Tíminn - 11.05.1963, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.05.1963, Blaðsíða 5
 • "_______ÍÞRDTTIR RITSTJORI HALLUR SIMONARSON Stan Matthews knatt- spyrnumaður ársins Enskir knattspyrnugagnrýn- endur kusu í gær Stanley Matt- hews, hinn 48 ára gamla út- herja Stokes, sem knattspyrnu- mann ársins s. 1. keppnistíma- bil. Þetta er í annað sinn, sem Matthews hlýtur þennan heið- ur, en þegar slík atkvæða- greiðsla fór fram fyrir 15 árum í fyrsta sinn var hann kosinn knattspyrnumaður ársiins. Það efast fáir um að Matt- hews eigi ekkii þennan heiður skilið nú, þrátt fyrir sín 48 ár, sem auðvitað koma talsvert niður á hraða hans, en leikn- in er alltaf sú sama. Þegar hann fór frá Blackpool tiil Stoke fyrir tveimur árum var stað- an allt annað en góð hjá Stoke, félagið i botnlausum skuldum og í tuttugasta sæti í 2. deild. En strax með komu Matthews breyttist staðan, bæði fjárhags lega sem íþróttalega. Stoke vann jafnt og þétt á og áhorf- endur þyrptust á völlinn, voru á öllum þýðingarmeiri leikjum frá 25 ti! 40 þúsund. Með bættum fjárhag gat Stoke keypt nýja menn og það voru nöfn af ekki verra tag- inu, eins og Violett frá Manch. Utd., Clamp frá Arsenal, Stu- art frá Wolves og Mcllroy frá Burnley. Samtals kostuðu þess- ir þekktu lcikmenn Stoke um sjötíu þúsund pund, en þeim punduin hefur verið vel var- ið, því Stoke er nú í efsta sæti í 2. deiid með 49 stig eftúr 38 Ieiki, einu stigi ofar en Chelsea og Sunderland, sem leikið hafa einum leik meir. Að vísu var Stoke fynir hálfum mánuði tal ið öruggt með sæti í 1. deild, en þrjú töp í röð hafa sett strik í reikningiinn, e.n staða félagsins er þó enn lang hag- stæðust Talsverður spenningur var nú í sambandi vði kjör knatt- spyrnumanns ársins á Englandii og Iilaut Matthews tveimur stig- uin meir en næsti maður Dave McKay framvörður hjá Totten- ham. Annars var listinn þannig: 1. Stanley Matthews, Stoke 128 2. Dave Mckay, Tottenh. 126 2. Gordon Banks, Leicester 41 3. Eddie Lowe, Fulham 38 5. Jim I.angley, Fulham 28 6. Dennis Law Manch. Utd. 19 McKay og Law eru Skotar en koma til greiina í atkvæða- greiðslunni, þar sem þeir leika með cnskum liðum. ERFITT IÞROTTAAR A AKRANESI Frá ársþingi íþróttabandalags Akraness. Lárus Árnason kjörinn formaður sambandsins. 18 Ársþing fþróttabandalags Akraness var haldið í íþrótta- húsinu 7. apríl s.l. Formaður Í.A. Guðmundur Sveinbjörns- son setti þingið og flutti skýrslu stjórnarinnar. Forseti þingsins var kjörinn Lárus Árnason og varaforseti Ólafur J. Ólafsson, Ritarar voru kjörn ir Helgi Daníelsson og Einar J. Ólafsson. Hér á ffctir fer útdráttur úr skýrslu stjórnar ÍA og þeirra sér- ráða er starfa á vegum bandalags- Knattspyrna Ákurnesirigar tóku þátt í lands- mótum allra flokka. Meistaraflokk ur varð nr 3 í keppni 1. deildar, en alls lék flokkurinn 18 leiki á arinu og unnust 6 þeirra, 6 end- uðu með' jafntefli og 6 töpuðust. Markatalan 36:46. ÍA í óhag. Éng- in yngri flokkanna komst í úrslit í landsmóti í landsliðinu léku Real vann Juventus Torinó 9. maí. NTB. Real Madrid sigraði Juventus í vináttuleik í knattspyrnu hér í dag. f hálfleik stóð 2:1 fyrir Real og jók Liðið markatöluna í 3:1 i síðari hálfleiknuni Vinstri Lnnherjinn, Fuskas, skoraði tvö af mörkunum og de Stefar.ó liið þriðja. Miðherji Juventus, Zigoni, skoraðii eina | mark Iiðs síns. þrír Akurnesingar, þeir Ríkharð- ur Jónsson, Helgi Daníelsson og Þórður Jónsson. í B-landsliðiriu léku einnig þrír Akumesingar, þeir Bogi Sigurðsson, Ingvar Elís- son og Þórður Jónsson. 