Tíminn - 14.05.1963, Qupperneq 9

Tíminn - 14.05.1963, Qupperneq 9
Gordon Cooper geimfari svarar spurningum blaðanna um flugið skipinu í Kyrrahafi og hin lak asta á Kanaríeyjum. — Vitiff þér, hvað þér eigið að hafa fyrir stafni, þegar sjón varpið myndar yður og endur- varpar til okkar á jörðu niðri? — Það verður að koma mér að óvörum. —f hnattferð Schirra varð eitthvert misræmi í líkamshita mælingunum á jörðu og í geim- farinu. Hvað hefur verið gert til að koma í veg fyrir þetta? — Eg held að fólk sé að sann færast um það, að skoðanir flug mannsins á því, sem fram fer hverjum áhrifum hann verður fyrir og hvernig honum líður, verði það, sem allt snúist um, og það mætti segja mér, .ið svo verði einmitt. — Hlakka dætur yð&r til geimflugsins? — Já, mjög míkið báðar, Camala, sem er 14 ára og Jan, sem er 13. — Hefur þessi töf vegna vand ræðanna með Atlas-flugskeyt- in valdið mörgum breytingum á geimferðarundirbúningi yð- ar? — Nei, við höfum haldið okk ar striki eins og ákveðið var. Töfin kom ekkert að sök. Hún gaf svigrúm til að gera ein- hverjar breytingar, ef þurft hefði. En undirbúningurinn breyttist ekkert. — Hvemig leggst í yður að verða síðaisti maðurinn, sean gegnir þessu hlutverki í Mer- cury-áætluninni? — Mér fannst strax í fyrstu, að þetta skipulagða verk nokk- urra manna væri stórkostlegt. Þetta hefur verið dásamlega vel út reiknað og þjálfuð sam- vinna um þessar geimferðir. Á bak við okkur fáu, sem fljúg- um, vinna margir aðrir starfs- hópar, hundraða verkfræðinga og tæknifæðinga. Þetta er raun ar verk, sem á rætur um allt landið og ekkert sérstakt metn aðaratriði fyrir fáeina menn. En ég hef haft mikla ánægju af að taka þátt í þessu. Það var frá fyrstu ákveðið, að ég ætti að sendast út í geiminn, og ég er feginn að komast nú lo'ks af stað. Hvort þetta verð- ur síðasta Mercury-geimferðin, það er ómögulegt að segja nú. — Setjum svo, að ferð yðar beri góðan árangur, hvaða álit hafið þér á eins manns Mer- cury-geimfl'ugi í framtíðinni? — Það er að sjálfsögðu kom- ið undir því, sem kemur á dag inn úr geimflugi mínu. Sann- leikurinn er sá, að við erum rétt að byrja að kanna það, sem við höfum fundið úti í geimnum. — Hve marga hringi ætlið þér að fara? — Mér er ætlað að fara að minn/sta kosti 22 hringi, en vonir standa tfl, að hægt verði að fara fleiri. Geimfarinn L. Gordon Coop- er Jr. átti fund með blaðamönn um á dögunum í geimferðar- og loftferðastöðinni í Houston í Texas og svaraði nokkrum spurningum viðvíkjandi geim- flugi því, er stendur yfir í dag. Fara viðræður þær hér á eftir. — Hvaða líkamlega þjálfun hafið þér fengið til undirbún- ings því að hafast við svona lengi í svo þröngri vistarveru? — í rauninni ekki annað en það sem ég geri að staðaldri. Eg er vanur að stunda ýmiss konar íþróttir, svo sem leik- fimi, hlaup og ekki sízt sund og fleiri vatnsíþróttir. í hnatt- fluginu sjálfu er mér ekki ætl- að að fást við neinar sérstakar líkamsæfingar. Samt hef ég meðferðis sams konar þjálfun- aráhald og John Glenn hafði með sér, og nokkrum sinnum á meðan á fluginu stendur hef ég yfir einhverjar æfingar til að liðka vöðvana. Gordon Cooper i geimfarinu fljúgandi myndavél. Eg hef meðferðis sjónvarpstökuvél, sem endurvarpar jafnóðum. Þá hef ég Hasselblad-myndavél með ýmist 70 mm eða 120 mm filmu tfl þrenns konar tflrauna fyrir Veðurstofuna, fyrir tækni háskólann Massachusetts Instit ute of Teohnology og til að taka myndir niður á jörðina, af jarð fræðflegum fyrirbærum. Sér- staka sverðbjarma-myndavél hef ég með 0,6 fókus linsu, 35 mm, einnig 16 mm fjölhæfa vél, sem bæði á að taka venju legar myndir og gera sérstakar tflraunir. Kvikmyndirnar verða allar teknar með hægum hraða. Þessi 16 mm myndavél er þann ig útbúin, að hún er slíkum tvöföldum hæffleikum búin að sjá bæði flugmanninn og taka myndir með 160 gráða linsu um allan stjórnklefann og út um gluggann, og sérstök firð- mynda-linsa fylgir henni. Þrjár stöðvar umhverfis hnöttinn taka á móti sjónvarpsmerkjum