Alþýðublaðið - 17.08.1940, Qupperneq 1
LAUGARDAGUR 17. ágúst 1940.
188. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
á Lo
Lofíái
gær sem eKKe
Þýzku flugvélarnar sneru aftur, pegar
þær sáu flugflota Breta yfir borginni.
*£> ERLÍNARÚTVARPIÐ sagði frá því með brauki og
bramli síðdegis í gær, að verið væri að gera stórkost-
lega loftárás á London og flutti hverja fréttina af henni
eftir aðra.
En fólkið í London varð ekki mikið vart við þá árás.
Aðvörun um loftárás var þó gefin og útvarpið í London
stöðvaði útsendingar rétt eftir klukkan 4 í eina eða tvær
mínútur. En loftárásin kom ekki. Þýzku árásarflugvélarnar
fóru ekki lengra en að úthverfum borgarinnar. Þar sneru
þær við, þegar þær sáu, að loftið var svart af svífandi
brezkum orustuflugvélum yfir milljónaborginni.
Aðeins nokkrum sprengjum var varpað niður við út-
hverfi borgarinnar að suðvestan og varð af þeim lítið tjón.
í morgun íalar Berlínarútvarpið ekki um neina loftárás á
liondon í gær, heldur aðeins um það, að árásir hafi verið
gerðar á umhverfi hennar.
Einn af hinum frægu loftvarnabelgjum Breta á bökkum Tamesár,
rétt hjá Löndon. Þeir hindra þýzkar árásarflugvélar í því að
fljúga lágt, því að þær eiga á hættu að rekast á þá. Loftvarna-
belgirnir eru Þjóðverjum mikill þyrnir í auga, og þeir gera
sér mikið far um að reyna að skjóta þá niður.
Kafbátaárásir iialda
fram á grísk sklp.
úær ^erðu Ítaíir
i m m r w •
Brððabirgðalðfi í
dag am stattbylgjn
[ stöðvar.
RÍKISSTJÓRNIN gaf í
dag lit bráðabirgða-
lög, sem gera öilum mönn-
1; um, sem hafa undir hönd-
um stuttbylgjustöðvatæki,
að skyldu að skila þeim
!; tafarlaust til póst- og síma-
> málastjórnarinnar. Þung
refsing er lögð við, ef ekki
j> verður farið eftir þessum
lögum, og er refsingin á-
j! kveðin í 31. grein hinna
nýju hegningarlaga.
Skotæfingar næsti
daga.
BREZKA setuliðið hefir til-
kynnt áframhaldandi skot-
æfingar. Verða þær að jafnaði
kl. 10—12 á morgnana, og á eft-
irtöldum stöðum:
1. Á Seltjarnarnesi. Skotið fyr-
ir austan Ráðagerði í norð-
urátt til sjávar.
2. Austan við Hafnarfjarðar-
veg. Skotið um Vz km. fyrir
austan veginn, skammt frá
Kópavogi í austurátt.
3. í Breiðadal fyrir austan
Kleifarvatn.
4. í Kollafirði. Skotið upp í
Esju austan við Kollafjörð.
Skotæfingasvæðin eru merkt
með rauðum flöggum.
VEIR menn hafa nú verið
X handteknir vegna stutt-
bylgjuútvarpsstöðva og eru
þeir báðir í haldi hjá brezka
setuliðinu.
Sigurður Finnbogason, Eiríks-
götu 27 var tekinn fyrst, en á
miðvikudaginn var annar maður
tekinn á Akureyri, Þórhallur
75 pýzkar fliigvélar skot
narniðnroo 22 brezkar
75 þýzkar flugvélar voru
skotnar niður í loftárásunum á
Bretland í gær. Bretar misstu
ekki nema 22 og af flugmönnum
þeirra björguðust 10 niður í
fallhlífum.
Flestar loftárásirnar voru
gerðar á Suðaustur-England.
Flugvélar Þjóðverja komu í
minni sveitum en hingað til, og
dreifðu sér yfir ensku strönd-
inni, en voru alls staðar eltar
uppi af orustuflugvélum Breta.
Loftárásirnar byrjuðu laust eft-
ir miðdegi og tefldu Þjóðverjar
fram mörgum flugvélasveitum.
jLenti í bardögum við sumar áð-
ur en pær komust inn yfir Eng-
land og ein þeirra &neri við og
flaug á brott. Sptengjum var
varpað á ýmsa staði, við Tham-
esárósa, víða í Sussex, Essex og
Pálsson útvarpsvirki, sonur Páls
Skúlasonar kaupmanns. Var Þór-
hallur samstundis fluttur hingað
til bæjarins og tilkynnti bæjar-
fógetinn á Akureyri það hingað
til rikisstjórnarinnar.