3. flokkur fór í keppnisferðalag til vinabæja Akraness í Noregi og Svíþjóð. — Tókst súHerð í alla staði mjög vel. Bæjarkeppni við Reykjavík fór fram á árinu. en leikinn var bæj- srkeppni við Keflavík og Hafnar- fjörð, hin svo kallaða Litla bikar- keppni. Lauk þeirri orrustu þann- ig að öll liðin urð'u jöfn að stig- um. Handknattleikur Handknatcleikur á frekar erfitt uppdráttar á Akranesi og er það íyrst og fremst óhentugt húsnæði, sem þar um veldur. Meistaraflokk- ur tók þátt í landsmóti 11. deild- ar 1962 og varð flokkurinn í 4. sæti með 4. stig. Nokkrir hand- knattleiksflokkar frá Reykjavík og í ágrenni komu í heimsókn til | Akraness og léku við heimamenn. Þá fór fram hin árlega hraðkeppni j iið'a utan Reykjavíkur og lauk þeirri Keppni með sigri Hafnfirð- ínga, i öði’u sæti urðu Keflvík- ingar. Sund Sundmenn tóku þátt í einni bæj arkeppni á árinu og var það við Hafnfirðinga Keppnin var mjög jöfn, en henni lauk með sigri Hafnfirðinga 45 stigum gegri 43.1 Akurnesing-ir tóku þátt í nokkrum móturh í Reykjavík og nágrenni. Eitt Akranesmet var sett á ár- 'nu, eri það var Sigrún Jóhanns dóttir, ér syr.ti 50 m skriðsund 4.1 sek Síðastlið.’ð ár var eitt erfiðasta i sögu sundiþróttarinnar á Akra nesi. Margir helztu sundstjörnurn- ar eins og Sigurður Sigurðsson, Guð'mundur Samúelsson o. fl. bættu æfingum og keppni og eftir voru aðeins unglingar, margir að visú efnilegir, svo minna varð um þátttöku í mótum, en á undanförn um árum Emnig hefur þjálfara- skortur mjög háð eðlilegum fram- gangi sundíþiróíttalDÍnnair'. Stjórnarkjör Guðmundur Sveinbjörnsson baðst eindregið undan endurkjöri sem i’ormaður. og var formaður kjör- inn Lárus Árnason. Aðrir í stjórn ÍA eru Garðar Óskarsson . vai'a- formaður Ólafur I. Jónsson rit- Framhald á 15. síðu. Breytingar á urvalinu Fjórar breytingar eru á SV- lands-úrvalinu, sem valið var fyrir skömmu og mætir Hell- as í dag í íþródtahúsinu á Keflavíkurtlugvelli, en lands- liðsnefnd upplýsti í gær, að Ragnar Jónsson, Sigurður Hauksson og báðir markverð- irnir — Hjalti og Guðmundur Gústafsson — yrðu ekki með í leiknum í dag en eins og kunnugt er áskildi landsliðs- nefnd sér rétt til að breyta liðinu þegar það var valið upp haflega SV-lands-úrvalið, sem leikur i dag er þannig skipað': Þorsteinn Björnsson, Á, Brynj- ar Bragasou Vík., Guðjón Jóns- son, Fram, Ingólfur Óskarsson, Frarn, Sigurður Einarsson, Fram, Karl lóhannsson, KR, Sigurður Óskarsson KR, Einar Sigurffsson, FH, Kristjan Stefánsson FH, Ilörð ur Kristinsson, Á, og Gunnlaugur Hjálmarssou. ÍR. Þegar litið er yfir liðið kemur í ljós, að í því leika sex leikmenn sem ekki -’oru með í landsliðinu í vetur Þetta verður fyrsti og eini leikur Svianna á stórum velli í förinni og eftir frammistöðu þeirra gegn Fram í fyrrakvöld að Hálogalandi veiður ekki annað séð, en leikur- inn ætti að geta orðið hinn skemmtilegasti, en styrkleiki Sví- anna ætti að aukast til muna á stórum veili Leikurinn hefst kl. 16.00 í íþróttahúsinu á Keflavíkurflug- velli og er forsala aðgöngumiða þegar hafin. en þá er hægt að fá í Bókaverziunum Lárusar Blöndal í Reykiavík og í Bókaverzlun Oli vers Steins í Hafnarfirði. Fram-Valur Eftir nokkra daga hlé, heldur Reykjavíkurmótið í knattspyrnu afram um belgina og fara fram tveir ieikir í meistaraflokki og tveir í 1. flokki. Á sunnudaginn kl. 14.00 mætast Fram og Valur í meistaraflokki í síðari umferðinni og mánudags- kvöldið leika KR og Þróttur og hefst sá loikur kl. 20,30. Báðir ieikirnir verða eflaust spennandi, einkum verður gaman að fylgjast rneð viðureign KR og Þróttar. í dag leika á Melavellinum í 1. f’okki KR og Valur og hefst leik- urinn kl. 14.00. Strax að þeim leik loknum mætast Fram og Þróttur — eða kl. 15.00. Leikur íslandsmeistara Fram og sænsku meistaranna Hellas í fyrrakvöld var oft hinn skemmtilegasti og mjög spennandi. Svíarnir sýndu ágætt línuspil og sýnir mynd- in til hliðar, þegar Thelander hefur fengið knöttinn sendan inn á línuna og skorar, en þrí- stirnið Guðjón, Ingólfur og Ágúst fylgíast með, án þess að 'á nokkuð að gert. — Fram 'ann leikinn eins og áður hef- ur verið sagf frá með fveim- ur mörkum, 18:16. TÍMINN, laugardaginn 11. maí 1963 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.