Alþýðublaðið - 08.11.1940, Qupperneq 1
: STEFAN PETURSSON
UTtiKJf'ANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGUR 8. NÓV. 1940.
260. TÖLUBLAÐ
Verður loksins leitað ann~
að um efni til hitaveitunnar ?
--:----
¥erið er að gera úrslltatilraun til að fá efnið
frá Danmirku, esi litlar vouir um að pað takizt.
' A LLMIKLAR UMRÆÐUR fóru fram á bæjarstjórnar-
fundi í gær um hitaveitumálið.
Jón Axel Pétursson bar fram svohljóðandi tillögu fyrir hönd
Alþýðuflokksins:
„Bæjarstjórn felur borgarstjóra og bæjarráði að leita fyrir
sér í Englandi og í AmerMtu með það fyrir augum að hægt verði
að fullgera hitaveituna á þessu ári.“
Kosoing niðirjifnu
arnefndar í gær.
Sigurðnr Jónasson í stað fiunn
ars Tiioroddsen.
IGÆR fór fram á bæjar-
stjórnarfundi kosning á
fjórum mönnum í niðurjöfnun-
arnefnd. Tveir listar komu
fram, annar frá Alþýðuflokkn-
um með Ingimar Jónssyni og
Sigurði Jónassyni, og hinn frá
Sjálfstæðisflokknum með Sig-
urbirni Þorkelssyni, Gunnari
Viðar og Gunnari Thoroddsen.
Listi Alþýðuflokksins hlaut 6
atkvæði og listi Sjálfstæðis-
flokksins 9 atkvæði. Varð því
að varpa hlutkesti milli Sigurð-
ar Jónassonar og Gunnars Thor
oddsen og kom upp hlutur Sig-
urðar. Þar með er íhaldið aftur
búið að missa meirihluta í nið-
urjöfnunarnefnd, því að skatt-
stjóri er fimmti maður.
Kommúnistar greiddu at-
kvæði með lista Alþýðuflokks-
ins, en bæjarfulltrúar þeirra
virðast hafa fengið skömm í
hattinn fyrir, því að í dag er
þetta afsakað í blaði þeirra!
SKATTFRELSI togaraút-
gerðarinnar var énn til
umræðu á bæjarstjórnar-
fundi í gær og bar enn sem
fyrr mjög á skoðanamun
milli Alþýðuflokksins ann-
ars Vegar og Sjálfstæðis-
flokksins hins vegar.
Jón Axel Pétur^son hóf þess-
ar umræður og lagði fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
leita eftir því við togaraútgerð-
armenn, að þeir greiði í hæjar-
sjóð á þessu ári auk þess út-
svars, sem þeim er gert að
greiða, ca. kr. 20 000 af skipi
hverju, og verði þessu fé ein-
göngu varið til liafnarbóta fyr-
J. A. P. ræddi nokkuð um mál-
ið almennt. Hann sagði að ekki
væri hægt aö segja annað, en að
bæjarstjórn hefði sýnt mikla þol-
inmæði og hið sama mætti segja
Um borgara bæjarins. Ef vel hefði
verið, þá hefði bæjarstjórn átt
að hafa fyrir iöngu leitað fyrir
'Sér í Englandi og Ameriku um
möguleika á því að hægt vajri
að fá það efni híngað til lands,
sem vantaði til Jress að hita-
heitunni yrði lokið. Þetta hefir
ekki verið gert og er það mjög
miður. Ég hefi litla trú á því,
að hægt verði að fá þáð efni
sm liggur í Danmörku hingað
heim — og hefi ég raunar al-
drei haft trú á því. Það er stór-
hættulegt að draga þetta mál
lengur. Það er öllum ljóst, sem
fylgjast með gangi styrjaldarinn-
ar, að Bretar eru farnir að gera
ráðstafanir til stórfeldra skipa-
•kaupa í Ameríku og sjálfir hraða
|:eir skipasmiðum sínum sem mest
þeir mega. Þetta stafar af því,
ir mótorbátaútveginn í Reykja-
vík, enda komi jafnt fjárfram-
lag annars staðar frá til þeirra
framkvæmda. Enn fremur að
leita eftir því við útgerðarmenn
annarra skipa, að þeir leggi
fram tilsvarandi upphæðir í
sama skyni.“
J. A. P. kvað þessa tillögu
ekki koma fram að ófyrirsynju.
Áður hefir Alþýðuflokkurinn
borið fram álíka tillögu. Henni
var vísað til bæjarráðs, en þar
hefir henni ekki verið hreyft.
Nú er að sjá hvort nokkur viiji
er hjá meirihluta bæjarstjórn-
arinnar í þá átt að fá einhvern
hluta af hinum gífurlega gróða
, Frh. á 2. síðu.
að þeir þykjast sjá fram á það,
að þá muni vanta skip til hinna
miklu hergagna-, her- og mat-
vælaflutninga sinna á næstu ár-
Um. Vitanlega veldur þetta mikl-
Urn flutningaerfiðleikum fyrirhlut
lausu þjóðirnar og geysilegri
hækkuin á farmgjöldum. Við bið-
um því stórtjóm ef ekki er hafist
handa í hitaveitumálinu nú
þegar. Kolin virðast muni stíga
geypilega í verði á næsta ári
og yfirleitt allt sem flytja þarf
milli landa. Við Alþýðuflokks-
menn berum þessa tillögu fram
í þeim eina tilgangi að herða á
því að framkvæmdir verði hafnar.
