Tíminn - 05.10.1963, Blaðsíða 2
Ný gerð Gislaved-nælon-
dekkja væntanleg í nóv.
TK-Reykjavík, 4. okt.
HÉR er staddur um þessar
mundir Oíof Ljungqvist, útflutn-
ingsstjóri GisLaved-gúmmíverk-i
smiðjanna í Svíþjóð. Blaðamaður
Tímans átti tal við Ljungqvist og
Gísla Theódórsson, framkvæmda-
sijóra hifreiðadeildar véladeildar
SÍS, en SÍS hefur umboð fyrir
GlsLaved hér á landi. — Gislaved-
verksmiðjurnar eru á vegum
f ænska samvinhusambandsins, —
Kooperativa Forbundet, — ebi af
fjölmörgum verksm'iðjum samtak-
anna.
Verksmiðjurnar bera nafn bæj-
artns þar sem þær eru — þ. e.
Gislaved í Smálöndum, sem er 7
þúsund manna bær. Starfsmenn
verksmiðjanna eru um 1300 tals-
ins og þar eru framleiddar auk
hjólbarðanna, sem eru meginstoð
i rekstri verksmiðjanna. allar gerð
ir gúmmiskófatnaðar, iðnaðar-
gúmmí og plastvörur o. fl. o. fl.
Verksmiðjan framleiðir nú um 2
þúsund hjólbarða á dag af öllum
gerðum og stærðum.
Ljungqvist skýrði svo frá, að
íyrir skömmu befði verið tekin til
notkunar í Gislaved ný hjólbarða-
verksmiðja, sem er algerlega sjálf-
virk viðurkennd af Bandaríkja-
mönnum, sem nýtízkulegasta og
fullkomnasta verksmiðja í heimi.
Þeissar nýju vélasamstæður gefa
mikla möguleika til endurbóta og
nýjunga í hjólbarðagerð og hyggj-
ast Gislaved-verksmiðjurnar nýta
það til hms ýtrasta og binda mikl-
ar vonir við framleiðsluna — eink-
um við nýjungar í gerð nælon-
hjólbarða og snjódekkja.
Ljungqvist, útflutningsstjóri,
sagði að velta verksmiðjanna væri
um 65 milljónir sænskra króna á
ári og þar af um 60% í sölu hjól-
barða. Gislaved flytur út til rúm-
lega 30 þjóðlanda í Evrópu og
Afríku, en messtur er útflutningur-
inn til Norð^rlandanna, Noregs.
Danmerkur, Finnlands og íslands,
en samvinnusamtökin í þessum
löndum annast söluna fyrir Gisla-
ved.
Gísli Theódórsson skýrði svo frá,
að í næsta mánuði væri væntan-
ieg til sambandsins fyrsta sending
in af hinni nýju og endurbættu
gerð nælondekkja úr hinum nýju
velasamstæðum Gislaved. Gísli
sagði, að gæði Gislaved dekkjanna
væru viðurkennd og verðið væri
fylliega sambærilegt við aðrar teg-
undir hjólbarða. Hann sagði, að
samvinna bifreiðadeildarinnar við
Gislaved hefði verið með mjög
.iiiklum ágætum og þetta væri í
sjötta sinn á nokkrum árum, sem
Ljungqvist útflutningsstjóri, væri
nér á ferð til að fylgjast með sölu
dekkjanna og kanna hvernig þau
hefðu reynzt á okkar erfiðu ís-
lenzku vegum — en Gislaved-verk
smiðjumar reyndu að endurbæta
og styrkja dekkin með tilliti til
þeirrar reynslu sem meðal ann-
ars fengist af þeim hér á landi. —
Sagðist Gisli búast við mikilli eft-
irspurn eftir hinni nýju gerð Gisla
ved nælonhjónbarð'a, sem koma til
landsins i næsta mánuði eins og
fyrr sagði.
Ljungqvist, útflutningsstjóri,
veitti blaðinu ýmsar upplýsingar
um sænsku samvinnusamtökin,
sem hafa mjög fjölþætta fram-
leiðslu með höndum. Má segja, að
þau framleiði allt milli himins og
jarðar, og má til gamans nefna
2 heimsþekkt merki: Gustavsberg
postulínið og Luma ljósaperurnar,
svo og að sjálfsögðu Gislaved-hjól-
barðana. Starfsmenn Kooperativa
Forbundet eru um 21 þúsund og
nam saía á framleiðslu samtakanna
2.874 milljónum sænskra króna á
síðasta ári. í Svíþjóð eru starfandi
467 kaupfélög og eru félagsmenn
1.240 þúsund talsins. Um 26% af
matvælasölunni í Svíþjóð er á veg-
um kaupfélaganna.
Olof Ljungqvist, útflutningsstjóri, að athuga einn Gislaved hjólbarðann.
(Ljósm.: Þorvaldur)
Loksins
Ritstjórnargrein Alþýðublaðs
ins í gær heitir: fbúð tll sölu.
