Tíminn - 04.09.1963, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.09.1963, Blaðsíða 7
Útgefindi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Tómas Arnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- lands. t lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Að vekja tiltrúna í forustugrein Mbl. í gær eru endurprentuð eftirfarandi ummæli, sem birtust í Tímanum á sunnudaginn var: „Menn óttast aS stjórnarstefnan leiði til sívaxandi verð- bólgu og dýrtíðar og keppast því við bvers konar fram- kvæmdir og bílakaup. Allir vilja vera búnir að koma sínu á þurrt áður en meiri hækkanir verða. Það er þessi ótti við verðbólguna, þessi vantrú á stjórnina, sem veldur ofþenslu nú.“ Hið ánægjulega skeður, að Mbl. viðurkennir að þessi ummæli séu rétt. En í framhaldi af þeim, beinir Mbl. þeirri fyrirspurn til Tímans, hvaða ráð hann kunni til að vinna gegn ofþenslunni. Þessu er raunar svarað í þeim ummælum Tímans, sem Mbl. birtir. Þar er sagt, að ofþenslan stafi af vantrú á stjórnarstefnuna — vantrú á íjármálakerfið. Af þessu leiðir, að það sem þarf að gera er íramar öllu öðru að vekja tiltrú — tiltrú til stjórnarsteínunnar og fjármála- kerfisins. Af hverju stafar vantrúin til stjórnarstefnunnar og fjármálakerfisins? í stuttu máli af þvi, að stjórnin hefur tekið hverja kollsteypuna annarri meiri, sem hafa leitt til stórfelldustu verðhækkana og síðan til kauphækkana og þar á eftir til víxlhækkana. Hér er átt við gengisfell- ingarnar 1960 og 1961, stórfellda hækkun tolla og sölu- skatta og vaxtaokrið. Menn óttast að stjórnin taki ein- hverja slíka kollsteypu aftur, t. d. iækki gengið, hækki söluskatta eða hækki vextina. Þetta myndi leiða til nýrra verðhækkana, kauphækkana og víxlhækkana. Óttinn við þetta veldur því, að menn vilja koma peningum sínum í einhver föst verðmæti áður en næsta verðhækk- unaralda ríður yfir. Til þess að vinna gegn þessum ótta, þarf umfram allt stefnubreytingu. í stað þess að láta rikisvaldið hafa forustu um þessa hækkunarstefnu, þarf ríkis- valdið að hafa forustu um að stöðva hana með því að ganga á undan og gefa þannig öðrum fordæmi. Það, sem ríkisstjórnin og þingið þurfa að segja nú og standa við, er þetta: Við ætlum ekki að lækka gengið, ekki að hækka tolla og skatta, ekki að hækka vextina — við ætlum ekki að gera neinar hækkunarráðstafanir. Þvert á móti ætlum við að byrja að klifra niður dýrtíðar- stigann með lækkunaraðgerðum Við ætlum að lækka vextina og við ætlum að lækka vissa tolla- og skatt- stiga, en þetta er ríkinu unnt veana þess, að af völd- um verð- og kauphækkananna að undanförnu munu ríkistekjurnar vaxa meira af sjálfu sér en ríkisútgjöld- in, þótt þau hækki einnig nokkuð. Með slíkum stöðvunar- og lækkunaraðgerðum hins opinbera myndi smám saman hverfa óttinn við vaxandi verðbólgu og dýrtíð af völdum cpinberra aðgerða. Stétt- irnar yrðu hófsamari í kröfum sínum, þegar þær sæju, að breytt hefði verið um stefnu hins opinbera. Fjármála- kerfið myndi öðlast. tiltrú á ný. Menn kepptust ekki eins við að ljúka ýmsum verkum eða mnkaupum af ótta við pýja verðbólguskriðu. Það er aðeins með slíkum aðgerðum, sem hægt er að endurreisa þá tiltrú, sem nú vantar og við þörfnumst mest, ef ekki á að halda lengra út 1 íjármálalegt öngþveiti. Gengisfelling, vaxtahækkun, eða tollshækkun