Tíminn - 01.09.1963, Blaðsíða 16
186. tbl. 47. árg.
Sunnudagur 1 sept. 1963
IAKRANESBÁTAR AFTUR NORÐUR
SV-Akranesi, 31. ágúst.
Tólf Akranesbátar hættu síld-
veiðum fyrir norðan og austan
14. ágúst s.l. og héldu til veiða
við Vestmannaeyjar. Bátarnir
hafa fengið samtals 30 þúsund
tunnur af síld á þessum slóðum,
en margir þeirra eru á leið norð
ur aftur, eftir að fréttast fór af
áframhaldandi veiði þar.
Bátarnir hafa ekki allir farið í
jafn margar veiðiferðir, og t.d.
hafa sumir aðeins farið eina ferð
og fengið l'ítinn afla, svo þessi
30 þúsund skiptast ekki jafnt nið-
ur á þá.
Síldin hefur verið mjög léleg,
mest megnis eintómt rusl, sem
allt hefur orðið að fara I bræðslu.
FREYR SELDUR A
30 MILUÓNIR
MB-Reykjavik, 31. ágúst.
Togarinn Freyr, efnn af stærstu
og fullkomnustu togurum íslendlnga,
hefur nú verið seldur úr landi og
eru kaupendur Ross-hringurinn
brezki. Togarinn mun lcggja úr höfn
á morgun og áhöfnin, sem siglir
honum út, er væntanleg í kvöld.
Söluverð er 250.000 £, eða um 30
mllljónir ísleinzkra króna.
Samningar hafa staðið yfir undan
farið milli Ingvars Vilhjáltnssonar
og hinna erlendu kaupenda, en sam
kvæmt ósk eiganda hefur Tíminn
ekki skýrt frá þeim, fyrr en nú.
Samningar verða væntanlega undir
ritaðir á mánudaginn, en forstjóri
hins brezka fyrirtækis kom hingað
til lands í gærkvöldi.
FREYR, RE 1, var smiðaður í
Bremerhaven árið 1960. Hann er
987 brúttólestir að stærð, eða jafn
stór togurunum Sigurði og Víkingi.
Hann var eign fsbjörnsins h.f.
Áhöfn sú, sem sigla mun Frey út,
kemur hingað til lands í kvöld með
fíugvél, og skipið mun sigla út héðan
strax á morgun. Verður þá einu glæsi
legu fiskiskipi færra í íslenzka flot-
! Sólarhrings afli MikiS brunati°"
með bezta mdti
FB-Reykjavík, 31. ágúst.
Sólarhlngsaflinn var með bezta
móti síðast liðinn sólarhring. Sam
tals 43 sklp fengu þá 34.400 mál
og tunnur. Skiptist aflinn þannig,
að 22 skip fengu rúmlega 22 þús.
mál og turvnur um 60—70 sjó-
milur norðaustur af Raufarhöfn.
Þar var sildin stygg og erfið við-
urelgnar. Þá fékk 21 skip 12,300
mál og tunnur 35 til 65 sjómílur
suöaustur af Gerpi,
í dag var saltað á nokkrum sölt
unarstöðvum á Seyðisfirði. Þar er
enn önnur söltunarstöð komin
með yfir 20 þúsund tunnur, og er
það að þessu sinni Ströndin. —
Hafaldan, sem lét salta í 20. þús
undustu tunnuna um sxðustu
hel'gi, hefur nú látið salta í rúm
lega 21 þúsund tunnur.
Framh a 15 síðu
/ gras
KH-Reykjavík, 31. ágúst
Eldur kom upp í grasmjölsverk-
smiðju SÍS á Stórólfshvoli í gær-
kvöldi og olli mikiu tjóni. Mikið
brann af ketilhúsi og móttöku-
húsi og véiar urðu fyrir miklum
skemmdum. Verksmiðjan verður |
óstarfhæf í eina til tvær vikur, |
meðan uunið verður afl viðgerðum. |
Um kluk.kan fimm í gærdag var |
siökkviliðið á Hvolsvelli hvatt að
grasmjölsverksmiðju SÍS á Stór-
ólfsvelli. Þegar þag kom á vett-
vang virtis*. eldur orðinn magnaður
og var koncnn í veggi og þak húss
irs. Rafmagnstafla var brunnin og
skilrúm miiii ketilhúss og móttöku
húss. Slokkviliðinu tókst að
slökkva e dinn á u. þ. b. klukku-
stund.