Þar er skýrt frá því, livað íbúð-
ra.verðið þýtur nú upp úr öllu
va'Idi cg hvíiíkt kaupæði og
öngþveiti nú ríkir á öllum svið-
um. Áður hafði blaðið sagt skil
merkilega frá því, hvflík gífur-
leg húsnæðisvandræði hrjá nú
þjóðina og hve mjög húsaleiga
h'ækkar. Orðaði blaðið það á
þessa leið: „Menn igreiða ótrú-
iegustu upphæðir fyrir ómerki.
Iegustu íbúðir“. Orðrétt lýsir
Alþýðublaðið svo „hinum
glæsilega árangri viðreisnar-
inniar", svo notað sé orðfærl
Morgunblaðsins:
„Þessi óheppilega þróun
stafar vafalaust af ótta almenn-
ings við gengislækkun. Verð-
lag og kaupgjald hefur hækfc-
að og reynsla síðustu tuttugu
ára segir fólki, að nú séu síð-
ustu forvöfj að kauipa áður en
allt hækkar enn meir. Þess
vegna skapast ný eftirspurn,
fólk selur íbúðir i von um að
komast yfir aðrar eða leigja
meðan það er að Ijúka nýjum
íbúSura. Þannig eykst stóriega
cftirspurn eftir leiguliúsnæði.
VerSbólga í verstu
mynd
Enn fremur segir Alþýðu-
blaðið:
,,Hér er verðbólga í verstu
mynd. Hún setur fólk úr jafn-
vægi, skapar ótta, og allir vilja
gera einhverjar ráðstafanir til
að verja sig — eða græða.
Árangurinn verður, að brask-
arar græða stórfé á,n nokkurr-
ar fyrirhafnar, en unga kyn-
slóðin og efnalítið fólk ber
byngstu byrðarnar. Ástand eins
og þetta hlýtur að vekja hugs-
andi mönnum efa um, að Is-
lendinigar séu hæfir til „frjálsra
viðskipta“ á þessu sviði. Það er
eitthvað bogið við þjóðfélag,
þar sem formaður siamvinnu-
bygginngarfélags talar af ein-
skæru þakklæti og vinsemd um
verðbréfakaup með 30% afföll-
um.
A FORNUM VEGI
„Hannes á horninu"
„Við erum í útsoginu". Al'þ.bl. 29.9.
HANNES MINN! Þú skrlfar hugleið
Ingar um stjórnmál — og fjármál
— I þfisð þitt, og lýsir þar afstöðu
þlnt.í *U vandamála dagsins. Þér
virðist nú asði margt viðsjárvert
og syrta í álinn. Dýrtíðin segir þú
að aukist — og það þannig að við
færumst óðfluga nær hengifluginu.
Og það mætti skilja það svo, að
helmingurinn af hverjum einum
héngi fram af brúninni. Og þú
býst við að allt endi bráðum, og
það með skelfingu. Ósköp og skelf-
ing er að heyra þetta, Hannes
minn.
Þinn fiokkur, Hannes minn, Alþ.fl.
hefur verið í mjög nánu samstarfi
um stjórn þessa lands — eins og
þú velzt, undanfarln 5 ár, við Sjálf-
stæðisfleifekinn. Ást og faðmlög
hafa ekki leynzt fyrir neinum.
Hjónarúmið hefur alltaf verið upp
búið með öllum koddum og svæfl
um hin síðustu fjögur ár, og undan
hjónasænginni hafa komið marg-
víslega útlí'tandi krógar — og fæð-
ingin yfirieitt talin ganga vel og
veizlur haldnar við ýmis tækifæri,
allri útunguninni til lofs og dýrðar.
Þið hafið all'taf verið að segja þjóð
Inni: Við getum með okkar ágætu
stjórnarháttum bætt hag þegnanna.
Við kunnum ráðin. Viðreisnin okk
ar — það er hún sem allt gerir gott
á endanum. Sjáið þið bara til.
í kosningunum sem fram fóru
nú í sumar, sögðuð þið ailt vera
í bezta lagi — aldrei betri fjár-
hagsástæður, — aldrei meiri festa
í athafnalífinu. Allt fer eftir við-
reisnaráætluninni. Þvílík dýrð. —
Kjósið þið okkur áframl — Þlð
sögðuð að Framsóknarflokksmenn
kynnu engin ráð, Kommúnistar
ekki heldur. Það hyski væri allt
tll hópa illgjarnt og vitlaust, og
mikill vandræðalýður.
Með þessum prédikunum tókst
ykkur Alþýðufl.mönnum og Sjálf.
stæðlsmönnum að halda meirihluta
á Alþingi. Þið fenguð það sem þið
báðuð um, og nú stendur ritstjórn
þín föstum fótum á jörð, og ör-
ugg á viðreisnarjötunni, — eða er
það ekki?
NOKKRIR mánuðir eru liðnir síð-
an þetta gerðist. Ráðherrar hafa
notið sumarsins innanlands og utan
— eins og vera ber. Bæði siglt í
prömmum suður um sund og höf
Evrópu, — eða flogið á fullrl ferð
og kloflð háloftln guði og mönn-
um tjl dýrðar.
