Tíminn - 24.09.1963, Síða 7

Tíminn - 24.09.1963, Síða 7
Útgefencfl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason _ Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábi. Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson, Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu. slmar 18300—18305 Skrif stofur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl., sími 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300 Áskriftargjald kr 80,00 á mán. innan- lands í iausasölu kr 4.00 eint - Prentsmiðjan EDDA h.f — Þögnin um hækkun beinu skattanna Almenningi þykja það töluverð tíðindi og ekki sem bezt, að framfærsluvísitalan skuli hafa hækkað um 5 stig á einum mánuði. En þó þykir mönnum eftirtektarverðast, að nær þrjú stig þessarar hækkunar skuli — samkvæmt skýrum töl- um og tilkynningu hagstofunnar — stafa af hækkun beinna skatta. Þetta er og merkiiegast fyrir þá sök, að ríkisstjórnin hét því að lækka beina skatta, hefur hælt sér mjög af því að hafa gert það, jafnvel því sem næst af- numið tekjuskatt. Samt birtist mönnum sú óhagganlega staðreynd á haustdögum 1963, að beinu skattarnir hafa hækkað svo á þessu ári, að vísitalan hleypur upp um nær þrjú stig þeirra vegna. En til eru þeir aðilar í landinu, sem láta svo sem þessi hækkun beinu skattanna sé lítil frétt. Það eru stjórnar- blöðin og ráðherrarnir. Þar er þagað þunnu hljóði um fyrirbærið, og hefði þó mátt vænta þar einhverrar skýr- ingar á tilkomu þess umskiptings, sem allt í einu birtist þjóðinni úr ráðuneyti Gunnars Thoroddsens. Þarna virð- ast hafa orðið einhver smávegis mistök, og lækkunin marglofaða er allt í einu orðin hækkun. og hafa beinu skattarnir, sem áttu að vera nærri því horfnir, þá. hækkað vísitöluna alls um ein fjögur stig. Hvað ætla stjórnarblöðin að þegja lengi? Ætla þau ekki að gefa þjóðinni neina skýringu á þessu? Á að reyna að þegja þetta í hel og byrja svo aflur eftir tvo eða þrjá mánuði á því að hæla sér af því, hve beinu skattarnir hafi læk'kað mikið? Lækka flugfargjöld Fregnir herma, að þýzka flugfélagið Lufthansa ætli að stórlækka flugfargjöld sín yfir Atlantshaf á næsta vori. SAS hefur þegar lækkað fargjöld með skrúfuvélum til samkeppni við Loftleiðir. Líklegt má telja, að fargjöld á iangleiðum flugvéla lækki yfirieitt á næstu missirum, lafnvel einnig með þotum. Er þá ný.iu marki náð í flug- sögunni og miklum áfanga að þvi marki að fólk geti al- mennt ferðazt flugleiðis eins og með öðrum farartækjum. Skemmtilegt er að minnast forystu islenzks flugfélags á þessum vettvangi, og hefur það vafalítið flýtt mjög fyrir þessari þróun. Þýzka békasýningin S. 1. föstudag var opnuð vestur-þýzk bókasýning í Reykjavík, og eru þar sýndar nær tvö þúsund þýzkar bækur. Það er vestur-þýzka sendiráðið. bókaforlög og íslenzk- ir aðilar, sem að þessu standa í saineiningu. Slíkar er- lendar bókasýningar eru ætíð miklir aufúsugestir hér i landi, enda eru þær jafnan fjölsóttar, því að íslendinga' hafa ætíð ánægju af að sjá bækur, og samanburður vi? íslenzka bókagerð er lsérdómsríkur. Vestur-þýzka bókasýningin er og sérstaklega velkom- in, vegna þess að Þjóðverjar standa mjög framarlega bókagerð og bókaútgáfu, ekki sízt gerð bóka um tækn og vísindi, en af þeim er auðugastur garður á þessa’’; sýningu, og fátækt íslands af slíkurn bókum mest. Allmörg íslenzk skáldrit hafa vei .'ð þýdd og gefin út á þýzku, og er gaman að skoða þær útgáfur á þessari sýningu. Kennedy-bækur igeta nú fyht stóra bókaiskápa, segja menn. Þa<S mun láta nærri, að fullur tugur bóka um Kennedy forseta hafi komi® út síðustu fjögur árin, flestar hástemmt lof. Síð- asta bókin heitir Maðurlnn og heligisögnin, og er af nokkuð öðrum toga oig gagnrýnni. Höf- undur hennar er Victor Lasky. — Myndin hér til hliðar er úr bókinni og sýnir John Kennedy sem ungling á ferð í Evrópu með Jósep Kennedy föður sín- um. Hún er tekin 1939. ☆ Pétur Eggerz, fastafulltrúi íslands hjá Evrópuráðinu, er hér að stingia íslenzkum minnis peningi, sem ber niynd Jóns Sigurðssonar og áletrun um hann, i blýbauk þann, sem múra á í homstein Malinrétt- indahússins, sem reisa á í Strassbourg á vegum ráðsins. í hornsteínsbauk þennan leggur hver þjóð í ráðinu sinn pening. Athöfn þessi fór fram 18. sept. s. 1. Pétur er til vinstri á mynd- inni hér til hliðiar. Cheddi Jagan heitir forsætis ráðherra Brezku-Guiana, og honum ci mjög í mun að landið hljóti sjálfstæði. Hann gerði sér nýiega ferð til New York á fund U Thants til þess að leita hjálpar S. Þ. og bauðst tll þess að taka við her og setuliði S. Þ. til þess að fylgjast með frelsistökunm, og fall'ist S. Þ. á þetta, býðst Jagan til að neita með öllu rússneskri hjálp í frelsiabaráttunni, en Rússar hafa boðið Jagan rausnarlega fjárhagshjálp til þess að losna úr klóm „heimsveldasinnanna“. Ýmsir teljia, að Jagan hyggist taka sér Castro til fyrirmyndar í tafli sinu. — Hér er Jagan á tali við U Thant. ☆ Pattaralegur en lágvaxinn Kínverji kom til Washington nýlega frá Formósu. Hann heit ir Chlang Ching-kou, er 54 ára og sonur Chiang Kai.sheks mar skálks og einvalds á Formósu. Ching-kou er einn hinn valda- mesti maður á Formósu, yfir- maður leynilögreglunnar og yf irforingi aðgerða gegn komm. únistum á meginlandinu. Chlng kou ræddi við ýmsa ráðiamenn í Washington, þar á meðal Harriman. Flestir telja líklegt að þessi litli Kínverji verði bráðlega eftirmaður hins aldna föður srns. — Hér er Ching-kou á tall viff Harriman. / T í M I N N. briðiudaainn 24 seotember 1963.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.