frá mér, Mercuryeftirlitsstöð- in á Canaveral-höfða hefur þeirra fullkomnust viðtæki. Hin næst fullkomnasta er á stjórn- — Ef allt gengur að óskum og 22 hringum er lokið, hve lengi endast yður í loftinu þær birgðir, sem þér hafið um borð? — Setjum svo, að ég byrjaði notkun þeirra undir eins og ég kemst á braut, héldi hóflegum flughraða og gerði engar tfl- raunir, notaði ekkert rafmagn og sparaði allt tfl hins ýtrasta, yrði mér mögulegt að fara 33 hringi, máske 34. En með því hins vegar að framkvæma allt það, sem mér er lagt á herðar, tflraunir, sem nauðsynlegt er að verja ýmiss konar eldsneyti í, þá fækkar það mjög þeim hnatthringum, sem ég get far- ið. — Er hjálmurinn á geimfara búninginum eitthvað frábrugð- inn því, sem áður hefur tíðk- azt? — Að nokkru, hann er útbú inn tfl að standast sérstaka loka tilraun. Þetta er lítils háttar breyttur Merkúr-hjálmur, mjög áþekktur Gemini-hjálmum, og sama er að segja um búninginn sjálfan. — Búizt þér við að geta sof- ið á leiðinni? — Eg stend í þeirri mein- ingu. Mér er ekki ætlað að nota neinar svefntöflur. Eg býst við að sofa ágætlega. Svo er komið fyrir innbyggðu vekj- arakerfi til að tæknifræðingar á jörðu niðri geti vakið mig. En mér eru ætlaðir átta klukku tímar tfl svefns. — Hvaða morgunverð fáið þér yður, þegar þér vaknið? — Það er matur, sem frystur hefur verið með nýrri aðferð og þegar er kominn á markað- inn, varðveitist mjög vel. Það sem ég fæ, verður rækjur, kjúklingakjöt með sósu og nautakjöt með sósu, það verður ekki amalegt. Og ég ræð því, hvað ég vel, þegar ég vakna. — Hvers konar ljósmyndun eigið þér að fást við á flug- inu? — Þessi farkostur mflrn verð ur eiginlega ein alls herjar og því einn bær á Ásmundarstöð um. Þórður byrjaði á að byggja fjárhúsið og gerði það að mestu er hann vakti yfir túni, og svo úti- húsin hvert af öðru, en fyrstu árin fékk hann að vera í baðstofunni hjá fóstra sínum. Svo fór fjölskyld an að stækka og þá varð að byggja baðstofu. Að öllu þessu vann Þórð ur að miklu leyti einn, nema það sem trésmiðum einum hæfði. Hann var ágætur byggingamaður og var hagur á gerð tófta af öllu tagi. Hann var laginn og góður verk- maður og undra afkastadrjúgur, | þó maðurinn sýndist helzt aldrei flýta sér, en handtökin voru viss og ákveðin, ekkert fum eða óþarfa vafstur, heldur allt hnitmiðað og komu því öll handtökin að notum. Var sama að hverju Þórður gekk, allt var fljótt og vel af hendi leyst. Minnist ég hans sem eins hins bezta heyskaparmanns eink- um þegar um þurrheysverkun var að ræða, þá var hann langt yfir meðallag, t.d. sætningamaður var hann afburða duglegur. En eitt er það sérstaklega, sem mér er minnisstætt í sambandi við Þórð Brandsson, en það er hin frábæra stilling hans og geðprýði. „í rósemi og gætni skal ykkur styrkur vera“, segir Jesajas spá- maður. Þessi heflræði hefur Þórð ur Brandsson tileinkað sér fremur en allfl aðrir, sem ég hef kynnzt. Eg var sambýlismaður hans í meira en 30 ár og aldrei heyrði ég hann æðrast eða verða uppnæm an fyrir neinu. Alltaf þessi sama I heflnspekflega ró,' ef svo mætti að orði komast. í öllum viðskiptum er hann mjög heiðarlegur og skflsamur, það sem hann lofar, stendur eins og stafur á bók, þar þarf engar undirskriftir eða votta. Þórður er vel greindur og sérstaklega orð- heppinn og segir margt, sem í minnum er haft. Hann átti góða hesta og reið þá stundum hratt, einkum ef hann hafði fengið ofur- lítið í staupinu. Það hefur margt breytzt á Ás- mundarstöðum síðan Þórður var að byggja sitt fyrsta fjós í hjá- verkum með túnvörzlunni, ,því nú búa tveir synir hans á hálflend- unni myndarbúi og auka ræktun og húsabyggingar hröðum skref- um. Börn Þórðar og Guðbjargar eru: Páll vélvirki í Þorlákshöfn; Valdimar, trésmíðameistari, Sel- fossi; Steinn og Geir bændur á Ásmundarstöðum, og Kristgerður, frú á Hamri, Barðastrandarsýslu. Framhald á 13. slðu. T í M I N N, briðjiulagurinn 14. maí 1963. — 9

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.