Ekki virðist nú mjög mlkið að
á þessu heimili, ef dæma skai eftir
þessu. En Hannes minn, það virðist
margt mjög skrýtið í veröldinni.
Til dæmis það, að seinnipartinn i
sumar virðast sumir menn hafa
verið tilkvaddir eða líða eins konar
píslarvætti, — þú ert einn af þeim
— þú skrifar eins og ekki sé allt
með felldu með NÝSKÖPUNINA
— fjármálalíf okkar og allar kring
umstæður. Þú berð þér á brjóst
og hrópar og kveinar, og jafnvel
æpir. Og nú ertu farinn að sjá
allt okkar ráð i því ástandi, að
engu er Ifkar en að allt sé að far-
ast. Öll okkar fjármálaplön séu að
fara i hina óeðlilegustu farvegi. Og
þetta virðist þér koma allt mjög
á óvartl
Hannes minn, má ég spyrja þlg:
Hvar hefur þú verið. Hefurðu verið
á túr. Hefur aldrei runnið af þér
— þessi 5 ár sem eru síðan að hin
fræga vinstri stjórn fór frá — og
þinn ágæti flokkur, Alþýðuflokkur
inn fór að stjórna með íhaldinu
— og bjarga þjóðinnil!
Lítum til baka.
MEÐ FJÁLGLEGUM orðum — og
yfirlæti og hátíðlegum loforðum
sagðist Alþýðufl.stjórnin, sem
Emil myndaði með stuðningi Sjálf
stæðisflokksins 1958, ætla að stöðva
dýrtíðina. Hann lækkaði laun verka
manna og launafólks yfirleitt um
700 til 900 krónur á mánuði — til
öryggis um endanlega stöðvun verð
bólgu. Það var það sem vinstri
stjórninni var neitað um á Alþýðu
samb.þingi. En forsætisráðherra
Alþýðufl. lét síðar taka með lög.
gjöf. Áfram var siglt með fullum
seglum. Samningar um nýja ríkis
stjórn fóru fram. Ólafur Thors tók
við stjórnartaumunum. Alþýðufl.
varð þá til fulls kjölturakki í fangi
íhaldsins — og hefur verið það
síðan. Viðreisnin var sett á laggirn
ar i verki. Þá var framkvæmd hln
mesta gengislækkun sem sögur
fara af. Vextir hækkaðir, svo eng
in dæmi voru með annað hliðstætt.
Útlán takmörkuð fyrlr efnalítið
fólk. Erlendar vörur stórhækkuðu
— opinber gjöld sömuleiðisi. —
Allar rekstrarvörur nærri tvöföld
uðust í verðl. Gjöld til rikis- og
bæja hækkuöu. Dýrtiðin steig sitt
'fyrsta skref, — og það gerði rikis
stjórnin sjálf — „Viðreisnarstjórn
in".
Fögur var fyrsta gangan. Verka
lýðurinn allur gerði ekkert um
stund, — beið átekta og sá hvert
stefndi. Kaupgjald stóð í stað. —
Árið leið, verkafólk vildi þá ofur-
lítið rétta hlut sinn. Strax var sam
ið yfirleitt um 10% hækkun á
kaupi, með aðstoð samvinnufélag-
anna, eins og kunnugt er. Viðreisn
arstjórnin var ekki sein á sér, —
felldi aftur gengið um allt að 12%.
Áfram var haldið, — og nú lék
Framhald á 13 síðu ”
Suorðreisnin
Þessum málum verður afí
koma betur fyrir. AH vísu hef-
ur enginn getaH sýnt fram á,
hvernig ríkisstjórnin gat hindr-
a3 þá verðbólgu, sem skollin
er yfir. En það er alls ekki víst,
aff hún leiði til gengisbreyting-
ar. Fleiri leiðir koma L1 .greina,
til dæmis sú, sem farin var
1959.“
Loks kom að því að Alþýðu-
blaðið viðurkennir, að „viðreisn
in“ hafi verið endaleysa o.g sé
farin „að vekja hugsandi mönn-
um efa“. Jafnframt viðurkennir
blaðið hreinlega, að rikisstjórn
in hafi enga stjórn á málunum
og hafi engin úrræði átt til að
„hindra þá verðbólgu, sem
skollin er yfir“.
Þá tekur blaðið hraustlega
undir við Tímann um að eðli
„viðreisnarinnar" sé það, „að
braskarar græða stórfé án nokk-
urrar fyrirhafnar, en uniga kyn-
rióðin og efnalítið fóik ber
þyngstu byrðarnar“.
Það var mikið a^ þeir viður-
kenndu þetta að Iokum.
MóSursýki
Leiðari Mbl. í gær er sem
móðursýkiskast. Sýnishorn: —
„Framsóknarflokkurinn er í
dag jafn gersamlega úrræða-
áttu gegn hvers konar viðleitni
Framh á 15 síðu
2
T í M I N N, laugardaginn 5. október 1963.