Tíminn - 04.09.1963, Síða 3
TÍÐ BARNAMORÐ VEKJA ÓHUG í SVÍÞJÓÐ
Lögreglan á slóð kyn-
óða barnamorðingjans
NTB-Stokkhólmi, 3. sept.
Mörg hundruð lögreglumanna héldu í dag uppi gífurlega
umfangsmikilli leit að kynóða glæpamanninum, sem í gær-
kvöldi réðist á fjögurra ára gamla telpu, Ann-Kristin Svens-
son, í skemmtigarði einum í Stokkhólmi, nauðgaði henni og
misþyrmdi hroðalega á annan hátt oa skyidi eftir í blóði sínu.
Litla stúlkan fannst meðvitundarlaus skömmu síðar og lézt
á skurðarborði í gærkvöldi án bess að komast til meðvitundar.
Margt bendir til, að ódæðis-
maðurinn sé hinn sami og myrti
sex ára stúlkubarn, Berit Glesing
fyrir nákvæmlega þrem vikum í
öðrum skommtigarði skammt frá.
Rannsókn lögreglunnar miðast
við, að um sama mann sé að
ræða í báðum tilfellum, enda þótt
hún útiloki ekki þann möguleika
að um tvo kynóða glæpamenn
sé að ræða.
Um 440 þúsund krónur hafa
verið settar til höfuðs glæpa-
manninum eða glæpamönnunum
og berast lögreglunni sífellt upp
lýsingar, sem verða henni að liði
í hinni umfangsmiklu rannsókn.
í gærkvöldi má segja, að allt
rannsóknarlögreglulið Stokk-
hólms hafi verið önnum kafið við
að afla og vinna úr upplýsing-
um, sem að gagni mættu koma
og fjöldi fyrri afbrotamanna var
yfirheyrður, en án verulegs ár-
angurs. Lögreglan hefur fengið
mjög góða lýsingu á glæpamann-
inum frá tveim drengjum, sem
voru að leik með Ann-Kristin í
Blommensbergs-garðinum í bæj-
arhlutanum Aspudden, síðdegis
í gær, er morðið var framið.
Samkvæmt lýsingu drengjanna
mun ódæðismaðurinn vera 40—49
ára að al'dri, 175—180 sm. að hæð
og með mjög stórt nef. Maðurinn
var í brúnum nælonfrakka og
með rauð-brúnan hattkúf. Þótt
þessi lýsing sé í mörgum atriðum
frábrugðin lýsingunni. sem lög.
reglan fékk á „Brúnklædda mann
inum“, sem myrti Berit Glensing
fyrir þrem vikum, er samt margt
sem bendir tjl, að um sama morð
ingja sé að ræða í bæði skiptin,
að lögreglan hagar leit sinni sam-
kvæmt því.
Fyrir utan það, að morðin tvö
voru framin um hábjartan dag,
í skemmtigarði, á sama vikudegi
og nauðgunartilraun gerð í bæði
skiptin, voru börnin á likum
aldri, en sá er munurinn, að
morðinginn hafði dregið Berit
litlu gegn vilja sínum inn í runn
ana, en Ann-Kristin hafði farið
af fúsum vilja, eftir að „Brún-
klæddi maðurinn hafði heitið
henni sælgæti og öðrum góðgerð-
um.
Áðurnefndir leikfélagar Ann-
Kristin hlupu strax heim, er þeir
sáu manninn fara með Ann litlu
inn í runnana og sögðu mæðrum
sínum frá því er gerzt hafði. Önn-
ur mæðranna kom á vettvang að-
eins tíu mínútum síðar, en þá
var Ann svo illa leikin, að hún
Framh a 15. síðu
Tvö svívirðileg barnamorð,
sem frrmin hafa verið í Stokk-
hólmi tntð aðeins þriggja vikna
millibili hafa vakijy mikinn ó-
hugnað meðal fólks í Svíþjóð.
Morðum þessum svipar svo
mjög hvors til annars, að lög-
reglan telur, að um sama morð
ingja sé að ræða í báðum tll-
felluin, en þrátt fyrir góðar
lýsingar á manninum, sem vitni
hafa gi'fið, hefur umfangsmikil
Ieát enn ekki borið árangur.
Á mánudaginn fyrir þrem vik
um fannst iítil stúlka, Berit
Glesing að nafni, myrt í skóg-
arrunna I Stokkhólmi og ná-
kvæmlega þrem vikum síðar
finnst i'nnajj stúlkubarn, Ann-
Kristin Svensson, 4 ára, nær
da.uða en lífi í skógarkjarri í
skemmtigarði, sem aðeins er
um 5 km. frá garðinum, þar
sem stúlkan fannst. f bæði
skiptin hafði verið gerð tilraun
til nauðgunar og börnunum mis
þyrmt hroðalega. Berit litla var
látin, er hún fannst, en Ann-
Kristin lézt á sjúkrahúsi í gær-
kvöldi af völdum áverkanna.
Bæði vcru morðin framin um
hábjartan dag í fjölförnum
skemmtigörðum. — Eins og
Tíminn skýrði frá í gær var
nær ailt lögreglulið Stokkhólms
hvatt út til að Ieita morðingj-
ans .