myndi hins vegar verka eins og að ausa olíu á eld Enn myndi allt hækka, ný verðbólguskriða fara af stað Vonanrli verða valdamenn okkar ekki svo gæfulitlir að flana út í slíkt. ivbii mótstöðumenn Nassers El-Hafes, nýr einræðisherra í Sýrlandi, og El Badr, fyrrv. kóngur í Jemen HJÁ FÁUM stjórnmálaleið- togum hafa skipzt á skin og skuggar öllu oftar en hjá Nass- er forseta Egyptalands. Einn daginn hefur virzt eins og hon- um væri að heppnast að ná því takmarki sínu að sameina fleiri Arabaríki um merki gitt. Rétt á eftir hefur hann virzt eins langt frá því og verið gat. Fyrir rúmu ári voru horfurn- ar litlar á því, að sameining Arabaríkjanna myndi takast. Sýrland hafði slitið tengslin, sem um skeið tengdi það stjórn- arfarslega við Egyptal'and, og Jemen, sem einnig hafði haft náin tengsli við Egyptaland, hafði fengið nýjan konung, sem hafði snúizt gegn Nasser eftir að hafa verið honum hliðhollur meðan hann var krónprins. Tæplega hálfu ári síðar var þetta gerbreytt Nasser í hag. Baathistar, er hafa beitt sér fyr ir nánum tengslum Sýrlands við Egyptaland, höfðu brotizt til valda í Sýrlandi og Uðsforingi, sem var aðdáandi Nassers, hafði í brotizt til valda i Jemen og steypt konunginum þar af stóli. Allt benti til, að Sýrland og Jemen yrðu á ný náin banda- lagsríki Egyptalands. Nú er þetta breytt aftur. Sýr land hefur eignazt nýjan ein- ræðisherra, sem auðsjáanlega er ekki auðsveipur Nasser, og hefur því enn ekkert orðið úr samningum um nánari tengsli Egyptalands og Sýrlands. Kon- ungur í Jemen, sem haldið var í fyrstu að fallið hefði í upp- reisninni í fyrra, koms' undan og heldur uppi öflugri mót- spyrnu í Jemen Stjórnin þar er mjög ótraust í sessi og væri ef til vill fallin, ef hún nyti ekkj beinnar hernaðarlegrar aðstoð- ar Nassers. ÞAÐ ER orðið ljóst, að stjórnin í Sýrlandi er að mestu AMIN EL-HAFES í höndum eins manns, Amin el- Hafes hershöfðingja, sem jafn- framt er formaður byltingar- ráðsins, en það svipar til þess að vera forseti landsins. Amin el-Hafes er lítið þekktur og ber heimildum t. d. alls ekki sam- an um aldur hans. Sumar telja hann 52 ára, aðrar rétt fertug- an, en oftast er hann talinn 49 ára. Faðir hans var umboðs- maður ýmissa amerískra fyrir- tækja í Damaskus. m. a. fyrir Westinghouse. Eftir að hafa náð gagnfræðaprófi, var el-Haf- es barnakennari um skeið, en gekk síðar í herinn og náði þar foringjatign. Hann var sá liðs- foringi Sýrlendinga, er þótti s'anda sig bezt í stríðinu við Tsrael. Hann gek-k ungur í flokk Baathista, sem hefur haft sam- einingu Araba og sósíalisma á stefnuskrá sinni. Eftir samein- ingu Egyptalands og Sýrlands 1958. stundaði hann um skeið nám á herforinsjaskóla í Kairo Þegar andstæðingar Nassers brutust til valda í Sýrlandi þremur árum síð^r og slitu tengslin við Egyptland. sendu beir el-Hafes i eins konar ú‘- leeð. Hann var fyrsf hernaðar- legur ráðunautur við send^ráð Svrlands í Madrid og síðar í Buenos Aires Þar var hann, heear Baathistar brutust til valda í Sýrlandi í marz s. 1. Þeir kvöddu hann strax heim og gerðu hann að innanrík'sráð- herra. Síðan hafa völdin færzt meira og minna í hendur hans og þykir nú lióst. að hann sé raunverulega einræðisherra l.andsins. MARGT BENDIR til, að el- Hafes sé harður í horn að taka Byltingar hafa verið tíðar í Sýrlandi, en