Blaðið átti tal við Jóhann Frank-
son, forstjóia grasmjölsverksmiðj-
unnar í dag, og sagði hann, að ljóst
væri, ag kviknað hefði í út frá
afmagnstöflunni, sem væri ger- aí ketilhusinu og veggir skemmd-
ínýt. Vinna var enn í gangi, þeg-
ar eldurinn kom upp, en búið að
siökkva á vélunum. Rafmagns-
iciðslur eru eyðilagðar, og miklar
skemmdir urðu á vélum. Þak féll
ust mikið, einnig urðu miklar
skemmdir á móttökuhúsinu. Ann-
ars kvaðst Jóhann ekki geta full-
yrt neitt um tjón, fyrr en trygg-
hTamh á 15. síðu
Árbæjarsafpið
fær brúðusafn
HF-Reykjavík, 31. ágúst.
Nú fer að verða hver siðastur, ef
hann ætlar að fá sér kaffisopa I
Árbæ og skoða gamlar mlnjar úr
Reykjavlk á þeim góðviðrlsdögum,
sem eftlr eru af sumrinu. Safninu
verður nefnllega lokað 15. septem-
ber, og er það nokkru fyrr en á síð-
asta árL
Aðsókn að safninu hefur aukizt
mjög mikið í sumar og er jafnvel
orðin meiri á virkum dögum en helg
um. Kaffisalan í Dillonshúsi hefur
notið mikilla vinsælda, enda veiting
ar góðar og þjónusta lipur.
Nokkrir nýir munir hafa bætzt
í Árbæjarsafnið á liðnu starfsári og
Framh a 15 siðu
Maöur fórst af
bátnum sem sökk
MB-Reykjavík, 31. ágúst
Það slys varð síðastliðna nótt,
að vélbáturinn Leifur Eiriksson
RE 333, fórst á sfldarmiðunum
fyrir norðaustan land og með
honum einn skipverji, Símon
Símonarson, háseti, Grettisgötu
57 B, Reykjavík. Skipið sokk á
mjög skömmum tíma.
Það mun hafa verig um kl.
tíu í gærkvöldi, að Leifur Ei-
ríksson var að háfa síld, um
80 mílur ANA af Raufarhöfn.
Sjór var nokkug þungur. Þegar
talsvert síldarmagn var komið
í lestar skipsins, fékk það sjó
á sig og lagðist undan honum.
Mun síldin í lestum skipsins
hafa kastazt til við það og skipti
engum togum, að skipig lagðist
alveg á hliðina og sökk.
Tími vannst til að senda út
neyðarkrtll og heyrðu nálæg
skip það og héldu tvö þeirra
þegar á vettvang, Jón Finnsson
úr Garði og Sigfús Bergmann
úr Grindavík. Bjargaði Jón
Finnsson átta mönnum úr gúm-
bát Leifs Eiríkssonar og Sigfús
Bergmann tveimur úr léttibát
Leifs. Vantað'i þá einn skipverja
Símon Símonarson, háseta
Grettisgötu 57 B, Reykjavík.
Var hans leitað á slysstaðnum
í nótt, er. án árangurs.
Skipstjóri á Leifi Eiríkssyni
var Sverrir Bragi Kristjánsson,
skipstjóri á Jóni Finnssyni er
Gísli Jóhannesson, en skip
stjóri á Sigfúsi Bergmann er
Helgi Aðalgeirsson. Kom Jón
Finnsson væntanlegur til Seyð
isfjarðar klukkan rúmlega 16
í dig með skipbrotsmenn.
Leifur Eiríksson, RE 333 var
92 tonna eikarbátur, smíðaður
í Svíþjóð 1947. Tvö systurskip
hans hafa áður farizt í hafx,
Hólmaborg, sem týndist með
allri áhöfn og Helga RE, sem
hvolfdi með síldarfarm, en
mannbjörg varð (gamla Helga).
Virðist því ekki ástæðulaust að
athuga þau systurskip, sem enn
eru ofansjávar, og mun nýskip-
uð sjóslysanefnd vart láta það
hjá líða.
a