Ófriðarástand í Alabama
NTB-Tuskegee, 3. september.
f Meira en 200 vopnaðir ríkislögreglumenn í Alabama,
ásamt fjölda ríðandi lögreglumanna hindruðu í dag
bæði kennara og skólabörn í að komast inn um skóla-
hlið unglingaskólans í Tuskegee, sem ríkisstjórinn í
Alabama, hinn alræmdi George Wallace, hafði látið
loka til að koma í veg fyrir skólasetu 13 svertingja-
barna. sem skráð voru til skólagöngu.
k- Frá Washington berast þær fregnir, að Kennedy, Banda-
ríkjaforseti, hafi snúið heim frá sumardvalarstað sín-
um á Cape Cod, vegna hins alvarlega ástands, sem nú
hefur skapazt í Alabama. Enn hafa hins vegar ekki bor-
izt fregnir af því, að sambandsstjórnin hafi gert nein-
ar ráðstafanir til þess að skólinn í Tuskegee geti hafið
starfsemi sína eins og aðrir skólar.
Samkvæmt skipun ríkisstjór-
ans í Alabama var engum
hleypt inn í skólann í Tuskegee,
nema SKÓlastjóranum.
Seint í dag bárust fréttir af
þvi, að George Wallace hefði
sent nokkra lögreglumenn,
sem setið nafa um skólann
í Tusicegee til Birmingham, þar
sem nokkrir skólar áttu að
hefja siarfsemi sína í dag og
svört börn m. a. ag hefja skóla-
göngu.
Haft er eftir þekktum banka Tuskegee.
stjóra í Tuskegee, að yfirgnæf-
andi meirihluti bæjarbúa séu
andvígir aðgerðum ríkisstjór-
ans og‘ hyggist nú höfða mál
gegn honum fyrir þessar aðfar-
ir.
Á myndinni sést lögreglumaður geysast á Hestl gegn hópl svartra barna, sem mótmæltu lokun skólans í
Frá Charleston í Suður-Karól
ínu berast þær fregnir, ag kenn
arar og nemendur skóla eins
hafi yfirgefið hann í skyndingu,
vegna þess, að hringt hafði ver-
ið til skólans og skýrt frá því,
að tímasprengju hefði verið
komið innan veggja hans.
Vig húsrannsókn fannst eng-
in sprengja. Viða annars stað-
ar kom til lítilsháttar óeirða í
sambandi við opnun skóla og
var lögregla víðast hvar á varð-
bergi.
FANGAUPPREISN BÆLD NIDUR MED TARAGASI
NTB-Reidsville, 3. sept. Um 2000 fangar í ríkisfang- elsinu í Reidsville í Georgíu gerðu í dag uppreisn, eftir að fangaverðir höfðu hindrað flóttatilraun nokkurra fanga um morguninn. Liðsveitir úr ríkislögreglunni voru kallaðar á vettvang og eftir nokkur á-
PRINSESSAN ÆTIAÐI AÐ SVIPTA SIG LÍFI t • ■
NTB-Feneyjum, 3. september. Hin 42 ána gamla Grikkja-prins- essa, A'lexandria, eiginkona júgó- slavneska uppgjafakonungsins Pét urs, kom til meðvitundiar á sjúkra húsi í Feneyjum í nótt, en hún hefur leglð meðvitundariaus síðan á sunnudag, er hún tók inn of mlk ið af svefnlyfjum i þeim tilgangi að stytta sér aldur, ag því að tallð er. Um tíma var mjög óttazt um líf hennar, en er hún vaknaði til með vitundar I nótt, lýstl hún yfir gleði sinni yfir að vena á lífi og þakkaðl læknunum aðstoð þeirra, að því er talsmaður sjúkrahússlns sagði í dag. Búast læknarnlr við, að hún útskrifist af sjúkrahúsinu innan fárra daga. í dag komu eig- inmaður henniar og sonur, Alex- ander, í heimsókn á sjúkrahúsið, en þeir höfðu ekk.1 búizt við að sjá Alexandriu framar á lífi.
tök við fangana, þar sem skot-
vopnum og táragasi var beitt,
tókst að koma nokkurn veg-
inn á röð og reglu, en í gær-
kvöldi var loft þó lævi blandið.
í ríkisfangelsinu í Reidsville eru
um 3000 fangar, bæði svartir og
hvítir. Flóttatilraunin, sem var or-
sök uppreisnarinnar, var gerð í
birtingu í morgun. Þrem föngum
tókst að yfirbuga jafnmarga fanga
verði og var einn þeirra stunginn
til bana með heimatilbúnum hníf.
Síðan klæddust fangarnir fötum
varðanna, en áður en þeim tækist
að komast út úr fangelsisgarðin-
um í dularklæðum, kom fjórði
vörðurinn á vettvang og er hann
sá, hvers kyns var, hóf hann skot-
hríð á fangana úr haglabyssu.
Tveir fanganna særðust og gáfust
þeir strax upp. Af ótta við frek-
ari aðgerðir fanganna var þeim
skipað að halda úr matsal til klefa
sinna, en þeirri meðferð vildu
nokkrir þeirra ekki hlýða og réð
ust til atlögu gegn vörðunum. Sló
í harða brýnu, en er liðstyrkur rík
islögreglumanna kom á vettvang
með táragassprengjur, tókst að
brjóta uppreisnina á bak aftur.
TÍMINN, miðvikudaglrtn 4. september 1963
3