Eins og Sigurður Finnbogason
hefir Þórhallur Pálsson áður ver
Frh. á 4. síðu.
fleiri greifadæmum og í suður-
hluta Wales.
Árásir vpru gerðar á nokkrar
bækistöðvar brezka flughersins og
skemmdust þar hús og einnig
varð nokkurt manntjón. I East-
bourne urðu skemmdir á húsum
og allmargir menn særðust, sum-
ir svo, að þeir biðu bana af .
Brezkar Ioftáráslr bæðl
á Þýzkaland og tfalin.
Brezkar sprengjuflugvélar
gerðu Loftárásir í fyrrinótt á
herstöðvar og verksmiðjur í Norð-
ur-ítalíu, m. a. á stálverksmiðju
í Genua, og nýjar árásir voru
gerðar á flugvélaverksmiðjurnar
í Turin qg Milano. Einnig voru
gerðar árásir á staði "í Ruhr og
víðar í Þýzkalandi. Mest tjón
varð af árásinni á Gelsenkirchen,
en hún stóð yfir í 2 klst. ]Einnig
varð mikið tjón við Dortmund.
Þá vqru gerðar árásir á hafnar-
mannvirki í Geldern í Hollandi,
*á herstöðvar þjóðverja í Norð-
ur-Frakklandi og víðar. ViðGeld-
ern var þýzkur flugbátur skotinn
niður.
Þá er þess getið að ný árás
hafi verið gerð á Krsuppverk-
smiðjurriar í Essep í Þýzkalandi.
Leifturstriðið gegn Bret
landi komið i aigleyming
Hátt settur yfirforingi brezk-
lur sagði í gæ\r í viðtali við frétta-
ritara „Deily Telegraph:“ Leift-
urstyrjöldin gegn Bretlandi er
komin í algleyming“. Lét her-
fioringinn í ljós niikla ánægju
yfir fnækilegri vörn flughersins.
Frh. á 3. síðu.
FLUGVÉLAR gerðu í gær á-
rás á tvo gríska tundur-
spilla, sem voru á leiðinni frá
Aþenuborg til eyjarinnar Kyt-
hos, þar sem gríska beitiskip-
inu „Helle“ var sökkt í fyrra-
dag. Tundurspillarnir urðu
ekki fyrir neinum verulegum
skemmdum.
Yfirmenn þeirra tilkynntu
strax eftir árásina, að flúgvél-
arnar hefðu verið ítalskar, og
hefir flotamálasérfræðingurinn
við sendisveit ítala í Aþenu nú
þegar viðurkennt það, og beðizt
afsökunar fyrir stjórn sína.
Sagði hann, að flugmennirnir
hefðu haldið tundurspillana
vera brezka.
1 gær bárust einnig fréttir um
það, að tvö grísk kaupför, sem
vioru á leiðinni frá Suður-Am-
eríku til Afríku, hefðu verið
skotin í kaf. Ókunnugt er með
öllu, hverrar þjóðar kafbátur var
að verki, en allt þykir benda
til þess, að hann muni hafa ver-
ið ítalskur. Níu menn af áhöfn
annars skipsins fórust, og nokkr-
ir særðust á hinu.
Itölsk blöð hafa enn í hótunum
við Grikki, en þeir eru hinir
rólegustu. Eitt gríska blaðið seg-
ir, að afstaða Grikkja sé alveg
ljós. Þeir vilji frið, en séu
reiðubunir að verja frelsi sitt og
sjálfstæði.
Tyrkir fylgiast nákvæmlega
með öllu sem gerist, enda eru
þeir skuldbundnir til þess að
hjálpa Grikkjum, verði á þá ráð-
izt.
Papen að verki.
Von Papen sendiherra Þýzka-
lands í Tyrklandi, ræddi í gær
við forseta Tyrklands í hálfa þlst.
Einnig ræddi hann við utanrík-
ismálaráðherrann. Stóð viðræða
sú í heila klukkustund.
'.Tyrkneski sendiherrann í Mosk-
va er kominri til Istanbul. Fer
hann þaðan til Ankara til þess
að gefa stjóm sinni skýrslu.
Amiar maður feklnn
vepa sendístððvar.
Maðurinn er Þórhallur Pálsson á Akur
eyri og er, hann nú kominn hingað.