blóðsúthellingar jafnan litlar í sambandi við þær. Oftast hefur verið látið nægja að vísa úr landi þeim. sem hafa beðið lægri hlut. El- Hafes fór hins vegar allt öðru vísi að, þegar fylgismenn Na-ss- ers gerðu byltingartilraun i sumar. Hann lét herrétt dæma alla helztu leiðtogana til dauða og lét framfylgja dómunum tafarlaust. Þegar Nasser hugð- ist nota þetta til áróðurs gegn honum, greip el-Hafes td ráðs, sem löngum hefur gefizt vel undir slíkum kringumstæðum. Hann hóf skærur á landamær- um ísraels. Að vanda lýstu þá öll Arabaríkin stuðningi við Sýrland og Nasser varð að draga úr áróðrinum gegn el- Hafes, því að Arabar þol'a ekki áróður gegn arabiskum forustu manni meðan deila stendur yfir milli hans og ísraels. Fljó'.t eftir að Baathistar kom ust til valda í Sýrlandi í marz s. L, hófust samningar um nýja sameiningu eða nána samvinnu landanna. Þessir samnjngar hafa ekki borið árangur enn og liggja nú að mestu niðri. Ástæð an er sú, að el-Hafes telur Nasser ætla Egyptum of mikil yfirráð. El-Hafes hefur fram að þessu látið litjð bera á sér opinber- lega. Hann sést sjaldan á mannamótum og neitar blaða- mönnum um viðtal. Þeir, sem vel fylgjast með, telja hins veg ar ótvírætt, að hann sé harð- fengasti forustumaðurinn, sem Sýrland hafi eignazt, og það geti breytt miklu, ef honum tekst að festa völd sín. Jafnvíst þykir og það, að Nasser muni ekkert láta ógert til að steypa honum úr stóli NASSER HEFUR hins vegar reynt það í Jemen, að ekki er nægilegt að flæma andstæðing frá völdum, ef ekki tekst jafn- framt að ganga af honum dauð- um, eins og Feisal konungi í írak og eftirmanni hans, Aref einræðisherra. í Jemen komst konungurinn undan tú Saudi- H Arabíu, þar sem hann dvaldi B um hríð. Ýmsir ættflokkar í H Jemen reyndust honum trúir H og hefur hann komið upp all- 1 öflugri mótspyrnuhreyfingu, er H hann veitir forustu. Seinustu g mánuðina hefur hann dvalið í B Jemen og virðist hafa allmörg B héruð á valdi sínu. Sumir kunn g ugir telja, að hin nýja stjórn § í Jemen væri fall.in. ef Nasser fi hefði ekki sent allfjölmennt f herlið henni til hjálpar. Fyrir J atbeina S. Þ. komst á samkomu fi lag milli stjórna Egyptalands § i'Z Saud'-Arabíu um. að þær fi skyldu hætia stuðningi við S deiluaðila í Jemen, og skyldu M fulltrúar frá S Þ fylgjast með | því, að þetta samkomulag yrð> B haldið. Það þykir nokkurn veg S inn víst. að báðar ríkisstjórn- H irnar hafi meira og minna svik- ið þetta og eftirlit S. Þ. að M verulegu leyti brugðizt, enda hefur yfirmaður þess, Svíinn I-Iorn greifi. sagt af sér í mót- mælaskynj. Ekki er því séð enn fyrir endalok borgarastyrjald- ar þeirrar, sem nú geisar í Jemen. Miklu meiri seigla virð- ist vera í hinum valdsvipta kon ungi Jemens en Nasser virðist hafa átt von á, enda hafði hann lítið að segja meðan faðir hans iifði og gaf sig meir að skemmt analífj en stjórnarstörfum, Hann virðist nú una vel hinu örðuga hlutverki skæruliðans g og uppreisnarmannsins Þótt hann nái ekki völdum að nýju, getur hann átt eftir að gera Nasser erfitt fyrir en hemaðar leg aðstoð hans við nýju stjórn ina hefur þegar kostað Egypta stórfelld útgjöld og talsvert ' manntjón, sem ekki er vinsælt fji heima fyrir. Þ. Þ. fi T f M I N N , miðvikudagirtn 4. september 1963 /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.