22. kvik niyndahátíðinni í Feneyjum fyrir /’.ýstárlega gerð, verður sýnd í Austurbæjarbíói 14. maí kl. 7 og 9. Þá er að nefna myndina Maður iáðs og lagar, sem sýnd verður í Háskólabíó! 14. mai kl. 7. Enn kemur myndin Þegar trönurnar lljúga, hin fræga mynd, sem hlaut Gullpálmann í Cannes 1958, og er hún sýnd í Bæjarbíói 15. maí kl. 9. Þá er óperulitmyndin Evgin Onegin, byggða á samnefndri óperu, eftir Tsjækovskí, hún verð Framh. á bls. 15. Umræðurnar um málið fóru ekki eftir neinum flokkslínum, og foringjar alira lýð'ræðisflokkanna fjögurra sættu harðri gagnrýni einhverra flokksmanna sinna fyr- ír það samkomulag, sem flokks- foringjarnir gerðu meg sér rétt tyrir jól um ag hraða framgangi málsins. Samir ræðumenn' töluðu jafnvel um flokksforingja einræði í þessu sambandi og sögðu, að störf þingsms væru gerð að skrípa ieik. Eilander forsætisráðherra og foringjar borgaraflokkanna svör- uð'u þessum ádeilum. Andstæðmgar breytingarinnar bentu á þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 1955, en þá greiddu nærri 83% atkvæði gegn því að taka upp hægri handar akstur. Töldu vinstri handar roenn að þjóðarviljinn hefði ekki breytzt til muna síð- an þá, og ekki væri rétt að snið- ganga hann í máli sem þessu. Auk þess var þeim tiðrætt um það bióðbað, sem hlyti ag fylgja í kjöl- far breytingarinnar fyrstu vikurn- ar. Aðaltalsmenn breytingarinnar voru þeir forsætisráðherra og Gösta SkogLimd samgöngumálaráð- herra. Hann taldi breytinguna rauðsynlegd vegna síaukinna sam gangna miili Sviþjóðar og annarra Evrópulanda. og því lengur sem breytingin yrði dregin, því kostn- aðarsamari yrði hún og jafnframt vkist siysahættan. Talið er að breytingin muni kosta um 400 milljónir sænskra króna, og verður það fé innheimt með sérstÖKum bifreiðasköttum, sem lagðir verða á allar bifreiðir í iandinu næstu fjögur áijn. STUTTAR FRÉTTIR i r Birmingham hafa náð samkomu lagi við borgaryfirvöldin um þýð'ingarmestu atriðin i samn- ingum til a8 binda endi á kyn- þáttadeilurnar f borginni. ★ JÓHANNES páfi tók i dag við friðarverðlaunum Balzan- Haitis og Dóminíkanska lýðveld stofnunarinnai við hátiðlega at- isins, þar eð samtök rfkja Ame höfn i Vatíkanlnu. nku hefðu þegar tekiS mállð til * VFIR 300 manns hafa verlð oferoar. teknir fastir í Sýrlandi síðustu LEIÐTOGAR blökkumanna i tvo dagana. NTB-10. MAI. ★ ÖRYGGISRÁÐIÐ samþykkti í nótt að hafa afskipti af deilu 3 TÍMINN. laueardaeinn 11. maí 1963

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.