Það má vera að eitthvert tjón
hljótist af því fyrir bæinn að
slíta samningum við Höjgaard &
Schultz, en ég hygg að tjónið
verði meira ef það verður ekki
gert og nú ekki hafist handa um
aðrar útveganir".
Bjarni Benediktsson flutti langa
ræðu urn málið. Hann skýrði frá
því, að allt frá því snemma á s.
I. vori hefðu staðið yfir látlausar
tilraunir með að fá efnið heim-
flutt frá Danmörku, en aldrei
hefði tekist að fá leyfi tveggja
ófriðaraðilja samtímis. Nú stæði
yfir síðasta tilraunin, sem jafn-
framt væri úrslitatilraunin. Hann
sagði, að sér væri Ijóst að hvað
úr hverju yrði nauðsynlegt að
hafa einhver önnur ráð en óhjá-
kvæmilegt væri að afstaðan milli
bæjarins og verktakans yrði ná-
kvæmlega rannsökuð. Ef úrslit
fást ekki í þessu máli fyrir næstu
mánaðamót verður að telja allar
vonir úti. Ég er x samvinnu við
ríkisstjórnina um þetta mál.
Þá skýrði borgarstjóri frá því
að verktaki hefði nýlega sent
bæjarstjórn greinargerð urn frarn-
kvæmdir hitaveitunnar. Sam-
kværnt henni er nú búið að vinna
hér fyrir um 2 millj. danskra
króna. Hér er ónotaö efni fyrir
um 750 þús. kr., en í vexti, tryg.g-
ingar og fleira er búið að greiða
um 450 þús. kr. Verðmæíi efnis-
ins, sem liggur í Kaupmannahöfn
er um 2,5 millj. danskra króna.
Yfirverkfræðingurinn telur að erf-
i.t muni síðar íueir að selja þetta
efni fyrir kosnaðarverð, ef það
Frh. á 4. síðu.
Skattfrelsi Mgerðarinnar til
imræðn á bæ]arsíj.hBi.
ibaldið vlidi elcki sanspykbla á*
skorniK til átggerðarxBAamiaa.
*>
Capitol, þinghúsið í Washington.
Meirlhluti Roosevelts
fjérar iiiill|. atkvæða.
IlssiagE er isí aftas* í Washingtom.
ROOSEVELT er nú koininn*
aftur til Washington frá
sveitasetri sínu í Hyde Park í
Hudson Valley, þar sem hann
dvaldi meðan forsetakosningin
fór fram. Hann var hylltur af
miklum mannfjölda við kom-
una.
Upptalningu atkvæða er ekki
alveg lokið enn, en í gærkveldi
var Roosevelt búinn að fá 26
milljónir atkvæða og Willkie 22
milljónir. Er búizt við að svip-
aður atkvæðamunur verði eftir
að upptalningunni er lokið.
Ickes innanríkismálaráðherra
Roosevelts, sagði af sér í gær,
til þess að gera Roosevelt auð-
veldara að gera þær breytingar
á ráðuneyti sínu, sem hann kynni
að óska, og er búist við, að aðrir
ráðherrar geri það sama.
Roosevelt hefir hinsvegar þegar
neitað að verða við lausnarbeiðni
Ickes, og mun hann því fara meÖ
innanríkismál Bandaríkjanna á-
fram.
Roosevelt rædidi í gær við Pur-
veys formann 'nergagnakaupa- •
nefndar Breta í Bandaríkjunum,
en hann er nú í förum loftleiðis
til Englands. Talið er, að vopna-
kaup Breta í BandaríkjunUm múni
nú fara stórkostlega vaxandi.
Stúdentaf élag Alþýðn
fl.manna var síofn-
að I gærkveldi.
GÆRKVELDI komu nokkr-
ir stúdentar saman í Bað-
stofu iðnaðarmanna og stofn-
uðu með sér Stúdentafélag Al-
þýðuflokksmanna.
' Félagið er deild úr Alþýðu-
flokksfélagi Reykjavíkur og
starfar á grundvelli þess, eins
og hann er orðaður í 2. grein í
lögum þess félags, „með því
sérstaka hlutverki að annast
fræðslustarfsemi, bæði al-
mennt, en þó einkum um þjóð-
mál. Auk þess hyggst félagið að
^tofna til umræðna meðal með-
lima sinna um þjóðfélagsmál,
eigi sjaldnar en einu sinni í
mánuði“.
í félaginu geta verið allir
þeir stúdentar, eldri og yngri,
sem fylgja Alþýðuflokknum að
málum og heima eiga í Reykja-
vík og Hafnarfirði eða dveljast
þar uin stundarsakir.
Á stofnfundinum voru sam-
Frh. á 4. síðu.